Dagblaðið - 20.08.1979, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979.
14
(í
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Gústaf Baldvinsson (sést ekki á myndinni) hefur skorað fyrra mark Eyjamanna og vonbrigði þeirra Sigurðar Haralds- '
sonar og Grims Sæmundsen leyna sér ekki. DB-mynd Ragnar Sigurjónsson.
Aftur unnu Eyja-
menn Val öruggt
—sigrudu2-0 íEyjum fgær ogopnuðu 1. deildina uppágáttáný
Petur skoraði
fyrir Feyenoord
—þegar 1. deildin hófst í Hollandi f gær
„Nei, blessaður vertu — þetta var lé-
legur leikur hjá okkur í gær, a.m.k. var
ég engan veginn ánægður með hann,”
sagði Pétur Pétursson er við höfðum
samband við hann í morgun en
kcppnistímabilið hófst í Hollandi í gær
og Feyenoord vann sinn fyrsta leik, 2-
0, gegn NAC Breda og það var enginn
annar en Pétur sjálfur sem skoraði síð-
ara mark Feyenoord. ,,Fyrra markið
var sjálfsmark hjá NAC og þaö síðara
tókst mér að skora,” sagði Pétur og var
að vanda hógvær og ekkert fyrir það að
gorta af afreki sínu. „Það voru um
36.000 manns á vellinum í gær og byrj-
unin lofar góðu hjá okkur, hvað svo
sem veröur í vetur.”
— Nú skoraðir þú gegn Liverpool
fyrir skömmu. Hvernig er að spila gegn
þeim?
„Það var mjög gaman að leika gegn
þeim og við vorum virkilega óheppnir
að vinna ekki leikinn — möguleikarnir
voru fyrir hendi,” sagði Pétur. „Við
leikum við NEC Nijmegen á miðviku-
dag og síðan leikum við gegn PSV á
laugardaginn kemur á útivelli.”
Úrslit í Hollandi í gær urðu þessi:
Roda — Twente 3-0
Feyenoord — PEC Zwolle 2-0
Utrecht — NEC Nijmegen 3-1
AZ ’67 — PSV Eindhoven 2-1
Haarlem — Maastricht 2-2
Vitesse Amhem — Haag 1-0
Go Ahead — Sparta 1-0
NAC Breda — Excelsior 1-1
Willemll — Ajax 1-3
— Hefur eitthvað verið rætt við þig
um landsleikina í haust?
„Nei, KSÍ hefur ekkert haft sam-
band við mig varðandi leikina og ég
veit ekkert hvað úr þessu verður en ætti
að komast ef leikir Feyenoord stangast
ekki á við landsleikina,” sagði Pétur i
lokin og bað fyrir kveðju heim. -SSv.
Njarðvfltvann
Njarðvíkingar sigruðu í fyrsta körfu-
knattleiksmótinu sem haldið var utan-
húss er þeir lögðu KR 89-65 í úrslitaleik
mótsins. Varð hann reyndar að fara
fram innanhúss sökum úrhellisrigning-
ar. Allir leikirnir á laugardag urðu
einnig að fara fram innanhúss vegna
veöurs. Það voru því aðeins leiknir
tveir leikir utanhúss i öllu mótinu. Það
voru leikirnir um 3. og 5. sætið. Vaiur
vann Ármann og hlaut 3. sætið og B-liö
Njarðvíkur burstaði Grindavík og
tryggði sér 5. sætið f mótinu.
íslandsmet
Hugi Harðarson, sundkappinn frá
Selfossi, setti nýtt íslandsmet í 100
metra baksundi á NM í gær er hann
synti vegalengdina á 1:05,96 mín. Hugi
átti sjálfur eldra metið.
Eyjamenn settu heldur betur fótinn
fyrir Valsmenn í hinni geysihörðu bar-
áttu um 1. deildartitilinn þegar ÍBV
sigraði Val í Eyjum í gærdag, 2—0.
Öruggur og sanngjarn sigur ÍBV, sem
opnar allt upp á gátt í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn í ár og möguleikar
Eyjamanna eru vissulega fyrir hendi.
