Dagblaðið - 20.12.1979, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Vélsljórafélag íslands
heldur fun’d með vélstjórum á kaupskipum í dag, fimmtu-
dag, kl. 17.00 í Kristalssal Hótel Loftleiðum. (
DAGSKRÁ:
1. Samningamál.
2. Önnur mál. Vélstjórafélag íslands
BARTSKERINN
.. J__
KJOTBUÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SÍMI35645
Við þökkum
ykkur innilega fyrir
að nota bílbeltin.
IUMFERÐAR
RÁÐ
BARTSKERINN
LAUGAVEG1128
V/HLEMM. SÍMI 23930.
Vandlátir koma aftur og
aftur. Sérpantanir í
permanent. Sími 23930.
1 lallherf* Uuðmundsson
Þorsteinn Þorsteinsson.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjóUgötu 49 - Simi 15l0'5
i
Hentugar
jólagjafir
Vorum að taka upp
margar gerðir af
stökum stólum,
ruggustó/um, rók-
ókóstólum og
rókókósófasettum.
Sjónvarpsstólar og
hægindastólar fyrir
alla fjölskylduna.
Vinsælustu jólabækurnar:
4 skopöld tekur
mikinnkipp
— Húsið í stóru skógum mest selda bamabókin
Þaðer nú augljóst orðið, að bók Sig-
urðar A. Magnússonar, Undir kal-
stjörnu, og Miðilshendur Einars á
Einarsstöðum, sem Erlingur Daviðs-
son skráði, verða metsölubækumar í
ár.
Dagblaðið birtir nú öðru sinni lista
yfir bezt seldu jólabækurnar í ár.
Honum er eins og siðast skipt i skáld-
sögur og aðrar bækur þar sem ævi-
sögur og endurminningar eru fyrir-
ferðamestar. Auk þess bætum við nú
við nýjum lista yfir barna- og ungl-
ingabækur.
í sviga er gefið upp það sæti sem
hver bók skipaði á síðasta lista svo
framarlega sem hún var þá á listanum.
Listar þessir eru eins og síðast byggðir
á könnun Dagblaðsins í 14 bókaverzl-
unum bæði í Reykjavík og úti á landi.
Listinn yfir skáldsögur er mjög líkur
og í siðustu viku. Á listanum yfir aðrar
bækur hafa þær breytingar orðið, að
Á skopöld eftir Sigmund hefur tekið
mikinn kipp og er nú komin upp í 5.
sæti en hún náði ekki inn á listann í
síðustu viku.
í barnabókunum er söludreifingin
miklu meiri og ekki hægt að tala um
neinar bækur sem algerlega skeri sig
úr. Tvær bækur seljast þó greinilega
nokkuð betur en aðrar. önnur þeirra
er Húsið í Stóru skógum sem er um
sama efni og sjónvarpsþættirnir Húsið
á sléttunni, sem notið hafa mjög mik-
illa vinsælda meðal barna. Hin er
sænska bókin Sjáðu sæta naflann
minn sem Lystræninginn gefur út.
- GAJ
SKÁLDSÖGUR
1. (1) UNDIR KALSTJÖRNU..........Sigurður A. Magnússon
2. ( 3 ) ÉG SPRENGI KLUKKAN 10........Alistair MacLean
3. ( 2) HVUNNDAGSHETJAN.................Auður Haralds
4. ( 4 ) FÍLASPOR.....................Hammond Innes
5. ( 5 ) DÓMSDAGUR...............Guðmundur Danielsson
6. ( 6) GUÐI GLEYMDIR.....................Sven Hazel
7. (10) LEYNIÞRÆÐIR ÁSTARINNAR.........Teresa Charles
8. ( 9) FJALLAVIRKIÐ..................Desmond Bagley
9. (-) ÞRÚGUR REIÐINNAR................John Steinbach
10(7) UNGLINGSVETUR................Indriði G. Þorsteinsson
AÐRAR BÆKUR
1. (1) MIÐILSHENDUR EINARS Á EINARSSTÚÐUM
2. ( 2) Á BRATTANN..............Agnar Kofoed Hansen
3. ( 3 ) TRYGGVA SAGA ÓFEIGSSONAR
4. ( 5 ) ÞEIR VITA ÞAÐ FYRIR VESTAN.Guðmundur G. Hagalin
5. (-) Á SKOPÚLD.............................Sigmund
6. ( 6 ) STEINGRÍMSSAGA (STEINÞÓRSSONAR)
7. (10) VÖLVA SUOURNESJA
8. (-) LÆKNIR í ÞREM LÚNDUM.............Friðrik Einarsson
9. ( 9 ) ÞRAUTGÓDIR Á RAUNASTUND
10. ( 7) MÓÐIR MÍN HÚSFREYJAN
BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1. HÚSID í STÓRU SKÓGUM
2. SJÁÐU SÆTA NAFLANN MINN
3. STROKU-PALLI.................
4. MAMMA Í UPPSVEIFLU...........
5. -6. í FÚÐURLEIT..............
