Dagblaðið - 28.04.1980, Side 31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
31
IS
Útvarp
Sjónvarp
i
Þeir fá að tala i útvarpið i kvöld og segja skoðun sina á skattamálum.
ÚTVARPFRÁ ALÞINGI - íkvöld kl. 20,00:
HÆKKA SKATTAR?
Útvarpað verður frá umræðum á Al-
þingi i kvöld. Umræður þessar eru
búnar að kosta mikið japl og jaml og
fuður því flokkarnir hafa ekki getað
komið sér saman um hvenær þær ættu
að vera.
Umræðurnar snúast um tekjuskatt-
inn. Rikisstjórnin hefur lagt fram hug-
mynd að skattstiga sem stjórnarand-
stæðingar segja að komi til með að
hækka skattana. Það segja stjórnar-
menn vitleysu, þetta verði jafnvel til
lækkunar skatta efnaminna fólks.
Alþýðuflokksmenn fóru fram á að
þessum umræðum yrði útvarpað og var
ákveðið að verða við því. Þegar búið
var að fastsetja daginn fékk fjármála-
ráðherra hins vegar nýja útreikninga
■frá rikisskattstjóra og sýndist þá
dæmið ætla að koma öðru vísi út en
Ragnar hafði ætlazt til. Hann bað þá
umaðumræðunum yrði frestað.
Nýr dagur var valinn, síðasti vetrar-
dagur. Stjórnarandstaðan var hins
vegar mótfallin þeim degi vegna þess að
talið var að fólk hefði öðrum hnöppum
að hneppa i tilefni dagsins en að hlusta
á útvarp. Fresturinn var veittur, Ragn-
ari til mikillar gremju að sögn, og
þessar margumtöluðu umræður fara
sem sé fram i kvöld.
Alþýðuflokkurinn fær að opna um-
ræðurnar en á eftir kemur Alþýðu-
bandalag, Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur rekur lestina. Hver
flokkur fær hálftíma í tvennu lagi til að
koma skoðunum sinum á framfæri.
Fyrri hálfleikur verður 15—20 mínútur
ogsáseinni 10—15 mínútur. Þáer bara
að setjast við tækin og komast að þvt
hvort skattarnir hækka eða ekki.
-DS
SÓLGATA16—sjónvarp kL 21,15:
Norskt vanda-
málaleikrit
Sólgata 16 nefnist norskt sjónvarps-
leikrit sem sýnt verður í kvöld. Er þar á
ferðinni mikið vandamálaleikrit um
þrjá feðga sem búa saman í óhrjálegri
leiguíbúð. Aftnn, pabbinn og sonurinn
hafa allir orðið undir i lífsbaráttunni og
eru álitnir vandræðamenn. En þeir eru
ólíkir og vandræðin sem af þeim stafa
eru ekki öll eins.
Þýðandi leikritsins er Jóhanna .16-
hannsdótlir.
- DS
Hvar eru spumingaþættimir?
Það að fjalla um dagskrá útvarps
og sjónvarps um alla helgina er ekki
létt verk og það gerir sennilega eng-
inn af viti, því svo margt annað kallar
á þannig að útvarpshlustunog sjón-
varpsrýni fer fyrir ofan garð og
neðan.
Eftir nokkurra mánaða fjarveru
frá landinu er ég sennilega ánægðari
með margt í útvarpi og sjónvarpi en
ég hefði ella verið, en þó verð ég að
segja að þegar kom áð Kastljósi á
föstudagskvöldið þá fannst mér eitt-
hvað vanta, form þáttarins er alltof
staðnað, og vinur minn Helgi ekki
nógu lipur stjórnandi. Það eru kostir
góðs stjórnanda þáttar sem Kastljóss
að leiða á milli spurninga, en ekki
spyrja í austur þegar annar er að
svara í vestur. En ósköp held ég að
margir séu litið nær um „jöfnun”
simgjalda eftir þennan þátt. Sjón-
varpsmyndina um kvöldið horfði ég
ekki á, nema rétt fyrstu mínúturnar,
og lofuðu þær góðu um framhaldið,
en fór í þess stað og hlýddi á hinn
stórskemmtilega söngvara Rebroff.
