Dagblaðið - 20.12.1979, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Christina Onassis:
Ástinni i
Moskvu
lokið
Christina Onassis cr hætt að elskaj
Rússann sinn, hann Sergei Kausov.
Hún er sögð i tygjum við gamlan
kunningja sinn franskan en ekki er
okkur kunnugt um nafn hans.
Christina sést á myndinni dansa við
kunningja sinn á næturklúbbi einum
i New York.
......J
Jólasveinamir komn-
ir til Hew York-borgar
Þá eru jólasveinarnir komnir til
New York. Þar birtustu skyndilega á
dögunum þrjár tylftir af sveinunum á
götum borgarinnar og voru hinir kát-
ustu eins og vera ber með jólasveina
þegar hallar að jólum. Annars er
athyglisvert að í New York virðist vera
sama ringulreiðin og óvissan með.
tjölda jolasveinanna. Eins og kunnugt
er þá er þetta mikið hitamál meðal
fræðimanna og greinilega þurfa þeir að
kanna þessi mál á víðari grundvelli
heldur en aðeins fiér á íslandi. Fjöldi
jólasveinanna er ljóslega alþjóðlegt
vandamál, sem þyrfti að taka upp á al-
þjóðafundum við tækifæri.
Zimbabwe/Ródesia hefur ekki veríð friðsamlegasti staður jarðarínnar að undan-
förnu þó eitthvað sé að rofa til á þeim slóðum. Þó eru jólin haldin þar hátiðleg sem
víöar og á myndinni sést jólasveinninn koma inn i Salisbury, höfuðborgina, á
skriðdrcka. Börnin virðast ekkert kippa sér upp við það enda skriðdrekar daglegt
brauð á götum borgarinnar.
Gripinn glóðvolgur
Það er fyrírliði ástralska landsliðsins f krikket, sem þarna skýlir leyndasta
Ifkamshluta mannsins á myndinni. Hann kom öllum að óvörum hlaupandi inn á
kríkketvöllinn er Ástraliumenn kepptu við Vestur-Indfur á dögunum. Ekki er Ijóst
hvað maðurínn vildi með þvi að rjúka svona allsber út á völlinn nema það hafi
veríð til að sýna sig og þá Ifka að sjá aðra.
Gæði og
smekklegt útlit...
SIEMENS-ryksugunnar grundvallast á
áratuga tækniþróun og sérhæfðri fram-
leiðslu SIEMENS-verksmiðjanna.
SIEMENS-ryksugan er hljóðlát og auðveld
í notkun.
Rafeindastýrður 10OOW-mótor tryggir
mikinn sogkraft, sem aðlaga má
aðstæðum hverju sinni.
Leitið upplýsinga um SIEMENS-ryksugur
og sannfærist um kosti þeirra.
SIEMENS
-ryksugur sem endast
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4, Reykjavík
Sími 28300
•f ’r'. "
taugahrúga
í daglega
lífinu
Leikarinn Gordon Jackson er
þekktastur fyrir hlutverk sitt sem yfir-
þjónninn i sjónvarpsþættinum Hús-
bændur og hjú. Þar kemur hann fram
sem hinn kaldlyndi og ákveðni maður
sem ekkert fær haggað. Í raun-
veruleikanum segist leikarinn aftur á
móti vera mesta taugahrúga og til
dæmis verða að forðast bæði áfengi og
sterkan mat því slíkt sé sér algjör of-