Dagblaðið - 30.06.1980, Qupperneq 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNl 1980.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþrótl
Rúta
Siglfirðinga
stakkstískurð
- á leið sinni til Grenivíkur.
Skrámaðir leikmenn KS
gerðu jafntefli við Magna
Magni, Grenivik, og KS gerðu jafn-
tefli 2—2 i D-riðli 3. deildar á Grenivik
á laugardag. Magni jafnaði i 2—2 á
síðustu mínútu leiksins. Mörk Sigl-
firðinga skoruðu Sigurjón Erlendsson
og Björn Sveinsson.
Leikmenn KS lentu i miklum
erfiðleikum á leið sinni til Grenivíkur.
Um 12 km fyrir norðan Akureyri
sprakk hjólbarði á rútu Siglfirðinga —
og hún stakkst í skurð utan vegar.
Knginn slasaðist alvarlega en ýmsir
leikmanna voru með skrámur. Á Akur-
eyri fékksl önnur rúta og var síðan
haldið til Grenivikur. Leiknum var
frestað um klukkustund — leikið og
jafntefli.
Svo héldu Siglfirðingar heim á leið.
Þá bilaði rútan og leikmenn komust á
„puttanum" til Akureyrar. Þar tókst
þeim að fá þriðju rútuna og komast til
Siglufjarðar eftir heldur viðburðaríka
för. Rútan sem kastaðisl út af veginum
j er lalsvert skemmd.
- BÁ
Þátttakendur Islands á ólympiuleikum fatlaöra i Arnhem. Sigurrós Karlsdóttir er lengst til hægri í fremri roó.
Sigurður Haf.
vann á Skaga
Siguróur Hafsteinsson, GR, varð
I sigurvegari á SR golfmótinu á Akranesi
] í gær en það gefur stig til landsliðs.
Sigurður lék á 148 höggum, 36 holur.
j Björgvin Þorsleinsson, GA, varð annar
með 151 högg. Sigurður Pétursson,
| (iR, þriðji með 152 högg. Hannes Ey-
I vindsson, GR, varð fjórði með 153
liögg og Óskar Sæmundsson, GR,
I fimmti á 156 höggum.
í 2. og 3. flokki varð Alfreð Viktors-
Ison, GL, Akrancsi, sigurvegari á 81
ihöggi, 18 holur. Tómas Sigurjónsson
I varð annar með 85 högg.
Enn sigra
Norðmenn
Noregur sigraði með yfirburðum í
I álta landa keppninni í sundi, sem lauk i
Kdinborg i gær. Það er sjötta árið í
röð, sem Norðmenn sigra i keppninni.
j Þcir hlutu 235 stig. Spánn varð í öðru
sæti með 201,5 stig og Skotland i þriðja
sæti með 184,5 stig. Norðmaðurinn
Brent Brask selti mótsmet í 200 m
| skriðsundi, synti á 1:55,29 mín., og
David I.opez-Z.ubero, Spáni, setti
mótsmet i 100 m flugsundi á 57,45 sek.
fjórða sæti varð Wales með 155 stig,
j Sviss hlaut 143 stig, Belgía 139 stig,
írland 108 stig og ísrael 91 stig.
jaf naði metið
Björn Borg, sem síðustu fjögur árin
| hefur sigrað í Wimbledon-keppninni i
Lundúnum, hinni óopinberu heims-
j meistarakeppni í tennis, sigraði
j Ástralíumanninn Rod Frawley á
j iaugardag 6—4, 6—7, 6—1 og 7—5.
j Það var 31. sigur Borg i röð í Wimble-
; don-keppninni og þar með jafnaði
; hann met Rod Laver, Ástraliu, hvað
i sigrum i keppninni í röð viðkemur.
] „Það var ánægjulegt að jafna mel
l.avers — það hefur ekki verið létt,”
[ sagði Borg eftir leikinn við Frawley.
