Dagblaðið - 20.12.1979, Page 24

Dagblaðið - 20.12.1979, Page 24
Iþrottir iþróttir Iþróttir smmroMEiKAR í SKALHOIJ'SKIRKJU Sl’MMER COXCERT IX SKÍLHOlf CHl'RCH Manuela Wiesler, flauta/tlute Helga Ingólfsdóttlr, semball/harpsichord íþróttir íþróttir Á nýafstöðnu ársþingi ÍBV var sam- 'þykkt aö Þór og Týr sendu lið sitt i hvoru lagi til keppni i yngri flokkunum :i knattspyrnu nœsta sumar. Eyjamenn munu því tefla fram tveimur liöum í 3., 4. og 5. flokki. í 2. flokki munu liðin áfram keppa sameiginlega undirmerki ÍBV. Þessi ákvöröun er tekin i beinu framhaldi af mjög öflugu unglinga- Istarfi þeirra Eyjamanna og var fullt Isamþykki beggja félaganna fyrir þess- lari ákvörðun. Hún er því ekki sprottin af neinum ríg. Þetta er vissulega nokkuð mikil dirfska hjá liðunum. Bæjarfélög eins og Akranes og Keflavík hafa t.d. ekki iþorað að leggja út á þessa braut þar eð jekki hefur verið talinn nægur fjöldi drengja til að fylla tvö lið með góðu móti. Á hinn bóginn gefur þessi ákvörðun Eyjaliöanna mun fleiri ung- um drengjum tækifæri og það út af fyrirsig réttlætir e.t.v. þessa ráðstöfun. Vafalítiö verður róður félaganna Iþungur í byrjun en reynslan getur ein skorið úr um það siðar meir hvort hér jhefur verið rétt að verki staðið. - . . FÓV / SSv. Rótaryklúbbur Kópavogs valdi fyrir skömmu i 6. sinn íþróttamann ársins í Kópavogi. Að þessu sinni varð fyrir valinu Margrét María Sigurðardóttir, sundkona úr Breiðabliki. Margrét er fædd 2. okt. 1964 og er því nýorðin 15 ára. Hún hóf æfingar hjá sunddeild Breiðabliks þegar hún var 12 ára að aldri og hefur æft vel og dyggilega síðan og uppskorið i sam- ræmi við þaö. Á þessu ári varð Margrél Itvöfaldur unglingameistari. Þá var hún fimmfaldur íslandsmeistari á árinu. Margrét var í landsliði íslands í sundi í ár. Aston Villa sigraði Coventry 3—0 i 1. deildinni ensku i gærkvöldi. Leikur- inn fór fram á Villa Park. Brian Little skoraði tvö marka Villa en ungur ný- liði, Donovan, hið þriðja. Með sigrin- um þokaöi Villa sér upp að hliö Arsenal og Crystal Palace í stigatöfl- unni. Hefur 23 stig eins og þau en aöeins lakari markatölu. Sovétmenn sigruöu Kanada 5—2 í landsleik í íshokkí sem fram fór í gær- kvöld í Moskvu. Leikurinn var liður í Izveslia keppninni svonefndu. Það sem vakti athygli okkar hér á DB var að annað mark Kanadamannanna skoraöi leikmaður að nafni Arnason. Þykir næsta vist að kappinn muni vera af is- lenzkum ætlum og má því með sanni segja að leiðir landans liggi viða. Áhorfendur voru 12.000 igær. íþróttir íþróttir íþróttir DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979. Ársæll með samning! — Kari bróðir hans búinn að semja við Jönköping „Já, ég er með samning í höndunum frá Jönköping en ég geri ekki ráð fyrirj að ég ákveði mig endanlcga fyrr en upp úr áramótunum,” sagði Ársæll Sveins- son, markvörður þeirra Eyjamanna, er DB spjallaði við hann seint i gærkvöld. ,,Karl bróðir minn hefur hins vcgar skrifað undir samning við félagið.” Ársæll er