Dagblaðið - 20.12.1979, Qupperneq 44
44
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
i*Jy
DUKKAN
Lifandi, faiieg og sér/ega
meðfærileg. Skemmtiieg
húsgögn og fötíúrva/i.
Fæst í f/estum
/eikfangabúðum.
Pétur Pétursson heildverzlun
Suðurgötu 14. Símar21020—25101.
Ný bók eftir Málfríði Einarsdóttur, skáldsagan
Auðnu-
leysingi
og
Tötrug-
hypja
Að viðbættri sögu
af Hvotta
vesalingi og mér
„Það er eitt af undrum veraldar hvernig sumt fólk getur
allt í einu sprottið fram á efstu árum lífsins og ausið yfir
okkur geníalíteti sliku að maður grætur það eitt að hafa
ekki notið þess fyrr. Oftast birtist þetta í einhvers konar
endurminningaformi — miklu sjaldnar í flóknu skáldsögu-
formi, ég tala nú ekki um í einhvers konar tilraunaskáld-
sögu eins og í þessu dæmi. Þeim mun stórfenglegra er það
líka sem þaðer sjaldgæfara.”
Helgarpósturinn, Heimir Pálsson.
„Þessar bækur (Málfríðar Einarsdóttur) eru dálítið eins og
vel kryddað, vandað og sterkt brennivín: best að meðtaka
þær í hóflegum skömmtum ef menn vilja viðhalda skyn-
semisglóru sinni. En sé maður á annað borð kominn á
bragðið... Skál, bræður og systur!”
Dagblaðið, Ólafur Jónsson.
Ath. Enn eigum við til dálitiö af fyrri bókum Mátfríðar:
Samastadur í tilverunni
Úr sálarkirnunni
Bókaútgáfan
LJÓÐHÚS HF
Laufásvegi 4. Reykjavlk. Sími 17095.
MODEL-ÚTVÖRP
★ Rolls Royce
phantom
★ Lincoln 1928
★ Standsími,
amerískur
★ Sjónvarp
★ Lystikerra
sem jafnframt
eru útvarps-
viðtæki!
Leikfangabúóin Hlemmi
Biðskýlið Hiemmi - Sími 14170
Festíðá
fi/mu
dýrmæt
augnabtík
ímátíog
mynd —
á Minoita
MINOLTA
FILMUR 0(3 VELAR S.F.
Skólavörðustíg 41 - Sími 20235 - Pósthólf 5400
Sígildir
skrifstofustólar
Við höfum mikið úrval skrifstofustóla og að sjálfsögðu
nú með sjálfvirkum hæðarstilli.
Athugið að góður skrifstofustóll er tilvalin jólagjöf
fyrir skólafólkið.
Lítið inn og fáið ykkur sæti um leið
og þið skoðið framleiðslu okkar.
STÁLIÐJAN"f
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
ísafjörður:
Skólakrakk-
arnir söfnuðu
262.170kr.til
móður Teresu
Fyrir miðjan nóvember gekkst
Björgvin Sighvatsson skólastjóri
Barnaskólans á ísafirði fyrir því, að
börn í skólanum söfnuðu fé handa fá-
tækum börnum í Indlandi í tilefni af al-
þjóðlega barnaárinu. Skyldi móður
Teresu í Kalkútta falið að verja fénu til
hjálpar þeim smæstu og umkomulaus-
ustu, sem hún hefur lagt allt starf sitt í
aðlíkna.
Skólastjórinn stakk upp á, að hvert
barn léti af hendi rakna andvirði eins
bíómiða. Undirtektir voru slíkar, að á
skömmum tíma söfnuðust 262.170
krónur. Er það langstærsta framlag
hérlendis, sem borizt hefur til líknar-
starfs móður Teresu — Kærleikstrú-
boðanna.
-ÓV
Mikil ölvun
þrátt fyrir
áfengis-
hækkun
„Það virðist síður en svo draga úr
ölvuninni við þessa áfengishækkun.
Ölvunin var óvenjumikil í gærkvöldi,”
sagði varðstjóri í Reykjavíkurlög-
reglunni í samtali við Dagblaðið í
morgun.
Fangageymslur lögreglunnar máttu
heita fullar í morgun og er það
óvenjulegt á þessum tíma vikunnar.
Varðstjórinn taldi að ástæðunnar væri
að leita í nálígð jólanna, og má hugsa
sér, að menn hafi viljað taka forskot á
sæluna.
-GAJ.
Jóhann á
Evrópumót
unglinga
í skák
Jóhann Hjartarson, skólaskák-
meistari íslands, hélt í gærmorgun til
Gröningen í Hollandi ásamt Friðriki
Ólafssyni. Mun Jóhann, sem er tæpra
17 ára, taka þátt í Evrópumóti
unglinga 20 ára og yngri. Mótið hefst á
morgun og stendur til 4. janúar.
Búnaðarbanki Íslands og skák-
klúbbur Búnaðarbankans standa undir
kostnaði við för Jóhanns en hann hefur
starfað i bankanum og teflt með
góðum árangri í sveitakeppni fyrir hans
hönd. í Gröningen verða tefldar 13 um-
ferðir eftir Monradkerfi, en þátt-
takendur verða frá yfir 30 löndum.
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, mun
verða viðstaddur mótssetninguna.
-GAJ.
Geysis-
kvartettinn
syngur
alþýðulög
Tónaútgáfan á Akureyri sendir frá
sér nú fyrir jólin hljómplötu með söng
Geysiskvartettsins. Að sögn Pálma
Stefánssonar útgefanda eru á plötunni
fjórtán létt alþýðulög. Undirleikari
kvartettsins er Jakob Tryggvason.
Upptaka plötunnar fór fram í
Hljóðrita í Hafnarfirði síðastliðið vor.