Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. Tony Knapp, f.vrrum landsliðsþjálfari Is- lands, sem nú þjálfar Noregs- og bikar- meistara Vfkinps I Stavanger, sést hér á tali við Guðna Kjartansson. Tony, sem var sérstakur gestur norska blaðsins Verdens Gang á landsleiknum, var ánægöur með frammistöðu íslen/ku strákanna. Sagði I viðtali við VG að is- len/ka liðið hefði átt fleiri upplögð mark- tækifæri en hið norska. I.jósmyndir Sigurjón Jóhannsson. islenzka liðið, sem einasta amatörliðið í heiminum i dag. I spjaili við Guðna Kjartansson að landsleik loknum, bar ég upp þá spurn- ingu, hvort við gætum haldið áfram á sömu braut. — Þetta er mjög mikið vandamál, sagði Guðni. Það er búið að ræða það í mörg ár, að við þyrftum einhvern veginn að geta gefið landsliðinu meiri tima í æfingar, en ekkert hefur gerzt, og ég get ekki annað séð, en þetta verði áfram orðin tóm- Við eigum að geta fengið atvinnumenn okkar, þegar við tökum þátt í HM og Evrópukeppni, en oft er ekki um neinar æfingar að ræða með þeim, stundum hafa þeir mætt degi fyrir keppni. Pétur Pétursson kvaðst eygja möguleika að vera með okkur núna, ef liðið hans gæfi Sigurjón Jóhannsson skrífar frá Osló: Sættum okkur við tapið því barizt var frísklega til síðustu stundar — Varla hægt að horfa upp á að lið úr 2. og 3. deild í Svíþjóð hirði frá okkur stráka í stórum stfl, segir landsliðsþjálfarínn Guðni Kjartansson Hér 1 Noregi sem á Islandi er fram- tið knattspyrnunnar mjög á dagskrá. Ef lið er ekki af einhverjum ástæðum nægilega spennandi, þá einfaldlega mætir fólk ekki á leiki þess. Hér i Osló kemur það fyrir að Oslóarlið, sem leikur I 1. deild á heimavelli, dregur ekki að sér nema 7—800 áhorfendur meðan lið frá Bergen eða Stavanger getur treyst á 7—8 þúsund manna mæt- ingu á helmavelli. Þess vegna þótti Norðmönnum mjög vel mætt á leik Noregs og tslands i Osló, en þann leik sáu 10.425 manns, auk barna, sem fengu frítt inn. Fyrir skömmu gat að lesa í norsku blaði, að nú væri kominn tími til að segja hlutina hreint út — fólk kemur ekki til að horfa á knattspyrnu nema í liðinu séu góðir knattspyrnumenn með persónulegan stil, kraft og áræði. lslendingar hér í Osló bjuggust ekki við miklu af islenzka landsliðinu á mánudagskvöld, þegar ljóst var að stjörnur okkar voru víðsfjarri, en við sættum okkur við tapið, vegna þess að liðið lék frisklega og barðist til síðustu stundar. Það kom norskum iþrótta- fréttariturum á óvart, að islenzka liðið lék „hreina” knattspyrnu, þ.e. gekk beint til verks í framlínunni, þó ekki gæfi það nema eitt mark að þessu sinni. Þetta gerði leikinn spennandi, og Norðmenn geta þakkað sinum sæla að eiga einn mann í sínu liði, sem einmitt kann að ganga hreint til verks, ef hann eygir smugu. Maðurinn heitir Pál Jacobsen, 25 ára gamall, og er einmitt nú á toppinum eftir 17 iandsleiki. Hann skoraði markið gegn Búlgariu fyrr á sumrinu (leiknum lauk 1:0), og hann var afgerandi maður i sigrinum yfir íslandi. Af hverju er hann ekki löngu orðinn atvinnumaður? Jú, það kemur á daginn, að nokkur sænsk lið hafa haft augastað á honum og enska liðið Chelsea, en hann hefur ekki mik- inn áhuga á að gerast atvinnumaður; Norðmaður sagði mér að hann væri skaddaður i hné, og leggði því ekki á sig að gerast atvinnumaður. Eflaust fær hann einhverja umbun sem „venjulegur” norskur leikmaður, hve mikið veit ég ekki. Norska blaðið Verdens Gang talaði reyndar um Norðmanninum í liðinu leyfi til að leika með sínu landsliði — annars væri engin von. Ásgeir fékk leyfi til að leika með okkur gegn Svíum og einnig Janus Guðlaugsson, en núna hittist þannig á, að Teitur Þórðarson er heima i fríi, og því ekki hægt að ætlast til að hann sé meðað þessu sinni. Annars er varla hægt að horfa upp á það sem er gerast núna — við erum að missa alla okkar efnilegustu menn til útlanda. Lið i 2. og 3ju deild í Sviþjóð hafa efni á að hirða frá okkur stráka í stórum stíl. Er það nokkur hemja, að Þessar myndir sýna hið undarlega atvik, þegar tveir ungir Norðmenn, báði'r rétt \vfir tvitugt, hlupu inn á leikvöllinn og réðust að Þorsteini Ólafssyni, mark- verði, sem ekkert hafði gert af sér í leikn- um, sem réttlætti árásina. Á efri myndinni hefur Þorsteinn stuggaö við öðrum en hinn er að búa sig undir að ráðast á Martein Geirsson... Lögreglu- menn koma aðvifandi og á neðri myndinni hafa þeir náð tökum á öðrum árásarmanninum en hinn hleypur undan. Hann var gómaður skömmu siðar. I vinstra horni myndarinnar — á áhorf- endasvæöunum — sést hvar lögreglan hefur handsamað þriðja manninn, sem hafði aðstoðað hina tvo við að komast inn á völlinn. Norska lögreglan lítur þetta^mál alvarlegum augum og ákvað strax að sekta þá tvo, sem komust að markinu um 3000 norskar krónur eða 300 þúsund islénzkar og aðstoðar- manninn ,um 100 þúsund íslenzkar. Vallarstjórnin óttaðist að dómarinn myndi kæra atburðinn, en hann sagðist ekki sjá ástæðu til að gera of mikið úr þessum athurði. I.éti því máliö kvrrt liggja.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.