Dagblaðið - 20.08.1979, Page 32

Dagblaðið - 20.08.1979, Page 32
Umboð heimsþekktra merkja sveitíimfhitmiig!: Neyddir til að verzla við töskuheildsalana „>að er með ólikindum, hvers konar menn eru að bjóða þessi inn- flutningsleyfi til sölu,” sagði kaup- maöur í stórri verzlun á höfuðborgar- svæðinu í viðtali við DB. Frétta- maður innti hann eftir því, hvort verzlun hans fengi ekki innflutnings- leyfi fyrir kexi, kökum og sælgæti. „Við erum bókstaflega sveltir í þessu tilliti. Við höfum því keypt tals- vert af innflutningsleyfum, sem þess- ir „töskuheildsalar”, sem Dagblaðið nefndi þá alveg réttilega í frétt blaðsins siðastliðinn föstudag, bjóða okkur af og til," sagði verzlunar- stjóri í verzlun, sem er mjög nálægt því að geta kallast stórverzlun i Reykjavik. „Ég er aldeilis hissa á því, hvaða menn það eru, sem koma til mín og panta sælgæti,” sagði sá þriðji, stór- kaupmaður i Reykjavík. Hann er umboðsmaður fyrir heimsþekkt merki í sælgætisframleiðslunni. „Þetta er þeim mun furðulegra, sem við fáum sjálfir mjög sjaldan og þá naumt skömmtuð innflutnings- leyfi fyrir þeirri vöru sem við erum með umboð fyrir,” sagði þessi stór- kaupmaður. Mjög hliðstæða frásögn þeim, sem hér var greint frá, fékk fréttamaður að heyra hjá tveim heildverzlunum með umboð fyrir mjög þekktar og eftirspurðar kextegundir. Flestir sem DB hafði tal af um út- ,ótnMegustumenn” i iriMMöavidskiptum meðkex ogsæ/gæfi hlutun innflutningsleyfa fyrir ofan- greindum vörutegundum, höfðu lesið frétt DB á föstudaginn var. Þar var frá því skýrt að gjaldeyrisnefndin,- sem úthlutar leyfunum, teldi sér óheimilt að skýra frá nöfnum þeirra manna, sem eru svo heppnir að fá leyfin. Það hvíldi bankaleynd yfir þeim upplýsingum. Lýstu þeir allir furðu sinni á því mati nefndarinnar að hjúpa þessi út- hlutunarmál bankaleynd. -BS. Hæfileikakeppnin: UNGUR SONGV- ARISIGRAEM Guðbjörn Elísson sigraði glæsilega i Hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar i gærkvöldi á Hótel Sögu. Hæfileika- keppnin fór af stað aftur í gærkvöldi efdr að hafa verið í tveggja vikna fríi. Magnús Kristjánsson varð númer tvö, en hann flutti revíuvísur. Númer þrjú varð síðan Ásdís Valdimarsdóttir sem söng nokkur létt lög. Sigurvegar- inn kom fram með aðeins tveggja tíma fyrirvara þegar einn forfallaðist. Meðal skemmtiatriða var dansflokk- ur JSB, sýndi hann í gærkvöldi frum- samda dansa um Djáknann á Myrká og Drakúla. Björn R. Einarsson var h'ljómsveitarstjóri í 15 mín. og sigur- vegari frá síðustu hæfileikakeppni, Þór Östensen, spilaði á harmóníku. Sungu gestir með af innlifun. Var fullt hús á Sögu. Sýnir það að hæfileikakeppnin nýtur stöðugra vin- sælda þó sjónvarpið sé komið til sög- unnaránýjanleik. -ELA Norðmenn fresta stöðvun loðnuveiðanna: „Mótaðgerðir nauðsymegar” segir Ólafur Ragnar Grímsson „Ríkisstjórnin hlýtur að hugleiða mótaðgerðir,” sagði Ólafur Ragnar Grimsson alþingismaður, sem á sæti i viðræðuncfndinni um Jan Mayen, i viðtali við DB í morgun. Norðmenn hafa frestað stöðvun loðnuveiða við Jan Mayen, sem taka átti gildi nú um helgina. „Til greina kemur að láta viðræð- urnar ekki fara fram. Þær voru ákveðnar hinn 29. á þeim grundvelli að Norðmenn hættu veiðunum nú. Þá kcmur til greina að minnka þann kvóta sem Norðmenn hafa í þorsk- veiðum hér við land að sama skapi og Norðmenn fara fram yfir í loðnu- veiðunum,” sagði Ólafur Ragnar. „Við þurfum að svara þessu af mikiili alvö.u. Það er nauðsynlegt, áður en setzt yrði við samninga- borðið." „Þeir verða þá að taka við þeim þökkum sem hafa komið þeim mis- skilningi inn hjá Bolle, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, að útfærsla Norð- manna í 200 mílur við Jan Mayen njóti almenns fylgis meðal islenzkra stjórnmálamanna,” sagði Ólafur Ragnar. Bolle lét þau ummæli falla í viðtali i íslenzka sjónvarpinu í gær að hann fagnaði stuðningi íslenzkra stjórnvalda við