Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 13
Glæsileg setning Moskvu-leikanna MBIAÐIÐ ÓLYMPÍUBLAÐ Fyrstu gullverð- launin fyrir Sovét — Þrír Norðurlandabúar með 10 fyrstu í skotkeppni Sovétríkin hlutu fyrstu gullverðlaun á ólympíuleikunum í Moskvu I gær- morgun. Alexander Melentev hafði gifurlega yfirburði í fyrstu greininni, sem keppt var til úrslita I — skotkeppni með skammbyssu i frjálsri aðferð. Hann hlaut 581 stig af 600 mögulegum og setti nýtt heimsmet. Var í algjörum sérflokki og hlaut 13 stigum meir en keppandinn, sem varð I öðru sæti. Auðvitað einnig nýtt ólympíumet. Það sýndi sig fljótt, að Melentev mundi hreppa gullverðlaun. Skot eftir skot hjá honum lenti beint í mark meðan öðrum keppendum mistókst. Yfirburðir hans voru þó mikiu meiri en reiknað var með eða talið mögulegt. Úrslit í skotkeppninni urðu þessi: 1 1. A. Melentev, Sovét, 581 2. Harold Wollmar, A-Þýzk. 568 3. Lubtcho Diakov, Búlgaríu, 565 4. Gil San Soh, N-Kóreu, 565 5. Seppo Saarenpaa, Finnl. 565 6. S. Pyzhianov, Sovét, 564 7. Ragnar Skanaker, Svíþjóð, 563 8. Paavo Palokangas, Finnl. 561 9. Silvio Carvahlo, Brasilíu, 558 10. S. Romanowski, Póllandi, 558 — þrátt fyrir fjarveru 64 þjóða innan alþjóða- ólympíuhreyfingarinnar ,,Ég lýsi yfir að ólympíuleikarnir 1980 eru settir — 22. ólympiuleikar nútímans,” sagði Leonid Breznev, for- seti Sovétrikjanna, þegar setningarhá- tið leikanna fór fram í Moskvu á laug- ardag. Þetta er i fyrsta skipti sem ólympiuleikar eru háðir i kommúnista- ríki. Setningarhátið tókst með miklum ágætum — ein glæsilegasta setning ólympiuleika, sögðu fréttamenn BBC ;■— litaskrúð stórkostlegt og öll tima- setning nákvæm. Setningin tók um fjórar klukkustundir en ganga iþrótta- fólks inn á Lenin-leikvanginn, þar sem 103 þúsund áhorfendur voru, tók aðeins 75 minútur eða mun styttri tima jen i Montreal 1976. Miklu færri voru nú í göngunni en þá, þó þátttökuþjóðir 'séu litið færri — eða 81 nó 6 mótl 04 í |Montreal. Sextán þjóðir gengu ekki undir þjóðfána sinum en mun minna bar á mótmælum við setningar- athöfnina en reiknað hafði verið með jvegna íhlutunar Sovétríkjanna í Afganistan. 65 þjóðir innan jólympiuhreyfingarinnar taka ekki þátt í leikunum i Sovétrikjunum — margar þeirra vegna Afganistan-málsins. Keppendur á leikunum nú verða 6600. Veður var hið fegursta í Moskvu á laugardag og hátiðarstemmning i ■borginni og siðar á Lenin-leikvanginum mikla. Mörg auð pláss voru í heiðurs- jstúkunni, þar sem sendiherrar ýmissa landa, þar á meðal allra Nato-ríkjanna, mættu ekki á setningarhátíðina. Milljónir manna víðs vegar um heim fylgdust með opnun leikanna í beinni sjónvarpssendingu. Lítið bar þar á mótmælaaðgerðum. Þegar þjóðir gengu undir fána sinum var það sýnt, en þegar þjóðir, sem notuðust við ólympíufánann, gengu inn á leik- vanginn beindu sovézku sjónvarps- mennirnir myndavélum annað. 13 þjóðir gengu undir ólympíufánanum — Andorra, Ástralía, Bretland, Frakkland, írland, Holland, Ítaiia, Luxemborg, Puerto Rico, Beigia, Dan- mörk, Sviss og San Marino — þrjár aðrar undir ólympíufána landa sinna, meðal annars Spánn og Nýja-Sjáland. Aðeins fjórir Ný-Sjálendingar gengu undir svörtum ólympíufána. Þrístökkvarinn heimsfrægi, Victor Saneyev, bar ólympíukyndilinn inn á leikvanginn og hljóp þar 200 metra áðuren hann afhenti hann körfuknatt- leiksmanninum Sergei Beiov. Hann hljóp með eldinn upp palla, sem haldið var uppi af þúsundum sovézks íþrótta- fóiks — og tendraði síðan ólympíueldinn. Þessi athöfn kom mjög á óvart. Fimleikamaðurinn Nikolai Andrianov sór ólympíueiðinn fyrir hönd þátttakenda á leikunum. Setningarathöfnin var öll mjög glæsileg. Þúsundir íþróttafólks með jmarglita dúka lögðu undir sig stóran hluta áhorfendasæta gegnt heiðurs- stúkunni. Með nákvæmri stjórn iita- dúkanna mynduðust hin furðulegustu jlitbrigði og ekki nóg með það — stór mynd af Lenin, ólympíuhringirnir og ýmisiegt fleira fallegt. Þetta vakti óskerta athygli áhorfenda. Þátttakendur Grikklands gengu að Ivenju í fararbroddi inn á ólympíuleikvanginn. Afganistan var meðal fyrstu, þjóðanna og var fagnað vel og 16 íþróttamenn landsins fengu mesta lófaklappið, þegar Sovétríkin, sem gengu síðast, eru frátaiin, ásamt |Svíum. Svíar ákváðu fyrir nokkrunm jdögum fyrir leikana að láta alla þátt- takendur sína taka þátt' í göngunni undir gul-bláa þjóðfánanum. Islenzka flokknum var allvel fagnað og hann var með íslenzka fánann i broddi fylkingar. Killanin, lávarður, formaður alþjóðaólympíunefndarinnar minntist á pólitísk vandamál, sem þyrlazt hefðu upp í sambandi við leikana. Bauð þá einkum velkomna ,,sem hefðu sýnt sjálfstæði sitt með þvi að koma til keppninnar, þrátt fyrir mikla pressu, sem lögðvará þá.” Eftir að ólympíueldurinn hafði verið tendraður í Moskvu var þar kveikt á kyndli, sem fluttur var með lest til Tallin í Eistlandi. Þar verður isiglinga- og róðrarkeppni háð. Þegar kyndilberi var á leið til ráðhúss Tallins með eldinn kom skyndilega úrhellis- jrignirig. Munaði engu að eldurinn slökknaði en til mikils léttis fyrir stjórnendur þar tók eldurinn i kyndlinum við sér á ný, svo hægt var jað kveikja þar ólympíueldinn. Aðeins 23 þjóðir keppa í Eistlandi en voru 40 í Kanada fyrir fjórum árum. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir B \ \lWso9lAá , 8 ow:S'dinn: f VIGAHUG IBK á Laugardalsvelli í kvöld Tö FRAM Ki< V torg Skf "'jum|C1 11 VIKINGUR! S Kmmwmm ammammmmmmuuumm uw&

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.