Dagblaðið - 28.04.1980, Síða 10

Dagblaðið - 28.04.1980, Síða 10
BIAÐffl tftgefandi: rfagtftfliö hf. Fvamkvœmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Rhstjórí: Jónas KriJtjánsson. iRitstjómarfulHrúi: Haukur Helgason.'FréttastjórífÓrnar Valdjmarsson. Skrífstofiistjóri rítstjómar Jóhannes Reykðpl. íþróttir Hallgn Simonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarf réttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrimúr Pálssón. Hönnun: Hilmar Karísson. Blaöamenn: Anna Bjamason, AtJi Rúnar Halldórsson, AtH Steinarssorí, Ásgeir Tómasson, Bragi SÁgurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín AÍbértsdóttir, Erna V. IngóÍfsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson/ Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrissorí. Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamloifsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös- son, Sveinn Pormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvktsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkori: Þrálnn Þorieifsson. Sölustjórí: Ingvar Sveinsson. Droifing ^Stjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aðálskniblaösln^r270^^ ^ ^ Skattagræðgin er sprengiefni Fyrir 30 árum voru skattar til ríkis og sveitarfélaga 25% þjóðartekna. Fyrir 10 árum voru þeir 35%. Á þessu ári eru þeir komnir upp í 45%. Með sama áframhaldi verða opinberir skattar komnir upp í 55% þjóðartekna eftir aðeins fimm ár. Skattheimtan er þannig nú þegar komin upp undir það, að önnur hver króna renni til hins opinbera. Hjá fólkinu í landinu lítur þetta enn verr út, því að hlutur hins opinbera er enn hærri af þeim viðbótarkrónum, sem menn vildu kannski afla. í mörgum fjölskyldum vilja menn afla sér aukatekna vegna tímabundinna eða langvinnra þarfa. Þetta hafa menn til dæmis gert með yfirvinnu, bónusvinnu eða með því að hjón vinni bæði úti. Þessi vinnuþrælkun skilur lítið eftir. Samkvæmt skattstiga hinnar nýju og gráðugu ríkis- stjórnar eiga beinir skattar, það er tekjuskattur, út- svar, byggingasjóðsálag, sjúkratryggingargjald og kirkjugarðsgjald að fara upp í 65% af þeim viðbótar- krónum, sem menn afla sér. Þessi prósentutala er að vísu ekki sama eðlis og hin- ar, sem fyrr voru nefndar. Hún er ekki greidd fyrr en ári eftir að peninganna er aflað og er því ekki svona há í raun. En á móti kemur, að í hana vantar alla óbeinu skattana, svo sem sölugjald. Þess vegna ætti í heild að vera nálægt lagi, að tvær krónur af hverjum þremur krónum viðbótartekna lendi hjá hinu opinbera. Þetta eru uggvænleg tíðindi fyrir þá, sem eru að þræla, til dæmis fyrir þaki yfir höfuð sitt og sinna. Hraði þessarar óheillaþróunar hefur vaxið áttunda tug þessarar aldar undir dauðri hendi tveggja vinstri stjórna og einnar hægri stjórnar. Hin nýja ríkisstjórn hefur á tveggja mánaða ferli riðið mikinn á sama hel- vegi skattagræðginnar. Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen hefur ekki skilið, fremur en aðrar stjórnir eftir viðreisn, að það er tak- markað, sem fátækt þjóðfélag getur lagt til sameigin- legra þarfa. Sú geta takmarkast af stöðnuðum þjóðar- tekjum íslendinga. Á einum áratug ómögulegra ríkisstjórna hafa launa-„ greiðslur ríkisins aukizt úr 20% skatttekna í 30%. Einn maður þjónar nú ríkinu á hverja fjóra í atvinnulífinu, en var einn á hverja sjö fyrir tíu árum. Þessa þróun verður að stöðva. Allir eru sammála um, að skattagræðgin sé komin út yfír allan þjófabálk. Meðal annars hefur Verkamanna- sambandið lýst því yfir, að „ríkisstjórnin getur ekki vænzt aðhalds af öðrum aðilum, þegar hún heimtar sí- fellt meira í sinn hlut’ ’. í yfirlýsingu Verkamannasambandsins segir einnig: ,,Á sama'tíma