Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.12.1979, Qupperneq 15

Dagblaðið - 20.12.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. 15 \ þrælum fyrirtækisins, en endaði með því að telja umbjóðendur þrælanna og I.G. Farben á það að semja. Árið 1956 bauð Farben loks 5.000 þýsk mörk á hvern „starfsmann” sem var tæplega fjórðungur af því sem samtök Gyðinga höfðu farið fram á. Prúttað um bætur Eftir mikið japl jamm og fuður féllst I. G. Farben loks á að greiða 7000 mörk árið 1957 með þvi skilyrði að allir þeir sem teldu sig eiga inni bótagreiðslur, skyldu1 leggja fram kröfu fyrir árslok sama ár, eða verða af þeim ella. Það varð Ijóst að ekki vorunokkur tök á því að koma kröfum til skila á þeim tíma þar sem fyrrverandi þrælar hjá I.G. Farben voru dreifðir um allan heim. Þegar svo kom að bótagreiðslum, kom í ljós að I.G. Farben átti til að greiða fyrrverandi fangavörðum, Þjóðverjum, meir en þrælunum, þ.á.m. mönnum sem höfðu verið dæmdir fyrir stríðsglæpi. Árið 1961 setti I.G. Farben svo fram kröfur um endurgreiðslur, til að geta greitt þeim, sem ekki voru Gyðing^r, sérstaklega Pólverjum. Áfram hélt prúttið og Ferencz lýsti þeirri niður- lægingu fyrrverandi þræla, að þurfa að fara bónveginn til þeirra sem áður höfðu farið með þá sem vinnudýr. Árið 1968 stóðu málin þannig að 5.855 manns höfðu fengið bætur frá I. G. Farben, 5000 mörk á mann að meðaltali eða 1.2 milljónir íslenskra króna á núv. gengi, en í Buna verk- smiðjum fyrirtækisins einum höfðu 10.000 manns þrælað. Flick samsteypan skuldseig Ferencz fer sérstaklega i saumana á viðskiptum Gyðinga við I.G. Farben, en getur einnig um önnur fyrirtæki, Krupp, AEG, Telefunken Siemens og Rheinmetall. öll höfðu þau notað fangabúðaþræla í miklum mæli, öll neituðu þau slíkum á- sökunum og öll neituðu að borga eyri. En öll létu þau undan að lokum eftir löng og ströng málaferli, — nema eitt, samsteypa Friedrich Flicks. Á tímabili stjórnaði Flick yfir 300 fyrirtækjum, sem framleiddu allt frá klósettpappír og upp í Mercedes Benz. Árið 1947 var hann kallaður fyrir rétt, þvi sannanir gegn honum voru óvéfengjanlegar. Hann hafði notað fangabúðaþræla í stórum stíl, aðallega Gyðingastúlkur frá Ung- verjalandi, Tékkóslóvakíu og Póllandi, en þær höfðu verið sendar frá Auschwitz til að vinna í hinum ýmsu skotfæraverksmiðjum hans. En Flick var ekkert til viðtals um bóta- greiðslur. En áriðl964, á áttræðisaf- mæli sínu lét hann af hendi rakna hátt á aðra milljón dollara í sjóð sem verja átti til líknarstarfsemi innan Þýskalands. Ekkert virtist afgangs fyrir þá sem þrælað höfðu í verksmiðjum hans. En eftir mikinn þrýsting, féllst Flick loks á það árið 1967 að greiða þessu fólki 5 milljón mörk, en færðist undan því að borga strax þar sem hann ætti í „peningavandræðum”. En nokkrum mánuðum áður hafði hann geftð syni sinum fjárupphæð er var nokkru hærri en allt það sem samtök Gyðinga höfðu gert kröfur til. Um svipað leyti hafði Flick einnig gaukað álika upphæð að 16 ára dótturdóttur sinni. Loks lýsti samsteypa Flicks, Dynamit Nobel, því yfir blákalt árið 1968 að því bæri ekki lagalega eða siðferðislega að greiða ofangreinda upphæð til Gyðinga. Árið 1972 lést Flick, níræður að aldri, og var þá talinn auðugasti maður Þýskalands og fimmti auðugasti maður heims og arfleiddi hann glaumgosann son sinn að eignum sem virtar voru á annan milljarð dollara. Þá hafði hann ekki greitt Gyðingum einn einasta eyri í bætur. Kjaramálaráðstefnan og „þeir” Síðan kjaramálaráðstefnu ASÍ var frestað á dögunum hafa ýmsir látið Ijós sitt