Dagblaðið - 20.12.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Eigum við að búa tíl eigið jólasælgæti?
7
*\
Hart núgga
200 gr sykur
100 gr hakkaðar möndlur eða
hnetukjarnar
Sykurinn er bræddur á pönnu og
þegar hann er orðinn brúnn og freyð-
andi er möndlunum eða hnetun-
um hrært saman við. öllu hellt á
smurða plötu, gott er að hafa vaxbor-
inn pappír undir, látið kólna og síðan
brotið í stykki. Þetta verður að
geyma í vel þéttri dós, annars verður
það lint og tollir allt saman.
Rjómakaramellur
3 dl rjómi, 50 gr smjör, 300 gr sykur,
80—100 gr möndlur eða hnetur, salt
á hnífsoddi
Helmingurinn af möndlunum er
afhýddur og hakkaður mjög fínt í
möndlukvörn og hinn helmingurinn
er skorinn í stykki, ekki allt of smá.
Rjómi, sykur, smjör og salt, ásamt
hökkuðu möndlunum, er látið i pott
og soðið í 10—15 mín. við snarpan
hita, í loklausum potti. Þá er hægt að
prófa hvort þetta er búið að sjóða
nóg. Stingið teskeið i kalt vatn, síðan
í karamelludeigið og þá aftur i kalt
vatn. Ef hægt er að búa til kúlu úr
„deiginu” er það búið að sjóða nóg.
Þá er því strax hellt á smurða plötu
og flatt út með kökukefli sem annað-
hvort er bleytt með vatni eða smurt
með olíu. Karamellurnar eru afmark-
aðar með hníf í lítil stykki. Afgangin-
um af möndlunum er stráð yfir og
þetta látið kólna vel. Þá má vefja
karamellunum inn í silkipappír hverri
fyrir sig eða láta þær i' vel þétta dós.
Rúsínukúlur
50 gr rúsínur
2—3 dropar af rommessens eða
dropa,
10 stk. rauð og græn kokkteilkirsu-
ber
ca 125 gr marsipan
bráðið hjúpsúkkulaði
Hakkið rúsínurnar með kokkteil-
berjunum og hnoðið saman við
marsipanið. Búið til litlar kúlur og
látið þær þorna í nokkra klukkutíma
á köldum stað. Látið þær síðan í
hjúpsúkkulaði, raðið þeim á vax-
pappír og látið kólna vel. Geymist í
luktri dós.
Fylltar döðlur
1 kassi döðlur
ca 75 gr marsipan
nokkrar afhýddar möndlur
hálfir valhnetukjarnar eða aðrir
hnetukjarnar.
Ef steinar eru í döðlunum eru þeir
fjarlægðir og marsipankúla látin í
stað steinanna. Ef döðlurnar eru
stórar er sem bezt hægt að skera þær
í tvennt og láta svolítinn bita af
marsipani með hvorum helming.
Dýfið í hjúpsúkkulaði, möndlu eða
hnetubita þrýst ofan á og látið þorna
vel á vaxbornum pappír. Geymist í
vel luktri dós.
Ódýrar kókoskúlur
3 stórar msk. smjör
125 gr flórsykur
125 gr kakó
3 msk. rjómi
svolitill essens — t.d. rommdropar
í þessu tilfelli er nauðsynlegt að
nota annaðhvort smjör eða i það
minnsta jurtasmjör en ekki venjulegt
smjörlíki. Smjör og flórsykur hrært
vel, kakóinu og rjómanum bætt út í
og síðan 'bragðbætt með dropum,
gott að nota örlítið af rommdropum.
Gætið þess að láta ekki of mikið —
droparnir eru svo brágðsterkir.
Hvað kostarí
jólasælgætið?
Eins og vikið er að annars staðar
hér á síðunni er eiginlega allt sem fer í
jólasælgætið hreinasta lúxusvara og
verðið eftir því. Við höfum ekki farið
út í að verðleggja einstakar upp-
skriftir en hér fer á eftir svolítill verð-
listi (úr stórverzlun í Reykjavík) yfir
sitthvað sem til þarf. Þetta er rétt
aðeins til þess að þeir, sem aldrei hafa
átt við jólasælgætistilbúning, geti
áttað sig á þvi svona nokkurn veginn
hvað þetta kostar. Þetta er í rauninni
allt of dýrt hráefni til þess að leyfa
litlum börnum að „leika sér með”.