5.-6. STRUMPARNIR
7.-10. MATREIÐSLUBÓKIN MÍN OG MIKKA
7.-10. HEIÐA OG PÉTUR
7.-10. SÁ BEZTI 'I HEIMI.........
7.-10. í SKUGGA EVU..............
......Indriði Úlfsson
Ármann Kr. Einarsson
.........Jan Terlouv.
Kevin Keegan
Margret Ravn
Shadowsplatan selst bezt
VINSÆLUSTU HLJÓMPLÖTURNAR
1. STRING OF HITS..................
2. JÓLASNJÓR.......................
3. LJÚFA LÍF.......................
: 4. GREATEST HITS.
5. SANNAR DÆGURVÍSUR...............
6. THE WALL........................
7. SOMETIMES YOU WIN...............
8. EL DISCO DE TORO................
9. KATLA MARÍA.....................
10. GEYSISKVARTETTINN..............
Það setur nokkurn svip á skyndi-
könnun þá, sem Dagblaðið gerði í gær
á hljómplötusölunni, að nokkrar
plötur eru uppseldar hjá útgefendum
og innflytjendum. Þannig hefur nýja
Brimklóarplatan, Sannar dægurvísur,
ekki verið til í nokkra daga né heldur
Bráðabirgðabúgi Spilverks þjóðanna
og barnaplatan í sjöunda himni meö
Glámi og Skrámi. Að sögn útgefand-
ans kemur þetta til af slæmum flug-
samgöngum við Bandaríkin. Hann
vonaðist þó til þess að fá nýja send-
ingu af þessum plötum í dag.
Þá eru nokkrar erlendar plötur
einnig uppseldar. Vonir stóðu þó til að
þær kæmu aftur í verzlanir fyrir jól.
Þessi siðasta könnun Dagblaðsins
fyrir jól á vinsælustu plötunum er
byggð á sölunni í tólf verzlunum í
The Shadows
Ýmsir flytjendur
Þú og ég
. .. Electric Light Orchestra
Brimkló
....Pink Floyd
......Dr. Hook
Ýmsir flytjendur
Katla Maria
Geysiskvartettinn
Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Kefla-
vík og Akranesi.
• ÁT
FRUMVARP UM
SKATTADÓMSTÓL
Stjórnarfrumvarp um stofnun
skattadómstóls og rannsókn skatt-
svikamála, samið í dómsmálaráðu-
neytinu, var lagt fram á Alþingi í gær.
„Með frumvarpinu er ætlunin að ná
þeim markmiðum aðgera alla meðferð
skattsvikamála fljótvirkari og skilvirk-
ari, svo og að kveða skýrt á um það,
hver fara skuli með rannsókn slíkra
mála,” segir í greinargerð.
„Sú leið hefur verið valin að láta
óbreytt standa það hlutverk skattrann-
sóknarstjóra að annast almennt skatt-
eftirlit og rannsókn á skattkröfuþætti
mála. Komið verði hins vegar á sér-
stakri deild hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sem annist rannsókn skatt-
svika og brota, sem þeim tengjast.
Embætti ríkissaksóknara fari sem áður
með ákæruvald í slíkum málum. Setja
skal á stofn sérstakan sakadóm í
skattamálum — skattadóm — sem
dæmi í þeim refsimálum, sem ríkissak-
sóknari höfðar vegna brota á skatta-
lögum og lögum um meðferð erlends
gjaldeyris.
Ætla má, að langflestar kærur til
Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna
skattsvika muni berast frá skattrann-
sóknarstjóra. Opinber rannsókn á að
geta hafizt þegar er kæra berst á
vegum þeirrar deildar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins, sem lagt er til,
að stofnuð verði,” segir í greinargerð-
inni. „Gert er ráð fyrir, að þá rann-
sókn annist starfsmenn, sem tileinkað
hafa sér næga sérþekkingu á sviði
skattamála, til að unnt verði að ljúka
rannsókn bæði hratt og skipulega og
leggja hana fyrir ríkissaksóknara.”
- HH