Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 35

Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980. Útvarp Sjónvarp 35 D SUMARFRÍ— sjónvarp kl. 21,35: Sjónvarpið kveður með skemmtiþætti , Sumarfrí er orð sem á vel við síðasta skemmtiþátt sjónvarpsins áður en það fer í fri. Umsjónarmaður þáttarins er Helgi Pétursson en Andrés Indriðason stjórnaði upptöku. í stuttu spjalli við DB sagði Andrés að lög og létt hjal um sumarið settu mjög mark sitt á þennan þátt. Helgi Pétursson fór á stúfana og hitti fólk á förnum vegi og ræddi við það um sumarið og hvað það hygðist gera i sumarfríinu. Þá ræðir hann við tvo bræður sem mikið hafa með ferðamál að gera; Kjartan og Stein Lárussyni. Kjartan er forstjóri Ferðaskrifstofu rikisins en Steinn er formaður Félags ferðaskrifstofa. Meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma í þættinum eru Pálmi Gunnarsson, Ari Jónsson, Viðar Jóns- son og dúettinn Þú og ég, Helga Möller og Jóhann Helgason. Helga og Jóhann flytja lög af væntanlegri plötu, Þú og ég, sem ekki hafa áður heyrzt opinber- lega. Loks eru sýndir tveir kaflar úr leik- ritinu Þorlákur þreytti sem Leikfélag Kópavogs sýndi i vetur. Leikritið var leikið 39 sinnum við fádæma góðar og einróma lof gagnrýn- - SA undirtektir enda. Helgi Pétursson er umsjónarmaður skemmtiþóttarins Sumnrfrí. SNOGGUR UM DAGINN 0G VEGINN - útvarp kl. 19,40: Forsetakosningar, efna- hagsmál og f rjálshyggja „Fyrst ætla ég að fara örfáum orðum um forsetakosningarnar en síðan að taka til athugunar nokkra þætti efna- hagsmála. Að öðru leyti mun þátturinn fjalla um svokallaða frjálshyggju,” sagði dr. Magni Guðmundsson hag- fræðingur. Dr. Magni flytur erindi í kvöld i þættinum Um daginn og veg- inn. Nú er Ijóst hvern þjóðin hefur kosið sér til forseta næstu fjögur árin og stuðningsmenn hinna frambjóðend- anna þriggja verða að bita i súrt epli hins sigraða. Nýi forsetinn tekur síðan formlega við embætti 1. ágúst. Ekki vildi dr. Magni láta uppi við DB hvaða frjálshyggju hann ætlaði að fjalla um en hann hefur mikið ritað um þessa stjórnmálastefnu. í vor var hér á ferð einn helzti boðberi frjálshyggjunn- ar, Friedrich von Hayek, og hélt hann fyrirlestur um kenningar sinar í Há- skóla íslands. Eins og jafnan þegar um stjórnmál er að ræða eru ekki allir á einu máli um ágæti frjálshyggjunnar, en við verðum vonandi einhvers fróðari Dr. Magni Guðmundsson ræðir um daginn og veginn i úlvarpi i kvöld. i kvöld eftir að hafa hlýtt á erindi dr. Magna. -SA RÁSFASTUR Breiðskífa Áhafnarinnar á Halastjörn- unni, Meira salt, er ein vinsælasta plata landsins þessa dagana. VIÐ — útvarp kl. 20,00: Fjallað um æskulýðsmál og rætt við Gylfa Ægisson Morgunleikfimi- mennfaraffrf Þá eru þeir félagar Valdimar Örn- ólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson píanóleikari farnir i frí, en síðasti morgunleikfimiþáttur þeirra var i morgun. Næstu vikurnar verða iðk- endur morgunleikfimi þvi að bíta á jaxlinn og reyna að gera æfingarnar án leiðsagnar Valdimars. Þeir áhugasömu geta trimmað eða dregið fram lóðin og Bullworker-tækin og á þann hátt reynt að halda sér í þjálfun þann tíma sem Valdimars og Magnúsar nýtur ekki við. - SA Við nefnist þáttur fyrir ungt fólk sem er í útvarpi í kvöld. Stjórnandi er Árni Guðmundsson og í kvöld tekur hann fyrir fjögur efni. Fyrst er rætt við Gylfa Ægisson, þann góðkunna söngvara. Gylfi er einn afáhöfn Halastjörnunnar en skipshöfn m sú gaf í vor út plötuna Meira salt. Gylfi samdi öll lögin á plötunni en fékk hins vegar einvalalið til að syngja þau og út- koman varð plata sem í dag er ein sú mest selda á landinu. Guðmundur P. Guðmundsson verður í þættinum með tónlistarkynn- ingu og auk þess verður rætt við Her- mann Sigtryggsson æskulýðsfulltrúa á Akureyri og Skúla J. Björnsson for- stöðumanna Þróttheima. Þróttheimar eru félagsmiðstöð sem nýlega var tekin í notkun en hana rekur Æskulýðsráð Reykjavikur. -SA Síðasta helgi fyrir sumarleyfislokun Fátt var það sem heillaði á dag- skrá sjónvarpsins þessa síðustu daga fyrir sumarleyfislokun sjónvarpsins. Oft hefur verið rætt um hvort sumar- leyfislokun þessi eigi rétt á sér eður ei, en eftir að hafa gert tilraun til að horfa á dagskrána nú um helgina finnst mér ekki eingöngu, að lokunin eigi rétt á sér heldur hitt að hún sé nauðsyn. Því þegar liða tekur á júnímánuð verður dagskráin þynnri með hverjum deginum, sem líður. En snúum okkur nú að helgardag- skránni. Það sem helzt einkenndi dagskrána voru væntanlegar forseta- kosningar og strax á föstudagskvöld fengum við að sjá forsetafram- bjóðendurna fjóra á eftir Prúðu leikurunum. En dagskránni lauk með miðurgóðri franskri bíómynd. Laugardagsdagskráin fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér framan af kvöldi og fann ég mér ekki tíma til að setjast niður fyrir framan sjónvarpstækið fyrr en tónleikar írsku þjóðlagasveitarinnar Wolf Tones voru vel byrjaðir. Sá ég eftir því að hafa ekki setzt niður fyrr því tónleikar þeirra voru mjög áheyrilegir. Mér finnst ástæða fyrir sjónvarpið að fá sér upptökutæki fyrir lit í bifreið þá, sem þeir nota við upptökur utan stúdíós. Dagskránni lauk siðan með vestra um Billy the kid. Sunnudagsdagskrá ríkisfjöl- miðlanna sá ég hvorki né heyrði fyrr en svokölluð kosningadagskrá byrjaði. Heldur var dagskrá sjónvarpsins þunglamaleg framan af en það var eins og blessaðir mennirnir hefðu gert sér grein fyrir þessu um fjögurleytið og þess vegna skotið inn teiknimyndum Mondilles öðru hverju. Léttara var yfir dagskrá hljóðvarpsins og því skipti ég yfir á gamla gufuradíóið á milli þess, sem tölur birtust á sjónvarpsskerminum. - - j TOGGURHF. SAAB. Hinn sérstæói bíll fm Svíþjóó umbodh) BILDSHOFÐA 16 SIMI 81530 GÆTUÐ VERIÐ SKYLD NÝJA F0RSETANUM .. .fyllið útog komizt að raun um œttyðar. FÆST HJÁ Kaupið ættartölu- spjaldið... SNÆBIRNI, HAFNARSTRÆTI4 BRIST0L BANKASTRÆTI

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.