Dagblaðið - 30.06.1980, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980.
17
DBíSigtúni:
,VAR AÐ VINNA FYRIR BEZTA MANNINN’
— sagði Jón Ásgeirsson
„Þessi úrslit komu okkur talsvert á
óvart, sérstaklega eftir daginn i dag
þegar okkur virtist þungur straumur
liggja til Péturs, bæði i Reykjavík og
úti á landi,” sagði Jón Ásgeirsson, einn
af forystumönnum i kosningabaráttu
Péturs J. Thorsteinssonar, þegar DB
hitti hann að máli i Sigtúni um tvö-
leytið i nótt. Stuðningsmenn Péturs
höfðu safnazt þar saman til að fylgjast
með talningu atkvæða, og voru að von-
um ekki léttir i lund.
„Það er fullvíst að auglýsingar Guð-
Iaugsmanna síðustu dagana um að
valið stæði á milli tveggja efstu úr
skoðanakönnunum hafa ráðið miklu
um úrslitin. Þessar auglýsingar voru ör-
þrifaráð en virðast hafa borið árangur
eins og til var ætlazt,” sagði Jón Ás-
geirsson.
,,Það er skoðun min að Pétur Thor-
steinsson fari betur út úr þessum kosn-
ingum en aðrir frambjóðendur. Hann
sættir sig betur við þessi úrslit en
nokkur hinna hefði gert í sömu spor-
um,” sagði Jón.
Pétur J. Thorsteinsson var sjálfur I
Sigtúni þegar DB-menn voru þar á
ferð. „Mér þykir þetta verst ykkar
vegna. Þið hafið lagt svo mikið starf á
ykkur,” sagði Pétur við stuðningsmenn
sina.
„Við höfum tapað,” sagði Jón
Ásgeirsson, „en það breytir ekki hinu
að ég var að vinna fyrir bezta mann-
inn.”
- GM
„Auglýsingar Guðlaugsmanna réðu miklu um úrslitin.” Ilaraldur Blöndal og Jón Ás-
geirsson i Sigtúni. Innfellda myndin er einnig tekin þar og sýnir stuðningsmann
Péturs fagna honum innilega með orðununt: „Þú stóðst þig fráhærlega.”
DB-myndir: Þorri.
DBíÞórskaffi:
T Albert kemur sterkur út úr þessu’
— sagði Ásgeir Hannes Eiríksson
„Albert kemur sterkur út úr þessum
kosningum sem persóna. Mér þætti
gaman að sjá aðra pólitikusa feta í fót-
spor hans. Eða mundi einhver annar
umdeildur stjórnmálamaður fá slikt
fylgi úr öllum flokkum?” sagði Ásgeir
Hannes Eiríksson, forustumaður í
kosningabaráttu Alberts Guðmunds-
sonar, þegar DB hitti hann að máli i
Þórskaffi á þriðja tímanum i nótt. Þar
höfðu stuðningsmenn Alberts safnazt
saman til að fylgjast með úrslitum. Þeir
virtust heldur niðurlútir.
„Auglýsingaherferð Guðlaugs-
manna virðist ekki ætla að bera
árangur. Ég held að hún hafi verið
skekkja og þeir hafi „bakfírað” með
henni,” sagði Ásgeir Hannes.
„Ég get ekki sagt að þessi úrslit
komi okkur verulega á óvart; við
bjuggumst við einhverju af þessu tagi.
En um tíma í dag vorum við fullir
bjartsýni því fólk streymdi til okkar
hérna í Þórskaffi, þar sem kosninga-
kaffið var, og troðfyllti húsið.
Það er lika ljóst á úrslitunum að við
höfum bætt við okkur fylgi frá því í
skoðanakönnunum og það verður að
teljast vel af sér vikið með þennan
harða áróður Guðlaugsmanna yfir
sér,” sagði Ásgeir Hannes.
„Á þessari stundu á ég von á því að
Vigdis Finnbogadóttir verði kjörin for-
seti. Og ég mun slanda með mínum for-
seta þegar hann hefur verið kosinn."
-GM.
„Mér þætti gaman að sjá aðra pólitikusa feta í fótspor Alberts." Þorvaldur Mawhy. Óvenju spennandi kosninganótt. Indriði (í. Þorsteinsson o. fl. fylgjast með talningu
tengdasonur Alberts, Ásgeir Hannes Firíksson, Klínhort; Jónsdóttir o. fl. atkvæða i Þórskaffi.
l)B-mynd Sig. Þorri. DB-mynd Sig. Þorri.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ
Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafirði - Eplið Akranesi - Eplið ísafirði -Cesar Akureyri.
BiLTÆKI
Lengra veröur
ekki komist..
KP-58000
L W, MW, FM STEREO
TAKKASKIPT.
KP-66G KP-77G KP-88G KP-707G
ÖLL TÆKIN MED SÉRSTÖKUM BASSA- OG DISK-
ANTSTILLI
FÁANLEG MED DOLBY SYSTEM, CRO2 OG METAL-
STILLINGUM, A UTO-REVERSE.
CD-5
CRAFIC EQUALIZER
(TÓNJAFNARI)
HÁ TALARAR FYRIR ÖLL PIONEER BÍL TÆKI:
8 TIL 60 W v/4 OHM28 HZ TIL 20.000 HZ.
HATALARAR:
GM-40
2x20 W v/4 OHM
GM-120
2x60 W v/4 OHM
HLJOMTÆKJADEILD
KARNABÆR
LAUGAVEG 66 SÍMI 25999
HEILDVERZLUN
PÉTUR
PÉTURSSON
SUÐURGÖTU 14.
SiMAR 21020-25101
AIRFIX
Médeiin
eru komin
íaiiar
ieikfanga-
verdanir