Dagblaðið - 20.08.1979, Page 7
DAGBLADID. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979.
7
NEWYORK:
ISLENZKU DIPLÓMATARNIR
LEGGJA ALLTAF RÉTT
eða næstum því
íslenzkir diplómatar í New York
eru með þeim þægilegustu við að eiga
þegar kemur að því að leggja bilum
sínum í stórborginni, að sögn þess
fulltrúa borgarinnar sem annast sam-
skiptin við Sameinuðu þjóðirnar og
erlenda sendimenn.
íslenzku diplómatarnir gæta þess
yfirleitt mjög vendilega hvar þeir
leggja bílum sínum, að sögn fulltrú-
ans, Gillians Sörensens, í viðtali við
New York Times nýlega.
Það hefur löngum verið til vand-
ræða í New York hversu hirðulausir
diplómatar eru um að leggja bílum
sínum á löglegum stöðum. Sér-
staklega eru Rússar frægir að
endemum fyrir að láta sem þeir viti
ekki ' til hvers stöðumælar eru
notaðir, og vísa síðan til
diplómatískrar „friðhelgi” sinnar í
stað þess að borga sektirnar.
Meðal „hinna beztu”, að sögn
Sörensens, eru auk íslendinga,
diplómatar frá Malawai, Djibouti,
Hondúras, Paráguay, Chile og Kína.
-ÓV.
Flugfélagið Ernir á ísafirði:
„GETUM TEKIÐ AÐ
OKKURHLUTA
FLUGGÆZLUNNAR"
myndi spara ríkinu stórfé ef hluti
landhdgisgæzlunnar færi fram á ísafirði
„Það hefur verið minnzt á það að
við tækjum að okkur hluta af land-
helgisgæzlufluginu,” sagði Hörður
Guðmundsson eigandi flugfélagsins
Arna, er blaðamaður ræddi við hann á
ísafirði nýverið.
„Megnið af togaraflotanum er oft
steinsnar héðan. Það myndi spara
ríkinu stórútgjöld vegna minni elds-
neytiseyðslu. Vilji ráðamanna er fyrir
slíkri landhelgisgæzlu, en dómsmála-
ráðherra sjálfur hefur rekið sig á veggi
landhelgisforkólfanna í þessu máli.
Þeir standa eins og staðir tréhestar.”
Flugfélagið Ernir á Isafirði heldu -
-uppi reglubundnu áætlunar- og póst
flugi á þéttbýlisstaði á Vestfjörðum.
auk sjúkraflugs, en leitar á fleiri mið o;;
þá hefur landhelgisgæzluflug verio
nefnt, en enn sem komið er með litlum
árangri, eins og áður er nefnt.
Félagið á tvær tveggja hreyfU
vélar, sex sæta Piper Aztec vél og 10
sæta Islandervél. Á síðasta ári flutri
félagið tæplega 3 þúsund farþega.
Sjúkraflug er ríkur þáttur í starf-
seminni, en á sl. ári fór félagið 71
sinnum í sjúkraflutninga og töluver 5
Skattar bankastjóranna skoðaðir:
Hálfdán Ingólfsson flugmaður Arna við islanuervel telagsins. Litla myndin er af Herði Guðmundssyni, eiganda fyrir-
tækisins. DB-myndir: JH.
NORDALFREMSTUR
MEÐAL JAFNINGJA
Jóhannes Nordal er fremstur meðal
jafningja þegar skattar bankastjóranna
í Reykjavík eru kaunaðir. Hann greiðir
tæplega 5,8milljóniri opinber gjöld í ár.
Ekki tókst að hafa upp á sköttum
Stefáns Hilmarssonar, bankastjóra
Búnaðarbankans, þar sem hann hefur
lögheimili í Hveragerði, og búið var að
loka hjá embætti sýslumannsins í Ár-
nessýslu þegar sú staðreynd varð undir-
rituðum ljós.
Eins og talan sýnir þá eru flestir
bankastjóranna með rúma milljón i út-
svar þannig að tekjur þeirra flestra
ættu aðvera um lOmilljónir.
