Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.08.1979, Qupperneq 29

Dagblaðið - 20.08.1979, Qupperneq 29
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1979. — Umsjón Gunnar Bender EF GRANNT ER SKODAÐ Hallá er eins og bæjarlækur Föstudaginn 3. ágúst á'ti umsjónarmaður þáttarins veiðileyfi í Hallá. Þessi á er rétt hjá Skaga- strönd. Mjög vel hefur veiðzt í ánni. Dæmi eru til þess að menn hafi fengið 11 laxa á dag. Má það teljast mjög gott í ekki stærri á en raun ber vitni. Einn sagði mér að hann hefði verið við veiðar í ánni á síðasta ári og hann hefði keyrt þrisvar sinnum framhjá henni. Hún var eins og bæjarlækur. En mjög gaman er samt að veiða i ánni. Margir skemmtilegir hyljir eru upp um alla á. Undirritaður Að rækta upp fyrir netaveiði Árið 1973 var stofnað í Reykjavík félag um stangaveiði með flugu. Hlaut félagið nafnið Ármenn og segir svo um markmið félagsins: Að sameina sem flesta íslenzka fluguveiðimenn i eitt félag Ul að auka hróður þeirrar iþróttar að veiða vatnafisk á flugu. Að stuðla að því, að íslenzkri náttúru verði ekki spillt með illri umgengni og rányrkju. Að stuðla að því að íslendingum verði jafnan í reynd tryggður arf- Afraksturínn úr Hallá — ellefu punda og fjögurra. DB-Gunnar Bender. fékk tvo laxa 11 punda og 4 punda. Stangaveiðifélag Austur-Húnavatns- sýslu er með ána á leigu. Leyfðar eru tvær stengur i ánni og kostar stöngin 14 þúsund. Fátt umsvör Eins og búast mátti við varð fátt um svör um falsaðar veiðitölur í Hrútafjarðará. Ekkert einasta hljóð hefur komið og mun ekki koma á næstunni. Þögnin mun ríkja áfram. En sögusagnirnar verða á kreiki enn um sinn. Þær verða ekki kveðnar niður nema svar komi úr Húnavatns- sýslu. Þess vegna spyr ég aftur. Geta þær verið réttar? Koma alveg upp „Væri húkk ekki viðhaft í Blöndu væri þar enginn við veiðar.” Þetta sagði norðanmaður við undirritaðan þegar Blanda var til umræðu. Þessi frægasta húkk-á landsins. Enn- fremur sagði hann. „Laxinn kemur alveg upp við yfirborðið og þá sést hann mjög vel. Menn eru með mjög sterkar linur og fiskurinn er dreginn eins og þorskur að landi. Enda eru margir snillingar norðan heiða í húkki,” sagði norðanmaðurinn að lokum. ll ..... borinn forgangsréttur þeirra til íslenzkra landgæða. Strax hófu Ármenn leit að veiðiá sem hægt væri að rækta upp. Varð Kálfá fyrir valinu. Nú, fáum árum seinna, hafa þeir gert stórátak og rækta upp Þjórsá fyrir netaveiði. Veiðin í Þjórsá hefur fjórfaldazt. Og þá er spurningin: Fer öll ræktunin fyrir bý? Á meðan netaveiði í Þjórsá er svona góð er svo til engin veiði í Kálfá, þó þessi gifurlega ræktun sé Ármönnum að þakka. Það var aldrei tilgangurinn hjá Ármönnum að netin tækju allan afraksturinn. Þess vegna ætti strax að draga úr netaveiði í Þjórsá. 10 laxar fyrstu 3 dagana Eitt nýju afkvæmanna hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur er Ártúnsá á Kjalarnesi. Veiði hóst þar l. ágúst og veiddist þar mjög vel fyrstu daga. 10 laxar fyrstu þrjá dagana, sem má teljast mjög gott. Og vonandi á eftir að veiðast vel í ánni i sumar. Þetta er án efa ein athyglis- verðasta áin sem félagið hefur handa félagsmönnum sínum. En áin er þvi miður of köld og á það eftir að sanna sig. Herstöðvaandstæðingar: Mótmæla sovézkri her- setu í Tékkóslóvakíu „Út á við eru Sovétríkin orðin annað af tveimur öflugustu ríkjum heims. Það hefur komið æ betur í ljós á síðari árum að Sovétríkin hafa beitt svipuðum aðferðum og Banda- ríkin í ásókn sinni í völd yfir þjóðum heimsins,” segja Samtök herstöðva- Sndstæðinga í ávarpi sínu í tilefni 21. ágúst. Á morgun eru 11 ár liðin frá innrás Varsjárbandalagsríkja í Tékkóslóvakíu. og síðan hefur sovézkur her setið í landinu. Herstöðvaandstæðingar efna til stuðningsaðgerða við Tékka á innrás- arafmælinu á morgun. Klukkan 17 verður safnazt saman við tékkneska sendiráðið og gengið þaðan fram hjá bandaríska sendiráðinu við Laufás- veg. Þaðan um Austurstræti og stefnt á Sovét-sendiráðið við Garðastræti. Þar hefst útifundur kl. 18.15. Ávörp v_—— verða flutt, lesin ljóð, sungið og fulltrúi miðnefndar samtakanna flytur sovézka sendiherranum boðskap fundarins. -ARH. ✓ Stofii- og hagtæðingarlán i skipasmioaionaoi I samræmi við ákuörðun ríkisstjómar hefur Iðnaðarráðuneytið ákveðið að fela stjóm Iðnlánasjóðs að annast um lánveitingar til stofn- og hgræðingarlána í skipasmíðaiðnaði að upphæð 400 millj. kr. Eftirfarandi meginreglur munu gilda við þessa lánveitingu: Veitt verði stofnlán til skipasmíðastöðva bæði vegna framkvæmda á yfirstandandi ári ogframkvæmda á liðnum árum. Hvað varðarlán vegna fjárfestinga á liðnum árum telurráðuneytið ekki réttað binda það við ákveðin tímamörk heldur meti stjóm Iðnlánasjóðs hve langt skuli gengið íþeim efnum í Ijósi eftirspumareftirlánum þessum og með hliðsjón afalmennum reglum sjóðsins í hliðstæðum tilvikum. 2Veitt verði sérstöklán tilað örva og greiða fyrir hagræðingu í skipasmíðastöðvum. íþvísambúndi erstjóm sjóðsins heimilt aðlánam. a. útákostnað vegna aðkeyptrarþjónustu, vegna skipulagsbreytinga o. fl, enda miði viðkomandi aðgerðirað því að auka framleiðni í viðkomandi fyrirtæki. Lánskjör verða þau sömu og gilda um almenn útlán Iðnlánasjóðs. 4Nauðsynlegt er, að með umsókn fylgi fjárfestingaráætlun fyrirtækisins árið 1980. Hér með er auglýst eftir umsóknum um þessi sérstöku lán til skipasmíðaiðnaðar. Skulu umsóknir berast á eyðublöðum Iðnlánasjóðs til stjómar sjóðsins Lækjargötu 12, Reykjavík, (Iðnaðarbankahúsinu), fyrir 15. sept. n. k. Reykjavík, 13. ágústl979, Iðnlánasjóður Iðnaðarbankinn Lækjargötu 12-101 Reykjavík Sími 20580

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.