Dagblaðið - 20.08.1979, Side 13

Dagblaðið - 20.08.1979, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979. ,3 ■ ................................. ...................... .......................... - 111 -............................................ \sólbaöi á ísafiröi: ÍVONUMUT Sólin hefur verið örlát við Sunnlendinga undanfarið, enda hafa þeir sem hafa haft tækifæri til legið sem mest I sólbaði. Sunnlendingar eiga því að venjast að sólin sé mest norðan til á landinu að sumri til, en stöku sinnum snýst þetta við. Aðrir staðir eru þó ekki alveg afskiptir hvað sólina snertir. Sól skein í heiði er blaðamaður var á ferð á ísafirði nýlega og logn var, svo sem oft er á ísa- firði. Þá var heldur ekki að því að spyrja að menn tóku til við sólböðun. í einum húsagarðinum hitti blaðamaður þau Friðgerði, Guðríði og Guðmund, þar sem þau meðtóku sólargeislana i þeirri von að öðlast lit. Þau sögðu að frekar litið hefði farið fyrir góða veðrinu i sumar, en það væri notað þegar það kæmi. DB-mynd JH Amerískir rithöfundar uppgötva SJÓNVARPSBODM frá JAPAN W. J >■ V *, .. Ódýrasta á markaðnum Útvarp með 12 watta magnara og 4 bylgjum, MW FM LW SW. Kassettusegulband fyrir Normal og Cr Oi kassettur. Innbyggðir mikrafónar. 2 hátalarar 5 !4 tommur hver. Tækið er bæði fyrir straumog rafhlöðurog \ vegur aðeins 5,1 kg. með ' .. rafhlöðum. Crane, Ernest Hemingway, Mailer og Joseph Heller. En eins og einhver gagnrýnandinn komst að orði, þá er það í raun álika vafasamt að kalla „Goingafter Cacciato” bók um stríð eins og að kalla „Moby Dick” bók um hvalveiðar. O’Brien hefur fyrir einkunnarorð þau ummæli breska rithöfundarins Siegfried Sassoon að „hermenn séu draumóramennn” og þessi orð segja okkur talsvert um hið draumkennda, allt að því súrrealíska andrúmsloft er ríkir í bókinni. Hún segir frá einu litlu herfylki í Vietnam, en í því er drengstaulinn Cacciato sem allt í einu verður þreyttur á hernaði og ákveður að labba sig til Parisar, borg lífsgleði og friðar. Herfylkið eltir hann, fyrst til að koma fyrir hann vitinu, síðan til að draga hann fyrir rétt og loks eins og dáleiddir. Stríðið sjálft er í bakgrunn- inum, í huga hermannanna og i bak- skotum („flashbacks”). Hræðsla þeirra, vantrú á málstaðinn, hug- rekki, kímnigáfa og þrautseigja eru gefin til kynna í hálfkveðnum vísum, — óbeint, en þó af slíku öryggi að unun er að lesa. Bókin verður eins konar dæmisaga um stríð, um her- menn allra tíma og viðbrögð þeirra. En í ofanálag er O’Brien að snúa á lesandann, því þegar á líður er ekki IjóM hvort ferðalagið til Parísar er raunverulegt eða einungis hugar- fóstur eins óbreytts soldáta, Paul Berlin að nafni. Það segir sig sjálft að Vietnam stríðið á eftir að verða mönnum uppspretta margra bóka, ef ekki bókmennta, — hér mætti nefna „Dispatches” eftir Michael Herr, — en ólíklegt þykir mér að menn muni komast betur frá þeim .hildarleik en Tim O’Brien gerir. Um John Irvingog Tim O’Brien Kyntruf lað f ólk i jm Going after Cacciato eftir Tim O’Brien. legu plani og byggja á mótaðri lífs- skoðun? Ég bara spyr. í bók Tim O’Briens eru þó fleiri haldreipi, en það eina sem þessar tvær bækur eiga sameiginlegt er hið þjála og yddaða mál. Að elta Cacciato O’Brien er tiltölulega ungur maður sem barðist í Victnam fyrir áratug eða svo. Sú reynsla hefur litað öll hans skrif síðan, en O’Brien vakti .fyrst á sér athygli fyrir bók sem hét „If I die in a combat zone”, ljóð- ræna og tregablandna sögu, þar sem fjallað er um tilfinningar hins óbreytta hermanns í stríði. „Going after Cacciato” mundi víst kallast „stríðsskáldsaga” og er að því leyti í góðum félagsskap bóka eftir Stephen í millitíðinni skrifar Jenny ævisögu sína og verður átrúnaðargoð rauð- sokka, kynskiptinga og kyntruflaðs fólks almennt og inn í þessa fjöl- skrúðugu mynd koma svo ýmiss konar ofstækismenn, fótboltaleikar- ar, morðingjar, skógarbirnir o.m.fl. Margir furðulegir atburðir gerast og ekki skal spilla fyrir lesendum með því að lýsa bókinni frekar. Irving lætur vaða á súðum og bókin er allt í senn, meinfyndin, sorgleg, fjar- stæðukennd