Dagblaðið - 02.02.1980, Síða 6
Árg. Ekinn
BMW 320 1977 30 þús. km.
BMW 316 1977 55 þús. km.
BMW316 1977 65 þús. km.
BMW 1600 1971 115 þús. km.
Renault 20 TL 1978 60 þús. km.
Renault14TL 1978 23 þús. km.
Renault16TL 1973 90 þús. km.
Renault 16TS 1972 130 þús. km.
Renault 12TL 1978 40 þús. km.
Renault12TL 1972 63 þús. km.
Renault 12 TL station 1975 72 þús. km.
Renauh 12 L station 1971 100 þús. km.
Renauh 5 GTL 1979 20 þús. km.
Renauh4TL 1974 76 þús. km.
Renault 4 VAN F4 1979 25 þús. km.
Renauh 4 VAN F6 1979 35 þús. km.
Renault 4 VAN F6 1978 50 þús. km.
Renault 4 VAN F6 1978 30 þús. km.
Renault 4 VAN 1973 79 þús. km.
Þröskuldur
valdhafanna:
Danski rithöfundurinn
ERIK STINUS
heldur fyrirlestur um vandamál þróunar-
landanna og sýnir li.tskyggnur í Norræna
húsinu, laugardaginn 2. febr. kl. 16.00.
Allir velkomnir
FÉLAGAR
í Náttúrulækningafó/agi Reykjavíkur
Aðalfundur NLFR verður haldinn í Sigtúni
sunnudaginn 3. febrúar kl. 14.00. Á stjórnar-
fundi í NLFR 31. janúar 1980 hafði Einar Logi
Einarsson, formaður félagsins, uppi hótanir við
Marinó L. Stefánsson, ritara félagsins og fyrr-
verandi formanns þess, um að hann, þ.e. Einar
Logi, mundi beita sér fyrir því að fá því fram-
gengt að aðalfundurinn samþykkti að Marinó
yrði vikið úr félaginu.
Við sem stöndum fyrir þessari auglýsingu
þekkjum Marinó að öllu öðru en óheiðarleika og
bolabrögðum og getum staðfest heiðarleika hans
og einlæga réttlætiskennd — sem og ótalinn
fjöldi manna og kvenna sem til hans þekkja —
við skorum á alla félaga í NLFR sem hafa til að
bera réttlætis- og siðgæðistilfinningar að fjöl-
menna á aðalfund félagsins í Sigtúni kl. 14.00 á
sunnudaginn og sýna Marinó L. Stefánssyni
þannig virðingu og vináttu. VMr Marínós
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1980.
vita laglaus?
Staðurinn er Johan Castbergsvei
nr. 40 i Osló. Stundin er síðdegi
miðja vegu á milii jóla og nýárs.
Gestgjafanir eru Herdís Sæmunds
dóttir og Sigurbjörg Einarsdóttir
Þær hafa unnið í Osló í tæp tvö ár
Herdis er ættuð af Króknum
staðnum þar sem menn hafa gaman
af að ólátast pínulítið á gamlárs-
kvöld. Sigurbjörg er borin og barn-
fædd í landnámi Ingólfs.
Þær voru svo vænar að bjóða upp
á te og bjór til hressingar strax i upp-
hafi samtals. Síöari drykkjartegundin
þótti hæfa betur með tilliti tii þess að
þá þurfti ekki eiliflega að hlaupa
fram i eldhús og skerpa undir vatns-
katlinum.
Sjónvarpið gekk á fullu úti i horni.
Tveggja tíma prógramm um hljóm-
leikaferðalag hljómsveitarinnar
Wings um Bandaríkin þver. Gamli
Paul McCartney í fremstu víglínu
pungsveittur og söng Yesterday og
svo framvegis fyrir æpandi lýðinn.
Frú Linda pikkaði á pianó. Er hún
ekki vita laglaus? Hún dillar sér ekki
einu sinni í takt.
140 þúsund
í húsaleigu
Herdís er lærður lyfjatæknir og
vann í apóteki í Osló fyrst eftir kom-
unatil Noregs.
„Meiningin var að dvelja aðeins
smástund hér úti. Mér var boðin
vinna i apótekinu í smátima og ákvað
að prófa. Dvölin varð lengri en upp-
haflega var áætlað. Þar var ég í eitt
ár. Þá sótti ég um vinnu hjá lyfja-
fyrirtæki og fékk. Ég er á tilrauna-
deild þar sem lyf eru betrumbætt og
önnur fundin upp.”
Kaup?
„Kaupið er um 4.600 norskar
krónur á mánuði (370.000 ísl. kr.).
Þar af .er skattur til norska ríkisins
1.600 krónur á mánuði. Skatturinn er
áætlaður á árstekjur. ”
Sigurbjörg vinnur á ferðaskrif-
stofu stúdenta.
„Ég vann á ferðaskrifstofu heima
áður en ég kom hingaö. Þetta starf
var auglýst og ég sótti um. Ég hef
verið á sama vinnustaðnum síðan í
febrúar 1978.”
