Dagblaðið - 20.12.1979, Page 40
40 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
Dr. Hook — Sometimes You Win
HiNN SANNi DR. HOOK-ANDI
Dr. Hook - SOMETIMES YOU WIN
Capitol/Fálkinn (E-ST12018)
Tónlistin á nýjustu plötu hljóm-
sveitarinnar Dr. Hook er mjög
blönduð. Þar er enn að finna ballöður í
gamla Dr. Hook-stílnum. Einnig eru
þar nokkur hröð lög og nokkur með
hálfgerðum diskótakti. Til dæmis er
lagið When You’re In Love With A
Beautiful Woman, sem var á plötunni
Pleasure And Pain, endurútgefið á
þeirri nýju. Nú er trommuslátturinn
orðinn aðeins sterkari og lagið þar
með betur fallið til að dansa eftir því.
Það er ekkert slæmt hægt að segja
um plötuna Sometimes You Win.
Hún er í sönnum Dr. Hook anda og
þeir sem á annað borð kunna að meta
þessa hijómsveit verða ekki sviknir af
nýju plötunni. Dr. Hook hefur nú
verið starfandi um tiu ára skeið og
eftir svo langan tíma vita Iiðsmenn
hennar nákvæmlega hvað þeir eiga að
gera til að þóknast aðdáendum sínum.
Góð sala plötunnar segir sína sögu.
Ef nefna á einhver lög á Some
times You Win sem eru líkleg til
vinsælda, þá ber þar hæst In Over My
Head, sem að mínum dómi ber af
öðrum lögum plötunnar. Annað gott
lag er Better Love Next Time, sem
raunar er nú þegar komið ofarlega á
bandaríska vinsældalistann. — Some-
times You Win er ómissandi i
plötusafn aðdáenda Dr. Hook.
-ÁT-
Oskum
__öllum landsmönnum V-—-------
GLEÐILEGRA JÓIA
-----1 ársogfridar |----
^ SAMBANDISL.SAMVINNUFEIAGA
Donna Summer — OnThe Radio:
AFKASTAMESTA
r ma
DISKOSONGKONAN
Donna Summer — ON THE RADIO
Philips/Fálkinn (6641 990)
Diskó-Donna Summer hefur ver-
ið sérlega afkastamikil á því herr-
'ans ári 1979. I vor kom út með henni
tvöföld plata, Bad Girls, sem hlaut
’mjög góðar viðtökur og gengur enn
þann dag í dag á diskótekum. Fyrir
nokkrum vikum kom svo á markaðinn
önnur tvöföld plata með Donnu. Sú
heitir On The Radio og ber undir-
titilinn Greatest Hits Volume 1 & II.
Eins og nafnið bendir til eru á
plötunni gömlu lögin hennar Donnu.
En til að hressa upp á lagavalið er
einnig að finna tvö ný lög á On The
Radio. Það eru lögin No More Tears
(Enough Is Enough) og On The Radio.
Gömlu lögin eru þrettán talsins, allt
frá Love To Love You Baby til Dim
All The Lights, sem var ofarlega á
vinsældalistum fyrir nokkrum vikum.
Búið er að raða þessum gömlu Iögum í
syrpur, líkt og gert er á piötunni Bad
Girls. Það hefur tekizt ágætlega miðað
við að þau eru með mjög misjöfnum
danstakti.
Með Donnu í laginu No More Tears
syngur Barbra Stréisand. Þetta lag er
einnig á Wet, nýjustu sólóplötu
hennar. Það er mun betra í þeirri út-
gáfu sem er á plötu Donnu. Betur
virðist vandað til hljómsins, jafnframt
því sem lagið hefur verið lengt
verulega I flutningi Donnu.
Aðdáendur Donnu Summer og
diskótónlistar yfirleitt ættu ekki að
láta plötuna On The Radio fram hjá
sér fara. Hinir sem ekki hlusta á
diskótónlist finna ekkert á plötunni
viðsitt hæfi. -ÁT-
Shadows — String Of Hits
A FERDINNII
TUTTUGUÁR
Shadows - STRING OF HITS
EMi/Fálkinn (EMC 3310)
l júlí á næsta ári er liðin tuttugu ár
.siðan hljómsveitin Shadows kom lagi
fyrst í efsta sæti vinsældalistanna i
heimalandi sínu, Englandi. Enn eru
liðsmenn hljómsveitarinnar að. Eftir
nokkur ár í gleymsku er Shadows enn
á ný komin í hóp vinsælustu hljóm-
sveitanna.
Platan String Of Hits hefur fengið
sérstaklega góðar viðtökur. Á henni
eru tólf lög úr hinni og þessari áttinni,
sem flest hafa á liðnum árum notið
mikilla vinsælda. Sem dæmi má nefna
Bridge Over Troubled Water, You’re
The One That I Want, Heart Of Glass
og Baker Street.
Aðeins eitt lag á String Of Hits er
eftir liðsmenn Shadows, þá Hank
Marvin, Bruce Welch og Brian
Bennet. — Sá fjórði, John Rostill, lézt
fyrir nokkrum árum.— Þá á gamall
samstarfsmaður Marvins og Welch
eitt lag. Sá heitir John Farrar og
samdi lagið You’re The One That I
Want, eins og reyndar flest önnur
lög kvikmyndarinnar Grease.
Fyrir minn smekk eru útsetningar
Shadows á gömlu lögunum ósköp hug-
myndasnauðar. Hljómsveitin hefði að
skaðlausu mátt gefa meira af sjálfri
sér en bara sólógítarinn hans Hanks
Marvin. Að þessum galla upptöldum
er plata ósköp viðfelldin og ágætis bak-
grunnstónlist, þegar fólk þarf að ræða
lífsins gagn og nauðsynjar með Ijúft
gítarkropp Hank Marvins til að auka á
fjölbreytnina.
-ÁT-