Dagblaðið - 21.07.1980, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980.
29
Á fullri ferð. Hér er Gáski á fullri ferð undan suðurstrðndinni ok framundan er f>atið á Dyrhðlaey.
ÁhyKRjur. Hér standa þau Lára Maunúsdóttir or Bjarni BjórRvinsson á bryKKjunni á
Neskaupstað og fylgjast með er verið er að undirbúa að lyfta l.árunni úr sjó til að at-
tiuga útblástursrör.
Vélaviðgerð á Gusti i Isafjarðarhöfn.
Þegar til Isafjarðar kom þá kom i Ijós
bilun I vélinni sem sett var i á Dalvik og
hafði sú vél komið flugleiðis frá tsafirði.
Þegar hér var komið virtist ekki margt
til ráða, en þá brá einn sportbátaeigenda
á Isafirði snarlega við, og lánaði þeim
Daða og Einari Val vélina úr sínum bát.
Auglýsendur á Sjórallbátunum:
HAFA GERT KEPPNINA
MÖGULEGA FRÁ UPPHAFI!
Kostnaður bátaeigenda í Sjóralli
er himinhár þegar öll kurl koma til
grafar og er hann helzta orsök þess
hve fáir skrá sig til keppni i hlutfalli
við bátaeign landsmanna. Eldsneytið
er stór liður og hið opinbera féflettir
bátaeigendur með því að leggja vega-
skatt á bensíneyðslu ásjó.
Til þess að kljúfa eldsneytis
kostnað hafa keppendur safnað aug-
lýsingum á bátana og fengiö áhuga-
sama einstaklinga og fyrirtæki til að
leggja þátttöku þeirra lið í
Sjórallinu. Þannig auglýsti til dæmis
Morgunblaðið myndarlega á bátnum
Ingu frá Vestmannaeyjum en mörg
fyrirtæki á ísafirði stóðu að baki
keppenda á heimabátnum Gusti. Án
þessarar aðstoðar er einstaklingum
um megn að gera út báta sína i
Sjórall. Keppnisstjórn vill færa
bakhjörlum þátttakenda beztu
'þakkir fyrir góðan stuðning en þeir
eru:
1. Gustur 02, ísafjörður:
Póllinn hf., Flugfélagið Ernir
hf., Hamraborg hf.,
Djúpbáturinn hf., Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar, Tækni-
þjónusta Vestfjarða, Blikksmiöja
Erlendar Erlendssonar, Kofri hf.,
Niðursuðuverksmiðjan hf., Raf
hf. og Vestfirzka fréttablaðið.
2. Lára03, Eskifjörður:
Hafskip hf. og Hampiðjan hf.
Þar sem Lára hætti keppni á
miðri leiö voru auglýsingar
hennar fluttar á aðra keppnis-
báta.
3. Gáski 04, Hafnarfjörður:
Mótun hf., Mercruiserumboðið
Magnús Ólafsson, Barnablaðið
Æskan og Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar.
4. Spörri 05, Grundarfjörður:
Marinerumboðið Barco hf.
5. IngaOö, Vestmannaeyjar:
Morgunblaðið.
Allir áhugamenn um Sjórall eru
bjartsýnir á góðar undirtektir
einstaklinga og fyrirtækja fyrir næsta
Sjórall enda hefir þriggja ára reynsla
sýnt að tugþúsundir manna streyma
að höfnum landsins þegar bátana ber
aðgarði. -ÁHE.
l.itli og störi. Pegar Ingan brunaði inn á Pollinn á Akureyri lá þar skemmtifcróa-
skipið Maxim Gorki, og hafði einn áhorfenda á orði að óliku væri saman að jafna, að
sigla á smábátum i vályndum veðrum kringum landið, eða liða áfram i slikum glæsi-
flcytum sem skemmtiferðaskipin væru.
í höfn á Akureyri. Þar gafst mönnum gott tóm til að huga að hátum sinum, enda var
dvalið um kyrrt þar heilan dag. Þar nutu sjórallskapparnir mikillar aðstoðar FR-
manna undir stjórn Brynjólfs Jónssonar, og má þar á meðal nefna snör handtök
þeirra við að gera við Spörra, þegar hann var nærri sokkinn í höfninni.