Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980. Eru hugmynd ir Hayeks raunhæfar? Elias Daviðsson skrifar: Í sjónvarpsþætli með F. Hayek og um kenningar hans, þriðjudagskvöld 22. apríl sl. var tíðrætt um kosti „markaðsbúskapar” og „frjálsrar samkeppni”. Því miður láðist þátttakendum að ræða málin með hliðsjón af ástandi 'mála i heiminum í dag. Þar sem fjöl- þjóða auðhringir og fjármála- heimurinn ráða í auknum mæli stefnu þjóðríkja og alþjóðlegra stofnana í efnahagsmálum. I þessu sambandi langar mig til þess að bera fram einfalda spurningu til „frjálshyggjumanna”: —Hver hefur i dag nægilegt afl til þess að koma I veg fyrir einokunar- ,óg samsærisaðferðir fjölþjóða ^|,i(|5hringa og banka, og fá þá náðar- samlegast til þess að heyja alvöru samkeppni sín á milli? Meðfylgjandi mynd sýnir hvernig nokkrir stærstu auðhringa og banka, heims tengjast innbyrðis (hér er aðeins sýndur hluti af þessum tengslum, þar sem aðeins er stuðst við ársskýrslur þessara aðila). Það er ekki úr vegi að geta þess, að nánustu samstarfsmenn bandarískra forseta, þ.m.t. Carter og æðstu embættis- menn bandariska ríkisins hafa margir hverjir komið beint úr stjórnarskrif- stofum sömu auðhringa og banka, , sem hérerusýndir. Raddir lesenda 5TJ0RNAKTEN6SL mW. EINOKUNAR-Al^.ALPS (COMMON Htt'TOKSHir) SIMI28611 SÍMI28611 LAGERHÚSNÆÐI Höfum fjársterkan kaupanda að lagerhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, 300—500 fermetra að stærð, með góðri innkeyrslu. Ekki skilyrði að lofthæð sé meiri en 2,50 metrar. FASTEIGNASALAN HÚS OG EIGNIR, BANKASTRÆTI 6 Lúðvík Gissurarsonar hrl., kvöldsími 17677. VMtmamMMyJar j Utboð Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til- boðum í lagningu 12. áfanga hitaveitu- dreifikerfis. Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrifstofunum Vestmannaeyjum og verkfræðistofunni Fjarhitun hf., Alfta- mýri 9 Rvík, gegn 50 þús. kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verði opnuð i Ráðhúsinu Vestmannaeyjum þriðjudaginn 13. maí kl. 16. Stjórn Veitustofnana Vestmannaeyjabæjar. Elliðaárstíflan. DB-mynd Árni Páll. Þýðingarmikið að umhverfið bjóði ekki upp á miklar hættur: SLYSIÐ HEFUR EKKISKEÐ ENN — Með byggingu Höfðabakkabrúarinnar er verið að skerða öryggi íbúa Árbæjarhverfis Hreinn Kristinsson skjalavörður skrifar: Ábyrgð þeirra sem skipuleggja íbúðahverfi er mikil. Að tengja saman alla þætti mannlegra þarfa og ganga ekki of langt í tortimingu landslags og minja, er starf sem varla er hægt að vinna svo öllum liki. Það hefur verið nær samdóma álit íbúa Árbæjarhverfis að vel hafi tekizt með skipulag þess, einkum þegar barnauppeldi er haft í huga. Á fyrstu árum hverfis okkar voru hér tvö mikil hættusvæði, Suðurlandsbraut- in er lá í gegnum hverfið og Elliða- árnar. Á báðum þessum stöðum urðu hörmuleg slys. Suðurlandsbrautin var fljótlega flutt úr hverfinu og með samvinnu foreldra og borgaryfir- valda hefur tekizt að halda börnum frá ánni. Síðan hefur Árbæjarhverfi verið paradís barna og barnauppal- enda. Það er nú svo að flestir foreldrar þurfa bæði að stunda starf utan heimilis frá börnum sínum og þá er þýðingarmikið að umhverfið bjóði ekki upp á miklar hættur. Með bygg- ingu Höfðabakkabrúar er verið að skerða það öryggi sem við höfum búið hér við og teljum við að það verði að leysa samgöngumál Suður- nesja á annan hátt en þann, að leiða þessa miklu umferð þvert í gegnum hið eina útivistarsvæði sem við og börn okkar höfuni, en það er svæðið i kringum Árbæjarsafnið, safnið sjálft og að sjálfsögðu skólagarðarnir sem eru staðsettir rétt utan við Árbæjar- túnið. Borgarfulltrúar Reykjavíkur hafa nú þegar gefið vilyrði fyrir þvi, að Höfðabakkavegur í Breiðholti verður ekki lagður og munu íbúar í Breið- holti leggja þunga áherzlu