og kjaraskerðingar dynja yfír af völdum verðlagshækkana, er óhæfa að skerða kjörin frekar með skattaálögum eins og samþykktar hafa verið”. Þessa óhæfu hefur ríkisstjórnin framið. Eini ljósi bletturinn í frumskógi hinnar opinberu skattagræðgi eru tilraunir nokkurra sveitarfélaga til að láta sér nægja lægri útsvör og fasteignagjöld en leyfíleg eru. Fremst er þar Seltjarnarnes, sem heldur sér við 10% útsvar. Önnur sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur, þar sem sjálfstæðismenn hafa meirihluta, fjalla nú um að halda sér við 11% útsvar, meðan Reykjavík er komin í 11,88% og önnur í 12,21%. Ef þetta viðnám kemst til framkvæmda, mun það vekja mikla athygli. Stjórnmálamenn á þingi sitja eins og jólasveinar með sveittan skallann við að uppfylla sífellt nýjar, sam- eiginlegar þarfír, sem tekjur þjóðarinnar standa ekki undir. Þeir átta sig ekki á, að skattagræðgin er að verða hið stórpólitíska sprengiefni. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRIL 1980. Kuwait var fyrsta rfkið sem Giscard d’Estaing Frakklandsforseti heimsotn i iu oaga lero sinm m Mioausturlanda fyrir fáein- um vikum. Hér er hann ásamt Jaber al Sabah þjöðhöföingja landsins. Gyðingar í Frakk- landi deila um Palestínumálið — í kjölfar studningsyf irlýsingar Frakklandsforseta við málstað Palestínumanna „Haldið Arafal úti i kuldanum: Látum Frakkland ekki eyðileggja Ísraelsríki” stendur á veggspjöldum í gyðingahverfínu í París. Annars staðar má sjá veggspjöld með áletr- uninni: „Friður í Miðausturlöndum. Heimaríki gyðinga og Palestínu- manna.” Enn einu sinni spyrja gyðingar í Frakklandi sig þeirrar spurningar hver sé vinur og hver óvinur. Franskir gyðingar eru um 700.000 talsins, fjölmennasta samfélag gyð- inga utan Sovétríkjanna. Þeir spyrja sig nú hvort þeir geti verið bæði gyðingar og franskir þegnar um leið. Eða hvort þeir verði að velja á milli þess að vera gyðingur eða Frakki. Yfirlýsingar Valery Giscard d’Estaings Frakklandsforseta um stuðning við sjálfræði palestinsku þjóðarinnar, sem forsetinn lét frá sér fara á ferð um Austurlönd fyrir skömmu, fara ákaflega í taugarnar á frönskum gyðingum. „Spurningin er sú hvort samfélag gyðinga og ísraels- ríki lifi eða deyi,” skrifar vikuritið La Tribune Juive. En á sama hátt og. pólitískur grasgarður Frakka skiptist á milli Gaullista, Giscard-sinna, sósíalista og kommúnista, eru gyðingar hreint ekki á einu máli um afstöðuna til Palestínumálsins. Rót- gróin samtök franskra gyðinga haida fast við gömlu harðlinustefnuna og verja Ísraelsríki í gegnum súrt og sætt. Vinstri sinnaðir námsmenn úr röðum gyðinga hallast margir hverjir að því að fram hjá Palestínumönnum og samtökum þeirra verði ekki gengið við lausn málsins. „Palestínumálið verður aðeins leyst af fulltrúum israels og Palestínumanna,” skrifar blaða- maðurinn Jean Liberman. „Niður- staðan fæst með viðurkenningu á yfirráðarétti Palestínumanna.” En hvað um það, franskir gyðingar eru sárreiðir forsetanum fyrir að gefa, stefnu Araba undir fótinn að „skaða hagsmuni ísraels sem allra mest,” eins og það er orðað. Gyðingarnir reyna að safna stuðningi við fordæm- ingu á yfirlýsingum forsetans. Þá hafa samtök gyðinga ákveðið að láta mjög til sin taka í forsetakosningun- um í Frakklandi á næsta ári. Þau ráð- gera að leggja sífellt spurningar fyrir forsetaefnin á opinberum vettvangi og knýja á um að fá við þeim skýr svör. Þannig ætla gyðingar að fá á hreint fyrirfram hvaða stefnu við- komandi muni fylgja ef hann nær því að setjast í franska forsetastólinn. Áhrifamikil gyðingasamtök í Lyon hafa reyndar þegar lýst yfir að þau muni beita sér gegn stuðningi sinna félagsmanna við alla frambjóðendur þangað