Marsipan, 200 gr konfektmarsipan á
908 kr. 200 gr hreint marsipan á
1.300 kr.
Hjúpsúkkulaði, 400 gr á 2.085 kr.
Möndlur í pokum sem vega frá 50
upp í 100 g á verði frá 480 kr.
Valhnetukjarnar, 50—60gr á 414 kr.
Heslihnetukjarnar, 50grá386kr.
Kókosmjöl, 100grá276kr.
Döðlur, 200 gr öskjur á 692 kr.
Flórsykur, 1/2 kg í pakka á 220 kr.
Skrautsykur í litlum boxum kostar
frá 71 kr. upp í 240 kr.
Alls kyns bragðefni (essensar) kosta
frá 159 kr.
Perlusykur (lítil box) á 220 kr.
Mjúkt núgga, 200 gr á 619 kr.
Appelsínunúgga (mjúkt), 30 gr á 173
kr.
- A.Bj.
neytenda
Einn stærsti eggja-
framleiðandinn við
bæjarvegginn
á Svalbarðseyri
„Þið vörpuðuð þeirri spurningu
fram á Neytendasíðunni í þriðjudags-
blaðinu hvers vegna menn á Sval-
barðseyri fengju sér ekki hænur og
yrðu sjálfum sér nógir um egg,”
sagði Akureyringur í samtali við DB
vegna þess hve hátt verð er á eggjum
á Svalbarðseyri. í verðkönnun, sem
birt var í blaðinu, kom í ljós að eggin
á Svalbarðseyri kosta 1845 kr. kg.
„Ég leyfi mér að benda á að rétt
við bæjarvegginn hjá þeim á Sval-
barðseyri er eitt stærsta eggjabú
landsins, Fjöregg. Það getur því varla
verið um það að ræða að flutnigns-
kostnaðurinn bætist við eggjakílóið
og valdi háu verði á eggjum á Sal-
barðseyri.
Ætli það sé bara ekki einokunin
sem þarna ræður. Þetta er eini fram-
leiðandinn og hann getur því ríÉið
verðinu.
Þegar framleiðendurnir þarna
fyrir sunnan eru búnir að drepa hver
annan með undirboðum (sbr. kiló-
verð á eggjum rúml. 1100 kr. í
Reykjavík) hækka þeir sem eftir
standa bara verðið upp úr öllu
valdi,” sagði Akureyringurinn.
- A.Bj.
Búnar til kúlur sem velt er upp úr
kókosmjöli og þær síðan kældar vel.
Geymdariluktridós.
Vínarkúlur
200 gr heimilissúkkulaði
60 gr plöntufeiti (palmin)
4 msk. þeytirjómi
ca 50 gr kókosmjöl
Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði (í
skál sem látin er yfir pott með heitu
vatni) og hrærið stöðugt í súkku-
laðinu á meðan. Þetta á að verða það
þykkt að hægt sé að búa til kúlur,
sem siðan er velt upp úr kókosmjöl-
inu. Látið kúlurnar þorna vel á vax-
pappír áður en þær eru bornar fram
eða geymdar í vel luktri dós.
Haframjölstoppar
200 gr plöntufeiti
100 gr sigtaður flórsykur
3 msk. kakó
60 gr haframjöl
Bræðið plöntufeitina í potti og
hrærið sykri og kakói út í. Takið
Uppskrift
dagsins
Ofnbakað
kjöt með
eplum
— Gott og ódýrt
í matinn á
sunnudag
Það vefst fyrir sumum hvað þeir
eigi að bjóða heimilisfólkinu að
borða um næstkomandi helgi. Jólin
eru alveg á næsta leiti þannig að
ómögulegt er að vera með rándýra
stórsteik. En eitthvað verður fólkið
að fá í svanginn og hérna er alveg til-
valinn réttur, sem bæði er tiltölulega
ódýr og þar að auki fljótlegur í mats-
eld. Við fengum þennan rétt á
,,smakk”-kvöldi kjötiðnaðarstöðvar
KEA á Hótel Sögu í síðustu viku og
smakkaðist rétturinn alveg sérlega
vel.
