Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. - MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980 - 145. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. Fyrsta konan lýðræðislega kjörin þjóðhöfðingi íheiminum: VIGDÍS FORSETi —íæsispennandi kosningum—barsigurorð af Guðlaugi nieð um2000atkvæðamun Vigdís Finnbogadóttir varð sigur- vegari forsetakosninganna og tekur við embætti sem 4. forseti íslenzka lýðveldisins hinn 1. ágúst nk. Eftir æsispennandi talninganótt varð það Ijóst um dagmál, að Vigdís yrði sigur- vegarinn. Mjög mjótt var á munum með Vig- dísi og Guðlaugi Þorvaldssyni lengst af og var munurinn minnstur 94 at- kvæði yfir landið allt um fjögurleytið i nótt. En síðan tók Vigdís að siga fram úr og er fyrstu tölur úr Austur- ..............■■■■ landskjördæmi birtust voru úrslitin ráðin. Vigdis hlaut flest atkvæði í sex kjördæmum af átta. Hún sigraði í Reykjavik, með 1,3% umfram Guð- laug, í Norðurlandi vestra með 1% umfram Guðlaug, á Vestfjörðum með 3,6% umfram Guðlaug, á Vesturlandi með hálfu prósenti um- fram Guðlaug en mestur varð sigur Vigdisar á Austfjörðum þar sem hún hlaut 45,5% atkvæða og rúm 12% umfram Guðlaug. Þar innsigluðust úrslitin. Loks sigraði Vigdis á Suður- landi, þar sem hún hlaut 2,1% um- fram Guðlaug. Guðlaugur Þorvaldsson_ bar sigur úr býtum i tveimur kjördaámúm; í Reykjaneskjördæmi með 0,1% um- fram Vigdísi og á Norðurlandi eystra með0,9% umfram Vigdisi. Fyrstu tölur í Reykjavík og Reykjanesi bentu til óvænts styrk- leika Alberts Guðmundssonar. En er á leið dróst hann aftur úr og baráttan stóð í öllum kjördæmum fyrst og fremst á milli Vigdísar og Guðlaugs. Heildarúrslitin á landinu öllu urðu þessi: Vigdis Finnbogadóttir 43.530 33,6% Guðl. Þorvaldsson 41.624 32,2% Albert Guðmundsson 25.567 19,8% Pétur J. Thorsteinsson 18.124 14,0% Það skildu þvi 1906 atkvæði þau Vigdísi og Guðlaug. Auðir seðlar og ógildir á öllu landinu voru 540 eða 0,4%. Kosningaþátttaka var rétt lið- lega 90%. - A.St. W samem- istum Vigdísi" -segirGuðlaugur Þorvaldsson „Þettafóreinsogégbjóst við. Það varð mjótt á mununum. Ég óska Vig- dísi Finnbogadóttur til hamingju og vona að þjóðin sameinist nú að baki henni þegar ótvirætt er orðið að hún hefur náð kjöri,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson i samtali við DB um sex- leytið i morgun þegar Ijóst var orðið hver úrslit kosninganrta vrðu. ,,Á þessari stund er niér d'st ihuga þakklæti til stuðningsmanna nunna um land allt, sem lagt hafa á sig mikið starf, og til mótframbjóðend- anna fyrir þeirra hlut,” sagði Guð- laugur Þorvaldsson. -GM Fjöldi fólks fagnaði hinum nýja forseta við heimili hennar ímorgun: Nýr forseti Islands, Vigdis Finnhogadóttir, veifar til fagnandi mannfjöldans I morgun fyrir utan Aragötu 2. Fjöldi fólks tók Vigdisi mjög innilega við heimkomuna og vargleðinfólskvalaus. DB-myndir Ragnar Th. Sigurðsson. „Góðan daginn, mamma mín, — núerég orðin forseti" „Þetta á að vera hamingja okkar allra, nú er sumarið byrjað,” sagði Vigdis