Dagblaðið - 20.08.1979, Síða 19

Dagblaðið - 20.08.1979, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 20. AGUST 1979. I íþróttir iþróttir 19 Iþróttir Iþróttir I Rokið réð ferðinni á Akranesi —þeg$r IA sigraði Hauka 1-0 í 1. deild á laugardag Skagamenn sigruðu botniið Hauka 1—0 í ákaflega slökum leik á Akranesi í 1. deild á laugardag. Suð-austan rok var, þegar leikurinn var háður, og i þeirri vindátt er varla hægt að leika knattspyrnu á grasvellinum á Jaðars- bakka. Rokið stendur beint upp á völlinn úr fjörunni. Í fyrri hálfleik skeði bókstaflega ekki neitt — ekki einu sinni atvik, sem hægt var að brosa að. Ekkert marktækifæri en Haukar léku þá und- an vindinum — og reyndar fengu Haukar ekkert' marktækifæri allan leikinn. Um það voru víst allir sam- mála. Skagamenn léku undan vindinum í síðari hálfleik og voru þá heldur líflegra liðið, þó svo þrír fastamenn liðsins léku ekki með, þeir Jón' Alfreðsson, sem var veikur, Matthias Hallgrímsson og Guðjón Þórðarson, sem voru í leikbanni. í þeirra stað léku reyndir kappar, Jón Gunnlaugsson, Kristinn Björnsson og Jón Áskelsson. Eina mark leiksins var skorað á 59. min. Eftir hornspyrnu Kristjáns Ol- geirssonar skallaði Siggi Donna (Sigurður Halldórsson) knöttinn í mark Hauka. Gnæfði yfir varnarmenn. Eftir markið fengu Skagamenn nokkur tækifæri. Örn Bjarnason, markvörður Hauka, sló knöttinn yfir markið eftir gott skot Kristins — og hann gerði enn betur fimm mínútum fyrir leikslok, þegar Árni Sveinsson komst frír að markinu. Bjargaði með hnitmiðuðu úthlaupi. Þ.að er lítið hægt að segja um leik- menn liðanna — þeir verða ekki dæmdiraf þessum leik. -KP- Páll Ólafsson, lengst til hægri, í baráttu við Ólaf Haraldsson ingum að falli. Lengst til vinstri er Helgi Jónsson. en ummæli Ólafs um Pál síðar i leiknum urðu Akureyr- DB-myndir Bjarnleifur. EKKERT NEMA FALL BLASIR VK) KA MEÐ SLÍKUM LEIK —Þróttur sigraði KA1-0 á Laugardalsvelli í 1. deild á laugardag „Þetta er bölvuð kerling — getur ekki neitt — kallaði KA-leikmaðurinn Ólafur Haraldsson og beindi orðum sinum að Páli Ólafssyni, Þrótti. Þetta var i annað sinn i leiknum, sem Ólafur sýndi Páli þessa lítilsvirðingu — og það er ekki hægt að sleppa þessu,” sagði Guðmundur Haraldsson, dómari, eftir leik Þróttar og KA á Laugardalsvelli á laugardag. Hann dæmdi aukaspyrnu á KA rétt utan vítateigs vegna þessara orða Óiafs Haraldssonar. Það var um miðjan hálfleikinn. Óbein aukaspyrna — og leikmenn KA steinsváfu, þegar knettinum var ýtt til Páls Ólafssonar. Hann spymti á markið — knötturinn flaug framhjá leikmönnum KA og lenti efst í markinu, rétt undir slá. Aðalstcinn Jóhannsson átti ekki möguleika að verja. Þetta var eina mark leiksins — geysifallegt mark — og færði Þrótti tvö dýrmæt stig í fall- baráttunni í 1. deild en staðan hjá KA er mjög slæm. Liðið hefur aðeins hlotið níu stig í 14 leikjum. „Þaðereinsgott aðhætta þessu — fá á sig mark eftir slíka endaleysu hjá --------------o------------------ Guðrún Ingólfsdóttir setti í gær nýtt íslandsmet i kúluvarpi — varpaði 13,27 metra á móti í Vík í Mýrdal. Hún átti sjálf eldra metið. dómaranum,” sagði Einar læknir Þór- hallsson eftir leikinn og það var þungt hljóðið í leikmönnum KA. En það þýðir ekki að deila við dómarann — hann ræður — og auðvitað eiga leik- menn ekki að vera að litilsvirða mót- herja sína í leik. Leikurinn á laugardag var afspyrnu- lélegur. Ef nokkuð var verðskuldaði Þróttur þó sigur. Tvivegis tókst varnar- mönnum KA að bjarga á eigin marklínu i leiknum — og varnarleikur KA og markvarzla var oft i molum. Sáralitlu munaði að KA skoraði sjálfsmark en Aðalsteini tókst að bægja hættunni frá á síðustu stundu. Þaðvarrétt undir lok leiksins. Hins vegar er varla hægt að segja að KA hafi fengið marktækifæri í leikn- um. Ólafur markvörður Ólafsson öruggur í marki Þróttar — og fram- herjar KA komust varla nokkurn tímann framhjá hinum sterku miðvörðum Þróttar, Jóhanni Hreiðars- syni og Sverri Einarssyni. Þeir voru beztu menn liðs síns — snjallir leik- menn. Þróttur var án þriggja góðra leikmanna, Ársæls Kristjánssonar, Ágústs Haukssonar og Úlfars Hróars- sonar í þessum þýðingarmikla fallbar- áttuleik. Lið KA var mjög slakt í leiknum — einu mennirnir, sem eitthvað kvað að, voru læknarnir Elmar Geirsson í fyrri hálfleik, og Einar Þórhallsson í þeim síðari. Þeim tókst hins vegar ekki með frammistöðu sinni að lækna deyfðina og drungann í öðrum leikmönnum liðsins. KA sleppur ekki við fallið ef leikmenn liðsins berjast ekki af krafti — leggja sig alla fram. Það gerðu þeir ekki i þessum leik og því fóru þeir tómhentir heim lil Akureyrar á laugar- dag. Sterk sunnan gola gerði leik- mönnum erfitt fyrir- í leiknum en af- sakar þó ekki hina slöku frammistöðu flestra leikmanna liðanna. Þróttur lék undan golunni í fyrri hálfleik — og var heldur skárri. Baráttan þó í lágmarki. Páll Ólafsson skallaði beint í fang Aðalsteins af stuttu færi, Þorgeir Þor- geirsson var klaufi að skora ekki fyrir Þrótt á 20 mín. og Daði Harðarsson enn meiri klaufi á 35. mín. eftir að Sverrir Brynjólfsson hafði opnað vörn KA og gefið á Daða, sem spyrnti yfir á markteig. Ekkert mark í fyrri hálfleikn- um og útlitið var því allgott fyrir leik- menn KA. Þeir höfðu vindinn í s.h. og Halldór Arason, sem hafði verið baráttuglaðastur leikmanna Þróttar í f.h. meiddist rétt undir lok hálfleiksins og lék ekki í þeim síðari. En það kom fljótt i Ijós að lið KA var heillum horfið í þessum leik — og það bætti lítið úr skák þó þeir Jóhann Jakobsson og Óskar Ingimundarson væru settir inn á. Deyfðin allsráðandi. Þróttur fékk færi vegna mistaka Aðalsteins markvarðar, en tvívegis tókst samherjum hans að bjarga á marklínu. Glæsimark Páls gerði svo út um leikinn — Páll átti lagleg tilþrif í leiknum en eins og svo oft áður sá hann litla ástæðu til að vera nokkuð að nota samherja sína. Gunnar Gislason og Eyjólfur Ágútsson, báðir KA, bókaöir, fyrirljót brot. -hsim. íslandsmet Huga á NM Hugi Harðarson, Selfossi, setti nýtt mín. Bjami Björnsson, Ægi, synti íslandsmet í 200 m baksundi á 200 m skriðsund á 2:03,8 mín. og 400 Norðurlandamótinu í Motala í Svi- m skriðsund á4:21,12 mín. þjóð á laugardag. Synti á 2:19,69 Fyrsti meiriháttarsigur TonyJacklin ífimmár Tony Jacklin vann um helgina sina fyrstu meiri háttar golfkeppni í 5 ár er hann sigraði á opna þýzka meistaramótinu, sem fram fór í Frankfurt. Jácklín lék 72 holurnar á 277 höggum — 7 undir pari og var tveimur höggum á undan Antonio Garrido frá Spáni. Jacklin náði forystunni á öðrum hring og hélt henni til loka. Margir héldu að kappinn værí endanlega útbrunninn en svo virðist ekki vcra, a.m.k. lék hann oft á tíðum mjög vel. Margir frægir kappar urðu aftarlega á merínni í þessari keppni, þar á meðal British-Open meistarinn Severiano Ballesteros frá Spáni. Hann lék á 286 höggum. John Fourie frá Englandi lék á 287 og það gerði Dale Heyes einnig. Hitabeltisplöntur Ævintýrasvæði fyriralla fjölskylduna Garðyrkjusýningin að Reykjum er sannkölluð fjölskyldusýning. 100.000 m2 sýningarsvæði, þar af 6000 m2 undir gleri! Kaffiveitingar, hestaleiga, gönguleiðir, gróðurskáli, hitabeltisplöntur, gróður og grænmeti. Grænmetismarkaður og blómavelta Sérstakur grænmetismarkaður opinn allan sýningatímann, auk Grænu Veltunnar - hlutaveltu með blómum, plöntum og grænmeti í vinninga. Velkomin að Reykjum Skoðið og kynnist undraheimi Garðyrkjuskólans. Aðgangseyrir kr. 2000,- Ókeypis fyrir börn innan 12 ára aldurs. Opið daglega kl. 13-21. Laugard. og sunnud. kl. 10-21. Falleg sýning í fogru umhverfi 0% Garöyrkjuskóli ríkisins Reykium Ölfusi -við Hveragerði

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.