Dagblaðið - 20.12.1979, Síða 11

Dagblaðið - 20.12.1979, Síða 11
— og stjóm eða ekki stjóm á staðnum „Það er starfandi nefnd fulltrúa Flugbjörgunarsveitar, Hjálparsveita skáta, Slysavarnafélags íslands, Rauða krossins og Almannavarna. Hún heldur fund í síðustu viku hvers mánaðar og ég geri ráð fyrir að þetta ákveðna slys verði aðalmálið á desemberfundinum á milli jóla og nýárs,” sagði Ingvar Valdimarsson formaður Flugbjörgunarsveitarinnar við Dagblaðið. Ingvar var spurður um sitthvað varðandi þátt sveitar hans og annarra björgunarsveita í sambandi við slysin á Mosfellsheiði og almennt. Menn hafa velt fyrir sér ýmsum spurningum um hjálparstarf og skipulag þess með hliðsjón af starf- inu á Mosfellsheiði. Augljóst var að fjarskiptaerfiðleik- ar voru Þrándur í götu björgunar- manna. Það er og í samræmi við reynslu þeirra á æfingum. I samtali við félaga úr Hjálparsveitum skáta og Flugbjörgunarsveitinni í gær kom fram, að í sjónmáli væri (vonandi!) að tollar af talstöðvum yrðu felldir niður. Það hefur lengi verið baráttu- mál björgunarsveitamanna. Það þýðir hvorki meira né minna en helmings lækkun á verði talstöðva. Vönduð talstöð myndi lækka úr 1800 þús. — 2 milljónum kr. í 700 þús. — 1 milljón kr. Með þessu yrði þegar á þá reyndi í burði tækja og slasaðra. Ég hélt að allir félagar í sveitunum væru í toppþrekþjálfun. Einn sveitarmaður sagði í samtali í gær, að rétt væri að margir í hópnum væru í lítilli líkamlegri þjálfun. Menn væru að vonum misjafnir, en reynt væri eftir beztu getu að halda mönnum í góðri þjálfun. Þess bæri að geta, að aðstæður á Mosfellsheiði hefðu verið slæmar, erfiður snjór að ganga í og því auðvelt að þreyast. Vantaði stjórnun á staðnum? DB-menn voru í hópi þeirra er fyrstir komu að þyrluflakinu (þ.e. að undanskildum björgunarmönnum er urðu vitni' að hrapinu fyrr um kvöidið). í okkar hópi voru læknar sem sendir voru frá Reykjavík. Þeir reyndu að fá far með vélsleða á slys- staðinn með tæki sín, til að komast f þangað'sem allra fyrst. Það gekk ekki fyrr en seint og um siðir, enda aðeins 2—3 vélsleðar á staðnum fyrst í stað og erfitt að násambandi við þá, þar sem þeir voru hjá þyrluflakinu og biðja þá um að koma til móts við læknana. I samtali við björgunarmenn í gær kom fram, að þeir hafi ekki farið með vélsleða á staðinn þar sem talið var að hægt væri að komast á bílum að stöðva bílana fyrr og ganga með börurnar á leiðarenda. „Við eigum við agavandamál að stríða. Menn þurfa stundum að tala of mikið og flækja málið,” sagði viðmælandi. Hann kvaðst þekkja annan og betri aga í hjálparstarfí erlendis frá. Væri það heraga að þakka. Þá var enn bent á að óvænt inngrip Almannavarna í björgunarstarfið hefði valdið truflun og erfiðleikum sem auðvelt væri að komast hjá. Tekið skal fram að lokum, að með þessum skrifum er á engan hátt verið að vega að því fólki sem býður sig fram sjálfviljugt hvenær sem er og hvar sem er til að aðstoða náungann í nauðum. Björgunarsveitirnar hafa unnið makalaust gott og óeigingjarnt starf og eiga allt gott skilið. Gott starf má lengi bæta. Þessir leik- mannsþankar eru innlegg til umhugs- unar og ábendingar. -ARH Björgunarmenn að störfum á slysstaö. LEÍKFANGAHÚSIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 0G BERGSTAÐASTRÆTI LEIKFANGAHÚSIÐ SKÖLAVÖRÐUSTÍG 10 - SlM114806 - BERGSTAÐASTRÆTI - FISHER PRICE HÚSIÐ RUGGUHESTAR — 7 GERÐIR Stígnir bílar, 5 gerdir Spyrnubílar Fjarstýrdir og snúrustýrdir bílar Tarzan gröfur Bílabrautir, ótal geröir, m.a. TCR og Matchbox Snjóþotur Dúkkurúm og vöggur Grátdúkkur, margar gerðir Fatahengi fyrir börn FULLT HÍIS LEIKFANGA DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. Leikmannsþankar um björgunarstarfið: BJÖRGUNARMENN í BLANKSKÓM Bílar björgunarmanna festust í snjónum á leiðinni á slysstað. Oft þurfti að grípa til handaflsins. DB-mynd: Hörður. viðráðanlegra að kaupa betri tæki til sveitanna og stórbæta fjarskipti og auka öryggi í starfi. Slökkviliðsmenn á blankskóm Sumt kom leikmanni dálítið spánskt fyrir sjónir á Mosfellsheið- inni á þriðjudagskvöldið. Spurningar vöknuðu um annað og við sumum fengust fullkomlega eðlileg svör hjá talsmönnum björgunarsveitanna í gær. Það vakti athygli mína að sjá slökkviliðsmenn úr Reykjavík mætta í snjó og hríð utan alfaraleiða á heiðinni klædda venjulegum ein- kennisbúningi og í blankskóm — á sama tíma og meira að segja blaða- mannalufsur reyndu að klæða af sér veturinn með stormjökkum, treflum, húfu o.s.frv. Athygli vakti líka að ekkert mokstursverkfæri skyldi fyrirfinnast í einum bíl björgunarmanna sem dat á kviðnum kolfastur í snjóskafli á leið upp að þyrluflakinu. Enn vakti athygli mína, að mér fannst þrek og þol sumra björgunar- sveitamanna minna en ég átti von á, nálægt eða alveg að slysstaðnum. Flugbjörgunarsveitin mætti með einn vélsleða um kvöldið og kom hann í góðar þarfir við flutninga seinna um kvöldið. Sveitin mun sjálf ekki eiga slíka farkosti, heldur einstaklingar innan hennar. „Það vantaði stjórnun á staðnum. Enginn hafði heildarstjórn með höndum,” sagði einn björgunar- maður. „Umsjónarmaður frá Flug- málastjórn eða lögreglan hefði átt að sjá um að fela öðrum verkefni. Það var of mikið handahóf á hlutunum framan af.” Aðrir viðmælendur töldu að skipu- lagið hefði verið þokkalega gott, sér- staklega hefði tekizt frábærlega vel hjálparstarfið hjá hópnum sem var viðstaddur þyrluhrapið og sinnti fyrstu aðstoð við slasaða eftir það. Hins vegar var bent á að eitthvert yfirvald hefði þurft að taka af skarið um að hætta akstri og tilraunum til að brjótast með bíla í ófærðinni í áttina að þyrluflakinu. Bent var á að þó svo að bílarnir hefðu komizt alla leið að flakinu, hefði tæpast verið vit í að setja hina slösuðu í þá þar og láta þá veltast i ófærðinni til baka. Betra hefði verið

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.