Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 15
15 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Dómarar þreyttu þolpróf sitt á laugardagsmorgun og þurftu þeir m.a. að hlaupa 400 metra sprett. Hörður Ijósmyndari DB var mættur á staðinn og lengst til hægri má sja Magnús V. Pétursson i viðbragðsstööu. Lengst til vinstri er Villi Þór rakari og þá kemur Þorvarður Björnsson. Einn dómaranna þekkjum við ekki. Reykjavik 23. apríl 1980 „Stjórn SKÍ hurmar þau blaöaskrif sem spunnizt hafa um málefni lands- liösins eftir nýafstaðið skiðaþing á Akureyri 3. og 4. april sl., sem hún álitur eðlilegan vettvang til umræðna um þau mál sem liggja mönnum á hjarta hvcrju sinni, ekkert síður þótt um gagnrýni sé að ræða. Vegna gagnrýni keppenda á formann og stjórn SKÍ í dagblööum þykir stjórninni rétt að vekja athygli á þvi að sérstakur fundur var haldinn laugar- daginn 5. apríl með keppendum, þar sem málefni landsliðsins voru rædd. Á þessum fundi gafst mönnum kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum og aöfinnslum Það var þvi miður að þessum málum var framhald- ið á síðum dagblaðanna. Stjórn SKÍ telur eðlilegt og rétt, að þessi mál séu leyst innan vébanda sam- bandsins, og telur að áframhaldandi opinber blaðaskrif séu aðeins til þess fallin að skaða starfsemi SKI, en engan vanda að leysa. Stjómin lýsir yfir stuðn- ingi sinum við nýkjörinn formann SKÍ, Sæmund Óskarsson, til að leysa þessi mál í samvinnu við skíðaráðin og óskar jafnframt eftir því að skiðaráð og aðrir félagar í skiðahreyfingunni leggist á eitt með stjórninni um að jafna þennan ágreining á farsælan hátt.” Stjórn Skíðasambands Íslands. Ruud Krol. FH-ingar unnu Skagamenn FH-ingar sigruðu Skagamenn, 2—1, í síðasta leik litlu bikarkeppninnar í Kaplakrika á laugardag með tveimur mörkum gegn einu. Þar með eru liðin jöfn að stigum í mótinu og verður að fara fram aukaleikur á milli þcirra til að skera úr um endanlegan sigur. Það voru þeir Pálmi Jónsson og Magnús Teitsson sem skoruðu mörk FH en Sig- urður I.árusson svaraði fyrir Akurnes- inga. Þá gerðu Haukar og Breiðablik jafntefli, 2—2, í þessari sömu keppni á laugardag. Pétur hlaut Grettisbeltið — sigraði í 70. íslands- glímunni á laugardag Pétur Yngvason, HSÞ, varð glímu- kóngur íslands að Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu á laugardag. Sigraði þá I Íslandsglímunni, sem þá var glimd í sjötugasta sinn. Fyrir sigurinn hlaut Pétur Grettisbeltið en handhafi þess var tviburabróðir hans Ingi Þór Yngva- son. Ingi Þór varð í öðru sæti á mótinu á laugardag en Eyþór Pétursson, HSÞ, varð í þriðja sæti. Mikill var því sigur Þingeyinga í glímunni. 14 keppendur voru skráðir til leiks. Tulsa sigraði Cosmos New York Tulsa Roughnccks, liðið, sem Jóhannes Eðvaldsson leikur með í amerisku knattspyrnunni, gerði sér lítið fyrir á laugardag og sigraði New York Cosmos 2—í. Hefur nú 31 stig eflir 5 umferðir. Dallas Tornado er efst í sama riðli með 32 stig. Þó liðin leiki nær öll innbyrðis á keppnistímabilinu er þeim skipað í riðla. Fort I.auderdale Strikers hefur hlotið flest stig eftir 5 leiki eða 41 stig. Urslit á laugardag