Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980. Mikið úrval höggdeyfa í flestar gerðir bifreiða, s.s. McPhersons inserts, gasdemparar, stýrisdemparar, loftdemparar, Heavv Duty demparar og fl. ÓTRÚLEGA LÁGT VERÐ. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT. Cybernet Frábær hljómtæki á hagstæðu verði. CRD-15, VERD KR. 410.000.- P2-A2-T2-C2, VERÐ KR. 713.229.- CP 1050, VERD KR. 169.200.- BENCO BOLHOLTI4 - SÍMAR 21945 - 84077 Sem næst bræðrabylta íforkosningum demókrata íMichigan: Kennedy maröi ígegnsigur Edward Kennedy öldungadeildar- þingmaður marði i gegn sigur i for- kosningum demókrata í Miqhigan um helgina. Hann hlaut 48% atkvæða, ,en Jimmy Carter forseti 46,6%. Alls voru kosnir I4l kjörmaður í Michi- gan á flokksþing demókrata sem velur forsetaefni flokksins. Kennedy hlaut 71 mann, Carter 70. Staðan í kapphlaupi þeirra um útnefningu sem forsetaefni demókrata er þá sú að Carter hefur alls fengið l .206 kjörmenn af I.666 sem kjörnir hafa verið, en Kennedy er kominn með 664 kjörmenn. Kosningastjórar Kennedys kváðust ánægðir með sigur síns manns. Hann sigraði líka naumlega i Pennsylvaniu fyrir fáeinum dögum og úrslitin í Michigan eru dálítill gustur í seglin i' viðbót. I óopinberum samtölum manna Kennedys við fréttamenn komu þó í Ijós vonbrigði þeirra með að sigurinn um helgina hafi ekki verið stærri. Sérstaklega þegar þess er gætt að efnahagsástand i Michigan er bágborðið. 100.000 verkamenn i bíla- iðnaðinum eru frá vinnu um tíma vegna erfiðleika í greininni. Kennedy höfðaði til þeirra og uppskar mikinn stuðning þess hóps. Kosningastjórar Carters sögðu að forsetinn hafi greinilega engu fylgi tapað vegna misheppnaðra hernaðar- aðgerða í íran á föstudaginn. Þó viðurkenndu þeir að bakslag gæti komið hjá Carter vegna íran-málsins í þeim kosningum sem framundan eru. Það er í Texas þann 3. maí og Norður-Karólínu, Tennessee, Indi- ana og Washington 6. mai. í fréttum frá Bandaríkjunum segir að úrslita í þessum fylkjum sé beðið með eftir- væntingu vegna þess að þau gefi mun áreiðanlegri vísbendingu um viðhorf almennings til íran-stefnu forsetans en úrslitin í Michigan. Neyðarástand á sundinu milli Flórída og Bandaríkjanna: Hundruð flótta- manna drukknuðu Óttazt er að hundruð flóttamanna frá Kúbu hafi drukknað um helgina á leiðinni til Flórída í Bandaríkiunum. Mikið og skyndilegt óveður skall á sið- degis á laugardaginn. Veðurhæðin komst i 78 hnúta þegar mest var og ölduhæðin á sundinu milli Kúbu og Flórída varð 5—6 metrar. Fjölda báta er saknað. Strandgæzlan tilkynnti að hún hefði tekið á móti á annað hundrað neyðarköllum. Meðal annars sendi fiskibátur með 200 flóttamenn um borð frá sér neyðarkall aðfaranótt' sunnudags. Síðan hefur ekkert til hans spurzt. Myrkur og óveður hömluðu leitar- og björgunarstarfi lengi vel en Fidel Kastró: Málgagn stjórnarinnar á Kúbu segir að „allar landeyður” geti farið úr landi ef þeim sýnisl svo. veður var að ganga niður þegar siðast fréttist. Margir skipstjórnarmenn voru óreyndir og farkostirnir sumir hverjir ekki ýkja merkilegar fleytur. Bátseig- endur lögðu á sig ferðirnar til Kúbu ekki sízt vegna þess að þeir fengu greidda I00.000 dollara fyrir hvern flóttamanna sem fluttur var milli land- anna. 3.200 Kúbumenn eru þegar komnir til Flórída. Granma, málgagn Kúbustjórnar, sagði í forsíðugrein á laugardaginn að allir sem vildu yfirgefa Kúbu fengju vegabréfsáritun ef þeir óskuðu. Ætti sú ákvörðun við „allar landeyður sem vilja fara og ættingja þeirra.” Margir vilja kenna Zimbabwe, nýjasta ríkinu í Af ríku- f jölskyldunni, að ganga: Peningagjafir, heillaskeyti —og föðurlegar áminningar í tilefni sjálf stæðis Fyrstu dagar Zimbabwe, nýjasta rikisins I Afríku, einkenndust af viðurkenningum, heillaskeytum, lof- orðum um pólitískan og efnahagsleg- an stuðning og föðurlegum ábending- um stórvelda. Sovétrikin og Kina viðurkenndu ríkið strax á fyrsta degi en bæði ríki sendu Robert Mugabe forsætisráðhera um leið dálitlar að- vörunarnótur. Kína varaði forsætis- ráðherrann við tilraunum Sovétríkj- anna að reyna að skapa glundroða innanlands í Zimbabwe, án þess þó að nefna Sovét berum orðum. Sovél- ríkin vöruðu hins vegar við tilraunum Efnahagsbandalagsins að viðhalda efnahagstengslum Zimbabwe við hin heimsvaldasinnuðu ríki. Japan sýndi í verki vilja til að hjálpa Zimbabwe að brölta á fætur í efnahagslegum skilningi og gáfu nýja ríkinu jafnvirði 4,6 milliarða isl. kr. Þá hefur sænska stjórnin lofað Zimbabwe jafnvirði 6,6 milljarða isl. kr. á næstu 14 mánuðum til uppbygg- ingarstarfs i landinu. Flóttamanna- hjálp Sameinuðu þjóðanna fær hluta af framlagi Svia til ráðstöfunar. Vestur-Þýzkaland leggur fram jafn- virði 440 milljóna ísl. kr. til uppbygg- ingarstarfsins. Auk þess bjóðast Vestur-Þjóðverjar til að veita fram- kvæmdalán að upphæð jafnvirði I I0 milljarða króna. Danir gefa 80 millj. ísl. kr. sem verja á til að aðstoða flóltafólk í borgarastriðinu í landinu við að koma sér fyrir á ný. Auk þess leggja Danir fram á næstu 2—3 árum jafn-. virði 220 millj. til alhliða þróunar- hjálpar. Þá lagði Carter forseti til að Bandaríkin gæfu jafnvirði l,2 millj- arða kr. Tillaga forsetans á eftir að hljóta samþykki þingsins. Austur- Þýzkaland sendi kveðju til Mugabes og bar fram ósk um „góð samskipti ríkjanna”. Stjórn Austur-Þýzka- lands var ekki boðið að senda full- trúa til Zimbabwe að fagna sjálf- stæði landsins. Hún studdi fylkingu Joshua Nkomo í borgarastríðinu. Nýr og skrautlegur fáni Zimbabwe: t miðið er svört rönd sem táknar fólkið i landinu, efst og neðst eru grænar rendur (tákn landsins), næst koma gulllitaðar rendur (tákn auðæfa i jörðu) og næst svörtu röndinni eru rauðar rendur (tákn blóðs fólksins). Á hvita þríhymingnum er rauð stjarna. í forgrunni situr fuglinn Zimbabwe á stalli sinum. Af honum dregur landið nafn sitt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.