Dagblaðið - 13.06.1980, Side 1
f
i
i
6. ARG. - FÖSTIJDAGUR 13. JÚNÍ 1980. - 132. TBI.. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGI.ÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Flugleiðir segjá upp250starfsmönnum
frá 1. okt:
„Þetta lá í
loftinu eftir
aöalfundinnff
segir formaöur Starfsmannafélags Flugleiöa
Uppsögn 250 starfsmanna Flug-
leiða hf., er nú rædd í stjörn
félagsins. Koma þær þó ekki til fram-
kvæmda fyrr en hinn 1. október
næstkomandi þar sem þriggja
mánaða uppsagnarfrestur er i gildi
varðandi nær allan þennan hóp
starfsmanna. Uppsagnir verða
væntanlega tilkynntar 1. júní, ef
stjórnin tekur framangreinda
ákvörðun á fundi sem ráðgerður er
24. þessa mánaðar.
Þessi alvarlega ráðstöfun er að
mati stjórnarinnar neyðarúrræði eða
lokakostur, eins og það er orðað, til
þess að draga úr hallarekstrinum,
sem einkum hefur orðið á Banda-
rikjafluginu. Taka uppsagnir til
starfsmanna beggja vegna hafsins.
Uppsagnirnar eru i beinum
tengslum við samdrátt á þessu flugi,
sem þrjár flugvélar hafa yfirleitt
annazt. Aðeins ein flugvél verður þá í
þessu flugi með þrjár ferðir á viku
hverri. Ef af þessum uppsögnum
verður jafngildir það fækkun starfs-
manna um rúmlega fjórðung.
„Það lá í loftinu eftir aðalfund
Flugleiða hf. að eitthvað í þessa átt
myndi gerast. Auðvitað vonuðu allir
og vona enn að til svona víðtækra
uppsagna komi ekki,” sagði Helgi
Thorvaldsson, formaður Starfs-
mannafélags Flugleiða, í viðtali við
DB. í morgun. Hann sagði, að öllum
væri það Ijóst að þetta væri ekki létt-
bært, hvorki fyrir stjórn né starfs-
menn. ,,Ég fullyrði að allir starfs-
menn eru með þvi hugarfari að
vonast til að úr rætist um erfiðan
rekstur með öðrum hætti en þeim
sem nú virðist stefna i,” sagði Helgi
Thorvaldsson. -BS.
oSk^Í
Slysstaðurinn á Kringlumýrarbraut I gær, þar sem fjórða dauðaslysið f umferðinni varð á einni viku.
FJÓRÐA DAUÐASLYSIÐ í
r
FERÐINNIA EINNIVIKU
DB-mynd: Sv. Þorm.
UM-
— 75 ára kona lét lífið á Kringlumýrarbraut í gær
Fjórða dauðaslysið á einni viku varð
i gær er 75 ára gömul kona varð fyrir
bíl á Kringlumýrarbrautinni og lézt
samstundis. Konan virðist hafa verið á
leið yfir götuna móts við Sléttuveg er
hún varð fyrir bil sem kom akandi i
norðurátt á vinstri akrein Kringlu-
mýrarbrautar.
Slysið var rétt fyrir klukkan þrjú i
gærdag. Konan kom gangandi í átt frá
Borgarspitalanum að Fossvogskirkju-
garði. Ekki var ljóst í morgun af
mælingum lögreglunnar hvort ástæðan
fyrir slysinu var mikil ferð á bílnum,
þannig aðekki hefði verið möguleiki að
sjá hann fyrir hæðinni á götunni sem er
þarna skammt undan. Ekki er unnt að
gefa upp nafn konunnar að svo stöddu.
isti |
álfir”
— sjábls.5 J
Allar líkur á að framleiðslukvóti í landbúnaði taki gildi íhaust
Þetta er það sem bændur vildu sjálfir
Biermann er tilþrifamikill söngvari og tjáir Ijóö sin óspart með mörgum svipbrigðum.
DB-mynd: Þorri.
Wolf Biermann í Háskólabíói ígærkvöld:
Vandræðabarn bæði
austan og vestan
— Amma tók upp á því á gamals
aldri að fara að biðja til guðs. Vildi hún
færa sér í nyt gömul og góð sambönd
þar efra, frá því hún var barn. Ekki af
þvi hún vildi tryggja sér þar öruggl
pláss, heldur vildi hún hagnýta sam-
bandið í þágu flokks og hreyfingar.
Guð komdu á kommúnisma!
Eitthvað á þessa leið söng visnasöng-
varinn Wolf Biermann á liðlega þriggja
tima löngum tónleikum Listahátíðar í
Háskólabiói í gærkvöld.
Hóf Biermann tónleikana á þvi að
segja ágrip af ævisögu sinni. Hvernig
hann hefði ungur maður í Hamborg af-
ráðið að setjast að í Austur-Þýzkalandi
á sama tíma og milljónir annaria
streymdu i gagnstæða átt til Vestur-
Þýzkalands. Söngvar hans féllu þar i
góðan jarðveg, enda maðurinn
kommúnisti. En brátt kom að þvi stal-
iniska skrifræðið austan járntjalds
þoldi ekki þennan kommúnisla lengur
og bannaði birtingu bóka hans og
uppákomur. Fyrir fjórum árum var
hann rekinn í útlegð til Vestur-Þýzka-
lands.
Söngvar Biermanns í Háskólabiói i
gærkvöld beindust margir hverjir gegn
hægri öflum þeim sem nú vaða uppi i
Vestur-Þýzkalandi. Gegn Franz Jósef
Strauss og gamla Carstens.
Biermann kvaðst vera orðinn hálf-
gert vandræðabarn vestan járntjalds
nú, eins og hann var austan þess áður.
Nýlega hefði hann horft á sjónvarps-
þátt með sjálfum sér i vestur-þýzka
sjónvarpinu og tók þá eftir þvi að
klipptur hafði verið burt einn söngur-
inn. „Mér fannst eins og ég væri
kominn heim!” sagði Biermann og átti
þar við Austur-Þýzkaland. Aheyrendur
hlógu dátt.
-BH.
Borgar sig að bjóða út:
Tilboðið 40% af
áætluðu verði
Upp á tæp fjörutiu prósent af ofan það sem tekið var hljóðaði upp
áætluðu verði hljóðaði tilboð það á 25.732 þús. kr. og til að tryggja sig
scm Innkaupastofnun Reykjavíkur- fyrir hinu lága tilboöi gerði Inn-
borgar tók jregar boðin var út smiði kaupastofnunin kröfu um að sett
stjórnskápa i dæluslöð hitaveitunnar yrði bankaábyrgð fyrir mismuninum
við Grafarholt. Var þar um að ræða á lægsta og næstlægsta tilboðinu, að
sameiginlegt tilboð tveggja aðila sem sögn Torben Friörikssonar hjá Inn-
hljóðaði upp á 9.690 þús. kr„ en kaupastofnuninni. Var bankaábyrgð-
áætlaður kostnaður hljóðaði upp á in sett og þá ekkert því til fyrirstöðu
24.896 þús. kr. Næsta tilboð fyrir ;að taka lægsta tilboði.
Á