nýkominn heim eftir. vikuferð til Svjþjóðar þar sem hann dvaldi hjá Jönköping og athugaði allar aðstæður þar. Mun honum hafa litizt . vel á sig og verður að telja allar líkur á að hann gangi til liðs við félagið. Það að Karl bróðir hans hefur þegar skrifað undir samning þykir styrkja þann grun verulega. Ársæll mun því að öllum líkindum laka stöðu annars íslendings hjá félaginu. Árni Stefánsson, mark- vörður úr Fram, var hjá félaginu á síðasta keppnistímabili en hefur nú gengið til liðs við Landskrona, sem er í Allsvenskan — 1. deildinni — þeirra Svía. Mörg félaganna í þjálfaraleit — aðeins fimm 1. deildarfélög hafa ráðið þjálfara áður þjálfað Leikni með góðum ár- Knattspyrnufélög víðs vegar uml landiö eru nú sem óðast að tryggja sérj þjálfara fyrir næsta sumar og flest þcirra hefja æfingar um eða upp úr áramótum. Fimm 1. deildarfélaganna eru enn án þjálfara en hafa verið að leita fyrir sér. Að sjálfsögðu beinist at-j hyglin mest að þeim félögum sem eru í| I. deildinni en ekki má gleyma félögun-j um í 2. og 3. deildinni. Mörg þeirra hafa verið að leita hóf- anna hjá þjálfurum undanfarnar vikur og nokkur hafa þegar ráðið þjálfara. Hlöðver Rafnsson, sem var við stjórn- völinn hjá Þór i sumar og Austra i| fyrrasumar, mun snúa aftur til höfuð-i borgarinnar og taka við þjálfun hjá Leikni í 3. deildinni. Hlöðver hefur Don Revie hefur nú fengiö starf hjá Leeds sem tæknilegur ráðunautur félagsins. Fyrir starfann mun hann þiggja 10.000 pund í laun á ári en hann mun fyrst um sinn a.m.k. slarfa áfram i Dubai. angri. Næsta víst er að Kjartan Másson, sem var aðstoðarþjálfari hjá Eyja- mönnum í sumar, muni þjálfa Reyni, Sandgerði, næsta sumar. Ekki er full- frágengið með samninga en er við síð- asta fréttum voru einungis formsatriði. Kjartan er ekki ókunnugur í Sandgerði því hann bjó þar eftir gosið á Heimaey 1973 og sá þá meðal annars um þjálfun Reynis um tíma. Þá hefur Eggert Jóhannesson gert sér ferð til Akureyrar til spjalls og ráða- gerða með forráðamönnum KA en ekk- ert mun afráðið í þeim efnum. í gærkvöld hafði DB samband við Gunnar Finnsson á Eskifirði og spurðist fyrir um þjálfunarmál Austra. Þeir Austramenn voru mjög ánægðir með Sigurbjörn Marinósson í sumar en jafnframt þjálfun lék hann með liðinu. Gera þeir sér góðar vonir um að fá hann aftur til starfa en það skýrist ekki fyrr en upp úr áramótum. -SSv. Við skýrðum frá því hér í Dag- blaðinu í fyrri viku að þrír leikmenn Keflavíkur væru á leiðinni til 3. deild- arfélags í Svíþjóð. Ekki varð af samningum þar sem umboðsmaður sænska félagsins lét ekki sjá sig hér á Fróni. Að því er DB bezt veit hafa þre- menningarnir allir engu að síður áhuga á að komast til Svíþjóðar. iBK hefur nú sett það skilyrði fyrir brottför þeirra að félagið fái að sjá samninga þeirra, ■ verði af flutningi milli liða. Eins og er hefur því, sem betur fer, komið örlítið bakslag í hinn hrikalega útflutning íslenzkra knattspyrnumanna til Skandinavíu. Vart er við því að búast að það