Á laugardögum er útvarpið jafnan
opið fyrri part dagsins og þrátt fyrir
að dagskráin hafi verið eins um langa
hríð virðist einhvern veginn alltaf
vera hægt að hlusta. Óskalög sjúkl-
inga er fastur hyrningarsteinn í dag-
skránni og svo er einnig um ,,í viku-
lokin” eftir hádegið. Einnig gerir
Svavar Gests efninu góð skil í þáttum
sínum og eru þeir þættir hinir áheyri-
legustu.
Evert Ingólfsson las fyrri hluta
skemmtilegrar smásögu á laugardags-
eftirmiðdaginn, en svo gleymdi ég að
hlusta á seinni partinn daginn eftir
þannig að ég missti botninn.
í sjónvarpinu á laugardag kvaddi
Lassie en í hans stað mun næsta
laugardag hefja göngu sína þáttur um
hina síungu kempu Fred Flintstone í
nýjum ævintýrum, og leiðir það hug-
ann að því hve teiknimyndir eru vin-
sælt efni bæði hjá börnum og full-
orðnum. Væri ekki úr vegi að sjón-
varpið reyndi að fjölga slikum þátt-
um. Aðra þætti laugardagsins horfði
ég lítið á, Löður fer einhvern veginn
fyrir ofan garð og neðan hjá mér og
þátturinn um nóbelsskáldið freistaði
mín ekki. Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva er alltaf gaman að horfa á, þó
ekki væri nema fyrir glæsileik í upp-
setningu. En þar eð annað var á dag-
skránni hjá mér þá horfði ég ekki á
þennan þátt til enda.
En þegar er verið að fjalla um
helgardagskrá sjónvarpsins á annað
borð, þá kemur upp sú spurning
hvers vegna enginn spurningaþáttur
hefur verið á dagskránni í vetur.
Slíkir þættir eru ekki dýrir í upptöku
né útsendingu og njóta ávallt vin-
sælda.
Á sunnudag stóð Stundin okkar
fyllilega fyrir sínu og krakkarnir
minir segja mér að þeim hafi fundizt
gaman að henni í vetur. Á eftir frétt-
um var sýnd þurr og stirð lýsing á
kaupstaðarferð á hestvögnum. Þar.
hefði lipur og lifandi þulur lagað
mikið.
I gærkvöldi horfði ég í fyrsta skipti
á þáttinn Í Hertogastræti og hafði
gaman af. Eru Bretar greinilega enn
framar öðrum í framleiðslu á efni
sem þessu. Á eftir þvi skyggndumst
við inn i heim grafiklistamannsins
Eschers og þar á eftir var sýndur
bráðgóður þáttur með þrem jass-
gítaristum. Alla jafna er ég ekki
mikið fyrir jass, en á þennan þátt
horfið ég til enda með ánægju.
Á eftir jassinum skipti ég yfir á
útvarpið og lenti þá í kvöldsögunni
um Odd V. Gíslason, eflaust ágætri'
sögu, en mikið voru sögurnar betri
hér í eina tið, eins og þegar öll þjóðin
sat í spenningi og hlýddi á „Hver er
Gregory?” hér um árið. Einhvern
veginn finnst mér að þannig ættu
kvöldsögurnar að vera.
MÆLT MÁL- útvarp í kvðld kl. 19,35:
VIL AÐ MENN
LEGGIRÆKT
VIÐ MÁLIÐ
— segir nýr umsjónarmaður
Mælts máls
„Það er bara sérvizka i mér að
kalla þáttinn Mælt mál. Mér finnst
Daglegt mál lágkúrulegra. Ég var
með þáttinn fyrir fimm árum og fékk
þá að ráða þessu,” sagði Bjarni
Einarsson lektor um þáttinn Mælt
mál sem hann sér um í kvöld. Bjarni
tók við umsjón hans á sumardaginn
fyrsta af Stefáni vinnufélaga sínum á
Handritastofnun Karlssyni.
