Dagblaðið - 13.06.1980, Blaðsíða 8
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 13. JUNÍ 1980.
12
LITIR
AFBOLUM
TRIMMBUXUR
KANVASBUXUR
RÖNDÚnAR
STUTTERMA
SKYRTUR
OPIÐ
LAUGARDAGA
Tilboð óskast í
utanhússmálningu
á fjögurra hæða fjölbýlishúsi við Vesturberg nr.
2,4 og 6.
Upplýsingar I síma 36677 frá kl. 9—6 og á kvöldin i síma
75904.
BREYTTUR
OPNUNARTIMI
Nú er Teningurínn
Snorrabraut38, mótí
Austurbœjarbíói, opinn
frá kl 7 tíl23.30.
Við bjóðum upp á:
(»1, gos, sælgæti, hamborgara, samlokur,
heitar og kaldar, pizzur, pylsur, is og
alltaf nýtt poppkorn.
Teningurinn
Snorrabraut 38
Sífellt fleiri kvenmenn ryðjast inn á starfssvið karia:
„Þetta er alveg stór-
kostlegt starf"
— segja f imm stúlkur sem eru að útskrif ast ú> Iðnskólanum sem
húsgagnasmiðir
I siðustu viku skýrði DB frá erfið-
leikum sem steðja að i húsgagnaiðnað-
inum vegna gegndarlauss innflutnings
erlendra húsgagna til landsins. Svo vill
þó til að þessa dagana eru fimm stúlkur
að útskrifast sem sveinar í húsgagna-
smiðum. Eru það fyrstu stúlkurnar sem
útskrifast hér i Reykjavik i þessari iðn-
grein.
Stúlkurnar, sem heita Jóna Imsland,
Kristin Jónsdóttir, Kristin Ragnars-
dóttir, Ásrún Reynisdóttir og Margrét
Reynisdóttir, hafa allar fengið vinnu
þóerfiðlega hafi þaðgengið i fyrstu, að
þeirra sögn. Tvær þeirra eru systur og
hafa þær báðar brennandi áhuga fyrir
þessari iðn.
Þrjár stúlknanna vinna nú hjá Tré-
smiðjunni Meiði, ein hjá Furuhúsgögn-
uni og ein hjá Trésmiðjunni Grein.
„Þetta er alveg stórkostlegt," sagði
Kristin Jónsdóttir þegar við spurðum
hana hvort starfið væri skemmtilegt.
„Þetta er mjög skemmtilegt og ég vildi
alls ekki skipta," sagði Jóna. Allar
voru stúlkurnar á sama máli um ágæti
starfsins. Er DB-menn litu inn í iðn-
„Það hefði kannski verið betra að hafa það hinsegin", stúlkurnar fimm skoða eitt
sveinsstykkið. Áhuginn leynir sér ekki við smiðina hjá Jónu Imsland.
DB-mvndir Þorri.
skólann voru stúlkurnar að klára
sveinsstykki sín sem eru skápar. „Þvi
miður megum við ekki ráða hvað við
gerum," sögðu þær önnuni kafnar við
profstykki sin.
-KI.A.
Tefja Ólaf slöguppsagnir ífrystihúsum ítvo mánuði?
TILKYNNINGASKYLD-
AN ER FORTAKSLAUS
— segir Óskar Hallgrímsson íf élagsmálaráðuneytinu
„Þessi tilkynningaskylda er fortaks-
laus," sagði Óskar Hallgrimsson,
deildarstjóri vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins, er DB spurði
hann um ákvæði það í svonefndum
Ólafslögum frá 1979 er leggur atvinnu-
rekendum þá skyldu á herðar að til-
kynna með tveggja mánaða fyrirvara
ráðgerðan samdrátt eða aðrar þær
breytingar i rekstri er leiða til uppsagn-
ar 4 starfsmanna eða fleiri.
Vegna umræðna um lokun frysti-
húsa og uppsagnir starfsfólks þar er
vinnumálaskrifstofan nú að vekja al-
hygli á þessu ákvæði laganna.
„Tilgangur þessa ákvæðis er að auka
atvinnuöryggi starfsfólks," sagði
Óskar Hallgrimsson, ,,og það má ekki
rugla því saman við ákvæði annarra
Iaga sem losa atvinnurekendur undan
ákvæðum um ákveðinn uppsagnarfrest
ef um hráefnisskort er að ræða."
Óskar Hallgrimsson sagði að upp-
sagnarfrestur starfsfólk i frystihúsum
væri afar misjafn, þar sem ráðningar-
samningar væru fjölbreyttir, og upp-
lýsingar um hvernig þessu væri háttað
lægju ekki frammi. Ákvæði Ólafslaga
tækju þó af öll tvímæli um almenna
reglu: ef um uppsagnir fleiri en fjög-
urra starfsmanna er að ræða verður að
tilkynna það vinnumálaskrifstofunni
með tveggja mánaða fyrirvara.
„Frystihúsin loka eingöngu vegna
þess að þau geta ekki greitl fyrir hrá-
efni og vinnslu," sagði Ólafur Jónsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri sjávaraf-
tirðadeildar SÍS, þegar DB spurði hann
úl i þetla mál. Hann kvað það rélt að
lagalega séð væri hægt að hindra
uppsagnir i tvo mánuði, en það yrði þá
að vera ákvörðun starfsfólksins sjálfs
cf það vildi vinna án þess að fá greidd
laun, þar sem þau væru ekki fyrir
hendi.
(iM.
I
Oskar Hallgrímsson bendir á lagabók-
stafiiin: „Má ekki rugla saman við
ákvæði laga, sem losa arvinnurekendur
undan ákvæðum um uppsagnarfrest ef
um hráefnisskort er að ræða."
DB-mynd: Þorri.
SPYRNA
Kvartmíluklúbburinn heldur kvart-
mílukeppni á brautinni í Kapellu-
hrauni laugardaginn 14. júní kl 2.
Á meöal keppenda verður hin víð-
fræga „Kryppa" endurbyggð.
Keppendur mœti stundvíslega fyrir
kl 12.00.
.StjórninA