ástand vari lengi og víst er að íslenzk knattspyrna verður mörgum leikmanninum fátækari, þegar keppni hefst að nýju í vor. Ársæll Sveinsson hefur i höndunum samning frá Jönköping og hyggst ihuga hann fram yfir áramót. Ármann steinlá fyrir Tý í bikarnum Ármenningar gerðu enga I glæsireisu (il Eyja í gærkvöld er þeir léku við Tý i bikarkeppni HSÍ. Týrarar sigruöu næsta örugglega 26—21 eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 13—13. Þessi leikur var eins konar forleikur fyrir 16—liða úrslitin i bikarnum enj Týr fær nú bikarmeistara Víkings og efsta lið 1. deildarí heimsókn út í Eyjar í næstu umferð. Leikurinn i gærkvöld var mjög jafn framan af og mátt ekki á milli sjá. Þeg- ar 10 mín. voru liðnar af síðari hálf- leiknum komust Eyjamenn i 17—15 og létu forystuna aldrei af hendi eftir það. Munurinn smájókst út leiktímann ogj undir lokin var greinilegt að vonleysis gætti hjá Ármenningunum. Reyndar segir það sína sögu um leik liðsins að aðalstórskytta þess, Friðrik Jóhanns- son, skoraði ekki mark fyrr en 3 min. voru til leiksloka. Þá var líka allt um seinan og sigur Týs í höfn. Maðurinn á bak við sigur Týs var tvímælalaust Egill Steinþórsson, sem varði geysivel í leiknum og var sínum gömlu félögum úr Ármanni óþægur Ijár í þúfu. Þá var Óskar Ásmundsson, einnig fyrrverandi Ármenningur, ekki Ijúfari í viðmóti og skoraði 6 mörk. Snorri Jóhannsson var annars markahæstur Týrara með 8 mörk úr lítið fleiri tilraunum. Sigurlás Þorleifsson skoraði 7. Fyrir Ármann skoraði Björn Jóhanneson mest eða 9 mörk og Þráinn, tvíburabróðir Óskars í Týsliðinu, skoraði 6 mörk. Staðan í 1. deildinni Staðan í 1. dcild íslandsmótsins i handknattleik karla er nú þannig er öll lið hafa lokiö 6 leikjum. Vikingur 6 6 0 0 134- -107 12 FH 6 4 1 1 135- -127 9 KR 6 4 0 2 135- -126 8 Valur 6 3 0 3 123- -113 6 ÍR 6 2 1 3 123- -124 5 Haukar 6 2 1 3 124- -133 5 Fram 6 0 3 3 119- -130 3 HK' 6 0 0 6 96- -131 0 Markahæstu menn: Bjarni Bessason, ÍR Kristján Arason, FH Páll Björgvinsson, Víkingi Ragnar Ólafsson, HK HaukurOttesen, KR Ólafur Lárusson, KR Andrés Bridde, Fram Atli Hilmarsson, Fram 39 32/17 32/19 31/14 28/2 27/11 27/22 25 Enn fá Skotarnir skell Það er ekki hátt risið á knattspyrnulandsliði Skota þessa dagana. í gærkvöldi máttu Skotarnir þola 1—3 fyrir Belgum á Hampden Park í 2. riðli Evrópukeppni landsliða. Með þessum sigrisinumhafa Belgamir tryggt sér sæti í úrslit- um keppninnar, sem fram fara i Róm á næsta ári. Skotarnir hófu leikinn svo sem nógu vel en fóru illa með opin færi i byrjun leiksins. Eftir að hafa varizt um stund gerðu Belgarnir síðan út um leikinn með þvi að skora þrívegis á aðeins II mínútna kafla. Eftir firnafasta auka- spyrnu van der Eycken náði van der Bergh knettinum og sendi hann í netið. Fimm mín. siðar þrumaði van der Elst knettinum í netið rétt innan vítateigs eftir frábærlega vel út- færða sóknarlotu hjá Belgum. Síðasti naglinn i líkkistu Skotanna kom svo á 30 mínútu er van der Elst stakk