Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. Beltek Betri, g/æsi/egrí ogódýrari. mMmvm \J Slmi (96)23626 VS^GIerárgötu 32 Akureyri fj ■ Z&rl Óbökuð lifrarkæfa KJÖTBÚÐ SUÐURVERS STIGAHLÍÐ-SlMI 35645 BLOSSOM Frábært shampoo ÐLOSSOM shampoo Ireyöir vel. og er láanlegt i 4 gerftum. Hver og einn gelur fengift shampoo vift sitt hæfi. Reyndu BLOSSOM shampoo. og þer mun vel lika. Heild»ölublrgöir. KRISTJÁNSSON HF. Ingollsslræli 12. »imar: 12800 - 14878 Raufarhafnarkirkja endumýjuð að innan sem utan: KIRKJAN VAR L0KUÐÍ3ÁR — og ekkert notuð nema við jarðarfarir Séð inn eftir Raufarhafnarkirkju. Raufarhafnarkirkja var illa farin og þurfti mikillar endurnýjunar við, er ráðizt var i það verk fyrir nokkrum árum. Var kirkjan lokuð í þrjú ár, og ekkert notuð, nema við jarðarfarir, en sem betur fer voru þær fáar. I fyrra- sumar, nánar til tekið, 3. júní, var kirkjan síðan vígð öðru sinni. >á var búið að einangra kirkjuna, múrhúða að utan sem innan, leggja í hana rafmagn að nýju, setja ljós, og ofnar komnir í kirkjuna. Söngloftið var allt endurnýj- að, bæði stigar og hurðir, og kirkjan var teppalögð. Loks var hún máluð að innan og sá Hafliði Jónsson um það verk. Og núna er sem sagt byrjað að mála hana að utan, og það eina sem vantar er þurrt veður og málara. Porsteinn Hallsson var nýbyrjaður að mála Raufarhafnarkirkju, en hann á mikið verk -SA. fvrir höndum i sumar, aðstoði hann enginn við að mála kirkjuna. ,,Ég byrjaði að mála kirkjuna i gær,” sagði Þorsteinn Hallsson, þar sem hann stóð hátt upp í stillönsum og málaði Raufarhafnarkirkju rauða og hvita. Kirkjan, sem byggð var árið 1928, hefur á undanförnum árum verið endurnýjuð að innan og í sumar er ætlunin að mála hana upp á nýtl í sín- um gömlu litum. Ámeshreppur á Ströndum: Nemendum f barnaskólanum fækkar — fæðiskostnaður á nemenda 1007 krónur sl. vetur en meðal þyngd nemenda góð Barnaskólinn á Finnbogastöðum varð 50 ára á síðastliðnu ári. Guðmundur Þ. Guðmundsson var fyrsti skólastjóri og byggði skólann fyrir eigið fé árið 1929. Núverandi skólastjóri er Torfi Guðbrandsson. 19 börn voru í skólanum síðastliðinn vetur og útskrifuðust sex börn úr skólanum í vor. Hæstu einkunnir hafði Guðrún Guðfinnsdóttir, 8.56. Næst varð Guðrún Gunnsteinsdóttir með 8.50 og þriðji Guðbrandur Torfason, 8.06. Skólinn byrjaði 7. ^október i haust og lauk 23. maí. Það er heimavist í áðurgreindum skóla og var fæðiskostnaður 1.017 krónur á dag. Góð þyngd var á nemendum eftir veturinn og reyni aðrir að hafa fæðiskostnaðinn lægri en Aðalbjörg Albertsdóttir, sem hefur verið ráðskona við skólann síðastliðin ár. Torfi hefur verið skólastjóri hér i 25 ár samfleytt og segir það sína sögu. Hann er nú 57 ára. Næsta vor út- skrifast tvö börn úr skólanum á Finn- bogastöðum og árið á eftir eitt barn. Fimmtán börn verða i skólanum á vetri komanda með því að taka einnig sjö og átta ára börn en það hefur verið venja hér að börn í Árneshreppi hefji skólagöngu níu ára og útskrifast fermingarárið. Þess má geta, að börn í Árneshreppi eru heima einn mánuð í einu og i skólanum hinn mánuðinn yfir veturinn. Skipt er í yngri og eldri deild. Það skal tekið fram, að þau börn sem fara í framhaldsnám úr barnaskólanum á Finnbogastöðum standa sig alveg ágætléga því þau fara sjálf af áhuga í framhaldsnámið. Væri ekki athugandi fyrir fræðslu- yfirvöld að hafa skólaskyldu ekki nema 5—6 mánuði á ári? Þá myndu börnin aldrei fá námsleiða eins og nú er áberandi í níu mánaða skólunum. -Regína Thor., Gjögri. Vestfirðir: Tveir óku út af og einn stal 3 bflum Tvær bifreiðar fóru út af veginum á Vestfjörðum um helgina. Aðfaranótt laugardagsins fór bifreið út af veginum á Botnsheiði og er bif- reiðin talin svo til ónýt. ökumaður, sem var ölvaður og einn á ferð, slasaðist, en þó ekki alvarlega. í fyrrinótt ók ölvaður öku- maður bifreið sinni út af skammt frá Þingeyri. Fór bifreiðin fram af 10 metra háum kambi og niður í fjöru, og er hún talin gjörónýt. Þrennt var í bilnum og var stúlka flutt á sjúkra- hús, en hinir sluppu lítt meiddir. Meiðsl hennar voru ekki talin alvar- leg. Þá stal ungur Bolvíkingur bíl á Bolungarvík um helgina og hugðist halda til ísafjarðar. Á leiðinni varð bifreiðin bensínlaus, svo kauði stal annarri bifreið og komst á henni á á- fangastað. Á heimleiðinni stal Bolvíkingurinn þriðja bílnum, vöru- bifreið og var hann á honum, er lögreglan hafði hendur í hári hans. Bolvíkingurinn var ölvaður og réttindalaus. -SA. Garðar Friðgeirsson segir gröfumanninum til um, hvar hann vilji fá moldarhlassið. ISB0RG Suðurlandsbraut 12.1 opio „ 9-23.30 ., • ís — Shake • Bananasplit • Gamaldags ís með rjóma • ísfötur HEITT: Kakó Pylsur NÆG Samlokur BÍLASTÆÐI. Hamborgarar Aðf lugsljós sett upp við Raufar- hafnarflugvöll Þessa dagana er unnið að því að koma upp fullkomnum aðflugsljósum við Raufarhafnarflugvöll og er vonazt til að þeim framkvæmdum Ijúki i sumar. Garðar Friðgeirsson, flug- vallarvörður, sagði að þá ætti einnig að koma upp salemisaðstöðu við völlinn og væri unnið að lagningu vatnslagnar að flugvellinum. I fyrra var önnur braut lögð á flugvellinum, þannig að nú eru þar tvær brautir, önnur 600 metra löng og hin 1140 metra löng. Norðurflug flýgur nú fimm sinnum í viku til Raufarhafnar. -SA.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.