urðu þessi: TampaBay — Rochester 2—0 Memphis — Atlanla 4—3 Dallas—Philadelphia 2—0 Tulsa — NY Cosmos 2—1 Seattle — California Surf 3—2 Portland — Detroit 2—1 Ford Lauderdale — San Diego 1—0 I.A Aztecs — Vancouver 2—1 Ruud Krol til Vancouver ,,Það er meira í þessu en peningar. Ég hef verið svo lengi hjá Ajax að ég hef varla möguleika að vinna þar meir,” sagði Ruud Krol, fyrirliði Ajax Fylkir vann Ármann Fylkir sigraði Ármann 1—0 á Reykjavíkunmótinu í knattspymu á laugardag. Fyrsti sigur Fylkis í mótinu. Sigurmarkið skoraöi Birgir Guðjóns- son. Staðan er nú þannig. Þróttur 4 3 0 1 10—7 7 Valur 5 3 0 2 11—10 7 Víkingur 4 2 0 2 II—9 5 Ármann 5 2 0 3 8—7 5 KR 4 2 0 2 7—4 4 Fram 4 2 0 2 13—13 4 Fylkir 4 1 0 3 2—12 2 í kvöld kl. 20.00 verður þýöingar- mikill leikur á mótinu. Þá leika Fram og Þróttur á Melavelli. og hollenzka landsliðsins, þegar hann tilkynnti á blaðamannafundi i Amster- dam fyrir helgi, að hann hefði gert samning við Vancouver Whitecaps, amerísku meistarana. Samningstími Krol, sem er nú 31 árs, er þrjú ár við kanadíska félagið. Hann vildi ekki skýra frá peningahlið samningsins, en hollenzku blöðin segja, að Vancouver greiði Ajax 600 þúsund dollara, rúmar 250 milljónir ísl. króna, en Krol 500 þúsund dollara, 225 milljónir kr. Krol, sem hefur verið bezti maður hollenzka landsliðsins mörg undan- farin ár, sagði á blaöamannafundinum, að ákvæði væri í samningi hans um að hann geti leikið með hollenzka lands- liðinu. Meðal annars i úrslitum Evrópukeppninnar í sumar. Hann hóf að leika með Ajax 1967 og hefur leikið 450 leiki með félaginu. Þrívegis orðið Evrópumeistari. Þá kom fram á fund- inum að Krol hafði hafnað samningum við itölsku félögin Napoli og Torino og enska liðið Arsenal. Eftir að Notting- ham Forest sló Ajax út í undanúrslitum Evrópubikarsins í síðustu viku bauð F'orest Krol samning en þá hafði hann að mestu samið við V.ancouver. SKÍ harmar blaðaskrifin Yf irlýsing f rá stjórn Skíðasambands íslands Lék hringinn á 63 höggum! — Enn ein rós í hnappagat Ballesteros Severiano Ballesteros, spánski golf- leikarinn snjalli, sem er núverandi handhafi litlanna i opna brezka meistaramótinu og bandaríska meistaramótinu, vann sinn 30. móts- sigur á meiri háttar mótum, þegar hann sigraöi á opna meistaramóti Madrid- borgar í gær. Lék á 270 höggum — 18 undir pari. Verðlaun á mótinu námu 70 þúsund dollurum. Margir heimsfrægir golfleikarar tóku þátt í þvi en Spánverj- arnir voru sigursæiir á heimavelli. Manuel Pinero varð annar á 273 högg- um. Ballesteros lék frábærlega í annarri umferðinni — eða á 63 höggum. Bezti árangur hans á móti og níu höggum betra en par vallarins. Eftir þá umferð hafði hann fimm högga forustu, sem hann hélt að mestu til loka. Mikið fjöl- menni fylgdist með Ballesteros i keppn- inni, m.e. Juan Carlos Spánarkonung- ur, og einmitt þegar Ballcsteros lék á 63 höggum. Shampo erokkar sérgrein Frískandi í MORGUNSÁRIÐ, AÐ LOKNU DAGSVERKI OG EFTIR ÍÞRÓTTAKEPPNI REYNIÐ EINNIG EPLASHAMPO ORANGESHAMPO BARNASHAMPO TJÖRUSHAMPO EGGJASHAMPO LANOLÍNSHAMPO ÖLSHAMPO SÁPUSHAMPO EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.