Dagblaðið - 20.12.1979, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
THkynning
um opnunartíma bensín-
stöðva í Reykjavík yfir
hátíðirnar
Bensínstöðvar olíufélaganna verða opnar yfir
hátíðirnar sem hér segir:
Almannar
Bensínstööin við
Þorláksmessa
Aðfangadagur
Jóladagur
2. jóiadagur
Gamlársdagur
Nýársdagur Lokað
bensínstöövar Umferöarmiðstöð
9.00—21.15
7.30— 15.00
Lokað
9.30— 11.30 og
13.00—15.00
07.30—15.00
21.00—01.00
Lokað
Lokað
21.00—01.00
15.00—17.00
Lokað
ÁRS-
HÁTÍD
verðvr hakHn i Á tthagasai Hótal Sögu laugardaginn 5. jan.
Skemmtiatriöi: Dansaýning, eftírharmur, harmóníkuleikur o.fl.'
MMar seidir i Ljósborg, Skipho!tí21, simi28844.
ÉG GRÆT
að morgni
Bókin sem vekur okk-
ur til umhugsunar.
Bókin sem segir að
hægt sé að kaupa sér
heilsuleysi fyrir stórfé.
Bókin sem bendir
okkur á leiðir í seil-
ingarfjarlægð til betra
lífs.
Bókin sem er talin
bezt skrifaða ævisaga
alkóhólista á þessari
öld.
Bókaútgáfan HUdur
Skemmuvegi 36 Kópavogi Sími 76700
Að geta næstum allt
Viat kann Lotta nœstum aUt.
Höfundur Astrid Lindgren.
Myndskroytíng: llon Wikland.
Mál og menning 1979.
Því verður ekki neitað að Astrid
Lindgren skrifar góðar barnabækur.
Að visu hef ég lesið mun betri bækur
eftir hana en Lottu bókina en það er
ef til vill ekki sanngjarnt að bera
Lottu saman við bækur eins og Elsku
Míó minn eða Bróðir minn Ljóns-
hjarta. En ef við tökum nærtækara
dæmi eins og til dæmis Línu lang-
sokk sem hefur komið út á íslensku í
svipaðri útgáfu og Lottubókin, þá er
söguþráðurinn í Línubókinni betri og
skemmtilegri en myndirnar í Línu
bókinni komast ekki í hálfkvisti við
myndirnar í Lottu bókinni.
Lítilfjörlegur
söguþráflur
Söguþráðurinn i Víst kann Lotta
næstum allt er afskaplega lítilfjörleg-
ur. Lotta er fimm ára hnáta sem
kann allt, næstum allt. Nema svig.
Lotta er hjartagóð og hjálpar þeim
sem eru sjúkir og sorgmæddir. Hún
heimsækir frú Berg, sem er veik, og
færir henni sírópsbrauð. í leiðinni'
gerir hún sér lítið fyrir, vökvar potta-
blómin, smyr brauö ofan í frú Berg,
sópar gólfið og þvær upp. Geri aðrir
fimm ára krakkar betur. Síðan
skreppur hún út í söluturn fyrir frú
Berg, en í leiðinni kemur hún við
heima hjá sér til að skoða jólatréð
sem pabbi hennar ætlaði að kaupa.
En viti menn. Jólatrén voru uppseld í
bænum og fjölskyldan situr miður
sín við miðdegisborðið og snæðir
sænskar pönnukökur, þegar Lotta
kemur heim.
Lotta ætlar að fara að hágráta en
þá man hún, að hún þarf að fara í
söluturninn fyrir frú Berg. Lotta
geymir grátinn og leggur af stað á
sleðanum sínum. Niður við söluturn-
inn gerist svolítið skrýtið. Stór vöru-
bíll, hlaðinn jólatrjám, kemur
brunandi. Bíllinn stansar og
bílstjórinn snarast út. Lotta hleypur
til og spyr bílstjórann hvort hann vilji
ekki selja sér eitt jólatré fyrir 50
krónur sem hún hafði fengið frá frú
Berg.
En nei. Bílstjórinn vill ekki selja
eitt einasta tré, stekkur upp á bílinn
og þeysist af stað en i krappri beygju
alveg við söluturninn losnar eitt jóla-
tré af bilpallinum og hendist út í veg-
arkantinn. Lánið leikur við Lottu.
Hún fær jólatréð og lætur herra
Blomgren á bensínstöðinni frá
fimmtiu krónurnar ef bílstjórinn
kæmi aftur í leit að jólatrénu. Herra
Blomgren bindur jólatréð á sleöann
hennar Lottu og hún heldur heim á
leið.
Lifandi
myndir
Varla er hægt að hugsa sér efnis-
minni söguþráð í heila bók, þó svo
hann sé ágætlega skrifaður. En það
sem gerir útslagið á gæði bókarinnar
eru hinar frábæru litmyndir, sem
prýða bókina, gerðar af Ilon nokkr-
um Wikland.
Myndirnar eru raunsæjar, lifandi,
litrikar og segja frá ýmsu sem ekki
kemur fram í textanum. Við sjáum
einnig myndir frá hinum ýmsu
sjónarhornum, meðal annars ofan
frá.
Þýðandinn, Ásthildur Egilson
Bók
menntir
Valdís Óskarsddttir
virðist hafa haldið sér helst til of
fast i frumtextann á stöku stað. Sér-
staklega er það áberandi hvað varðar
heiti bókarinnar, sem virðist vera
bein þýðing úr sænskunni, Vist kann
Lotta næstum allt. Það hefði farið
betur að kalla bókina, Víst getur
Lotta næstumallt.
Raunasaga
Ansi hreint er ég hrædd um að
það þýddi lítið fyrir islenskan barna-
bókarithöfund að labba sér inn í út-
gáfufyrirtæki hér heima á Fróni með
sögukorn eins og Lottu.
Fyrir það fyrsta fengi hann að
heyra, að þetta væri alls engin saga.
En segjum svo að höfundurinn
myndi stynja því upp, að hann hefði
nú eiginlega hugsað sér að bókin væri
myndskreytt. Með stórum, flottum
litmyndum.
Þá liði yfir útgáfufyrirtækið og
þegar það kæmist aftur til
meðvitundar, hvíslaði það hásri,
grátklökkri röddu:
Hvað heldurðu eiginlega að ég sé?
Múltímilljóner?
Skítlegt
Lotta aðstarfi.
Takið þetta samt ekki þannig að
ég sé að skammast út í Mál og
menningu, síður en svo. öll bókaút-
gáfa á íslandi er samloða þessu al-
þjóðlega fjölprenti. Og þó svo að
íslendingar séu bókaþjóð, þá geta
þeir ekki boðið upp á heimsfræga
barnabókarithöfunda á borð við
Astrid Lindgren.
Það er ósköp skiljanlegt að
islenskir bókaútgefendur taki því
fegins hendi að geta fengið stóra, fína
og flotta litmyndabarnasögubók
fyrir lítinn tilkostnað erlendis frá. En
heldur finnst mér það skítlegt að við
fslendingar skulum einungis vera
neytendur að þessari alþjóðlegu
framleiðslu en ekki þátttakendur.
Mest selda
litsjónvarpstækið
í Finnlandi,
nú fáanlegt
á íslandi.
Vílberg& Þorsteínn
Laugavegi 80 símar 10259 -12622
Póstsendum um land allt.
HVERAGERÐI
SÍMI99-4499