Dagblaðið - 28.04.1980, Qupperneq 32
Slökkviliðsnýlidar
æfasigáeldi
Mikinn reykjarmökk lagði
upp frá Reykjavíkurjlugvelli
núna á laugardaginn. Reykvík-
ingar eru orðnir næsta vanir
slíkri sjón, vita að þarna er á
ferðinni æfing hjá Slökkviliði
Reykjavíkur.
Á laugardaginn var verið að
æfa nýliða sumarsins í því að
umgangast eldinn sem þeir eru
ráðnir til að berjast við í sumar.
Gunnar Sigurðsson vara-
slökkviliðsstjóri mætti á staðinn
til þess að segja mönnum sínum
til með ýmis tól og tæki og
kenna mönnum hvernig bezt
væri að eiga við hverja tegund
elds. - DS
Brosandi en eilítið óhreinn horfir hann
þessi á hvernig bezt er að ráða niðurlög-
um elds. DB-myndir: Hörður.
Froskkafari drukknaði
við köfun i Straumsvík
—var látinn er félaga hans tókst að koma honum að landi
Þrjátiu og fimm ára gamall Reyk-
víkingur, Gunnar Mosty, til heimilis
að Vesturbergi 128, drukknaði í
Straumsvik síðdegis á laugardaginn.
Var Gunnar heitinn þarna ásamt
félaga sínum innan við tvítugt að æfa
froskköfun er slysið varð.
Gunnar og félagi hans syntu frá
svokallaðri Þýzkubúð, gamalli ver-
búðgegnt Straumsvikurhöfn utan við
bæinn Straum. Voru þeir á um 20
feta dýpi úti á víkinni. Félagi
Gunnars sá Gunnar fara upp á yfir-
borðið og siðan gleraugu Gunnars
sökkva til botns. Er hann kom upp á
yfirborðið sá hann að Gunnar hafði
átt í erfiðleikum og var meðvitundar-
laus í sjávarskorpunni.
Félaganum tókst að koma Gunnari
upp í fjöru og reyndi lifgunartilraunir
án árangurs. Hljóp hann þá út á
Reykjanesbraut og bað bil að kalla á
aðstoð. Kom lögregla og sjúkralið á
staðinn, en það reyndist um seinan.
Ekki er vitað hvað þarna bar að
höndum en froskmannsbúningur
hins látna og tæki hans eru í rann-
sókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Gunnar var að sögn óreyndur
froskkafari og mun þetta hafa verið
hans fyrsta meiri háttar köfunarferð.
- A.St.
45 rithöf undar mótmæla:
KREFJAST AFSAGNAR
STJÓRNAR LAUNASJÓDS
—fyrir að úthluta starfslaunum eftir f lokkspólitaskum línum
„Við undirritaðir félagar í Rithöf-
undasambandi íslands mótmælum
því gerræði stjórnar Launasjóðs rit-
höfunda að úthluta hæstu starfslaun-
um eftir flokkspólitisku sjónarmiði.
Þetta hefur stjórn launasjóðs nú gert
annað árið í röð.” Sama gildir að
mestu um næsthæstu starfslaun.”
Þannig hljóðar upphaf mótmæla
fjörutiu og fimm félaga í Rithöf-
undasambandi íslands, sem birt hafa
verið. Er. þess krafizt að núverandi
stjórn Launasjóðs rithöfunda viki
nú þegar.
„Ég hef ekkert um þessi mótmæli
að segja annað en það að fráleitt er
að farið sé eftir flokkspólitískum
skoðunum umsækjenda,” sagði
Sveinn Skorri Höskuldsson prófess-
or, formaður stjórnar sjóðsins, i
viðtali við DB i morgun. „Styrkjum
úr sjóðnum er úthlutað eftir umsókn-
um.
Auk Sveins Skorra eru þau Fríða
Á. Sigurðardóttir og Björn Teitsson í
stjórn launasjóðsins. Eru þau skipuð
samkvæmt tilnefningu stjórnar
Rithöfundasambands íslands.
Hæstu starfslaun (níu mánaða
laun) hlutu að þessu sinni eftirtaldir
fjórir rithöfundar: Ólafur Jóhann
Sigurðsson, Ólafur Haukur Simonar-
son, Jakobína Sigurðardóttir og
Svava Jakobsdóttir.
í mótmælum félaga í Rithöfunda-
sambandinu segir ennfremur:
„Fyrirmynd slíkrar ráðsmennsku
um listræn málefni verður ekki
fundin nema hjá þjóðum sem búa við
illræmt stjórnarfar og þjónar þeim
tilgangi einum að visa þeim frá rit-
störfum sem hafa aðrar stjórnmála-
skoðanir.”
-ÓG.
fijálst, áháð dagblað
MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
Karl og Kríst-
ján skólaskák-
meistarar
Karl Þorsteins sigraði í eldri flokki
landsmótsins í skólaskák, sem fór fram
í Varmalandsskóla í Borgarfirði um
helgina.
Karl hlaut 7,5 vinninga af 8 möguleg-
um en keppendur i þessari úrslita-
keppni voru 9 í hvorum flokki. i 2. sæti
varð Guðmundur Gíslason frá ísafirði
með 6 vinninga og í 3. sæti Lárus Jó-
hannesson, Reykjavík, með 5,5 vinn-
inga.
í yngri flokknum sigraði Kristján
Pétursson úr Kjós með 6 vinninga. í 2.
sæti varð Eyþór Eðvarðsson, Vest-
fjörðum með 5,5 vinninga. í 3. sæti
Úlfhéðinn Sigurmundsson, Suður-
landi, einnig með 5,5 vinninga og
fjórði varð Davíð Ólafsson, Reykjavik,
einnig með sama vinningafjölda, 5,5.
Sigurvegararnir hlutu skákfána til
eignar og bókargjöf frá Friðriki Ólafs-
syni, forseta FIDE. -BAJ
Þjófarvíða
áferðinni
Þjófar leituðu víða fyrir sér um
helgina og eru ekki öll kurl komin til
grafar varðandi hvað jreir höfðu upp úr
krafsinu. Ljóst er þó að 80 þús. kr. var
stolið úr Byko við Auðbrekku. Hljóm-
flutningstækjum var stolið úr íbúð við
Háaleitisbraut, en maður með slík tæki
í fanginu var gripinn litlu síðar. Þá var
farið í fyrirtæki við Vesturvör í Kópa-
vogi og í biðskýli i Garðabæ.
Ókunnugt er um ránsfeng. Einnig var
átt við rúðu í Stórmarkaðinum í Kópa-
vogi. Brotnar voru rúður í fjórum
bílum í Kópavogi. og einum þeirra
stolið en hann fannst skammt frá. A.St.
Kristján Friðriks-
sonlátinn
Kristján Friðriksson iðnrekandi i
Última lézt á laugardagskvöldið á
heimili sínu í Reykjavik, á 68. aldurs-
ári. Banamein hans var hjartaslag.
Kristján lét mikið til sín taka í sam-
bandi við fjárhags- og atvinnumál og
skrifaði um þessi áhugamál sín í blöð.
Hann var m.a. fastur kjallarahöfundur
i Dagblaðinu. Eftirlifandi kona hanser
Oddný Ólafsdóttir.
LUKKUDAGAR:
27. APRÍL: 23500
Kodak pocket A1 myndavél
28. APRÍL: 7468
Skáldverk Gunnars
Gunnarssonar, 14 bindi, frá AB.
Vinningshafar hringi
í síma 33622.
TÖGGUR
UMBOÐIÐ
SÍMI
sú 81530 ^