,,Ég býst við því að verða með
þáttinn núna í nokkrar vikur. Í fyrsta
þættinum sagði ég nokkuð frá því
hvað ég hyggst gera. Ég talaði um
hvað fælist í orðinu málrækt, það að
viðhalda og rifja upp orðaforða
tungunnar og benda á misfellur og
rugling á orðum og orðatiltækjum.
Þátturinn verður í hefðbundnum
stíl. Ég er enginn sérvitringur sem vill
leyfa fólki að tala hvernig sem er. Ég
vil að fólk leggi rækt við málið, bæði
það skrifaða og það talaða,” sagði
Bjarni. - DS
&
Bjarni F.inarsson lcktor, hinn nýi um-
sjónarmaður Mælts máls, cr
starfsmaður Handritaslofnunarinnar
í Árnagarði.
DB-mynd Bj.Bj.
VINUR MINN TELEJTIN - útvarp kl. 17,20:
Ævintýri á kólerudögum
„Höfundinum er ofarlega í huga
hið mikla misrétti manna á milli en
sagan er svo full af mannlegri hlýju,
•nánast að segja mannást að unun er
af,” sagði Guðni Kolbeinsson cand.
rnag. um nýja bárnasögu sem hann
byrjar að lesa í dag. Nefnist sú
saga Vinur rninn Talejtin og er
eftir Olle Mattson. Guðni hefur
einnjg þýtt söguna. Við báðum hann
að segja frá henni og höfundinum:
„Mattson er sænskur, fæddur árið
1923. Hann lauk háskólaprófi árið
1948 og hefur síðan þá unnið fyrir sér
sem óháður blaðamaður og rithöf-
undur. Hgnn hefur skrifað fjöldann
allan af barnabókum en mér er ekki
kunnugt um að hann hafi skrifað
neinar bækur aðrar. Bækur hans
hafa verið þýddar á fjölda tungu-
mála, ég sá í lista að nefnd voru lönd
eins og Bandaríkin, Sovétrikin og
Suður-Ameríka ásamt með löndum
sem eru miklu nær okkur. Hann er
mjög vinsæll höfundur í Svíþjóð og
fékk til að mynda Nilla Hólmgeirs-
sonar verðlaunin árið 1956. Það var
fyrir bókina Briggskipið Bláliljan
sem ég þýddi og las i morgunstund-
inni í fyrra. Sú saga og önnur sem ég
þýddi eru held ég þær einu sem þýdd-
ar hafa verið af sögum Mattsons á ís-
lenzku og ekkert hefur komið út eftir
hann.
Þessi saga gerist i Gautaborg árið
1866. Þar geisar þá kólerufaraldur.
Söguhetjan Sakarias missir móður
sína úr kólerunni og þar sem faðir
hans hafði dáið þegar Sakarias var
litið barn þykir honum vissara að
flýja til þess að verða ekki settur á
munaðarleysingjahæli. Hann ætlar
að flýja alla leið til Ameriku. Hann
kynnist undarlegum náunga, Talej-
tin, sem segist vera af konungsætt-
um, og jafnöldru sinni, Soffíu.
Soffía ætlar einnig til Ameríku með
drykkfelldum og heldur ömurlegum
frænda sínum. Þau þrjú lenda saman
og sitt í hverju lagi í ýmsum ævintýr-
um, erfiðleikum og basli og er sagan
ákaflega spennandi á köflum. Auk
þess er hún verulega fyndin,” sagði
Guðni Kolbeinsson. Sagan verður
lesin á mánudögum og þriðjudögum í
eftirmiðdaginn likt og gert hefur
verið nteð aðrar barnasögur útvarps-
insívetur. . DS
Framsóknarvist i Reykjavík
Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir spilakvöldi að Rauðarárstig
18, Hótel Heklu, mánudaginn 28. april kl. 20.00.
Mjöggóð verðlaun.
Kaff iveitingar í hléi.
Aflir vatkomnir meðan húsrúm leyfk.
ATÍH. Hótd llckla
:£r vel stadsett og aóeins nokkur skref frá Hleromi, míö$töó strættevago-
aana.
Miðapantanir 1 síma 24480.
'V V#rAÁIEFB»PFR._________________________