Dagblaðið - 28.04.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
Verzlunarhúsnæði
tilleigu
Til leigu er 400 ferm verzlunarhúsnæði í verzlunarmiðstöð
að Miðvangi 41 Hafnarfirði. Áætlað til afhendingar í
júlí/ágúst 1980. Húsnæðinu verður skipt niður í sjálf-
stæðar einingar.
Þeir sem áhuga hafa á viðkomandi verzlunarhúsnæði,
sendi skriflega umsókn til kaupfélagsstjóra eða stjórnar
Kaupfélags Hafnfirðinga, Strandgötu 28 Hafnarfirði.
Umsækjendur tilgreini hvaða þjónustu eða verzlunar-
rekstri þeir hafi áhuga á og hveisu mikið rými (fermetra-
fjölda) umsækjendur hafa þörf fyrir.
Einnig er til leigu 200 ferm skrifstofuhúsnæði að Strand-
götu 28 Hafnarfirði. Upplýsingar hjá kaupfélagsstjóra.
mm
Byggung Kópavogi
Aðalfundur BSF Byggung Kópavogi
verður haldinn að Hamraborg 1, 3. hæð
miðvikudaginn 30. apríl kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga stjórnar um framhaldsaðalfund.
3. Kosning 2 fulltrúa til að hafa eftirlit með byggingarfram-
kvæmdum félagsmanna.
4. Önnur mál. Stjornin.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
LYFJATÆKNASKÓLI
ÍSLANDS
auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir næsta
skólaár. Umsækjandi skal ekki vera yngri en 17
ára og hafa lokið gagnfræðaprófi eða hliðstæðu
prófi. Með umsókn skal fylgja eftirfarandi:
1) Stadfest afrit af prófskirteini
2) Læknisvottorð.
3) Berklavottorð.
4) Sakavottorð.
5) Meðmæli skóla og/eða vinnuveitanda.
Umsóknarfrestur er til 27. júní.
Umsóknir sendist til:
Lyfjatæknaskóla íslands
Suðurlandsbraut 6,105 Reykjavík.
Skólastjóri.
TIL SÖLU
NÝ HESTAKERRA
iii soiu mjög vönduð hestakerra fyrir tvo hesta.
Verð kr. 650.000.- Upplýsingar hjá DB.
60 metra hár
skorsteinn
í smíðum
á Siglufirði
Unnið er nú að gerð 60 metra hás skorsteins við Siidarverksmiðju ríkisins (S.R.) á Sigluftrði. Það eru fjórir Danir og tveir
íslendingarsem verkið vinna.
Skorsteinninn gnæfir langt yftr það allt sem áður var hátt til á Siglufrði. Danirnir sögðu Ijósmyndara DB að þeir vildu
heldur vinna i 60 metra hceð en á þaki fjögurra hæða húss. Ástæðuna kváðu þeir vera þáaðef þeir dyltu úr skorsteininum
þvrfti ekki um sár þeirra að binda. en örkumla gætu þeir orðið af falli af húsþaki. Danirnir fjórir eru nýkomnir til Siglu
fjarðar tilskorsteinssmiðinnar, en i Danmörku unnu þeirsiðast viðgerð skorsteins sem var 270 metrar á hæð.
DB-myndir: BjarniÁrnason.
Selfoss:
Stuðnings
menn Vigdísar
opna skrif stofu
Stuðningsmenn Vigdisar Finnboga-
d6ttur forsetaframbjóðenda héldu
með sér fund í Hveragerði 16. apríl.
Var kjörin framkvæmdanefnd í
héraðinu til að hafa yfirumsjón með
undirbúningi kosninganna i héraðinu. í
nefndina voru kosnir: Grimur Bjarndal
skólastjóri, Reykholti Biskupstungum,
Hermann Guðmundsson, bóndi, Blesa-
stöðum Skeiðahreppi, Jón Ólafsson
bóndi, Eystra-Geldingaholti,
Gnúpverjahreppi, Sigurhanna
Gunnarsdóttir húsfreyja, formaður
Sambands sunnlenzkra kvenna,
Steinunn Hafstað hótelstjóri, Þórislúni
l Selfossi, Valgeir Ástráðsson, prestur,
Neistatúni Eyrarbakka og Valgerður
Tryggvadóttir, húsfreyja, fyrrverandi
skrifstofustjóri Þjóðleikhússins.
