Dagblaðið - 13.06.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
Erlendar
fréttir
Kreisky neitar
áætlunum um
lausn gíslamálsins
Bruno Kreisky, kanslari Austurríkis,
sem staddur er i Osló á fundi leiðtoga
sósíaldemókrata, neitaði fregnum um
að þeir hefðu komizt að samkomulagi
um áætlun sem leiða ætti til lausnar
deilunni um bandarísku gíslana í
Teheran. Utanrikisráðherra írans
mætti á fundi krataforingjanna í Osló.
Cossigaforsætis-
ráöherra ívaxandi
erfiðleikum
Cossiga forsætisráðherra Ítalíu á í
vaxandi erfiðleikum vegna orðróms um
að hann hafi varað grunaðan hermdar-
verkamann við að lögreglan ætlaði að
handtaka hann. ítalska þingið sam-
þykkti í gær að skipa sérstaka nefnd til
að kanna málið. Hinn meinti hermdar-
verkamaður er sonur áhrifamikils
stjórnmálamanns. Er sá þingmaður
fyrir kristilega demókrata en Cossiga er
i þeim flokki. Hefur þingmaðurinn nú
sagt af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn.
Gættu þínT
Anker
Efnahagsástandið hjá frændum
vorum Dönum er að þeirra eigin
áliti ekki upp á það bezta. Stjórn-
málamenn mega samt ekki láta
deigan síga og verða að bera sig
karlmannlcga. Anker Jörgensen
forsætisráðherra hefur (il dæmis
klifrað upp í kaðalstiga en eftir
svipnum að dæma er honum um
ogó.
Washington:
Carter boðar heræf-
ingarmeð Egyptum
— Bandaríkjaf orseti ítrekar að íhlutun Sovétríkjanna við Persaf lóa verði
mætt með hervaldi
Jimmy Carter Bandarikjaforseti
ítrekaði fyrri yfirlýsingar sínar um að
öll íhlutun Sovétríkjanna í málefni
rikja við Persaflóa muni kosta beinar
hernaðaraðgerðir af hálfu stjórn-
valda i Washington. Bandaríkjafor-
seti tilkynnti einnig í morgun að her
landsins mundi senda nokkrar
Phantom orrustuþotur til Egypta-
Iands i næsta mánuði. Eiga þær að
taka þátt í heræfingum með egypzka
hernum. Þykir þetta undirstrika enn
frekar en orðið var að Anwar Sadat
forseti Egyptalands hefur i megin-
atriðum ákveðið að taka að sér hlut-
verk keisarans fyrrverandi i íran og
gerast helzti bandamaður Bandaríkj-
anna í Miðausturlöndum.
Viðvörun Carters forseta til Sovét-
nianna um afleiðingar íhlutunar
þeirra við Persaflóa kom áður frá
honum i vetur. Tengist þetta innrás
Sovétmanna inn í Afganistan. Sagði
Carter þá að öllum frekari hernaðar-
aðgerðum Sovétríkjanna eða tilraun-
um þeirra til að ná frekari áhrifum
við flóann mundi verða svarað með
öllum tiltækum aðgerðum og þar á
meðal hervaldi.
Carter forseti gaf þessar yfirlýsing-
ar í tilefni af viðræðum sínum við
sérstaka nefnd á vegum Demókrata-
flokksins vestra sem ætlað er að
semja stefnuskrá flokksins fyrir for-
setakosningarnar í nóvember næst-
komandi. Samtímis fara þá fram
kosningar til þingsins í Washington.
Heræfingar bandaríska flughersins
með Egyptum verða þær fyrstu sinn-
ar tegundar. Hafa þjóðirnar aldrei
áður haft svo náin hernaðarsam-
skipti. Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið tilkynnti í gær að á heræfing-
unum mundi meðal annars fara fram
beinar prófanir á ýmsum háþróuðum
drápstólum. Alls munu æfingarnar
taka þrjá mánuði.
Til marks um það hve æfingar
Bandaríkjahers með Egyptum eru
óvenjulegar þá er þess getið i fregn-
um frá Washington að slikar heræf-
ingar hafi aldrei farið fram með ísra-
elsher en fram að þessu hefur ísrael
verið nánasti bandamaður Banda-
ríkjanna í Miðausturlöndum.
Æfingar Bandarikjahers með
egypzka hernum þykja tíóindum
sæta. Til marks um það er skýrt frá
því í Washington að slikar her-
æfingar hafi aldrei farið fram með
ísraelsher en ísrael hefur þó fram að
þessu verið nánasti bandamaður
Bandaríkjanna í Miðausturlöndum.
l^KOMIN TIL HVERAGERÐISJ
BLÓMABORG
HVERAGERÐI
(ÁÐUR BLÓMASKÁLI MICHELSEN)
býðuryður til að sjá landsins mesta
úrval af pottablómum. Nýafskorin
blóm daglega.
Mjög hagstætt verð — Gerið verðsamanburð
Mikið úrval afpostulínsstyttum
og alls konar gjafavörum
BLÓMABORG S/F
Breiðumörk 12 — Sími 4225
(Áður Blómaskáli Michelsen)
BRITISH LEYLAND
HÆKKAR VERÐIÐ
Nýkomin sending af
KÖFUNARBÚNAÐI
KOMIÐ
HRINGIÐ
SKRIFIÐ
Brezku Leyland verksmiðjurnar
hafa boðað þriggja til fimm prósenta
verðhækkun á framleiðslu sinni. Til
dæmis mun hinn vinsæli Mini 1000
kosta eftir hækkun 3.031 sterlings-
pund eða um 3.3 milljónir islenzkra
króna. —- Þegar Mininn var kynntur
fyrir 2I ári kostaði hann 496 pund
(um5llþúsund íslenzkar).
Þessi hækkun hjá Leyland virkar á
allar gerðir Mini, nema 1100 Special.
Meðal annarra bíla sem hækka eru
Austin Allegro 1300, sem nú kostar
3.650 pund, Rover 2000 verður seldur
á 6.904 pund og síðast en ekki s'izt er
að geta Jagúar 4.2, sem nú kostar
I5.790 sterlingspund. Það svarar til
sautján milljóna islenzkra króna.