skína og gefið nokkuð sam- hljóða yfirlýsingar enda hafa blöðin frekar leitað til þeirra sem eru á móti samþykktum Verkamannasambands- ins en hinna. Sjálfsagt telja þeir sem spyrja, að þeir séu að ræða við sigur- vegara.og veramá að þaðsérétt. Við erum farin að venjast því að þegar staðið er upp frá samningum þá sitji þeir eftir sem sízt skyldi, þ.e. þeir sem hafa lægst launin, þrátt fyrir allt talið um að nú skuli réttur þeirra hlutur. Nú erum við að að semja að lokn- um kosningum. Þá komu menn fram fyrir alþjóð og lýstu því yfir, allir með tölu, að nú sé takmarkað svig- rúm til almennra launahækkana, en þó beri að leiðrétta lægstu launin. Hvað hefur breyst? Á kannski ekki að kjósa meir? Halda menn að hún gatslitni aldrei þessi gamia plata um ást á illa launuðu erfiðisfólki, ef það er alltaf svikið? „Viö" og „þeir" Tillaga Verkamannasambands- þings var, að vísitala skyldi greidd i krónutölu af miðlungslaunum, ca 350 þús. kr. mánaðarlaunum, og greiðast öllum jafnt. Undir þessa kröfu hafa flest láglaunafélög tekið. BSRB segir nei. Vísitala skal í pró- sentu, og undir þá kröfu taka félög iðnaðarmanna innan ASÍ. Af hverju? Eigum við bara ekki að segja satt? Millistéttin á íslandi þolir ekki, að þeir neðstu nálgist hana. Hún vill ekki launajöfnuð. Þolir hann verst af öllu. Það kemur glöggt i ljós, að i þvi standa menn saman, í hvaða pólitísk- um flokki sem þeir eru. Við erum eitt, þeir eru annað. Það má ekki rugla „standardnum”. Óþolandi að geta ekki litið niður á neinn. Engum dettur i hug í alvöru að það séu rök, að þeir sem hafa hærri laun þurfi meira til að mæta dýrtíð. Við skiljum öll, að einhver taxta- munur er nauðsynlegur eða verður að vera, en að þið, ójafnaðarmenn, þurfið líka hærri dýrtíðaruppbót skiljum við ekki. Á kjaramálaráð- stefnunni stóð upp iðnverkakona. Hún sagðist hafa lítið vit á pólitík, en hún studdi krónutöluregluna. Hún undraðist það sem hún heyrði og spurði: „Hvers konar sósialistar eruð þið eiginlega, sem talið gegn henni?” Ég geri hennar orð að mínum og spyr ykkur, sem stöðugt vitnið í sósial- isma: Hvar gerir sósialisminn ráð fyrir þessu? Svarið þið svo allir skilji. Það dugir ekki að segja, að við lifum í kapitalisku þjóðfélagi, það vitum við. Og það líka, að Þorsteinn Páls- son stendur með ykkur. Þetta er greindarpiltur og veit að veldi hans er ógnað ef við samein- umst og förum að vinna saman af heilindum. Ef menn hugsa og vinna eins og kapitalistar, af því að þjóð- félagið er þannig, hver trúir því þá að þeir hefðu jafnrétti og bræðralag að leiðarljósi ef þeir réðu þjóðfélags- gerðinni? Það má vel vera að ekki sé svigrúm til almennra launahækkana i landinu í dag, en þeir sem eiga að lifa á 230— 300 þúsundum á mánuði verða að fá sínar launabætur á einhvern hátt og án allrar skerðingár. Hinir verða að bíða ef þörf krefur. Alþýða manna er ekki búin að gleyma fögru loforðun- um fyrir kosningar. Hún getur enn notað kjörseðilinn fyrir sitt vopn, ef þeir sem hún hefur stutt hlaupa frá að leysa vandann, eða svíkja gefin heit. Blekking Ég vil aðeins minnast á þá tillögu að klippa af tvo neðstu taxta al- mennu verkalýðsfélaganna. Þessi til- laga er vísvitandi blekking. Hún leysir sáralitinn vanda. Félagslegar ráðstafanir geta bætt úr mörgu. Ég Kjallarinn Aðalheiður Bjamfreðsdóttir nefni húsnæðismál, dagvistunarmál, mál öryrkja og gamalmenna og ýmis- legt annað, sem búið er að setja fram í kröfugerð. Við eigum eftir að hittast aftur á kjaramálaráðstefnu ASÍ. Vonandi tala menn þá, en sitja ekki þegjandi og hlaupa svo með meira og minna