Dagblaðið - 20.12.1979, Side 48

Dagblaðið - 20.12.1979, Side 48
Hart f jölskyldustríð í Eyjum: Lúbarði konu fyrrum samstarfsmanns síns - og kærir hann nú fyrir að hlunnfara sig í viðskiptum og hafa haft af sér fé Fullkomið haturs- og striðsástánd er nú sagt ríkja milli tveggja fjöl- skyldna í Vestmannaeyjum og hafa húsbændur fjölskyldnanna lagt fram kærur hvor á annan, sem teknar verða fyrir hjá bæjarfógetaem- bættinu. Fyrri kæran barst í síðustu viku. Var þá annar maðurinn kærður fyrir að hafa drukkinn ráðizt inn á heimili hins, er kona hans var ein heima. Komst hann inn í húsið með því að sparka upp útihurð. Er inn kom greip hann hamar og réðst að húsmóður- inni, barði hana með hnefa í gólfið, dró hana síðan út á hárinu og barði hana þar. Mann bar þá að og bjarg- aði hann konunni með því að ná hamrinum af árásarmanninum. Kon- an gat nú hlaupið frá, en enn sleit árásarmaðurinn sig lausan og kom höggi á konuna á flótta hennar. Flvarf maðurinn síðan á braut en lögregla náði honum fáum mínútum síðar og var hann þá allmjög drukk- inn. Sá sem árásina gerði á konuna hefur síðan kært eiginmann konunn- ar sem barin var. Sakar hann eigin- manninn um að hafa allt fram á mitt sl. sumar, meðan þeir stóðu saman að útgerð báts, hlunnfarið sig og haft af sér fé. Fjallar kæran því að einu leyti um fjárdrátt og mun um miklar upphæðir að ræða í þeim efn- um. Eiginmaður konunnar sem barin var hefur sagt að árásarmaðurinn hafi margoft hótað sér og fjölskyldu sinni lífláti. Að sögn yfirlögregluþjónsins í Eyj- um, Agnars Aðalsteinssonar, munu alvarlegustu hótanirnar og aðgerðir i viðskiptum mannanna eitthvað tengdar áfengisneyzlu. Áverkar konunnar munu ekki taldir alvarlegir en að vonum var hún dösuð og hrædd eftir. Júlíus Georgsson fulltrúi fógeta sagði að skaðabótakrafa fyrir árásina á konuna væri enn ókomin. Hann kvaðst ekki hafa séð hina kæruna, en neitaði ekki tilvist hennar. - A.St. frjálst, nháð dagblað FIMMTUDAGUR 20. DES. 1979. Yfirlýsing Alþýðubanda- lagsins í gærkvðld: Reynt að leysa vandann á kostnað launafólksins ,,Það sem einkennir þessar tillögur er einkum að reynt er að léysa verð- bólguvandann á kostnað launafólks, m.a. láglaunafólks,” segir um tillögur Framsóknar í yfirlýsingu Alþýðu- bandalagsins á viðræðufundinum í gærkvöldi. „Flest bendir til þess, að fram- kvæmd þessara tillagna mundi leiða til mjög verulegrar kjaraskerðingar á næstu tveimur árum, en hins vegar mundi verðbólga lækka lítið frá því sem verið hefur,” segir í yfirlýsingunni. Þá segist Alþýðubandalagið telja óhjá- kvæmilegt að efnahagsaðgerðir næstu ríkisstjórnar miðist við að kaupmáttur lægri launa verði nokkuð aukinn frá því sem nú er, tekjutrygging elli- og örorkulífeyris verði hækkuð og almenn laun verði verðtryggð. Þá segir að kosningabandalag AI- þýðuflokksins við Sjálfstæðisflokkinn geri vonir manna um vinstri stjórn að engu. Alþýðuflokkurinn sé að reyna að framlengja líf eigin minnihlutastjómar. -HH. Níu milljónir fyrir Kalstjömuna Sigurður A. Magnússon rit- höfundur gæti borið úr býtum tæpar 9 milljónir króna fyrir bók sina Undir kalstjörnu, þ.e. ef hún selst í 10.000 eintökum, sem virðist líklegt eftir nýj- ustu fréttum að dæma. Þröstur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Máls & menningar, vildi .að vísu ekki gefa upp þá samninga sem forlagið hefði gert við Sigurð en sagði að þeir væru hag- stæðari en rammasamningur Rit- höfundasambands íslands. Hjá sam- bandinu fékk DB þær upplýsingar að engir fastir samningar væru milli for- laga og rithöfunda og erfitt væri að fá uppgefið hvernig þessum tveim aðilum semdist yfirleitt. í rammasamningi segði þó að þóknun rithöfunda