„Margir halda að við komum frá Vestur-Noregi. Það er mun algengara en hitt að
fólk heyri á mæli okkar að við séum útlendingar.” DB-myndin ARH
Kaupið hennar Sigurbjargar er líka
um 4.600 kr. á mánuöi og skattahiut-
fallið hið sama.
Þær borgaaukþess 1.700 kr. (tæp-
lega 140.000 ísl. kr.) I leigu fyrir íbúð-
ina sína. Hún er 3ja herbergja og hin
vistlegasta.
Hvað kostar svo að draga fram
lífið?
Þær hlupu til og flettu upp í heim-
ilisreikningabókinni Jósefínu.
„25 krónur á dag förum við með í
mat og hreinlætisvörur. Matur er
dýr. Nauðsynjavörur eru jafnvel dýr-
ari hér en heima á fslandi. Fötin eru
líka dýr. En við finnum ekki mikið
fyrir til dæmis rafmagnsreikningum.
Og margs konar heimilistæki og hús-
gögn eru frekar ódýr.”
ATLI RUNAR
HALLDORSSON
Sjáðu bara
trimmbrjálœðið
Hvernig bera þær Norðmönnum
og Noregi söguna?
„Norðmenn eru ágætis fólk. Við
höfum alls staðar mætt elskulegheit-
um. Norðmenn eru vingjarnlegir —
en stífir og erfiðir að kynnast,” segir
Sigurbjörg.
Sigurbjörg: „Norðmenn eru stifir og erfiðir að kynnast.”
— Dagsstund hjá Heddí, Sibbu, Paul
og Lindu á Johan Castbergsvei 40
„Þeir eru kurteisir og alveg ferlega
reglulegir í lifnaðarháttum.”
Fleiri athugasemdir fuku:
„Norðmenn eru hrifnir af Noregi
og Óla kóngi. Þeir eru fjári öfgafull-
ir. Sjáðu bara trimmbrjáJæðið!
Þeim finnst þeir eiga íslendinga
meö húð og hári. Það pirrar mann
stundum.”
Byrjuðu strax
að vinna
Hvernig gekk að komast inn í
máliö og kynnast umhverfinu fyrst?
„Það hafði sitt að segja að við
fórum ekki í nám, heldur byrjuðum
strax að vinna. Þess vegna höfðum
við meiri samskipti við Norðmenn en
íslenzkir námsmenn yfirleitt. Það
haföi sitt að segja til að flýta fyrir aö
viö næðum tökum á málinu. Málið
kom eiginlega ótrúlega fljótt. Við
lögðum lika upp úr því að kynnast
Norðmönnum, Noregi og norskunni.
Og eignuðumst fljótt norska vini.
Margir sem heyra okkur tala halda
að við komum frá Vestur-Noregi.
Það er mun algengara en hitt að fólk
heyri á mæli okkar að við séum út-
lendingar.”
Og hvað ætlið þið svo að dvelja
lengi hér til viðbótar?
Svörin sem fengust við þessari
spurningu voru álika loðin og hjá
stjórnmálaforingjunum okkar þegar
stjórnarmyndun ber á góma.
„Framhaldið er óákveðið. Alltaf
koma auðvitað þau tímabil að okkur
langar heim. Góða loftið og náttúran
á fslandi er nokkúð sem við söknum.
En dvölin hérna er ágæt. Og Osló er
fjári skemmtileg borg. Svoað . . .”
Á skjánum var McCartney enn að.
Frúin hans laglausa dillaði sér á
skakk og skjön við taktinn. Úti í saln-
um öskraði trylltur lýðurinn sig
hásan. Páll lét sér það vel lika.-ARH
Herdis með hannyrðin „Við myndum
sakna björsins ef við flyttum heim. Nei
annars. Ekld skrifa það!”
------------------------\
Dagblaöið í Noregsheimsókn:
NORÐMENN ERU FER-
LEGA REGLUSAMIR
íUFNAÐARHÁ TTUM
„Hvers við myndum sakna ef við
flyttum heim? Ja, til dæmis bjórsins.
Nei annars. Ekki skrifa það. Við
myndum sjá eftir góða veörinu. Hér
eru kaldari vetur og heitari sumur en
heima. Það er ágætt.”
Þögn í smástund.
„Götulífinu á Kalla Jó á sumrin
myndum við líka sjá eftir. Og huggu-
legumkrámogveitingahúsum-Jú, jú.
Þeirra myndum við sakna!”
Heddí og Sibba urðu dreymandi á
svipinn þegar þær reyndu að setja sig
í ímyndaðar saknaðarstellingar. f
hverju væri eftirsjá ef þær flyttu nú
heim til íslands frá Noregi strax á
morgun? Heim í bjórleysið, stjórn-
leysið og bólguna sem stjórnmála-
mennirnir ætla alltaf að leysa. En
komast aldrei lengra við lækninguna
en að rífast um útfyllingu lyfseðils-
ins.
Er Linda ekki