til „skýr og ákveðin svör liggja fyrir”. Áður hefur sýnt sig að það getur skipt sköpum í kosningum hvort frambjóðandi hefur gyðinga með sér eða á móti. í þingkosningun- um 1973 t.d. féllu tveir ráðherrar að því talið er fyrst og fremst vegna yfir- lýstrar samúðar við málstað Araba. Fjölmiðlamenn i París eru þó yfirleitt sammála um að franskir gyðingar hafi ekki tök á að skaða kosningabar- áttu d’Estaings forseta á sama hátt og t.d. gyðingar í New York sköðuðu kosningabaráttu Carters i New York i forkosningunum fyrr á þessu ári. Almannarómur segir að fyrir for- setanum hafi einungis vakað að halda olíuflæðinu frá Miðausturlöndum til Frakklands gangandi þegar hann skrifaði undir yfirlýsingar hliðhollar Palestínumönnum í Austurlanda- ferðinni. í Frakklandi segja and- stæðingar forsetans hins vegar að hann hafi samt ekki haft annað upp úr krafsinu en fögur loforð um að olían myndi skila sér áfram til Frakk- lands. Hins vegar hafi frönskum fyrirtækjum gengið illa að fá fram- lengda viðskiptasamninga og gera nýja við þau lönd sem forsetinn heimsótti. Ofsi gyðinga í garð Giscards d’Estaings forseta er meiri en fyrir- rennarar hans í embætti þurftu nokk- urn tíma að þola. Þó fékk Charles de Gaulle væna skammadembu yfir sig 1967 þegar hann kallaði forystumenn Israelsrikis „hrokagikki”. Var- færnisleg stefna Pompidous í málefn- um Miðausturlanda fór fremur í taugarnar á gyðingunum en að hún skapaði æsingar og reiði meðal þeirra. Árið 1974 hitti Jean Sauvagnar- gues utanríkisráðherra Frakklands Yasser Arafat foringja Frelsissam- taka Palestínu, PLO. Þessi atburður vakti slíka reiði meðal israelsmanna og franskra gyðinga, að d’Estaing forseti sá sig tilneyddan að aflétta vopnasölubanni á ísrael til að róa lýðinn. Síðar greiddi Frakkland at- kvæði með viðurkenningu á Frelsis- samtökum Palestínu í Sameinuðu þjóðunum. Sömuleiðis var PLO leyft að opna skrifstofu í París. Vonzka gyðinga blossaði upp enn á ný. Þá greip forsetinn til þess að fara í heim- sókn í útrýmingarbúðir nasista í Aus- chwitz og þess að fjölmiðlar gerðu mjög mikið úr heimsókninni. Við það tækifæri lét d’Estaing mörg notaleg orð falla til gyðinga. Og gyðingar róuðust um sinn. Svo æstist leikurinn meira en nokkur sinni þegar franska stjórnin lét handtaka, og sleppa aftur úr haldi, hermdarverkamanninn Abu Daoud. Abu Daoud var potiurinn og pannan í skipulagningu á hryðjuverk- um Palestínumanna á ólympiuleikun- um í Múnchen 1972. Þetta atvik, sögðu gyðingar, sýnir að forseti Frakklands tekur olíuviðskiptahags- muni landsins langt fram yfir sjónar- mið siðfræði og mannhelgi. D’Estaing var sakaður um að beygja sig undir vilja Araba með því að láta Abu Daoud lausan. Þá horfðu gyðingar skelfdir upp á Frakklandsforseta fara í opinbera heimsókn til Jórdaníu. Sagt er að hann hafi m.a. heimsótt bækistöðvar hermanna ekki langt frá landamær- um ísraels og skoðað ísrael í gegnum sjónauka. Hann var þó ófáanlegur út úr þyrlunni sinni fyrr en öllum ljós- myndurum og blaðamönnum hafði verið vísað á braut. Hann kærði sig ekki um að fjölmiðlar gerðu sér mat úr máJinu. Eldri kynslóð gyðinga í Frakklandi hefur engu gleymt frá stríðsárunum. Hún minnist enn með biturð sam- vinnu frönsku stjórnarinnar og lög- reglunnar við nasistana. Og hún minnist þess að franskir samborgarar þóttu sýna litla samúð þegar þeir horfðu upp á gyðinga dregna burt af útsendurum Hitlers-Þýzkalands. Það er þvi niðurstaða Henri Hajdenbergs.stofnanda einna af sam- tökum gyðinga í Frakklandi, að gyðingar verði að gripa til einhverra ráða til að fá viðurkenningu sem þjóðfélagshópur sem taka verður fullt tillit til.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.