væri fengin með því að draga frá útsöluverði söluskattinn, 22%, og sölulaun forlags, 30%, og fengi höfundurinn síðan 15% af því sem eftir væri. Með því að beita þeim útreikningi á bók Sigurðar sem seld er á 9950 krónur, þá fengum við út tæpar 8.6 milljónir, en eins og Þröstur gefur í skyn hér að ofan, má reikna með hærri tölum. -AI. Bensínlítrinn í 370 krónur Fólk er hætt að kippa sér upp við verðhækkanir á bensíni ef ráða má af viðbrögðum við þeirri síðustu i morgun. Engin örtröð myndaðist við bensínstöðvar i gærkvöldi eins og oft- ast áður. Þó var bensín að hækka um 17 krónur lítrinn eða úr 353 í 370 krónur. Gasolía til húsa og skipa kostar hér eftir 155,20. Til bifreií^a kostar gas- olian aftur á móti 167 krónur hver lítri Svartolían hækkaði úr 89.300 krónum tonniðí 104.20 krónur. -ÓG. HUGSANLEGAR UPPSAGNIR 400 FLUGLEIÐAMANNA — vegna samdráttar á Norður-Atlantshafsflugleiðinni Ákvörðun um. samdrátt á Norður-Atlantshafsflugleiðinni gæti leitt til uppságnar allt að 400 starfs- manna hjá Flugleiðum hf. Stjórnar- fundur hjá fyrirtækinu er fyrir- hugaður í dag. Þar verða ræddar mjög alvarlegar ákvarðanir í rekstri fyrirtækisins, einkum þá þætti sem erfiðastir h@fa verið um nokkurt skeið undanfarið. Þess á meðal er rekstur flugsins á Norður-Atlants- hafsleiðinni. Talsverður skoðanaágreiningur er sagður um mörg atriði. Meðal þeirra má nefna tilhögun í rekstri U.S.A. - flugsins með dvalardögum og ferðum hérlendis. Sem fyrr segir eru um þetta skiptar skoðanir, en ekki sá á- greiningur milli manna í stjórn Flug- leiða hf., sem oft er talað um, ef marka má heimildir DB, sem það telur áreiðanlegar. Loks má geta þess, að á döfinni er að stækka Hótel Esju. Ákvörðun um það kann að verða tekin í dag. -BS. Þyrluflakið verður flutt til Vallarins Nefnd bandarískra sérfræðinga mun í dag rannsaka flak Sikorsky þyrlunnar á Mosfellsheiði. Að þeirri rannsókn lokinni verður flakið flutt til Kefla- víkurflugvallar. Því verki mun Sveinn Eiriksson (Patton), slökkviliðsstjóri á Vellinum; stjórna. - A.St. Sérstakar öryggisráð- stafanir við dómshúsið — Hæstiréttur ætlar tvær vikur til málflutnings í gær var ákveðinn flutningsdagur fyrir Hæstarétti i Geirfinns- og Guðmundarmálum, hinn 14. janúar næstkomandi. Eru tvær vikur ætlaðar til málsins. Hugsanlega gæti dómur gengið nokkru fyrr en gæzluvarðhald sakborninga rennur út 1. apríl. Sakborningar verða líklega allir viðstaddir málflutning. Er búizt við fjölmörgum áheyrendum, enda opið réttarhald. Sérstakar öryggis- ráðstafanir eru ákveðnar undir yfir- stjórn lögreglunnar. Forseti Hæstaréttar, Ármann Snævarr, og varaforseti, Björn Svein- björnsson, boðuðu í gær á sinn fund, ríkissaksóknara, Þórð Björnsson, og verjendur allra sakborninga, hæstarétt- arlögmennina Jón Oddson, Hilmar Ingimundarson, Pál S. Pálsson, Bene- dikt Blöndal, Örn Clausen og Guðmund Ingva Sigurðsson. Féllust sakborningar á, að kæra ekki úrskurði til þess að tefja ekki gang málsins. Áherzla er lögð á að sakar- gögn berist Hæstarétti fyrir áramót. -BS. Þetta er sannkallaður hrossahlátur. Það fer ekki á milli mála. Við vitum ekki með vissu hvað það er sem gleður svona óskaplega hestsins hjarta, þótt það skuli viðurkennt að okkur er ekki alveg grunlaust um það. Sé tilgáta okkar rétt, þá er tilefnið algert trúnaðarmál eins og er. Þótt það sé ekki ný jólagetraun í stað þeirrar sem frestað er að draga í, vegna samgönguerfiðleika, er lesendum frjálst að geta. Efenginn getur upp á þvi rétta, segjum við frá því, sem vakti þennan yndislega, stórkostlega hrossahlátur, þegar við vitum vissu okkar. -BS/DB-mynd Magnús Hjörleifsson.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.