og raunsæ og höfundur er fyrir alla muni lipur höfundur sem skrifar agað og gott mál. En eftir að hafa spáð í þennan gnægtarbrunn, þá liggur við að maður sé jafnnær um tilganginn. Bókin er ríkuleg skemmtun, á því er enginn vafi, en verður rithöfundur ekki að vinna eftir einhverju siðferði- John Irving. furðuraunsæið Það virðist ljóst af þeim skáldsög- um sem bandarískir rithöfundar senda nú frá sér og fjallað er um í gagnrýni, að tími alls kyns einkan- legra tilrauna með mál og ytra byrði skáldsögunnar sé nú á enda, a.m.k. að sinni. Fjallað er fremur stuttara- lega um verk manna sem áður þóttu verðugir spaklegra langhunda i bóka- blaði N.Y. Times, þ.á m. Donald Barthelme, Thomas Pynchon, William Glass, John Barth o.fl. og hafa sumir meira að segja hafið skot- hríð með kanónum á víglínur slíkra höfunda. Einna mesta athygli hafa vakið greinar og bækur rithöfundar- ins John Gardner (höfundur Grendel sem Þorsteinn frá Hamri þýddi af snilld og las í útvarp . . .) sem skorið hefur upp herör gegn tilraunabók- menntum sem hann segir úr sér gengnar og ómóralskar. Ekki allt sem sýnist Þeir sem orðð hafa fyrir skeytum hans hafa svo svarað fullum hálsi. En Gardner virðist óneitanlega endur- spegla viðhorf ansi margra í bók- menntaheiminum bandaríska, ef marka má blöð og timarit þar í landi undanfarna mánuði. Hvers konar skáldsögur skyldu menn svo skrifa í staðinn? Jú, ætli það séu ekki sögur í svipuðum bún- ingi og hafa verið skrifaðar frá upp- hafi, — með samhangandi sögu- þræði, holdugum persónum og hefð- bundinni stígandi, — þótt inntakið sé af þessum áratug. Þó er ekki allt sem sýnist hvað snertir útlit þessara bóka. Frásagnarmátinn er gjarnan ofur venjulegur og laus við allar ýkjur en frásögnin sjálf getur verið stórfurðu- leg. Hafa sumir kennt um áhrifum hins suður-ameríska „furðu-raun- sæis” eins og það kemur fram t.d. i bók Marques, Hundrað ára einsemd. Þar rennur blóð skyndilega eftir götum og gamlar konur svífa í loft upp eins og ekkert væri eðlilegra. Enginn nýgræðingur Slíkir taktar kunna að hafa sett svip á tvær nýlegar verðlaunaskáld- sögur og metsölubækur bandarískar, — „The world according to Garp” eftir John Irving og „Going after Cacciato” eftir Tim O’Brien, — í mismunandi mæli þó. Irving er ekki nýgræðingur í kúnstinni, hefur ritað þrjár aðrar skáldsögur, en engin þeirra hefur náð svipuðum vinsæld- um og „Garp”. Þó ber að taka með í reikninginn að útgefendur þeir sem sendu bókina á pappírskiljumarkað hafa sjaldnast hamast eins mikið við að auglýsa eitt ritverk. í New York var hún boðin til sölu með þrenns konar kápum sl. vor og alls staðar mátti sjá plaköt og borða með áletruninni „Garp is wonderful”. Flestir rithöfundar eiga sér ein- hvers konar uppáhalds hugarheim sem þeir byggja á er þeir skrifa bækur sínar. John Irving virðist ein- kennilega samsettur náungi sem ein- hvern tímann hefur dvalið í Vínar- borg, hefur dálæti á dýragörðum og dýrum, sérstaklega skógarbjörnum og nú skrifar hann og kennir hvort tveggja, bókmenntir og grísk-róm- verska glímu við skóla í Vermont. Lamaður getur barn Þessi lífsreynsla kemur sterklega fram í öllúm skáldsögum hans til þessa, þ.á m. „Garp”. Bækur hans fjalla nefnilega um unga menn, amer- íska eða austurríska, dvöl þeirra og ævintýri í Vínarborg og feril þeirra í Bandaríkjunum, þar sem þeir skrifa fantasíur um skógarbirni og kannski slavneska hryðjuverkamenn, kenna bókmenntir og stunda grísk-róm- verska glímu. í „Garp” eru þó ýmsar nýjar hugmyndir reifaðar, þ.á m. kvenréttindabaráttan. Jenny er sómakær hjúkrunarkona af góðum ættum og hún er aldrei við karlmann kennd utan einu sinni, er hún að- stoðar lamaðan hermann við að geta sér barn, en hann er ósjálfbjarga og getur ekki sagt annað en „garp”. Hún eignast síðan son er hún nefnir Garp og um lifshlaup hans er bókin. Garp vex úr grasi, býr um tima í Vínarborg þar sem hann stundar bæði nætur- og menningarlíf, snýr síðan heim og gerist/rithöfundur,, heimilisfaðir og glímumaður. Bók menntir

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.