Dagblaðið - 13.06.1980, Page 24
Sjóslysá
Snæfellsnesi:
Fórst
er trilla
brotn-
aðia
blind-
skeri
Einn maður fórst, cr lítil trilla fra
Búðum á Snæfellsncsi fórst i gær eða
nótt. Talið er að trillan hafi steytt á
hlíndskeri og brotnað. — Maðurinn
var einn á trillunni. Ekki er hægt að
gefa upp nafn hansaðsvostðddu.
Að sögn Hannesar Hafstein hjá
Slysavarnafélagi Islands fór maður-
inn i róður i gærmorgun og hugðist
róg á Krossmið undan bænum Krossi
í Staðarsvcit. Þegar hann skilaði sér
ekki heim á réttuni tíma fóru fimm
bátar frá Arnarstapa á Snæfellsnesi
til leitar. Hún bar ekki árangur og var
|sá björgunarsveit Slysavarnarfélags-
ins og hópur bænda kvödd út til að
ganga fjörur.
Unt sexleytið i morgun fannst bát-
urinn og lik ntannsins i fjörunni und-
an bænum Böðvars'holti. Báturinn
bar þess öll merki að hafa brotnað á
skeri. Maðurinn sem lézl var vel
kunnugur sjólciðum á þessunt
slóðum. -ÁT-
Selfoss:
Sameiginlegur f ramboðs-
fundur frekar ólíklegur
Ólíklegt er að af sameiginlegum enda. Fulltrúar frambjóðendanna finna tíma sem öilum hentar. Þá hafa
fundi forsetaframbjóðenda verði á héldu fund á Selfossi í gær til að ræða allir frambjóðendur að Pétri undan-
Selfossi. Stuðningsmenn Vigdisar málið. Kom þar i Ijós að erfitt kannað skildum þegar haldið fund með
áttu frumkvæði að þvi að vekja máls vera að koma slikum fundi á nú. stuðningsmönnum á Selfossi.
á hugmyndinni og sendu bréf til Nánast hvert andartak fram til -ARH.
stuðningsmanna annarra frambjóð- kosninga er skipulagt og illmögulegt að
Æ, heldur gengur þetta tregtega. Samt er ekki hcegt að segja að ég œtli að okra mikið — ég vœrijafnvel til I að láta drek-
ann minn upp I i skiptum fyrir góðan, ameriskan bil. Bezt væri náttúrlega að skipta á sléttu — en einhverra hluta vegna sýna
menn ekki sérstakan áhuga. Það kannski lagast... eftir mánaðamótin. DB-mynd: Þorri.
Allar f rystigeymslur yfirf yllast fyrir mánaðamót:
Sambandið bíður eftir
aðgerðum stjómvalda
— lokum ekki nema í neyð, segir aðstoðarf ramkvæmdastjóri sjávaraf urða-
deildarSÍS
„Okkur er ekki kunnugt um að
stjórn eða stjórnendur nokkurs
Sambandsfrystihúss hafi enn tekið
ákvörðun um lokun vegna rekstrar-
erfiðleikanna,” sagði Ólafur Jóns-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
sjávarafurðadeildar SÍS, i samtali við
DB.
Á fundi stjórnar Sambandsfrysti-
húsanna fyrr í vikunni var gerð sam-
þykkt þar sem frystihúsiti, hvert fyrir
sig, voru hvött til að skoða fjárhags-
stöðu sína vel og vandlega og gera
allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að hætta rekstri áður en greiðslufall
verður orðið svo alvarlegt að ekki sé
hægt að greiða fyrir nauðsynlegustu
aðföng og þjónustu.
Ólafur Jónsson kvað lokun frysti-
húsa mjög alvartega aðgerð og til
hennar yrði ekki gripið nema i neyð.
Kvað hann sambandsmenn vitja
a.m.k. láta þessa viku líða og sjá til
hvort stjórnvöld gerðu eitthvað til að
rétta hlut frystiiðnaðarins. Upp úr
næstu viku mætti vænta þess að
frystihúsin tækju ákvörðun um
aðgerðir.
Annan vanda en rekstrarerfiðleika
kvað Ólafur steðja að frystihúsun-
um, það væri óvenjuleg birgðasöfn-
un. „Mér sýnist að flest öll húsin
verði í standi til að vinna út þennan
mánuð hvað snertir geymslurými,”
sagði hann, „en ef við gerum ekki
sérstakar ráðstafanir fyrir þann tíma
kunna húsin að lokast, gégn vilja
sinum, vegna birgðasöfnunar.”
-GM.