sér inn fyrir vörn Skotanna og bætti þriðja markinu við. Skozku varnarmennirnir vildu fá dæmda rangstöðu og höfðu nokkuð til síns máls. Línuvörðurinn stóð hins vegar fast á sínu. í síðari hálfleiknum lögðu Belgarnir megináherzlu á að halda fengnum hlut. Þeim tókst þó ekki að koma í veg fyrir að Skotarnir skoruðu. Kenny Dalglish var brugðið á víta- teigslínu og úr aukaspyrnunni, sem dæmd var skoraði John Robertson efst í markhorhið — gullfallegt mark. Skotamir tóku mikinn kipp við þetta mark og sóttu lát- laust og sköpuðu sér nokkur gullin færi. Framlinumenn liðsins voru hins vegar ekki á skotskónum frekar en svo oft áður og ekkert gekk upp við markið. Undir lokin munaði svo minnstu að Belgar bættu fjórða markinu við en van der Elst skaut hátt yfir í dauðafæri. Þar með hafa úrslit fengizt I öllum Evrópuriðlunum 7 að tölu. Englendingar unnu öruggan sigur i 1. riðli og eiga meira að segja einn leik eftir. Belgar unnu 2. riðil, Spánverjar 3. riðil, Hollendingar þann 4., Tékkar unnu 5. riðilinn, Grikkir öllum á óvart þann 6. og V-Þjóðverjar eru öruggir sigurvegarar í 7. riðli þrátt fyrir að eiga enn tvo leiki eftir. Gestgjafarnir, ítalir, eru 8. liðið í úrslitunum. Pressuliðið fær tækifæri til að tuska landsliðið — er liðin mætast á jólasveinahátíð HSÍ á Höllinni í kvöld, Þingmenn, skemmtikraftar og fréttasnápar keppa í heimsmeistarakeppninni í innanhússknattspymu og m. fl. til skemmtunar ræða, en hún var sem kunnugt er titluð jólasveinar einn og átta” í einum fjöl- Hið nývalda landslið Jóhanns Inga Gunnarssonar fær sína eldskírn í kvöld er það mætir „pressuliðinu”, liði sem íþróttafréttamenn völdu í gær. Þessi stórleikur verður siöasta atriðið á heljar- mikilli jólasveinahátið, sem HSÍ gengsl fyrír í Laugardalshöllinni i kvöld. Auk þessa leiks verða fjöldamörg atriði til skemmtunar og ætti eitlhvað að vera við allra hæfi. Liðið, sem íþróttafréttamenn völdu í gær og mun leika í kvöld er þannig skipað: Ólafur Benediktsson, Val Páll Ðjörgvinsson, Víkingi Árni Indriðason, Víkingi Erlendur Hermannsson, Víkingi .Steinar Birgisson, Vikingi_____________ ,, . . . og láta þig ganga með iafandi brjóstin um allan bæ — eða þannig”. Laddi er hér i gervi Saxa læknis. „ . . . og ég er í hreinum sokkum” söng Laddi eitt sinn inn á hljómplötu. Sá texti hæfir hins vegar ekki þessari mynd af bróður hans, Halla, sem er hér berlapp- aður og hinn vígalegasti ásýndum. Ólafur H. Jónsson, Þrótti Axel Axelsson, Dankersen Þorbjörn Guðmundsson, Val Bjarni Bessason, lR Birgir Jóhannsson, Fram Pétur Ingólfsson, FH. Síðast i gærkvöld vantaði enn annan markvörð liðsins þar sem bæði Jón - Gunnarsson, Fylki, og Ólafur Guðjóns- son, Haukum, forfölluðust og gátu ekki verið með i kvöld. Landsliðið hefur áður verið birt hér í DB. Þeir leikmenn sem eru i 16 manna hópnum og leika ekki með i kvöld eru Jens Einarsson, Vikingi, Stefán Halldórsson, Val, Atli Hilmars- son, Fram, og Andrés Kristjánsson. Það þarf að sjálfsögðu ekki að fjöl- yrða um það að í kvöld verður saman kominn rjóminn af okkar beztu hand- knattleiksmönnum og þeir Axel Axelsson og Viggó Sigurðsson hafa ekki leikið hér heima áður í vetur. Axel er nýkominn heim frá Þýzkalandi og Viggó frá Spáni. 