Staðan í 1. deild eftir leiki helgarinn
ar cr nú þessi: V ,1.,- 14 8 3 3 27-14 19
íli. 14 7 4 3 23-11 18
Akiancs 14 8 2 4 24-15 18
KR 14 7 3 4 22-20 17
Kcflavik 14 5 5 4 19-16 15
Fram 14 3 7 4 22-20 13
Víkingur 14 5 3 6 20-20 13
Þróttur 14 5 3 6 18-24 13
KA 14 3 3 8 17-30 9
Haukar 14 3 1 10 10-32 5
Staöan i 2. deildinni eftir leiki helgar-
innar er nú bessi: FH 15 11 2 2 47-16 24
Breiðablik 14 10 2 2 32-9 22
Fylkir 14 7 2 5 25-18 16
Selfoss 15 6 3 6 21-17 15
Þróttur 14 6 2 6 11-14 14
Þór 15 6 2 7 17-21 14
Austri 15 4 4 7 14-24 12
ísafjöröur 14 3 5 6 19-33 11
Rcynir 15 3 4 8 12-26 10
Magni 15 3 2 10 15-36 8
Liðið leikur á þriðjudag gegn Haukum
og sigur í þeim leik myndi færa ÍBV
toppsætið í deildinni.
Eyjamenn léku vissulega vel. Liðið
barðist sem ein heild allan tímann og
með ódrepandi baráttu tókst þeim að
brjóta Val á bak aftur. Leikurinn fór
fram á grasvellinum við Hástein í mjög
góðu veðri í gærdag. Nokkur vestan-
gola og léku Eyjamenn undan henni í
fyrri hálfleik. Annars var völlurinn
nokkuð háll eftir rigningu fyrr um dag-
inn og gekk leikmönnum nokkuð illa
að fóta sig á hálum vellinum.
Eyjaskeggjar voru öllu ákveðnari í
byrjun og náði strax betri tökum á
miðjunni. Fátt var þó um færi fyrr en á
21. mínútu. Þá sendi Óskar Valtýsson
góða sendingu fyrir markið beint á
fætur Gústafs Baldvinssonar, sem af-
greiddi knöttinn í netið með hörkuskoti
út við stöngina, 1—0, án þess að Sig-
urður Haraldsson næði að verja þrátt
fyrir heiðarlega tilraun. ÍBV hafði þvi
náð forystunni og fyrsta færi Vals-
manna kom ekki fyrr en á 39. mínútu
leiksins en þá léku Óli Dan og Albert
Guðmundsson sig laglega í gegnum
vörnina en Albert hitti ekki knöttinn í
dauðafæri.
Valsmenn voru heldur að hressast og
aðeins mínútu síðar bjargaði Ársæll á
ævintýralegan hátt föstum skalla frá
Magnúsi Bergs af tveggja metra færi.
Eftir þetta tókst þó hvorugu liðinu að
skora fyrir hlé. Strax á 47. mínútu
fengu Eyjamenn gullið tækifæri til að
bæta við marki er Tómas Pálsson
prjónaði sig í gegn og komst í gott færi.
En í stað þess að reyna markskot
renndi hann knettinum út á Gústaf
Baidvinsson sem hitti ekki boltann i
dauðafæri.
Á 53. minútu gerðu Eyjamenn svo út
um leikinn. Tómas Pálsson átti þá góða'
sendingu á Ómar Jóhannsson, sem
sendi áfram á Óskar Valtýsson, sem
öllum á óvart var í dauðafæri á mark-
teig Vals. Eftirleikurinn varð auðveldur
og af miklu öryggi renndi hann knettin-
um framhjá Sigurði Haraldssyni, 2—0.
Valsmenn horfðu hver á annan og
skildu ekki neitt í neinu en hinir fjöl-
mörgu áhorfendur og leikmenn Eyja-
manna fögnuðu mjög. Skyldi ÍBV tak-
ast að vinna Val tvöfalt í sumar?
En við markið var eins og Valsmenn
vöknuðu af værum blundi og þeir sóttu
töluvert og á 60. mínútu fengu þeir sitt
hættulegasta færi er Háifdán Örlygs-
son átti hörkuskot að marki sem Ár-
sæll varði glæsilega. Valsmenn náðu
nokkuð þungri pressu á ÍBV-markið en
tókst ekki að brjóta niður vörn Eyja-
manna og sigurinn var aldrei í hættu.
Áhorfendur voru því ekki svo lítið
ánægðir með strákana sína þegar góður
dómari leiksins, Eysteinn Guðmunds-
son, flautaði til marks um að leiknum
væri lokið. Hjá fBV voru þeir beztir,
Ársæll í markinu, sem varði frábær-
lega, Örn Óskarsson, sem var geysi-
sterkur í vörninni, Sveinn Sveinsson,
sem vafalítið var bezti maður vallarins
og hafði hreint ótrúlega yfirferð. Þá
var Tómas Pálsson að vanda góður
frammi.