Bankastjórar Seðlabankans hafa
vinninginn þegar bankarnir eru bornir
saman hvað varðar skattgreiðslur
bankastjóranna. Ekki munar þó miklu
og einkennist listinn einkum af því
jafnræði sem er með bankastjórunum í
skattgreiðslum.
-GAJ-
Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðla-
bankans, greiðir hæsta skatta af
bankastjórunum.
LANDSBANKINN Tckjusk. Eignarsk. Útsvar Barnab. Samtals
Björgvin Vilmundarson 2.592.478 469.140 1.069.200 100.660 4.243.049
Helgi Bergs 2.837.706 149.112 1.011.700 0 4.198.787
Jónas Haralz SEÐLABANKINN 3.477.591 81.894 1.093.900 0 4.873.924
Davíð Ólafsson 3.353.715 294.697 1.080.300 0 4.943.058
Guðmundur Hjartarson 3.340.736 582.620 1.094.300 0 5.265.098
Jóhannes Nordal SAMVINNUBANKINN 3.793.923 640.263 1.340.600 251.646 5.792.573
Kristleifur Jónsson 2.910.375 111.588 1.016.400 0 4.231.509
Pétur Erlendsson VERZLUNARBANKINN 1.677.872 58.660 748.000 0 2.634.216
Höskuldur Ólafsson 2.869.218 332.233 1.057.400 100.660 4.368.711
Kristján Oddsson IÐNAÐARBANKINN 2.430.171 185.023 972.600 0 3.780.063
Bragi Hannesson 3.280.995 210.100 1.155.777 100.660 4.848.827
Pétur Sæmundsen ÚTVEGSBANKINN 3.867.805 284.226 1.260.000 0 5.666.291
Ármann Jakobsson 2.752.967 0 915.100 0 3.848.414
Bjarni Guöbjörnsson 3.630.354 174.346 1.134.800 0 5.165.000
Jónas Rafnar BÚNAÐARBANKINN 2.734.888 261.186 1.023.600 0 4.222.416
Magnús Jónsson 3.636.818 308.322 1.140.100 0 5.306.662
Þórhallur Tryggvason ALÞÝÐUBANKINN 3.147.018 232.813 1.070.100 0 4.661.743
Stefán Gunnarsson 3.056.421 22.725 1.234.400 251.646 4.309.491
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Slmi 15105
aukning hefur orðið í þessum
flutningum í ár. Félagið stundar
sjúkraflug af öllum Vestfjarðakjálkan-
um, til Reykjavikur og ísafjarðar.
Þessi þjónusta sparar bæði lækna og
sérfræðinga.
Að sögn Harðar Guðmundssonar
hélt félagið uppi áætlun inn í Djúp
fjóra mánuði í vor og sumar. Það varð
þó að hætta við flugið vegna þess að
tap var á því. „Ég vonast þó til þess að
hægt verði að taka upp þetta flug á ný
þegar forsendur breytast,” sagði
Hörður. „Félagið þyrfti að fá ákveðna
upphæð frá ríkinu til þess að flugið
stæði undir sér. Nefna má að Djúp-
báturinn fær 80 milljónir kr. á ári í
styrk frá ríkinu, en við gætum flutt
alla farþega úr Djúpinu fyrir 6
milljónir króna á ári.
Allar hreppsnefndir i L fjarðardjúpi
eru inn á því að þetta vciði gert. Væri
einni ferð Djúpbátsins í mánuði sleppt
gæti það greitt allan hallann af
fluginu. Það þýddi því ekki aukinn
kostnað fyrir ríkið.”
-JH.
Skóverzl. Þórðar Pétvr™'"'nv
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.
Noppy
Heilsubótartajjian
gefur yður ótal möguleika til notkunar, eru góðar fyrir heilsu yðar, þœr má
notaheima, í sundlaugunum, ígufubaði, ígarðinum, á ströndinni o.s.frv.
Töfflurnar eru léttar og laga sig eftir fætinum, örva blóð-
rásina og auka velKðan, þola olíur og fitu, auðvelt að
þrífa þær.
Fáanlegar í 3 Irtum: Gult, rautt, blátt
Stærðirnr. 33 - 46 ,, , .
Verð kr. 4.200.-
POSTSENDUM