1 pressuliðinu eru eigi færri en 5 leik- menn, sem léku með landsliðinu í haust gegn Tékkum og vafalíiið hyggjast þeir sýna landsliðseinvaldinum fram á að þeir eiga allt eins heima í 16 manna hópnum og þeir, sem valdir hafa verið. En það verður fleira á dagskrá en handknattleikur. Ef við rennum yfir dag- skrá kvöldsins þá hefst hún kl. 19.30 með tónlist, sem stjórnað verður af Magnúsi Kjartanssyni. Á slaginu átta „koma jóla- sveinarnir til byggða” eins og þeir HSÍ menn vilja orða það. Ekki hefur fengizt upplýst hvort hér er um stjórn KSÍ að miðlanna, eða hvort þetta verða alvöru jólasveinar. Að þessu atriði loknu hefst fyrsti leikurinn í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu innanhúss. Eigast þar við skemmtikraftar og iþróttafréttamenn. i liði skemmtikrafta verða eftirtaldir: Halli & Laddi, Ómar Ragnarsson, Rúnar Júlíusson, Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson og Jón Ólafsson. Liðsskipan íþróttafréttamanna verður haldið leyndri þar til í kvöld. Þá verður leikur á milli íslenzka pilta- landsliðsins í handknattleik (18 ára og yngri) og landsliðsins eins og það var skipað 1966. Má þar nefna kappa eins og Ingólf Óskarsson og Labba og marga fleiri fræga snillinga. Þá verður tízktisýn- ing í 20 mín. og síðan verður gert örstutt hlé. Að því loknu leika alþingismenn og skemmtikraftar í heimsmeistarakeppn- inni í knattspyrnu. Aðeins var vitað um 4 þingmenn í gærkvöld sem voru öruggir í liðið þar sem ekki hafði náðst samkomu- lag um skipan þess. Albert Guðmunds- son, Friðrik Sophusson, Jóhann Ein- varðsson og Eiður Guðnason eru þeir öruggu en hverjir fylgja þeim er óvíst. Síðan verður úrslitaleikurinn í heims- meistarakeppninni í knattspyrnu og mætast þá hið ósigrandi lið íþróttafrétta- manna og alþingismenn. Lokaatriði skemmtunarinnar verður sem fyrr sagði leikur landsliðsins og pressunnar. Að fenginni reynslu er fólk beðið að t liði þingmanna verður að sjálfsögðu Al- bert Guðmundsson — hinn síungi. koma mjög tímanlega í kvöld til að forð- ast þrengsli. í fyrra var fullt hús og komust margir seinna inn en upphaflega var ætlað vegna þrengslanna. i leiknum varði Guðjón Erlendsson, markvörðut DB mynd Bjarnleifur. sofnaði mátti þakka fyrir annað stigið í 19-19 jafntefli gegn Fram Framarar fóru illa að ráði sínu gegn ÍR er liðin mættust i 1. deild íslands- mótsins í handknattleik i Laugardals- höllinni i gær. Eftir að hafa haft frum- kvæðið allan leikinn og mest náð 5 marka forystu máttu Framarar loks sætta sig við jafntefli, 19—19. Staðan í hálfleik var 10—7 Fram í vil. Það var sagt hér á íþróttasíðunni um daginn að ÍR-ingar hefðu svæft Vals- menn. í gærkvöldi var hins vegar engu líkara en ÍR-ingar hefðu aldrei vaknað í gærmorgun. Leikmenn voru