Dagblaðið - 28.04.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRlL 1980.
9
Erlendar
fréttir
REUTER
Berlinguer
og Hua vinir
Enrico Berlinguer formaður
kommúnistafiokks ítaliu sagði að
aðalágreiningur flokks hans og
kommúnistaflokks Kína varðaði
hugmyndir Kínverja um samfylk-
ingu Kina, Vestur-Evrópu,
Bandaríkjanna, Japan og ann-
arra rikja gegn Sovétríkjunum.
Berlinguer kom í gær frá Kína
eftir 10 daga heimsókn þar sem
gengið var frá tengslum flokk-
anna eftir 17 ára stirða sambúð.
Hann heimsótti sömuleiðis
Norður-Kóreu og kvaðst ánægð-
ur með árangur viðræðna á
báðum stöðum. „Ágreiningur
okkar og Kínverja hindrar ekki
áframhaldandi árangursrík sam-
skipti og viðleitni til samstarfs,”
sagði Berlinguer.
Stjórn Kína harmaði i gær til-
raun Bandaríkjanna að frelsa
gíslana i Teheran og kallaði hana
,,brot á sjálfsákvörðunarrétti
írans.” Kina hvatti íran og
Bandarikin til að gera út um mál
sín með varúð svo að „þeir sem
eru með leynd markmið i huga fái
ekki tækifæri.” Eiga Kínverjar
þar án efa við Sovétrík in.
Mikill og d júpstæður ágreiningur ráðherra í Bandaríkjast jórn staðf estur
— alvarlegt áfall fyrir Jimmy Carter forseta: w
VANCE UTANRIKIS-
rAðherra HÆTHR
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hefur tilkynnt Carter
forseta afsögn sína úr embætti.
Ákvörðun ráðherrans verður tilkynnt
opinberlega í dag eða á morgun, sam-
kvæmt fréttum í morgun. Ekki er
vitað hvort Carter hefur fallizt á
beiðni Vance um að verða leystur frá
embætti.
Af opinberri hálfu var i fyrstu fátt
eða ekkert sagt um orðróminn þegar
hann komst á kreik. Talsmenn Hvíta
hússins vildu ekkert segja og sömu
sögu var að segja um nána samstarfs-
menn og blaðafulltrúa utanríkisráð-
herrans. Ónafngreindur embættis-
maður staðfesti síðan fregnirnar og
sagði ástæðuna fyrir ákvörðun Vance
vera ágreining hans og Carters for-
seta í stefnunni gagnvart íran, og þá
fyrst og fremst varðandi haförina
misheppnuðu í lok síðastliðinnar
viku. Cyrus Vance var mótfallinn
hugmyndum um hernaðaríhlutun í
íran og átti ekki þátt í því að reynt
vár að frelsa gislana í Teheran.
Frelsunarförin rann út i sandinn, sem
kunnugt er, vegna tæknilegrar bil-
unar í þremur af átta þyrlum í leið-
angrinum. Átta Bandaríkjamenn
fórust og fimm slösuðust þegar tvær
flugvélar rákust á eftir að Carter
forseti fyrirskipaði að hætt skyldi við
aðgerðir og sneri leiðangursmönnum
til baka 500 km frá Teheran.
Ákvörðun Vance var að sögn til-
kynnt jafnnvel áður en endanleg
ákvörðun Carters um íran-herferðina
lá fyrir. Undanfarið hefur lítið borið
á ráðherranum í fjölmiðlum og voru
getgátur um að hann og Carter
greindi alvarlega á i íran-málinu.
Fyrr í þessum mánuði mótmælti
Vance hugmyndum forsetans um að
setja viðskiptabann á íran seiji næði
til matvæla og lyfja. Vance hefur
sömuleiðis gert athugasemdir i þá átt
að Brzezinski, ráðgjafi Carters í
öryggismálum, ráði of mikið ferðinni
í mótun utanríkisstefnu Bandaríkj-
anna.
Cyrus Vance, 63 ára gamall, er
einn vinasti ráðherra í Bandaríkja-
stjórn. Af.sögn hans er mikið áfaJl
fyrir Carter.
Vance var á Flórída í helgarfrii.
þegar forsetinn og ráðgjafar hans
ákváðu herleiðangurinn til írans.
Warren Christopher aðstoðarutan-
ríkisráðherra mótmælti hugmyndun-
um fyrir hönd Vance en árangurs-
laust. Vance lagðist sjálfur gegn
hugmyndununt við ' konmna til
Washington. Carter neitaði hins
vegar að taka ákvörðun sína til
endurskoðunar.
Búizt er við að Warren Christopher
taki við utanríkisráðherraembættinu,
til bráðabirgða að minnsta kosti.
◄
Jimmv Carter og Cyrus Vance á
fréttamannafundinum 3. desembcr
1976 þegar forsetinn kynnti utan-
ríkisráðherraefni stjórnar sinnar.
„Nýtt met Irana í siðleysi”:
Líkin tíl sýn-
isíTeheran
Bandarikjastjóm segir að íranir hafi sett
nýtt met í siðleysi með þvi uppátæki að
hafa lík átta bandarískra hermanna til
sýnis opinberlega í Teheran í gær. Menn-
imir fórust i misheppnaðir herför til frels-
unar gislanna í bandaríska sendiráðinu á
föstudaginn.
Jody Powell, blaðafulltrúi Bandarikja-
Stjómar, sagði að erfitt væri að ímynda sér
að sannfærðir fylgismennmúhameðstrúar
tækju þátt í athæfi á borð við líksýning-
amar.
Opinberir talsmenn í Washington segja
að Carter hafi mótað langtímastefnu í
íran-málinu í ljósi hrakfaranna á föstu-
daginn. Enn frekari refsiaðgerðir, bæði
pólitískar og efnahagslegar, verði reyndar.
Reynt verði að fá Vestur-Evrópuríki og
Japan til frekar samstarfs gegn íran. Þá
’sögðu talsmenn Carters að hann útíloki
engar leiðir, þar á meðal hemaðarað-
gerðir, til að frelsa gíslana.
mMFmioM
VERKFALLISVIÞJOÐ
„Við krefjumst hærra kaups og beui
vinnuaðstöðu,” segir á kröfuspjaldinu sem
erlendir verkamenn í Kaupmannahöfn
halda á loftí. Bæði í Danmörku og Svi-
þjóð er hart deilt um kaup og kjör verka-
fólks þessa dagana. Um helgina vom sam-
göngur i Sviþjóð hvort sem var í loftí, á sjó
eða með járnbrautum á landi lamaðar
vegna verkfalls 14.000 opinberra starfs-
manna og annarra starfsmanna við sam-
göngutæki landsins. Verkfallið, svo og
verkbann sem nær til 12.000 starfsmanna
ríkis og bæja, stöðvaði allt farþegaflug
innanlands, tmflaði skólahald og starfsemi
skóla og sjúkrahúsa. Sömuleiðis féllu
niður útsendingar sjónvarps að undan-
skildum fréttalestri. Kröfur opinberra
starfsmanna hljóða upp á 12% kaup-
hæk kun.
Allt
ísennl
BARNAVAGN,
BURÐARRÚM OG
KERRA
Póstsendum
um land allt
Höfum ennfremur kerrur, leik-
grindur, stóla, klœðaborð, vöggur
og göngugrindur. Allt mjög
vandaðar vörur frá hinu þekkta
ameríska fyrirtæki
„HEDSTROM"
Mikið úrval af fatnaði og gjafavör
um handa ungbörnum.
Móðurást
Hamraborg 7 Kópavogi — Sími 45288.