Ofnbakað kjöt
með eplum
1 kg súpukjöt, magurt
1 tsk. smjör
2 laukar
2 stór epli (græn)
1 msk. púðursykur
1/2 tsk. salt
1/4 tsk. pipar
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. rúsínur
Stillið bakarofninn á 170°C. Fjar-
lægið alla óþarfa fitu af kjötinu og
skerið það í smáa bita. Afhýðið cplin
og skerið í báta. Látið smjörið á
pönnu og kraumið sneiddan laukinn
þar í, þar til hann er mjúkur en ekki
brúnaður. Látið helminginn af
lauknum í ofnfast mót og raðið kjöt-
inu ofan á, dreifið afganginum af
lauknum yfir kjötið. Raðið eplunum
ofan á. Stráið loks púðursykri, salti,
pipar og rúsínum yfir.
Mótinu er síðan lokað, t.d. með
álpappír, og rétturinn bakaður í ofn-
inum í um það bil 1 1/2 klst. eða þar
til kjötið er soðið.
í uppskriftabæklingi Sambands-
ins, Kjöt er kostafæða, þar sem þessi
uppskrift er birt segir að það eigi að
bera fram soðnar kartöflur og blóm-
kál með réttinum. Á Hótel Sögu voru
soðin hrísgrjón með og var það alveg
sérlega gott. Þessi réttur er svo góður
að vel má nota hann sem „pottrétt” í
veizlu.
Hráefniskostnaður í uppskriftina
hér, sem sennilega er ætluð fyrir
fjóra, er áætlaður 1900 kr. eða um
475 kr. á mann.
- A.Bj.
pottinn af vélinni og hrærið hafra-
mjölinu út i. Látið með tveimur te-
skeiðum í litla toppa á vaxpappir og
látið stífna og kólna vel.
Mjúkt núgga
125 grhunang
125 grsykur
4 msk. kalt vatn
125 gr afhýddar og fint malaðar
möndlur
75 gr kakó
1/2 eggjahvíta
Látið hunang og sykur í lítinn pott
og bræðið við vægan hita. Bætið
vatninu ásamt möndlum og kakói út í
og hrærið mjög vel í. Þeytið eggja-
hvítuna þar til hún er alveg stíf og
hrærið henni út í blönduna. Hrærið í
þessu í um það bil 45 mín. á meðan
potturinn er enn á vélinni en hafið
mjög lítinn hita. Þetta á að verða
samhangandi deig, breitt úr því á
smurðu fati eða vaxpappír, þetta
látið stífna og kólna, skorið í smá-
stykki. Einnig má vefja stykkjunum
inn í álpappír eða silkipappír.
Mjúkt núgga má siðan nota með
marsipani og dýfa í hjúpsúkkulaði,
má raunar segja að ekkert saki að
nota hugmyndaflugið þegar jólasæl-
gætið er í framleiðslu.
Afgangssœlgœti
Þegar búið er að þekja jólasæl-
gætið er alltaf eftir eitthvað af hjúp-
súkkulaðinu. Úr því er hægt að búa
til hreinasta hnossgæti með því að
hræra út í það annaðhvort korn-
fleksi, blásnu hveiti eða hafrahringj-
um og/eða svolitlu kókosmjöli, láta á
vaxpappir með teskeið og láta sæl-
gætið kólna áður en það er látið í
dós.
- A.Bj.
BACKGAMMON
SPILIÐ
SEM FER
SIGURFÖR
UM HEIMINN
ö0ftA(£fiOftA
HUSIÐHöHHUSIÐ
LAUGAVEGt 178 simi 86780
Þykkvabæjar-
hangikjötid
ájóiabordið.
Úrvais
saudahangikjöt.
HQLAGARÐUR
KJÚRBÚP LÓUHÍÓLUM 2-B, SlMI 74100.
laIMm.