Dagblaðið - 20.12.1979, Blaðsíða 45
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1979.
45
Ævintýri Dýra
Það er gleðiefni þegar góðir höfundar skrifa fyrir
böm. Jón frá Pálmholti hefur lengi verið í hópi betri
rithöfunda islenzkra og nú er fyrsta bamabók hans
komin út en örugglega ekki hans síðasta. Jón las
Ferðina til sasdýrasafnsins í útvarpið l fyrra og hlaut
sagan þá miklar vinsældir. Hér segir frá dýmm sem
taka sig upp úr sínum heimahögum og halda til
Sædýrasafnsins til að stofna þar dýraríkl Á leiðinni
rata dýrin i margvisleg ævintýri og sifellt bætist í
hópinn og það er skrautleg fylking sem yfirgefur Akra-
borgina i Reykjavík; hundar, kettir, hestar, kýr og
kindur, hreindýr og hænur. Frásögnin er lifandi og
bömin kynnast landinu og dýrunum náið. Bókin var
skrifuð sem andsvar við öllu þvi crlenda prenti sem
'hellist yfír islenzk böm. Bók sem opnar heim íslenzks
veruleika fyrir lesendunum. Sigurður Þórir hefur
myndskreytt bókina. Lystræninginn gefur út.
Prentsmiðjan Leiftur hefur gefíð út bækurnar
Labba fær sér snúning og Labba lætur ailt fjúka
eftir Merri Vik i þýðingu Gisla Ásmundssonar.
Skemmtilegar bækur fyrir telpur. Bækurnar eru 142
bls.& 151 bls.
Veðurfræði
Eyfellings,
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefíð út Veðurfræði
Eyfellings, greinargerð um veður og veðurmál undir
Eyjafjöllum. Höfundur er Þórður Tómasson frá
Vallnatúni. Bókinni er skipt I röska tuttugu kafla og er
168 bls.
Tfmaritið
Andvari
Út er komið tlmaritið Andvari, 104 ár en útgefandi er
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins.
Ritstjóri er Finnbogi Guðmundsson. Meðal efnis má
nefna: Páll ísólfsson eftir Jón Þórarinsson, Berserkja-
hraun eftir Björn Jónsson, Fjögur kvæði eftir Rósberg
G. Snaaial, ritgerð eftir Göran Schildt, grein um Jónas
Guðlaugsson skáld eftir Vilhjálm Þ. Gíslason, Hallæri
og hneykslismál eftir Ruth Christine Ellison, Tveir
þættir úr Egils sögu eftir Hermann Pálsson, með
Wagner í Bayreuth eftir Árna Kristjánsson, Níu bréf
eftir Stephan G. Stephansson og Gamansemi Snorra
Sturlusonar eftir Finnboga Guðmundsson. Andvari er
143 bls.
*
Jón tiá Pálmholtl
Ayako Miura
V£LDl
KÆf?L£lKAitö
Tvær nýjar
Löbbubækur
Veldi kærleikans
Bókaútgáfan Salt hf. hefur gefíð út bókina Veldi
kærleikans eftir Ayako Miura. Bókin er hrífandi ástar-
saga sem byggist á raunverulegum atburðum. Hún
gerist í Japan um síðustu aldamót þegar ólík menning
jausturs og vesturs mættist og mikil andleg vakning
(átti sér stað. Sr. Jónas Gíslason þýddi úr sænsku.
jVeldi kærleikans er 237 bls. .
Sigurför 7
Bókaútgáfan Leiftur hefur gefið út bókina Sigurför,
sagan um Georg Williams. Benedikt Arnkelsson
þýddi. Sigurför segir frá fjörmiklum piltum sem setja
sér háleit markmið, berjast viðfreistingar og lausungá
tímum siðferðilegrar hnignunar og sýna og sanna að
vegur trúar og heiðarleika er vegur hamingju og ótrú-
legra ævintýra. Þetta er lifandi frásögn um braut-
ryðjandann og æskulýðsleiðtogann Georg Williams
sem varð upphafsmaður KFUM. Bókin er 133 bls.
iM
FOLKH) MITfr
-OG FLEIRI DÝR-
Dauðarefsing
Ingólfsprent hf. hefur gefíð út bókina Dauðarefsing
eftir Heinz G. Konsalik. Bergur Björnsson þýddi. Saga
þessi gerist I Þýzkalandi á eftir stríðsárunum og fjallar
um þá stóru spurningu hvort dauðarefsing sé rétt-
lætanleg. 1 sögunni eru rakin nokkur meiriháttar
glæpamál og skýrt frá örlögum og refsingu þeirra aðila
er við sögu koma. Höfundur er bókmenntafræðingur,
leikstjóri og ritstjóri. Dauðarefsing er 157 bls.
Fólkið mitt
Prentsmiðjan Leiftur hefur gefið út bókina Fólklð
mitt — og fleiri dýr eftir Gerald Durrell. Sigríður
Thorlacius þýddi. Durrell er einn þekktasti óýra-
fræðingur Breta og hefur skrifað margar
bráðskemmtilegar bækur um viðskipti sin og sambýli
við hin ýmsu dýr og er þessi bók einna þekktust. Hann
hefur einnig skrifað skáldsögur og barnabækur. Bókin
er 228 bls.
Nútíma-
Tamarindfræið
Prentsmiðjan Leiftur hefur gefið út Tamarindfræið,
eftir Evelyn Anthony í þýðingu Hersteins Pálssonar.i'
Judith starfaði i aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna,
þar sem fjallað var um trúnaðarmál. Han grunaöi ekki
að hinn alúðlegi maður sem hún hitti í orlofi á
Barbados væri tengdur njósnakerfi Rússa...
Tamarindfræiðer 231 bls.
listasaga
Fjölvaútgáfan gefur út i ár óvenju fjölbreytt bóka-
úrval. Stærsta bókin og jafnframt mesta verk, sem
Fjölvi hefu fengizt við fram til þessa, er Nútíma-lista-
saga. Þetta < er meira en 500 bls. bók í stóru broti
og mcð nærri 400 litmyndum í fullum liium Mcr cru
raktar allar hinar einkennilegu hreyfingar í listum á
siöustu árum, svo sem popp, skreytilist, gerningalist
og ótal margt fl. Kápumynd er hið fræga
Mutlandslag eftir Erró. Allt útlit er fyrir að þetta
verði stærsta og dýrasta bókin á jólamarkaðnum í ár.
Miðaö við núverandi gengi mun hún kosta innan við
: 30 þús. krónur.