Finnbogadóttir, nýkjörinn forseti íslands, snemma í morgun. Hinn nýi forseti var þá að koma út i undur- fallegan sumarmorguninn eftir sjónvarpsvið- tal. Nokkur ungmenni fögnuðu Vigdisi og færðu henni blóm. ,,Nú fer ég til hennar mömmu minnar og segi við hana: Góðan daginn, mamma min, nú er ég orðin forseti.” Vigdís heimsótti síðan móður sína, en hélt síðan heim á Aragötu. Þegar þangað kom beið hennar fjöldi fólks og fagnaði nýjum þjóðhöfðingja íslendinga ákaf- lega. Gleðin var fölskvalaus og lófatakið stóð minútum saman. Vigdís var umföðmuð og kysst og grétu menn á götu úti og var þar enginn greinarmunur á körlum og konum. Vigdís Finnbogadóttir kom síðan út á svalir húss sins og ávarpaði fagnandi stuðningsmenn sina: „Við eigum ekkert að vopni nema orðið, en viðgetum mikið sagt meðorðum.” „Við elskum þig öll,” hrópaði fólkið. „Og ég elska ykkur öll,” svaraði Vigdís. „Húrra fyrir tslandi og ykkur öllum.” Marga gesti bar að garði og mátti m.a. sjá tvo ráðherra, þá Svavar Gestsson og Hjörleif Guttormsson. Einnig voru margir vina Vig- dísar úr leikhúsinu, auk fjölda annarra. Þegar um hægðist náði blaðamaður DB tali af hinum nýja forseta. Vigdís var klædd ákaf- lega fallegri ullardragt úr íslenzkri ull. „Þetta er áheitaklæðnaður, sem kona fyrir norðan sendi mér. Ég ætlaði ekki að skarta þessu fyrr en ljóst væri aðsvona færi,” sagði Vigdis. „Ég vona að hún hafi séð mig í sjónvarpinu.” Á borði Vigdísar lá kort til hennar frá Ástríði dóttur hennar. Það var hátíðlegt, svo sem hæfði tilefninu. Ástríður titlaði móður sína sem vera bar: Til frú Vigdísar. Síðan sagði: „Jeg sagna þin mamma. Jeg fekk nít úr. Þin Ástriður. Hamingju með forsetan.” Og hvernig líður nýjum forseta íslands? „Ég er hreykin. Mér finnst þetta vera ein- stök framsýni hjá íslendingum að kjósa sér konu til forseta. Ég hef undanfarna viku haft þá bjargföstu trú, að þetta kjör gæti gert jíslandi mikið gagn. Þetta vekur svo mikla athygli á landinu. Aðrar þjóðir fara að átta sig ;á því, að hér býr þjóð sem hefur svo mikið vinnuþol og svo mikla verkmenningu. Ég lít á þetta sem minn sigur og jafnréttis- baráttunnar. Ég gaf mina persónu heilli þjóð til að vega og meta og það er mikil lífsreynsla. Ég hafði ráð á þvi. Ég dró engan til ábyrgðar nema sjálfa mig. Ég er þannig sett einmitt vegna þess að ég er ógift. Kosningabaráttan var öðru visi en ég bjóst við i upphafi. En ég hefði ekki viljað missa af þessari reynslu fyrir nokkra muni. Ég mun aldrei líta lifiðsömu augum og fyrr. Ég átti ekki von á að vinna, en ég vissi að ég yrði ofarlega, að ég myndi ekki bíða afhroð. Mér datt aldrei í hug að ég yrði fyrir níðhögg- um. En það sýnir að jafnréttisbaráttan hefur í raun löngu unnizt, en þess sigurs hefur ekki verið neytt. Það hefði aldrei verið vegið svona að mér ef ég hefði ekki verið jafnvíg. Ég fer fljótlega að hitta það fólk sem hefur kosið mig. Ég hef skilið við hundruð manna að undanförnu með þessum orðum: Nú erum við ævivinir.” - JH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.