rangar fullyrðingar í blöðin á eftir. Við þurfum hreinskilnar umræður. Við verðum að geta treyst hvert öðru. Það getum við ekki, ef áfram verður unnið eins og hingað til. Því þarf nú að huga að tvennu. Hvernig hægt sé að rétta hlut hinna verst settu og hvernig hægt sé að fyrirbyggja að þeir betur settu semji síðast og hirði rjómann ofan af, og það á vissulega einnig við hópa utan ASÍ. Aðalheiður Bjarnfreðsdóllir formaður Sóknar. „Millistéttin á íslandi þolir ekki, aö þeir neöstu nálgist hana.” Verkalýdshreyfingin: y ■\ Samningsaðili hverra? Kjallarinn Höfuðskýring á launamisrétti hér á landi er að raunverulegar launa- greiðslur, duldar greiðslur og kjara- þættir hafa ekki legið á lausu eða verið dregnar upp á borðið, þegar metin eru kjör hinna mismunandi starfshópa, auk þess sem verkalýðs- hreyfingin hefur orðið að standa vgrð um ranglátt vísitölukerfi, sem er fyrst og fremst hagsmunatæki há- launafólksins í landinu. Taxtakaupið— til hverra? í kjaradeilun; sem eru algengar hér á lantjj,'— hvað er þá 'lagt lil grundváTíar, við ákvörðun Inufta- ■kjara? — Stéttarfélög lcggja fram krfrfur fyrir sína unmbjwðendur •— og þá eru hjnir fjölmörgu kauptaxtar aðal umræðugrundvöllurinn. En eru þeir hin rétta viðmiðun, þegar deilt er um skiptingu þjóðarkökunnar? Jú, staðreynd er það, þeir eru hin rétta viðthiðun fyrir láglaunafólkið. Þeir skýra rétt frá og lýsa kjörum þessa fólks. En hvar koma ’kauptaxtarnir inn í myndina fyrir þá sem við betri kjör búa? Jú þeir eru i besta falli notaðir sem grunnur til viðmiðunar áður en yfirborganir og duldar greiðslur koma inn í myndina. Og í raun er því enn meira í spilinu en tekjuskiptingin —en rangláM visi- tölukerfi sem færir margfalt hærri dýrtíðaruppbætur til hálauna- fjölskyldunnar en miðlungs eða Iág- tekjufjölskyldunnar. Auk þess að fá margfalt meiri vísitölubætur, margfaldast þá einnig yfirborganir svo að enn meira eykst bilið, heldur en í raun á borðinu liggur. Eða er hægt að deila um það að yfirborganir eru notaðar til að hygla hálaunahópum — oft innan mats einstaklingshyggju og sér- hagsmuna, án tillits til eðlis vinnu — arðsemismats þjóðarbúsins i heild eða þeirra sem mest afköstin bera, sem eru því kjarni viðkomandi fyrir- tækis, sem þunginn og framleiðsluaf- köstin veltur á? Handahófskennd launakerfi Hver eru rökin í kjaradeilum að þessi stétt eigi að hafa betri kjör en önnur, — hvað liggur til grundvallar þegar sá í framleiðsluskapandi at- vinnugreinum, t.d. verkafólk, ber minnst úr býtum og hefur minna en sá í þjónustugreininni eða í bákninu sem byggt byggt hefur verið kringum aðalatvinnuvegi þjóðarinnar, sem lægst launuðu hóparnir standa undir? Hefur verið lagt raunsætt mat á eðli vinnunnar og tekur flokka- uppbygging og raunverulegar kjara- greiðslur eðlilegt mið af þvi? Búum við ekki við handahófskennt launa- kerfi, án nokkurs mats á eðli eða uppbyggingu starfsins — og án nokk- urs tillits til arðsemi þess í þágu þjóðarbúsins? — Hve stór hluti launagreiðslna er falinn og aldrei dreginn inn í myndina við ákvörðun launakjara í landinu? Er þjóðfélagsmisréttið þar nokkur eftirbátur skattsvikanna eða órétt- lætisins í lífeyriskerfinu? Er þar ekki á ferð enn eitt neðanjarðarhagkerfið? Slik launakerfi hljót að hlaða undir að fleiri og fleiri kjósa sér betur launuðu störfin, í bákninu — í þjónustugreinunum og yfirbyggingu Það er staðreynd sem verkalýðs- hreyfingin verður að horfast í augu við, — að hún er aðeins samnings- aðili fyrir láglaunafólkið i þjóð- félaginu. Þeir sem við betri kjörin búa — semja í raun