á að svæðið sem fyrrnefndur vegur átti að koma á verði þegar í stað friðlýst, þar sem svæði þetta er mikið leik- og at- hafnasvæði barna. Hvers eiga íbúar í Árbæjarhverfi að gjalda að leik- og athafnasvæði barna þeirra verði eyði- lagt með hraðbraut? Hin forna hugmynd að Höfða- bakkabrú var sú, að hún tengdi saman Vesturlandsbraut og Suður- landsbraut er liggja átti austur Elliðaárdal, sunnan Elliðaáa. Skipu- lagsfræðingar hafa samt haft ein- hverjar efasemdir um ágæti hug- mynda sinna því fyrirvari var gerður á þessari vegagerð er aðalskipulagið var staðfest 3. júli 1967. Þegar þessi Suðurlandsbrautar- hugmynd var lögð á hilluna, var samt talin ástæða til að byggja Höfða- bakkaveg, enda í sjálfu sér hag- kvæmt að tengja Árbæjar- og Breið- holtshverfi saman. Sérfræðingar töldu eftir ýtarlegar rannsóknir, að ekki væri um ánnan stað að ræða. Á þessum stað væri ekki foss í a.m.k. 250 m fjarlægð, enn lengra i næstu skógarhríslu og laxveiðimenn pg hestar væru viðs fjarri. En það var eitt sem sérfræðingarnir gleymdu — fólkið í hverfmu — „Það er til marks um „tillit” það sem okkur er sýnt að samþykkt hefur verið að flytja veginn fjær Árbæjarsafni og nær byggðinni þannig að fjarlægð frá vegi er um 80 m frá fyrstu húsaröð en um 100 m að veitingastofu safnsins, sem þó er aðeins opin í 3 mánuði á ári til að firra gesti safnsins óþægindum af mengun og hávaða. Við Árbæingar erum ekki minni náttúruunnendur eða sportmenn en aðrir en við hefðum gjarnan viljað að börnin okkar og börn Árbæjar- hverfis um ókomna framtíð væru tekin inn í myndina. Við trúum að þessa þætti sé hægt að sameina en sízt megi láta mannlegu hliðina víkja. Þrátt fyrir 15 ára hönnunartima, hefur enn ekki tekizt að teikna lausn á umferðarvandamáli, er hlýtur að skapast við norðurenda á þessum fyrirhugaða vegi. Fólk óttast að sá vandi verði leystur til „bráðabirgða” með því að veita umferðinni af vegin- um hjá Árbæ inn á Rofabæ, og þar Reykvíkingur hringdi: Heldur þótti mér hátíðahöldin á Lækjartorgi á sumardaginn fyrsta misheppnuð! Ekki er hægt að kenna skátunum (i.m veðrið og auðvitað hafa þeir líka gert sitt bezta i sambandi við há- tíðahöldin. Mistök þeirra tel ég að hafi legið í þvi að þeir hafi reynt að gera öllum til hæfis með dagskrárvali sínu og árangurinn í staðinn orðið sá með yrði gamla Suðurlandsbrautin aftur komin, með öllum þeim hætt- um sem því fylgdi. Við sem biðjum um frest á þessum framkvæmdum, viðurkennum að við vöknuðum seint til andmæla. Við viðurkennum að við fylgjumst ekki stöðugt með þeim hugmyndum, sem ýmist fæðast eða deyja i skipulags- málum. En slysið er ekki enn skeð. Þess vegna biðjum við um frest sem verði notaður til að athuga alla aðra möguleika á vega- og brúarstæði en nú eru fyrirhugaðir. Frest sem verði ennfremur notaður til athugunar á öryggismálum Árbæjar- og Breið- holts. Ennfremur er brýnt að snjallir hugsuðir finni upp aðferð til að tengja hönnuði og þolendur þeirra betur saman. Það virðist ekki duga að halda sýningar og stjórnmála- menn eru ekki alltaf teknir alvarlega fyrr en verk þeirra verða raunveruleg. Hér er ekki verið að ásaka neinn en mjög áríðandi er að „byggja brú” milli þessara aðila. Það er bara spurning, hvernig? að enginn var ánægður, án þess að ég geti þó fullyrt um það. Slíka dagskrá ætti að minu viti eingöngu að byggja upp með tilliti til barnanna. Þeir er koma þarna,' komá vegna barna sinna, og það er því eðlilegt að dagskráin sé sniðin fyrir börnin. Ef þetta yrði haft í huga þá teldi ég að dagskráin yrði betur heppnuð. „Sllka dagskrá ætti að minu viti eingöngu að byggja upp með tilliti til barnanna,” segir bréfritari. DB-mynd Ragnar Th. Hátíðahöldin á sumardaginn fyrsta: MISHEPPNUÐ DAGSKRA?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.