Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 14
14 LJOSMYNDIR,- BJARNLEIFUR BJARNLEIFSSON Jónsmessunætur- draumur Viktoríu DB fylgist með kvikmyndun ballettatriðis við Seljalandsf oss Hollendingar gera heimildarkvikmynd um ísland: Það þarf llka að nœra sig úti I guðs grrenni náttúrunni. Hans Mondt, framieiðandi þáttarins um Island, villfara sem sparleg- ast með peninga og smyr sjálfur ofan / mannskapinn. Svavar Gests gefiir út plötu á nœstunni þarsem Viktoria Spans syngur bteði gömul og ný Islenzk lög. Hún hefur sungið inn á plöturfyrir CBS og His Masters Voice m.a. Hún tók llka lagið I sjónvarpinu I vetur. nafnið Viktoría Spans, Jónsmessu- næturdraumur. Hann á að verða á dag- skrá hollenzka sjónvarpsins þann 26. nóv. nk. en áður verður flutt úr honum i útvarpinu. Hollendingunum fannst mikið koma til íslenzkrar náttúrufegurðar og mynd- uðu víða við fræga staði með Viktoríu þar sem hún syngur lög eftir fræg tón- skáld, eins og Ég elska þig eftir Grieg, Sólarlag eftir Schubert og Ave Maria eftir Mendelsohn jafnframt þvi sem hún kynnir staðina og segir sögu lands- ins. Þeir fengu lika íslenzka listamenn í lið með sér. Þegar Hollendingarnir lögðu land undir fót og fóru með ís- lenzka ballettdansara að Seljalands- fossi undir Eyjafjöllum fengum við Dagblaðsmenn að slást í förina. Veðrið var eins og bezt var á kosið til kvikmyndatöku. Nanna Ólafsdóttir ballettdansari hafði samið dans fyrir Veronica í þessu tilefni, ákaflega ein- faldan við stef úr Jónsmessunætur- draumi Mendelsohns. Sjö telpur á aldr- inum 10—13 ára dönsuðu berfættar og léttklæddar undir úðanum frá Selja- landsfossi. Oft þurfti að endurtaka og kvikmyndatökumaðurinn færði sig frá einum stað í annan til þess að fegurð fossins og dansinn fengi notið sín sem bezt. Þetta vakti að sjálfsögðu forvitni vegfarenda og rútur og bílar stoppuðu. Þátturinn (þótt hann væri aðeins í vinnslu) hafði þegar fengið áhorf- endur. Ferðamálaráð neitar fyrirgreiðslu en ekki ferðaskrifstofan Hans Mondt sagði að svona land- kynningarþáttur væri afar dýr. Hann hefði því leitað til Ferðamálaráðs og talað við framkvæmdastjórann, Lúð- vík Hjálrotýsson, til þess að fá fyrir- greiðslu hér. Hann hefði fengið þau svör að það væru svo margir, sem væru að biðja um slíkt að Ferðamálaráð teldi sér ekki fært að verða Veronica að neinu liði. Hins vegar hefði Kjartan Lárusson hjá Ferðaskrifstofu ríkisins brugðizt öðru vísi við og veitt á eigin ábyrgð fyrirgreiðslu í sambandi við bæði hótel og leigu á bílum. Þá hefði það einnig staðið til að Viktoría syngi með Pólýfónkórnum undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. Hefði hann ekki vitað annað en það hefði allt verið klappað og klárt. Meira Pállna Jónsdóttir, María Dis Cilia, Guðrún Edda Þórarinsdóttir, Kolbrun Snorra- dóttir, Alma Dögg Jóhannsdóttir, Helma Rut Einarsdóttir og í miðið Áslaug Þóra Harðardóttir. Þær dansa ballett undir Seljalandsfossi i veðurblíðunni. ,,Ég hef lengi átt þann draum að kynna ísland eins og það er í allri sinni dýrð. Hollendingar hafa fengið svo rangar hugmyndir um ísland. Nafn landsins kemur l'ólki til að hugsa um kulda og ís. Margir spyrja um hvort við séum ekki komnir af eskimóum og hvort drykkjuskapur sé óskaplegur.” Þetta hafði hin fræga hollenzk-ís- lenzka messósópransöngkona Viktoría Spans að segja. Hún var hér í síðustu viku til þess að láta þennan draum sinn rætast. Hún vinnur sjálfstætt bæði fyrir hollenzka útvarpið og sjónvarpið. Að þessu sinni fékk hún í lið með sér Hans Mondt tónlistarstjóra þáttarins Veronica (en sá þáttur sést á skjánum i Hollandi 1—2svar í viku), leikstjórann Tineke Vos, kvikmyndatökumanninn Nick van de Berg og hljóðupptöku- manninn John Davelaar. Hans Mondt er framleiðandi þáttar- ins sem er 25 mínútna langur og ber aumuruisiuu STENDUR YFIR ÞESSA DAGANA Nýlegar vörur Mikill afsláttur sérverslun konunnar Laugavegi19 Reykjavik DB-myndir Bjarnleifur. VANTAL FRAMRUÐU? Ath. hvort við getum aðstoðað. Isetningar á staðnum. BÍLRÚÐAN

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.