slíka útfærslu, „Bolle virðist hafa fengið mjög rangar upp- lýsingar hjá íslenzkum ráðamönn- um,” sagði Ólafur. Hann sagði einnig að nú þyrfti að athuga hvort íslendingar ættu að ræða við Sovét- ríkin, Bandarikin og Efnahagsbanda- lagið um Jan Mayen, svo að Norð- menn yrðu ekki einir um túlkun málsins gagnvart þessum aðilum. -HH. TVflUG STULKA LET UFH) í SYÐRI-EMSTRU —var í hópi fólks sem hugðist aka yf ir ána kolmórauða og í vexti Tvitug stúlka, Elisabet Leifsdóttir, Baldursgötu 12 I Keflavik, drukknaði i Syðri-Emstru á laugardaginn en hún var þá í hópi félaga sem komu að ánni i jeppabílum og ætluðu norður yflr. Var þetta á stað þar sem er inn- an við kílómetra i jökulinn en um 13 km ofan og innan við Þórsmörk. Fólkið mun hafa verið í sjö bílum, allt af Suðurnesjum. Er að Syöri- Emstru kom var öllu boðið birginn, þótt áin væri i vexti eftir hita, kolmó- rauð og straumhörð. Að minnsta kosti þrír fyrstu bilarnir voru bundnir saman og lagt í ána. Fyrsti bíllinn, eldri Bronco, fór þegar á kaf og reif hann með sér næsta bíl sem var af sömu gerð og fór hann einnig á kaf. Taugin slitnaði í þriðja bilnum á ár- bakkanum. í fremsta bilnum voru fjórir og komust þrír við illan leik til lands en Elísabet sást hvergi. Tveir voru í næsta bíl og komust þeir einnig til lands eftír kuldalegt árbað. Hjálpar var leitað og kom lögregl- an af Hvolsvelli og björgunarsveitin' þaðan sem var að æfingum í Þórs- mörk fljótt á vettvang. Var óttazt í fyrstu að stúlkan hefði festst í bílnum og var verið að útvega froskmann er uppgötvaðist að svo var ekki. Þyrla Gæzlunnar var fengin til austurferð- ar og hóf hún leit ásamt björgunar- mönnum og ferðafólki. Flugvélin fann lík Elísabetar mjög fljótlega, enda þaulkunnugur maður um borð til leiðsagnar. Hafði líkið rekið 13 km leið niður i Markarfljót og fannst á eyrum skammt frá Þórsmörk. Lögreglumenn á Hvolsvelli segja að á laugardag hafi Syðri-Emstra verið svo ill ásýndum að hvergi hafi verið smuga til að aka norður yfir hana á því svæði er reynt var. -ASt. fifálsi, óháð daghlað MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST1979. Sigurvegaramir Hafsteinn og Kári renna inn í Sýningahöllina í Reykjavík f gærkvöld. Vísismynd: ÞG. Sjö luku Vísisralli: Hafsteinn ogKári sigruðu Hafsteinn Hauksson og Kári Gunn- arsson báru sigur úr býtum í Vísisrall- inu um landið. Voru þeir á bíl af Ford Escort gerð sem bar rásnúmer 8. í öðru sætí urðu bræðurnir Jón og Ómar Ragnarssynir á Renault bíl með rás- númer 2. í þriðja sæti urðu svo Úlfar Hinriksson og Sigurður Sigurðsson á Ford Escort með rásnúmer 5. Aðeins 7 bílar luku keppninni af 17 sem hófu hana, og af 21 sem skráð höfðu sig til keppni. -DS. Rifu fdt og húfur lögregliananna — íátökum íKeflavík Til átaka kom á götu úti í Keflavík á sunnudagsnótt er lögreglan ætlaði að kveða niður ærsl og ólæti í hópi ungl- inga. Voru unglingarnir alls ekki sáttir við afskipti lögreglu af þeirra málum ogsnerusttilvarnar. Átökin urðu snörp um tíma én lauk með þvi að fjórir piltanna voru hand- járnaðir og „kældir” í fangageymslu á sunnudagsnóttina. En áður en þetta varð höfðu þeir komið nokkrum höggum á lögreglu- mennina og rifið föt þeirra og húfur án þessþóaðþásakaði. -ASt. Tveirbílará kafíKrossá Ekki var ýkja margt fólk í Þórsmörk um helgina að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. En einhverjum erfiðleikum lentu þó ýmsir í. Lögreglumenn höfðu t.d. spurnir af því að Blazer-bifreið hefði lent á kafi í Krossá neðan Húsa- dals aðfaranótt laugardagsins. Tókst farþegum að ná landi og bílnum tókst að ná upp um nóttina. >á höfðu lögreglumenn heyrt frá- sögu um að Bronco-bifreið hafi lent í ánni allmiklu neðar og nær byggð. Það er því ljóst að enn þarf að vara fólk við þeim hættum sem við óbrúað- ar ár eru og menn eru ekki hólpnir þótt í góðum bílum séu. -ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.