Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNf 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Að eiga fyrir útförinni:
Kostar nærri hálfa milljón
að deyja drottni sínum
— Ellilífeyrisþeginn
er rúma tvo
mánuði að vinna
fyrir útförinni og
Dagsbrúnar-
maðurinn 1,38
mánuði
Útför frá Kirkjugörðufn Reykja-
víkur kostar á bilinu frá 280 þús. til
340 þús. Þaraf kostar
kistan 98.900
umbúnaður í kistuna 19.100
likklæðin 7.000
125.000
+ 23%sölusk. 28.750
Allskr. 153.750
Presturinn tekur ki. 'úi.niKl fyrir
þjónustu sina og bílferðir frain ul
baka.
Orgelleikurinn er 17—18.000.
Söngurr vanalega 7 manna kór og
fær hver söngvari frá 7.300 til 9.500
fyrir sönginn. Getur verið 51.100—
66.500 kr. Lágmarksblómaskreyting
kostar 40 þúsund. Ef leikin er sóló
eða sunginn einsöngur kostar það 15
þús. fyrir hvort um sig. Ofan á
bætist 5% stefgjald. Þetta gerir
samtals með ódýrari söngnum:
344.905 kr. en með dýrari söngnum:
361.075 kr. — Þá er ekki reiknað
meðeinleik eðaeinsöng.
Þá er eftir að reikna með
auglýsingakostnaði en hann er tals-
verður. Vanalegast er lát auglýst í út-
varpinu og að minnsta kosli í einu
dagblaði. Orð í dánarauglýsingu í út-
varpinu kostar 400 kr. (orð í
venjulegri auglýsingu kostar 710 kr.).
Þannig getur dánarauglýsing í út-
varpi auðveldlega farið upp i 5.600
kr. Nauðsynlegt verður að telja að
lesa auglýsinguna að minnsta kosti
tvisvar og þá eru það 11.200. Reikna
má með sömu upphæð fyrir jarðar-
fararauglýsingu, sem einnig yrði lesin
tvisvar, þannig að auglýsinga-
kostnaður við útvarpsauglýsingar
getur hæglega farið í 22.400 kr.
Getur auk þess orðið mun meiri. Þá
má geta þess að fara verður með aug-
lýsinguna í útvarpið og staðgreiða
hana þar.
Dánarauglýsing i dagblaði kostar
11.800 kr. Algjört lágmark er að
birta þurfi þrjár dagblaðsauglýsing-
ar,, látið, útförina og þakkir fyrir
auðsýnda samúð. Reikningurinn
fyrir þennan lið er þvi 35.400.
Upphæðin er því komin upp i:
Jarðarförin 344.905 361.075
Auglýsingar 57.800 57.800
402.705 418.875
Þá er enn eftir að bæta við einum
lið en það er prentun á þakkar-
kortum, sem send eru út til þeirra
sem auðsýndu samúð. Prentun á 200
kortum kostar um 20 þús. og
frímerkin á þau 24 þús. kr. Bætast
þvíenn við upphæðina 44 þús. kr.
Margir halda einnig svokallaða
erfisdrykkju, sérstaklega , ef um
gamalt fólk er að ræða.Kostnaður
við slíkar samkomur er i mörgum
tilfellum ærinn en við förum ei út í
að skilgreina hann. í flestum
tilfellum hjálpast fjölskyldumeðlimir
að við að halda slík kaffisamsæti og
skipta kostnaðinum á milli sín.
Það hefur löngum verið rikt í
landanum að „eiga fyrir útförinni
sinni”. Einar Jónsson útfararstjóri
hjá Kirkjugörðum Rvikur sagði
okkur að langsamlega flestir ættu
það. Þó kemur alltaf fyrir að fólk á
ekki fyrir útförinni. Slíkir menn eru
jarðsettir á kostnað síns eigin sveitar-
félags.
Fyrir rúmlega tveimur árum, eða
nánar tiltekið i april 1978, kannaði
DB verð á jarðarför hjá
Kirkjugörðum Reykjavíkur. Þá
kostaði venjuleg útför, eins og við
vorum að reikna út núna, 100 þús.
kr.
Hækkun á útfararkostnaði á þess-
um rúmum tveimur árum er því
350%.
A sama tima hefur ellilífeyrir
hækkað um 146,89%, og kaup Dags-
brúnarverkamannsins (eftir 4 ár) um
145,30%, eða aðeins minna.
í april 1978 var ellilífeyrisþeginn
rúml. 1,3 mán. að vinna fyrir út-
förinni. Hann er 2,2 mán. að vinna
fyrirhenni idag, í júni 1980.
Dagsbrúnarverkamaðurinn var
„ekki nema” 0,84 mán. að vinna
fyrir útförinni sinni árið 1978 en er
1,3 mán. að vinna fyrir henni í dag.
-A.Bj.
ÞEGAR DAUÐINN
SÆKIR OKKUR HEIM
Hvað á fólk að gera þegar einhver
deyr í heimahúsi? Hvert á að hringja?
Hverjum á að tilkynna látið? Hér er
átt við ef fólk deyr „eðlilegum
dauðdaga”. Fólk öðlast vísl seint
reynslu í þessu tilliti og því ekki úr
vegi að sem flestir kynni sér hvernig
bezt er að bregðast við. Við ræddum
við aðstoðarborgarlækni, Heimi
Bjarnason.
Hann sagði að margir hringdu i
lögregluna til þess að spyrja þá ráða
og þá fer lögreglan á staðinn og
kallar til lækni. Eðlilegast er að fólk
hringi i lækni og ef ekki næst í
heimilislækni er hægt að hringja i
læknavaktina (Sími I Reykjavík
21230) sem gefur þá nánari
upplýsingar. Læknavaktin gerir
embættislækni viðvart og verður
hann að fara á staðinn og úrskurða
hvort um mannslát sé að ræða.
Hvernig er líkið flutt i burtu i
likhúsið? í flestum tilfellum er það
flutt í líkbíl Kirkjugarðanna. Þó
kemur fyrir að lík eru flutt i lög-
reglubílum. Er það sérstaklega ef um
er að ræða lik sem legið hefur í
I útreikningum okkar á þvi hvað útförin kostar er að sjálfsögðu ekki gert ráð fvrir
legsteini á leiðið. Enda sleppa margir að setja legstein á leiðið. Láta sér nægja ein-
faldan trékross með nafnaplötu.
DB-mynd.
nokkra daga eftir að látið bar að
höndum.
Úti á landi er alltaf leitað fyrst til
læknisins þegar einhver deyr í heima-
húsi.
Hins vegar eru þeir langtum fleiri
sem deyja á sjúkrahúsum en í heima-
húsum, þó það gerist vissulega
ennþá.
-A.Bj.
MATAR- OG
KAFFISETT
þúsundút
þúsundá mánuði
Gildir aðeins til 5. júlí.
Búsáhöld og gjafavörur
Glœsibœ.
HÖFÐABAKKA
SÍMI 85411.
REYKJAVÍK.
Sumartilboð
HANDUNNIÐ
STELL
MATARSETT\
TESETT,
KAFFISETT
OFNFAST