Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 28
28 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980. Kæti við Óskars-afhendingu: Fullreynt í fjórða fyrir Dustin Hoffman Meryl Streep var hissa og glöð þegar Óskarinn féll I hennar hlut. Farah Fawcett var nær eina mann- eskjan sem ekki gladdist þegar Ösk- arsverðlaunin voru afhent á dögun- um. Hún var hræðilega móðguð er blöð sögðu nærveru hennar til skammar, hún væri ekki einu sinni sjónvarpsstjarna, hvað þá kvik- myndastjarna. Annars glöddust sem sé allir. For- eldrar Dustins Hoffmans táruðust er hann fékk Óskarinn fyrir leik sinn í myndinni Kramer gegn Kramer. í stuttu ávarpi á eftir sagðist Dustin sérlega vilja þakka þeim fyrir að hafa ekki notað getnaðarvarnir á sínum tíma. Hann var afar kátur og hress, þrátt fyrir að hann hefði marglýst því yfir að öll verðlaun væru heimskuleg. Hann hefði enda þrisvar áður verið úfnefndur til Óskarsverðlauna en ekki fengið svo hvað gat hann annað sagt? Þessar þrjár útnefningar voru fyrir myndirnar Midnight Cowboy, Lenny og Graduate. Meryl Steep, mótleikara Dustins úr Kramer gegn Kramer, virtist öllu meira undrandi á því að fá Óskarinn fyrir beztan leik í aukahlutverki en Dustin var. Hún hefur heldur aldrei verið tilnefnd fyrr og stendur óneit- anlega mjög í skugga Dustins í mynd- inni. Mest var fagnað Alec Guinness er Sally Field fékk verðlaun fyrir beztan leik I kvenhlutverki. Greinilegt var að það gladdi hana ákaflega. Dustin Hoffman brosti út að eyrum þegar Óskarinn komst loks í hendur hans, i fjórðu tilraun. hann fékk aukaverðlaun fyrir fram- lag sitt til kvikmynda. Hann sagðist reyndar ekki eiga þau skilið en gripa þau meðan honum slæðu þau til boða. £&** með sólarium lömpum. i Þúverðurbrún(n) á5-10dögumí BEL-0-S0L. Pantiðtímaítíma. Opið 9-21 á kvöldin. SOLBAÐSTOFAN Ingólfsstræti 8—Sími10256 TonyCurtis: llla farinn af víni og fíkniefnum Leikarinn frægi Tony Curtis er nú á taugahæli í Kaliforníu. Vinir hans hafa lengi óttazl um heilsu leikarans þvi eftir að hann skildi við þriðju eiginkonu sina var hann orðinn háður vini og fíkniefn- um. Svo slæmt var ástand hans að hann fór ekki fram úr á morgnana fyrr en hann hafði fengið sér vænt viskíglas og reykt eina marijúana sígarettu. Eiginkona Curtis, fyrirsætan Leslie Allen, sem er tuttugu árum yngri en leikarinn, sagði reyndar að hann hefði verið orðinn hálfgeggjaður áður en þau skildu. Hann hefði verið sjúklega af- brýðisamur og átt það til að læsa hana inni dögum saman. Hún gafst hreinlega upp á þessu og fór sína leið. Þá brast Curtis endanlega. Vin og fikniefni urðu hans einu vinir í lífinu, að honum fannst. Á sviðinu kom glögglega fram hvernig þessir vinir reyndust honum. Hann stóð sig hörmu- lega, gleymdi hreinlega heilu þáttunum úr leikritunum og oftar en einu sínni varð annar leikari að leysa hann af. Nú á að reyna að koma leikaranum á rétt- an kjöl aftur. Ný Olga fimleikastjama Nýjasta upprennandi stjarnan á fim- leikahimninum er ellefu ára stúlka frá Sovétríkjunum, Olga Mostepanova. Siðan hún var átta ára hefur hún verið í þjálfun hjá Valdimir Aksenov, fræg- asta fimleikaþjálfara Sovétrikjanna, sem þjálfað hefur margar af frægustu fimleikastjörnunum austur þar. Hann er mjög ánægður með Olgu og segir hana vera mun betri en þær Olga Korbut og Nadia Comaneci hafi verið á hennar aldri. Olga keppti nýlega í Bretlandi á leik- um sem blaðið Daily Mirror stóð fyrir. Þar vakti hún miklar vonir manna um frekari frama. Olga getur þó ekki náð þvi að keppa á sumarólympiuleikunum i Moskvu þar sem aldurslágmark er 13 ár á ólympiuleikum. OPID KL. 9-9 Allar skreytingar unnar af fag- . mönnum. Nag blla.tcaSI a.m.k. á kvoldln m<)M£A\r\iiH HAFNARSTRÆTI Slmi 12717 Atvinna óskast Ungur reglusamur maður óskar eftir starfi, helzt við akstur úti á landi, er með meirapróf- rútu- prÓf- UppLísíma 17658.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.