Erfitt er að gera upp á milli Vals-
mannanna. Helzt var það Magnús
Bergs sem eitthvað reyndi en annars
stóð enginn upp úr meðalmennskunni
og voru Valsmenn daufir í þessum leik.
Sigur ÍBV var samt sem áður geysi-
lega öruggur og með slíku áframhaldi
ættu Eyjamenn hæglega að geta unnið
íslandsmeistaratitilinn.
—FÓV.
Firmakeppni KR
í knattspyrnu utanhúss 1979
Hin árlega firmakeppni knattspyrnudeildar KR verður haldin í byrjun september nk. Helgina l — ’
2. september verður keppt í riðlum, en úrslitakeppnin verður viku síðar. Keppt er utanhúss. Skulu 7
leikmenn vera í hverju liði auk 3 skiptimanna. Leiktími er 2x 15 mín. Þátttökugjald er kr. 30.000.
Þátttöku skal tilkynna fyrir 24. ágúst hjá framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, Guðjóni B.
Hilmarssyni, sími 18177, eftir hádegi, eða í símum 25960 (Kristinn Jónsson) og 12388 (Haukur
Hjaltason). Þessir aðilar gefa jafnframt nánari upplýsingar um keppnina.
Knattspyrnudeild KR
Tíu menn Celtic
náðu jöf nu
—gegn Rangers á Ibrox á laugardag
Skozku meistararnir Celtic komust
hcldur betur í krappann dans á Ibrox á
laugardaginn er Glasgowrisarnir Celtic
og Rangers léku saman. Þegar aðeins 6
mínútur voru til leiksloka leiddi Rang-
ers 2—0 og leikmenn Celtic voru aðeins
10 talsins, þar sem Roy Aitken var
vikið af leikvelli á 35. mínútu fyrir Ijótt
brot á Ally Dawson. Þrátt fyrir að vera
manni færri börðust leikmenn Celtic,
Jóhannes var ekki með, eins og Ijón í
leiknum og þeim tókst að jafna metin
fyrir leikslok. Fyrst skoraði Aalan
Sneddon og siðan Tom McAdam.
Danny McGrain var langbezti maður
vallarins og þessi frábæri bakvörður er
nú alveg búinn að ná sér af þeim
meiðslum er hafa gert honum lífið leitt
undanfarna tvo vetur.
Úrslit urðu annars þessi í Skotlandi:
Rangers—Celtic 2—2
Aberdeen—Hibernian 3—0
Dundee—St. Mirren 4—1
Kilmarnock—DundeeU 1—0
Morton—Dartick 2—1
Eftir þessa leiki er þar með tveimur
umferðum lokið i Skotlandi og staðan
þarernúþannig:
Rangers 2 110 5—3 3
Celtic 2 110 5—4 3
Kilmarnock 2 110 3—2 3
Aberdeen 2 10 17—12
DundeeUtd. 2 10 13 12
Dundee 2 10 1 4—4 2
Morton 2 10 1 4—4 2
Partick 2 10 1 2—2 2
St. Mirren 2 0 11 3—6 1
Hibernian 2 0 0 2 1—6 0
-SSv.
KR-dagurinn var haldinn með pompi og pragt i gær á félagssvxðinu við Kapla-
skjólsveg. Þar var margt sér til gamans gert og var mikill Qöldi fólks saman kominn.
Sveinn Jónsson, formaður KR, sagði við DB i gær, að yfir 2000 manns hefði heimsótt
félagið i gæt og vel á annað þúsund manns hefðu komið i kaffi.
Knattspyrna skipaði stærsta sessinn á KR-deginum i gær en auk hennar var boðið
upp á handknattleik, lyftingar, fimleika, badminton o.fl. KR-konur sáu um kaffið að
vanda og gerði það af stökum myndarskap. Bjarnlcifur brá sér í vesturbæinn og
smellti þessari mynd af litlum 5. flokkssnáða sem var að taka við verðlaunum úr hendi
Kristins Jónssonar, formanns knattspyrnudeildar KR. Það er Guðjón Hilmarsson
sem heldur á pattanum og ekki er annað að sjá en að vel fari á með þeim öllum.