um sín kjör sjálfir, — með duldum greiðslum eða yfirborgunum. Taxtar láglauna- fólksins eru aðeins viðmiðun, — auk þess sem vísitölukerfið er einkum hagsmunatæki þeirra sem við betri kjörin búa, þannig að verkalýðs- hreyfing er með óbreyttri kjaragerð að auka á launamisréttið og láglauna- hóparnir verða í raun aktygi til betri kjara hálaunahópanna i landinu. Þvert ofan í yfirlýst markmið verka- lýðshreyfingarinnar um sanngjarna launaskiptingu getur óbreytt stefna i kjaramálum aukið á misréttið, aukið á slæm kjör þess fólks sem verka- lýðshreyfingin vill þó berjast fyrir. Því hlýtur skrefið til kjarajöfnunar í landinu að vera að verkalýðs- hreyfingin snúi afli sínu að raunverulegri kjarajöfnun og láti fara fram könnun á raunverulegri tekjuskiptingu og launakjörum í landinu, — könnun sem yrði undir- ^ „Þeir sem við betri kjörin búa semja í raun um sín kjör sjálfir — með duldum greiðslum eða yfirborgunum.” þjóðfélagsins — í störfum þar sem von er á duldum greiðslum og yfir- borgunum, en æ færri fást til að sinna framleiðsluskapandi störf- unum, þeim verst launuðu störfum í þjóðfélaginu, þar sem eingöngu næst fram taxtakaupið, sem allir segjast vera á þegar kjaradeilur eru uppi. Verkalýðshreyf- ingin — Samnings- aðili hverra? Verkalýðshreyfingin og stjórnvöld verða að taka höndum saman um að upp á borðið séu dregin raunveruleg launakjör í landinu — raunveruleg mynd af skiptingu þjóðarkökunnar. staðan til að einfalda frumskóg launataxta og ýmissa kjaraatriða — sem gæti jafnað tekjuskiptinguna í landinu. Kjaradeilur hafa aukið launabilið Staðreynd er að kjör láglauna- fólks verða í hverri kjaradeilu til þess að launabilið vex, — kjör þeirra sem verkalýðshreyfingin reynir hvað helzt að bæta — er vatn á myllu hátekju- fólksins. í stað þess að grafast fyrir um orsök launamisréttisins, hvers vegna það er, hvað liggur til grund- vallar í launatöxtum og kjaraþáttum i þjóðfélaginu og mats á því hvers vegna þessi hópurinn á að vera betur Jóhanna Sigurðardóttir launaður en annar, slæst verkalýðs- hreyfingin fyrir vísitölubótum sem eykur launamisréttið. Verkefni verkalýðshreyfing- arinnar hlýtur því að vera að gera samstillt átak í því að söðla um og grafast fyrir um orsök vandans — slást fyrir raunverulegri kjara- jöfnun. Hvað liggur til grundvallar því að þeir sem hvað mest leggja á sig við vinnu í undirstöðuatvinnugrein- 'um þjóðfélagsins bera minnst úr býtum? Hvað liggúr til grundvallar taxtauppbyggingunni og öðrum kjaraatriðum og duldum greiðslum, sem þróað hefur óþolandi launamis- rétti í þessu landi? Sú staðreynd að þeir sem við sæmileg kjör búa skilja ekki hvernig láglaunafólk lifir krefst raunhæfra aðgerða hjú verkalýðshreyfingunni ekki síður en stjórnvöldum. í skýru ntáli, hverjar eru raunverulegar launagreiðslur starfsstétta, hvernig er í raun háttað skiptingu þjóðar- kökunnar? Hverjir ráða og stjórna í reynd launakjörunum og tekju- skiptingunni — verkalýðshreyfingin eða atvinnurekendur? Láglaunafólk hlýtur að krefjast þess nú þegar það býr við slíkt launamisrétti — að verkalýðs- hreyfingin leiti svara við þessum spurningum, og geri úrbætur sem skili kjarabótum til þeirra sem raunverulega þurfa á að halda. Það er ekki til of mikils mælst að láglaunahóparnir njóti sanngirni i tekjuskiptingunni, — en hálauna- hóparnir komist ekki upp með að knýja fram lífs- og launakjör, sem eru í engu samræmi við vinnuframlag þeirra — og það á kostnað láglauna- fólksins í landinu. Jóhanna Sigurðardótlir, alþingismaður.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.