Grásleppukarlar á Akranesi kvarta:
„Sjávarútvegsráðuneytið
vemdar veiðiþjófana”
— með afskiptaleysi sfnu
„Sjávarútvegsráðuneytið er að
vernda veiðiþjófana með þessu af-
skiptaleysi sínu. Það hefur viður-
kennt að það geti ekki fylgt reglu-
gerðinni um grásleppuveiðar eftir, en
samt hefur ekkert verið gert til að
afnema reglugerðina,” sagði
Kristján Hagalinsson á Akranesi i
viðtali við DB. Mikill hiti er nú i
mönnum uppi á Skipasaga vegna
máls þess sem upp er komið vegna
reglugerðarbrots þriggja grásleppu-
báta.
Forsaga málsins er sú að kvartað
var yftr því að sumir grásleppubátar
væru með of mörg net i sjó. Sam-
kvæmt reglugerð sjávarútvegsráðu-
neytisins má hver maður hafa 80 net i
sjó, þannig að þrír menn á bát mega
hafa samtals 240 net, tveir 160 og
einn aðeins 80. Netafjöldi má þó
aldrei verða meiri en 300. Ráðuneytið
sendi menn til Akraness, sem töldu
net hvers bát og í ljós kom að þrir
bátar höfðu brotið reglugerðina.
Einn þeirra tók öll sín net úr sjó,
og eigandinn fór að vinna i landi.
Hinir tveir tóku aðeins hluta neta
sinna úr sjó og nokkrum dögum síðar
voru þeir búnir að fá veiðileyfi sin
aftur. Sagði Kristján að svo virtist
sem pólitik hefði hlaupið í spilið.
„Okkur finnst óréttlátt,” sagði
Kristján, „að mönnum, sem eru með
allt of mörg net i sjó, skuli ekki vera
refsað fyrir. Að áliti margra hefði átt
að skylda þá til að draga öll sin net úr
sjó og taka sér viku til 10 daga frí, en
síðan hefði mátt veita þeim veiði-
leyfið aftur. Við annað brot á siðan
að svipta báta veiðileyfi út vertíðina
og e.t.v. einnig að beita þá fjársekt-
um. Okkur finnst að það ætti að
leggja niður regluna um hámarks-
netafjölda, en í staðinn kæmi afla-
kvóti. Þá gætu menn verið með eins
mörg net í sjó og þeir vildu.” sagði
Kristján Hagalinsson. -SA.
frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
Skyndifundur um
freðfiskinn:
„Stórt
markaðs-
átak”
íbígerð
Skyndifundir hafa verið boðaðir í
stjórnarliðinu vegna vandamála frysti-
.húsanna.
Þingflokkur og framkvæmdastjóm
Alþýðubandalagsins koma saman til
fundar i dag. Þingflokkur Framsóknar-
flokksins heldur fund á mánudaginn.
Þjóðhagsstofnun var á ríkisstjórnar-
fundi i gær falið að skila innan viku út-
tekt á söluvanda frystihúsanna.
Stjórnarliðar sögðu i morgun, að
ekki dygði minna en „stórt-markaðs-
átak” vegna vandkvæða frystihús-
anna. Hugsanlega yrði að treysta meira
á Evrópumarkað en fyrr. Gengislækk-
un dygði ekki til að mæta söluerfið-
lcikuni fiskvinnslunnar.
-HH.
Sá ölvaði vildi ekki
stoppa:
Ók á kyrr-
stæða bíla og
lögreglubfla
Helgin byrjaði óvenju snemma hjá
Reykvikingum í þetta sinn. Ölvun var
mikil í borginni i nótt og varð að setja á
annan tug manna i fangageymslur
lögreglu. Einn af þeim var reyndar
ölvaður ökumaður sem reynzt hafði
bæði lögreglubílum og öðrum bílum,
kyrrstæðum, skeinuhættur.
Klukkan að verða tvö i nótt var til-
kynnt um ölvaðan ökumann á plani
BSR. Lögreglumenn brugðu snart við
og sáu er þangað var komið ökumann-
inn hverfa á braut. Þeir veittu honum
eftirför og barst leikurinn viða um
bæinn, allt frá Þingholtunum og inn i
Sund. Ökumaðurinn ók ýmist með eða
á móti einstefnu og yfir á rauðu Ijósi. Á
leið sinni 6k hann utan i tvo kyrrstæða
bila og siðar á lögreglubíl sem ætlað
var að stöðva hann. Við það stöðvaðist
billinn eins og til var ætlazt en er
lögreglumenn komu út og hugðust
spjalla við kappann ók hann af stað
aftur á mikilli ferð og áttu lögreglu-
menn fótum fjör að launa. Loks var
billinn stöðvaður með því að öðrum
lögreglubil var ekið á hann. Ökumann-
inn þurfti siðan að taka með valdi
undan stýri því áfram vildi hann hvað
sem hversagði.
-DS.