Wimbledon-keppninni lýkur næst-
j komandi laugardag. Vegna rigningar i
Lundúnum er keppnin heilli umferð á
| eftir áætlun. Hættulegustu keppi-
i nautar Borg, þeir John McEnroe,
ÍJimmy Connors og Roscoe Tanner,
! allir USA, hafa einnig sigrað í leikjum
I sínum. McEnroe lenti þó í miklum
j erfiðleikum á föstudag með Terry
j Rocavcrt, Ástraliu, en sigraði að lokum
!i fimm lotum.
Fimmtán ára stúlka frá Akur-
eyri ólympíumeistari fatlaðra
—Sigurrós Karlsdóttir setti nýtt heimsmet í 50 m bringusundi og sigraði í Arnhem
Kimmtán ára stúlka frá Akureyri,
Sigurrós Karlsdóttir, vann það mikla
afrek að setja nýtt heims- og
ólympíumet í 50 metra bringusundi á
ólympíuleikum fatlaðra i Arnhem í
j Hollandi á laugardag. Hún hlaut gull-
verðlaunin i greininni — varð
ólympískur meistari í sínurn flokki á
1:06.99 mínútum. Á hana vantar báða
handleggina neðan olnboga — fædd
þannig. Sigur hennar kom talsverl á
óvart og hún bætti árangur sinn mjög.
Hún er yngsti keppandi íslands á
leikunum í Arnheim. Aldurstakmark er
miðað við 16 ár, nema i sundinu. Þetta
er í fyrsfa sinn, sem íslendingur hlýtur
verðlaun á ólympíuleikum fatlaðra og
þá voru það gullverðlaun.
Tólf íslendingar eru meðal
keppenda á leikunum i Arnhem en
þálttakendur eru 2400 frá 42 þjóðum.
Norðurlandaþjóðirnar — einkum Sviar
og Norðmenn — hafa verið mjög sigur-
sælar i keppninni. Henni verður haldið
áfram alla þessa viku.
Af öðrum árangri islenzku
keppendanna má nefna, að Snæbjörn
Þórðarson, Akreyri, og Jónas Óskars-
son, Reykjavík, urðu í 21. og 22. sæti
j32. keppenda i 100 m skriðsundi. Syntu
á 1:15.67 og 1:16.95 min. Guðjón
Skúlason, Reykjavik, varð i niunda
sæti af 16 keppendum í kúluvarpi með
10.36. Guðmundur Gislason,
Akureyri, varð í 15. sæti af 17 í
kringlukasti með 25.58 m. Arnór
Pétursson, Reykjavík, varð í li.sætiaf
16 keppendum í spjótkasti með 12.40
.n. Hann er i hjólastól. Þá urðu þær
lEIsa Stefánsdóttir og Guðný
Guðmundsdóttir i fjórða sæti í tviliða-
leik í borðtennis.
-hsím.
Akureyrarliðin efst í 2. deild
Kjórir leikir i 2. deild íslandsmótsins
i knattspyrnu voru háðir um helgina.
Úrslit urðu þessi:
Þór, Ak. — Þróttur N. 0—0
Selfoss —KA 0—2
Austri — ÍBÍ 2—2
Völsungur—Haukar 2—2
KA-menn unnu öruggan sigur á Sel-
] fossi með mörkum Eyjólfs Ágústs-
sonar, vítaspyrna, og Gunnars Gisla-
sonar. Verðskuldaður sigur og KA-
menn eru nú heldur betur komnir á
j skrið i deildinni.
Á Akureyri tókst Þór ekki að sigra
j Þrótt frá Neskaupstað þrátt fyrir mun
! meiri sókn í góða veðrinu fyrir norðan.
Héppnin var ekki með Þór. Óskar
Gunnarsson átti hörkuskot í þverslá.
Þórarinn Jóhannesson og Árni Stefáns-
son voru beztu menn Þórs, en Sigur-
bergur þjálfari Sigsteinsson og Njáll
Eiðsson hjá Þrótti. GSV.
