Dagblaðið - 30.06.1980, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980.
9
Danmörk:
Horfuráað útlendingar
kaupi Burmeister og Wain
tapið á síðasta ári um tuttugu milljaðar og skipasmíða-
stöðin verður að loka ef ekki f æst tfu milljarða ríkisábyrgð
ánæstudögum
Skipasmiðastöðin Burmeister &
Wain í Kaupmannahöfn verður lik-
lega seld erlendum aðilum ef danska
rikið veitir fyrirtækinu ekki 100
milljóna danskra króna ríkisstyrk
innan skamms tima. Samsvarar þetta
um það bil 10 milljörðum íslenzkra
króna. Að sögn danska blaðsins Poli-
tiken vilja forráðamenn fyrirtækisins
frekar grípa til þess ráðs að selja er-
lendum aðilum skipasmíðastöðina en
að loka henni alveg.
í blaðinu segir einnig að blaðafull-
trúi Burmeister og Wain hafi skýrt
frá því að þegar hafi nokkrir erlendir
aðilar sýnt áhuga á að kaupa fyrir-
tækið. Fyrir nokkrum árum keyptu
þýzkir aðilar hluta fyrirtækisins.
Heitir það nú Burmeister og Wain
Diesel en þar eru framleiddar vélar og
vélahlutar.
Burmeister og Wain er stærsta
skipasmíðastöð Danmerkur. Fyrir-
tækið hefur átt í miklum fjárhags- og
rekstrarvandræðum frá því á árinu
1978. Hefur aðaleigandi þess, Bonde-
Nielsen, sætt mikilli gagnrýni. Þykja
öll fjármál hans og viðskipti síðustu
árin grunsamleg. Margt af þvi er i
opinberri rannsókn.
Það mun vera í höndum Erling
Jensen iðnaðarráðherra Dana hvort
rikisábyrgðin verður veitt. Ráðherr-
ann hefur lítið viljað segja um málið.
Aðeins það að bið verði á að
ákvörðun verði tekin í málinu þar
sem allar umbeðnar upplýsingar haft
ekki borizt enn. Einnig er vitað að at-
huganir eru í gangi um að einhverjir
danskir aðilar komi inn í Burmeister
og Wain og kaupi þar hlutabréf. Á
þann hátt er vonað að takast megi að
bæta stöðu fyrirtækisins.
Allt stendur og fellur með þvi
hvort rikisábyrgðin fæst. Fjárhags-
erfiðleikarnir eru svo miklir að erfitt
er orðið að greiða fyrir nauðsynlegt
hráefni. Stöðugt hefur því verið
slegið á frest að leggja fram ársreikn-
inga skipasmiðastöðvarinnar fyrir
siðasta ár. Fullyrt er að niðurstöður
þeirra muni leiða í ljós að rekstrartap
hafi numið um 200 milljónum
danskra króna eða jafnvirði tuttugu
milljarða islenzkra króna.
Eigendur Burmeister og Wain skipa-
smíðastöðvarinnar segjast fremur
vilja selja erlendum aðilum fyrirtæk-
ið en að hætta rekstri þess algjörlega.
DallasTexas:
Tuttugu ogníu
látastíhita-
bylgju
Tíu manns létust í Dallas í Texas i
gær vegna ofsahita þar um slóðir. Lög-
reglan i borginni telur þó að það sé
huggun harmi gegn að manndrápum
hefur fækkað mjög á sama tíma. —
Annað hvort er mönnum of heitt eða
"þeir eru of þreyttir til að ráða hverjir
öðrum bana. Yfirvöld telja að
undanfarna daga hafi tuttugu og níu
manns látizt af völdum hitabylgjunnar.
Veðurfræðingar segja að ekki séu
neinar horfur á að hitinn minnki á
næstu dögum.
Páfi til Brasilíu
Jóhannes Páll annar páfi lagði i
morgun upp i tólf daga ferð til Brasiliu.
Brasilía er það ríki heims sem flestir
rómverskkaþólskir menn byggja.
ísraelsherinn
íLíbanon
ísraelskar hersveitir réðust langt inn i
Líbanon í nótt og felldu nokkurn hóp
skæruliða sem þar hafðist við, að sögn
israelsku herstjórnarinnar i morgun.
Segir að ísraelskir hermenn hafi eytt
stöðvum palestinskra skæruliða norður
af ánni Litani. Ein stöðin hafði verið
notuð við þjálfun skæruliða en önnur
til að undirbúa árásir inn fyrir landa-
mæri ísrael.
0PEC hækki sam-
kvæmt hækkunum
ávesturlöndum
Forseti OPEC samtakanna — sam-
taka olíuútflutningsrikja — hefur
stungið upp á því, að olíuverð verði
bundið verði á helztu útflutningsvörum
þeirra ríkja sem oliuna kaupa. Kemut
þetta fram i grein sem birtist í banda-
riska tímaritinu Newsweek i morgun.
Segist forseti OPEC, Humberto
Calderon Berti, leggja tillögur í þessum
dúr fyrir forustumenn ríkja í samtök-
unum.
JarðskjálftaríJapan
Mikil jarðskjálftahrina gcngur nú
yfir Japan og hefur staðið i sex daga.
Vitað er um að minnsta kosti sjö manns
sem slösuðust í gær af völdum umbrot-
anna. Átján kippir fundust í morgun
og einn þeirra mældist 6,7 á Richlers-
kvarða.
matar-oö kafflstell
Gullfalleg Rosenthal vara. —
matarstell i drapplitu. rauöu
eöa gulu.
SCANDIC stelliö sameinar
gæðaframleiðslu. fallega
hönnun og frábæran stíl.
SCANDIC stelliö er kjöriö fyrit
þá. sem kunna aö meta fagra
hluti og notadrjúga.
SCANDIC er dæmigerö vara
frá Rosenthal.
ARCTA ER AÐDAUNARVERT
ARCTA matar- og kaffistelliö
vekur óskipta athygli og aödáun
hvar sem þaö sést; — fyrir fal-
legar línur. frábæra hönnun og
skemmtilega áferö.
ARCTA fæst aöeins hjá okkur.
CORDA. nýtt matar- og kaffistell.
Honnuöurinn HERTHA BENGTSON er
sænsk og tekst henni hér mjög vel aö sam-
eina léttleika og dæmigert skandinaviskt
utlit. Nýjungar. svo sem lengri börö a diskum
og skálum. falla vel aö heildarsvip og auka á
notagildi.
CORDA er eldfast og hentar vel til notkunar
i orbylgjuofnum.
CORDA er fagurt og notadrjúgt matar- og
kaffistell. HERTA BENGTSON hefureinnig
hannaö dúka diskamottur. servíettur og
serviettuhringi í stil viö CORDA.
Nýja linan i matar- og kaftistellum
frá Thomas er Holiday. Holidayer
sérlega létt og meöfærilegt
ogþessvegnaá allan hátt
notadrjúgt viö hvers kyns heimilishald.
Leikandi létt og hrífandi. þannig
er Holrday alveg eins og sumar-
fríiö á aö vera.
Svo viö minnumst á veöriö, — nei
veröið. þá er þaö sérlega hag-
stætt. Komiðog skoöiö Holiday.
studio-line
A. EINARSSON & FUNK
Laugavegi 85
SÍMI18400