gersam- lega sofandi fyrstu 20 min. leiksins og Framararnir gátu leyft sér hvað sem þeir vildu. Enda fór svo að Fram komst i 8—3 á þessum fyrstu 20 minútum. Undarlegt hvernig ÍR-liðið hefur byrjað í síðustu tveimur leikjum. Leik- menn hreinlega ekki verið með á nótun- um oft á tíðum. Þrátt fyrir þessa afleitu byrjun tókst Fram ekki að nýta sér það til sigurs. Kæruleysi greip um sig í sókninni og þótt Guðjón Erlendsson verði mun betur en áður í vetur dugði það ekki til. ÍR-ingar söxuðu smám saman á for- skotið. Fram leiddi með þremur mörk- um í leikhléi og tókst að auka muninn í 4 mörk strax í upphafi síðari hálfleiks. ÍR-ingar gáfust ekki upp þótt á móti blési og eftir 10 mín. af s.h. var munur- inn orðinn aðeins eitt mark, 13—12 Fram í hag. Framarar tóku þá mikinn sprett og komust í 16—12 á 3 mínútum. Það tók ÍR-ingana hins vegar ekki nema 5 mín. að jafna metin, 16—16. Eftir það skiptust jiðin á um að skora — Fram þó alltaf á undan. Lokatölur 19—19 og verða eftir atvikum að teljast nokkuð sanngjörn úrslit. Þrátt fyrir að hafa haft öll tök á að næla sér í sinn fyrsta sigur eru Framar- ar enn án sigurs í 1. deildinni — einir liða auk HK. Bezti maður liðsins var án efa Jón Árni Rúnarsson. Hann skoraði 5 mörk, þar af 4 úr hægra horninu framhjá Ársæli Hafsteinssyni. Birgir var að vanda mjög duglegur á línunni og tókst oft að fiska knöttinn í sóknum ÍR, en mætti vanda skotin betur. Guð- jón varði ágætlega í leiknum þótt leikmenn ÍR gerðu honum oft auðveld- ara fyrir með þvi að skjóta niðri á hann þar sem hann er sterkastur. Egill kom vel frá leiknum en aðrir leikmenn Fram áttu flestir ágæta kafla — enginn átti verulega heilsteyptan leik. Atli Hilmarsson var lítið með og greinilegt að meiðslin há honum enn verulega. Einhvern veginn hefur maður það á til- finningunni að Fram-liðið geti mun meira en það sýnir, en það fara að verða síðustu forvöð fyrir strákana að sýna hvað í þeim býr. Taki þeir sig ekki á gæti 2. deildin orðið þeirra hlutskipti næsta vetur. IR er dæmigert seiglulið og skipað í kvöld fer fram einn leikur i 2. deDd Islandsmótsins í handknattleik karla. Þá leika í Eyjum Týr og Afturelding og hefst leikurinn kl. 20. Leik þessum var frestað fyrir nokkru vegna þess að lið Aftureldingar komst ekki, sökum erfiðleika í flugsamgöngum. Ricardo Villa, Argentínumaðurinn hjá Tottenham, var í gær dæmdur í 3 leikja keppnisbann. Hann mun þvi missa af leikjunum gegn Ipswich, Arsenal og Stoke og eiga gott frí um jólin í beinu framhaldi af þvi. Þá hefur honum og félaga hans, Osvaldo Ardiles, verið hótað því að þeir verði ekki með i undirbúningnum fyrir HM 1982 á Spáni nema þeir snúi heim á næsta ári, eða í síðasta lagi 1981 þegar samniugar þeirra við Tottenham renna út. „Eg veit svei mér ekki hvað gera skal,” sagði Ardiles er hann var spurður álits. Bæði Ardiles og Villa hafa kunnað mjög vel við sig i Eng- landi. baráttukörlum sem ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Reyndar kemst maður ekki