Á Eskifirði skoraði Austri eftir
aðeins fimni minútur gegn ísfirðingum
og var Sveinbjörn Jóhannsson þar að
verki. Hann lék áður með Hugin,
Seyðisfirði. Fimm mín. síðar jafnaði
bezti maður ÍBÍ, Haraldur Leifsson. Á
25. min. komst Austri aftur yfir með
marki Bjarna Kristjánssonar. Það stóð
ekki lengi því á 30. min. jafnaði Har-
aldur Leifsson. ísfirðingar voru heldur
sterkari i fyrri hálfleik og áttu þá skot i
stöng og þverslá. í síðari hálfleik skipt-
ust liðin á upphlaupum og tækifærum
en ekki tókst að skora, Austri sótti
heldur meira en liðin voru svipuð að
styrkleika. í lokin fékk ÍBÍ gullið tæki-
færi til að sigra, þegar einn leikmanna
liðsins kom frir í gegn en skaut fram-
hjá. Fossberg var góður dómari. VS.
Á Húsavik léku Völsungur og
Haukar á laugardag eins og Austri og
ÍBÍ. Húsvikingar byrjuðu vel. Komust í
2—0 með mörkum Magnúsar Hreiðars-
sonar og Ómars úr víti eftir 14 mín.
Loftur Eyjólfsson minnkaði muninn
fyrir Hauka fyrir hálfleik og í siðari
hálfleik skoraði Björn Svavarsson jöfn-
unarmark Hauka. Staðan er nú þannig:
KA 6 4 11 12—4 9
Þór 6
ÍBÍ 6
Haukar 6 3 2
Völsungur 6 3 I
Fylkir 5 2 1
Þróttur 6 2 1
Ármann 5 1 1
Selfoss 6 I I
Austri 6 0 1
BEZTIHEIMSTIMINN
HJÁ 0VETT í 1500 M
Enski stórhlauparinn Sleve Ovett
frá Brighton náði bezta tíma ársins í
1500 m hlaupi á Crystal Palace
j leikvanginum i Lundúnum á föstudag.
Hljóp vegalengdina á 3:35.3 mín.
] Þetta var 41. sigur Ovett í röð i 1500 m
] og míluhlaupum. Hann fékk þó harða
keppni að þessu sinni frá hinum 19 ára
Steve Cram, Evrópumeistara pilta,
] sem hljóp einnig á frábærum tima,
3:35.6 min. Þriðji varð Jose Gonzales,
Spáni, á 3:37.9 min. Beztan tima áður í
heiminum i ár átti Vladimir
Molozemlan, Sovétrikjunum, 3:35.4
min.
Geoff Capes, Englandi, sigraði
kanadíska kúluvarparann Bruno
Pauletto, sem keppti hér i Reykjavik á
dögunum. Capes varpaði 20.98 m en
Pauletto 20.33 m eða nokkru styttra en
hér. í 400 m hlaupi kvenna setti Jocelyn
Hoyte-Smith nýtt brezkt met, hljóp á
51.06sek.
Það vakti athygli að Filbert Bayi,
Tanzaníu, varð aðeins í þriðja sæti í 2ja
milna hlaupi og Johnny Walker, Nýja-
Sjálandi, aðeins fjórði í 800 m. Báðir
þessir hlauparar eru fyrrum heimsmet-
hafar i míluhlaupi. David Moorcroft,
Englandi, sigraði í 2ja mílna hlaupinu á
8:18.6 min. Nat Muir, Bretlandi, varð
annar á 8:19.4 min. og Bayi þriðji á
8:19.5 mín. í 800 m hlaupinu sigraði
Carlos Trabado, Spáni, á 1:48.1 min.
Jeff Cook, Englandi, varð annar á
1:48.3 min. og Omar Khalifa, Súdan,
þriðji á 1:48.6 mín.
Heimsmethafinn i 110 m grinda-
hlaupi, Renaldo Nehamiah, USA, féll á
síðustu grind og varð aðeins fimmti.
Landi hans, Rod Milburn vann á 13.69
sek. Alan Wells, Skotlandi, sigraði í
100 m hlaupi á 10.30 sek. Hins vegar
sigraði Don Quarrie, Jamíka, í 200 m á
20.84 sek.
:':*5
m - ■
Tl: '