Auk þess verða starfandi nefndir
umboðsmanna í hverjum hreppi i
Árnessýslu. Stuðningsmenn Vigdísar
hafa opnað skrifstofu að Þóristúni I,
Selfossi. -EI.A.
Bílvelta
við Hólmsá
Bilvelta varð við Hólmsá
austan Reykjavikur rétt eftir
klukkan sex á laugardags-
morguninn. Tveir menn voru í
bilnum. Hlulu þeir báðir einhver
meiðsli en ekki alvarlegs eðlis.
Grunur leikur á að ökumaður
hafi neylt áfengis -A.St.
Illa skorinneftir
umferðarslys
Þrjú ungmenni lentu i
alvarlegu umferðarslysi skammt
frá Kópavogslæknum á fyrsta
timanum í fyrrinótt. Lenti Volks-
wagen bifreið er þau voru i á
Ijósastaur og siðan út af veginum.
Einn unglinganna slasaðist
langmest og var þar aðallega um
skurði i andliti að ræða. Ekki er
talið að áfengi hafi þarna verið
haftumhönd. -A.St.
Sónötukvöld nr. 2
Sónötutónleikar Guðnýjar Guömundsdóttur
fiðluleikara og Philips Jenkins pianóleikara, (
Norrœna húsinu 23. aprll. AÖrir tónleikar af
þrannum.
Efnisskrá: sónötur Beethovens fyrir fiölu og
planó; Nr. 1, Op. 12, nr. 1 I D-dúr; Nr. 4, Op. 23 I
a-moll; Nr. 6, Op. 30, nr. 1 ( A-dúr; Nr., 10, Op.
96 f G-dúr.
Tónleikar þessir voru önnur atlaga
þeirra Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Philips Jénkins að öllum tíu sónötum
Beethovens fyrir fiðlu og píanó. Á
þessum miðtónleikum glimdu þau við
sónötur sem ekki hafa verið leiknar á
tónleikum hér á landi á yfirstandandi
vertíð. Niðurröðun á efnisskrá finnsl
mér hafa tekist framúrskarandi vel
og er raunar kannski spurn, hvernig
hefði átt að raða upp öðruvísi, því
eins og þau Guðný og Philip setja
efnisskrárnar upp fær hver sónata að
njóta sinna sérkenna, ótrufluð af
sínum nánast skyldu.
í þessum efnum reyndist undir-
búningur þeirra til fyrirmyndar. Þau
léku líka sónöturnar snurðulaust og á
köflum mjög vel. Sú hlið undir-
búningsins hafði einnig verið
verðuglega afgreidd.
Adagio með
meistara-
handbragði
Hægu kafla léku þau hrifandi.
Þannig má nefna adagio kaflana
úr sjöttu sónötunni og tiundu.
Þeir voru báðir meðhöndlaðir
meistarahöndum, svo vart verður
betra krafizt. Sama má segja um
andante kaflann úr fjórðu, hann var
einnig fallega leikinn. En svo brá
fyrir öðrum köflum, sem ekki nutu
sama meistarahandbragðsins. Þann
flokk fylllu hröðu kaflarnir, fyrst og
fremst. í hröðum hlaupum átti
Guðný til fum, svo stundum var eins
og hún vildi rubba þeim af. Philip
hætti hins vegar til að slíta þau í
sundur. Legatospil þeirra var ekki
alltaf nógu vel og mjúklega bundið,
en staccato tíðum tæpast nógu stutt.
En hvarvar
styrkleika-
munurinn?
Allt eru þetta að sjálfsögðu
einstaklingsbundin smekksatriði, en
það sem mér þótti verst var hversu
allur styrkleikamunur var illa fjarri
góðu gamni. Það sem Beethoven
skrifar ýmist, (eða að minnsta kosti
stendur það i prentuðu útgáfunum)
pianissimo og allt upp í fortissimo,
flattist þetta kvöldið út í eitt
allsherjar mezzoforte. Einhvern
veginn á ég dálítið bágt með að trúa
að þannig hafi Beethoven viljað hafa
það. Vera má að hljómburður
Norræna hússins hafi aukið á lit-
leysið, þótt tæpast geti hann talist
einráður í þeim sökum. Litleysið
gerði það að verkum, að mér fannst
leikurinn einna líkast afslappaðri
sunnudagssiðdegisspilamennsku
heinia hjá töntu gömlu. -EM.