hjá þvi að velta fyrir sér hvar liðið stæði í töflunni næði það einhvern tima heilsteyptum Ieik. Á meðan leikur liðsins er jafn hrikalega tröppukenndur og raun ber vitni er ekki við neinu nema miðlungssæti í 1. deildinni að búast. Ársæll og Bjarni Bessason voru sterkustu menn liðsins að þessu sinni þótt báðum yrðu á ljót mistök — Bjarna í sókn og Ársæli í vörninni. Þá var Guðmundur Þórðar- son góður og Þórir átti ágætan leik í markinu. Sigurður Svavarsson var daufari en oft áður og Guðjón átti góðan lokasprett. Sigurður Gíslason er enn með höndina í gifsi og ekki er víst hvenær hann getur hafið að leika með ÍR aftur. Koma hans í vörnina myndi styrkja liðið verulega og áhyggjur af falli ættu ekki að þurfa að angra ÍR- inga í vetur. Árangri nær liðið þó ekki fyrren jafnvægi kemstáleik þess. i Mörk Fram: Jón Árni 5, Andrés 4/2, Birgir 3, Hannes 2, Egill 2, Theodór, Sigurbergur og Erlendur eitt hver. Mörk ÍR: Bjarni Bessa 5, Ársæll 5, Bjarni Hák. 2/2, Guðjón 2, Sigurður 2/2, Guðmundur 2, Bjarni Bjarnason 1. - SSv. Bjarni Bessason stekkur hér inn i teiginn hjá Fram, illur ásýndum. í þetta skiptið hafnaði knötturinn i netinu en fyrr Fram, skot hans úr svipaðri aðstöðu. Nú var það IR sem Ný klassísk hljómplata Nú er komin í verzlanir ný íslenzk hljómplata með þeim Manuelu Wiesler og Helgu Ingólfsdóttur. Á þessari plötu sem var hljóðrituð í Skálholtskirkju í nóvember eru verk eftir Bach, Pál P. Pálsson og Leif Þórarinsson. Þær Manuela og Helga hafa leikið saman um árabil og hvarvetna hlotið frábæra gagnrýni. Berlingske Tidende 1978, jeb. „Frábært dúó... og það var sama hvað þær léku allt var unaður I eyra.” Morgunblaðið 1977, Jón Ásgeirsson. Manuela Wiesler og Helga lngólfsdóttir eru frábærir flytjendur og mættu hljómplötuútgefendur huga þar að. Politiken 1978, Flemming Weis. „ .. Fullkominn samleikur viðgagnkvæma aðlögun”. Morgunblaðið 1979, Jón Ásgeirsson „.. og eru þessir tónleikar með þvi eftirtektarverðasta sem gerzt hefur í islenzku tónlistarlífi”. Dreifing Sími 84670. ÍR - Fram 19-19 (7-10) íslandsmótifl i handknattieik, 1. deild karla. ÍR-Fram 19—19 (7—10). Laugardalshöll 19. desember. Beztu leíkmenn. Jón Ámi Rúnarsson, Fram 7, Bjami Bessason ÍR 6, Ársœll Hafsteinsson, ÍR 6, Birgir Jóhannsson, Fram 6, Gufljón Eríendsson, Fram 6. ÍR. Þórir Rosason, Ingimundur Guflmundsson, Bjami Hókonarson, Gufljón Marteinsson, Ólafur Tómasson, Sigurflur Svavarsson, Guðmundur Þórflarson, Bjami Bjamason, Ársœll Haf- steinsson, Pétur Valdimarsson, Bjami Bessason. Fram. Gufljón Eriendsson, Gissur Ágústsson, Birgir Jóhannsson, Theódór Guðfinnsson, Jón Ámi Rúnarsson, Sigurbergur Sigsteinsson, Rúnar Gufllaugsson, Egill Jóhannesson, Atli HUmarsson, Eriendur Daviflsson, Andrés Bridde, Hannes Leifsson. Dómarar Ámi Tómasson og Bjöm Kristjénsson. ÍR fékk 4 vfti — nýtti 3. Fram fékk 2 og nýttí bæfli. Engum leikmanni var vikifl af leikvelli. Áhorfendur um 150 talsins.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.