Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980.
ÞEGAR LANDINN
SLEPPTISÉR
Lwtahátíð í Reykjav»< 1980.
Lokatónleikar í LaugardaUhöllinni, 20. júnL
Sinfónkihljómsveit íslands.
Stjórnandi: Kurt Herbert Adler.
Einsöngvarl: Luciano Pavarotti.
Efnisskrá: Verdi: Forieikur að Valdi öriaganna;
Puccini: Recondita armonia, úr Tosca; Verdi: A
la patema mano, úr Macbeð; Mascagni:
Millispil úr L' amico Fritz; Boito: Gkinto sul
passo estremo, úr Mefisto; Verdi: Quando le
sere al placido... I’ ara I' avello, úr Luisa Miller;
Rossini: Forieikur aðLa Gazzaladra; Massenet:
Pourquoi me reveiliei’, úr Werther: Cilea;
Lamento di Federico, úr L'Ariesiana; Beriioz:
Chasse et Orage, úr Les Troyens a Carthage;
Ponchielli: Cielo e mar úr La Gioconda.
Laugardalshöllin nær troðfylltist
á hinum eiginlegu lokatónleikum
Listahátíðar. Raunar eru það
endemis vandræði að þurfa að halda
tónleika í Laugardalshöll og raunar
ekki verjandi, nema af því að ekki
tekur annað hús í höfuðborginni svo
marga í sæti. En þegar heimslista-
menn koma þá veitir ekki af öllu þvi
rými, sem fyrir hendi er. Annað mál
er, að ef nota á Laugardalshöll áfram
til tónleikahalds, veitti ekki af að
gera einhverjar ráðstafanir til bóta.
Nauðsynlegt er til dæmis, að breyta
senunni svo að ekki sé verið beinlínis
að skemma fyrir hljómsveitinni. Eins
og nú háttar er vart hægt að hugsa sér
jafnhljómskemmandi kramarhús
handa henni, nema ef til vill gryfjuna
i Þjóðleikhúsinu. Það er því hin
mesta hneisa að þegar hljómsveitin
leikur jafn ágætlega og á þessum tón-
leikum fái leikur hennar ekki notið
sín sem skyldi vegna ytri aðstæðna.
Mest var þetta áberandi í verkum
þeim, sem hún lék ein, en minna i
undirieik Pavarottis. hennar með söng
Eftir forleikinn að Valdi
örlaganna sté svo stjarnan, Pavarotti
á sviðið. Svo margt hefur verið sagt
og skrifað þessum makalausa tenór
til hróss, að stundum hvarflar að
manni hvort allt sé það rétt. Á hljóm-
plötum hans sannast að vísu hversu
stórkostlegur söngvari maðurinn er.
— En þessi stóri bangsi gekk fram af
öllu þvi góða sem maður hefur heyrt
af upptökum, sem varla hefði verið
talið gerlegt. Af honum geislar söng-
gleðin, smitandi, svo að maður er
agndofa yfir allri þessari snilld. —
Þvílíkt úthald — hann virðist ekki
muna um að syngja tíu erfiðar aríur i
runu og allt syngur hann á sinn hríf-
andi, eðlilega og einlæga hátt. Manni
finnst lífið innihaldsríkara eftir að
hafa notið listar þvílíks snillings.
Kurt Herbert Adler stýrði hljóm-
sveitinni af smekkvísi og röggsemi,
með tilburðum hin gamalreynda
óperustjórnanda. Chasse et Orage úr
Trójumönnum við Carþagótileinkaði
hann dóttur sinni nýfæddri, Sabrínu
Sif. Sifjarnafnið hlýtur hún vegna
dvalar föðurins hér i þann mund sem
hún kom i heiminn. í Chasse et Orage
mæðir mikið á hornunum. Þau stóðu
sig vel, eins og reyndar hljómsveitin
öll. Hún reyndist snilli gestanna fylli-
lega samboðin.
En eftirminnilegast frá tónleikunt
þessum er kannski að hafa upplifað
það að íslendingar slepptu fram af
sér beislinu í fagnaðarlátum yfir
góðum söng.
-EM.
„Blazing-magnum "
„B/azing-magnum"
„B/azing-magnum "
Ný amerísk þrumuspennandi bíla- og sakamálamynd í
sérflokki. Einn æsilegasti kappakstur sem sézt hefur á
hvíta tjaldinu fyrr og síðar. Mynd sem heldur þér í helj-,
argreipum. Blazing-magnum er ein sterkasta bíla- og
sakamálamynd sem gerð hefur verið.
Aðalhlutverk: Stuart Whitman, John Saxon, Martin
íslenzkur texti. Landau.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
OPID
KL. 9
Allar skreytingar unnar af fag-
, mönnum..
Nag bllastcaSI a.m.k. á kvöldln
liIOMLAMXIIH
HAKNARSTRÆTI Simi 12715
\
Húsaviðgerðir
Getum bætt viö okkur verkefnum.
Járnklæðum hús, skiptum um
glugga, glerjum, sctjum upp inn-
réttingar, skilveggi, milliveggi,
hurðir, sláum upp sökklum og
margt fleira.
Gerum föst verðtilboð ef óskað er.
Hringið í fagmanninn.
Uppl. í síma
71796
BLOSSOM
Frábært shampoo
BLOSSOM shampoo freyðir vel, og er fáanlegt
i 4 geröum.
Hver og einn getur fengiö shampoo viö sitt hæfi.
Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel lika.
Þeir sem fyrstir notuðu
HRAUN-utanhús-
málninguna fyrir um 15
árum síðan geta best dæmt
um endingu þessarar ágætu
málningar.
Aukþess að vera
endingargóð þá spararhún
tíma, því að ein umferð
jafngildirþrem umferðum af
venjulegri plastmálningu.
ekki
Litavalið erí HRAUN
litakortinu í næstu
málningarvöruverslun.
Þegar kemur að
endurmálun er valið að
sjálfsögðu HRAUN • • • •
annað
kemur
til mála
málninghlf