Dagblaðið - 21.07.1980, Page 11

Dagblaðið - 21.07.1980, Page 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. smiðjur hafa lokað. Nokkuð hefur verið um að lítil fyrirtæki verði gjald- þrota. Vegna aukins atvinnuleysis hafa deilur um fyrirkomulag atvinnu- leysisbóta vaxið mjög í Bretlandi. margir telja að ríflegar atvinnuleysis- bætur dragi úr vilja manna til að vinna. Þeir sem þessu halda fram viija gjarnan, að í staðinn fyrir beinar bætur til atvinnulausra verði tekin upp atvinnubótavinna og verði hinir atvinnulausu skyldir til að starfa þar til að fá bæturnar. Tals- menn þessarar hugmyndar eru í Ihaldsflokknum en liðsmenn Verka- mannaflokksins hafa fordæmt hug- myndir í þessaátt. Opinberar skýrslur sýna að iðnaðarframleiðsla Breta hefur dregizt saman um átta af hundraði á síðustu níu mánuðum. Kröfur hafa komið fram um að vextir verði lækk- aðir í Bretlandi auk þess sem krafizt hefur verið að settar verði innflutn- ingshömlur á erlendar iðnaðarvörur. Ríkisstjórin hefur ekki viljað verða við þessum óskum enda er það á móti þeirri efnahagsstefnu sem hún rekur. Opinberir aðilar i Vestur-Þýzka- landi segja að nú síðustu mánuði hafi komið í ljós fyrstu merki þess að hag- vöxtur þar sé að minnka. Samdráttur í sölu bifreiða hjá Volkswagen, Ford og Opel hefur orðið 12 af hundraði miðað við fyrra ár. Ráðagerðir eru uppi um að taka upp styttri vinnu- tíma en áður vegna samdráttarins. Samdráttur er einnig í fleiri atvinnu- greinum. ÞESS VEGNA GERIST EKKERT MARKVERT Hve margir velta því fyrir sér núna hvers vegna verkalýðshreyfingin lætur samninga og baráttuaðgerðir dragast nær endalaust? Skýringin á seinagangnum er að hluta til fólgin í afstöðu atvinnurek- enda. Þeir neita launahækkunum harðlega, fara fram á að ríkið gauki skattalækkun að launafólki og heimta frekari skerðingu verðbóta. Rikisvaldið rekur alveg sömu stefnu nema hvað boðin er nokkurra pró- senta launahækkun uppi 20% kaup- rán og félagsmálapakki sem kostar ríkið nánast ekkert. En önnur skýring er líka til. Og hún stendur verkafólki og öðrum launamönnum nær vegna þess að hennar er að leita innan þeirra eigin hreyfingar. Hér á ég við stefnu fjölmargra verkalýðsforingja i kjaramálum og stjórnmálum — mikils meirihluta umboðsmanna okkar. Ég undanskil einstaka menn og ágæta baráttuaf- stöðu annarra í ákveðnum málum. En megineinkenni flokksbundnu verkalýðsforingjanna eru tvenns konar. í einn stað taka þeir mið af því hvað fyrirtækin telja sig geta greitt án þess að eigendur og stjórn- endur þurfi að herða sultarólina. í annan stað reyna þeir að beina allri baráttu eða óánægju inn í yfir- nefndir, alisherjarsamflot, þingsali Kjallarinn AriT. Guðmundsson við Austurvöll og skrifræðisbákniö sem stendur ofan á ólýðræöislegri og þröngsýnni félagsstarfsemi verka- lýðsfélaganna flestra. Afleiðing þessa er sú aö peninga- valdið hefur getað vaðið í verðmæt- um sem vinnuhendurnar skapa meðan kaupgeta launafólks hefur í heild lítið þokast upp á við siðan 1946! Kaupgeta verkamannalauna hefur sveiflast upp og niður fyrir ákveðið meðaltal allar götur siðan þá. Stundum hefur árað vel, óánægja verið áberandi eða foringjunum þótt heppilegt að veiða atkvæði í kjör- kassana. Þá hafa náðst skárri samn- ingar en áður — sem sýnir reyndar að samstaða og barátta geta borið árangur, því þessum mönnum er annt um sitt skinn. Oftar er árangur litill og það sífellt látið viðgangast að at- vinnurekendur og riki taki ávinning- ana aftur með alls kyns bellibrögð- um. Hér dugir hvorki að útskýra þessar staðreyndir með því að skamma almenna félagsmenn verka- lýðshreyfingarinnar eða benda á þvermóðsku atvinnurekenda. For- ystumenn með þjóðarhag í kollinum í stað hagsmuna launavinnumannsins og stéttasamvinnustefnu í hjartanu í stað stéttabaráttu er þungvæg útskýr- ing. Allt tal um að svokallaðir verka- lýðsflokkar reki bara stéttasamvinnu, meðan þeir verma ráðherrastóla, felur þessa skýringu á seinagangin- um.Sama má segja um hugmyndir um að aðalatriðið sé að koma þessum flokkum úr rikisstjórn — þó svo áhrif þess gætu orðið sjáanleg. Og sama má líka segja um hugmyndir um að verkalýðshreyfingin komi til með að berjast samhent og beitt meðan heildarstefna forystunnar er jafnríkjandi og nú er. Verkafólk og annað launafólk gerir best með því að ýta fastar og fastar á forystuna, reyna um leið að fara eigin leiðir eins og sjómenn og grafiskir sveinar hafa t.d. reynt og láta alla gagnrýni á forystuna koma skýrt fram. Reyndar minnir þetta á nauðsyn nýs verkalýðs- og félagshyggju- flokks. En það er önnur saga. Ari T. Guðmundsson kennari. ^ „Peningavaldið hefur getað vaöiö í verö- mætum, sem vinnuhendurnar skapa, meðan kaupgeta launafólks hefur í heild lítið þokast upp á viö síðan 1946.” að greiða niður ákveðna kostnaðar- liði. Landbúnaðarvörur vega svo þungt í framfærsluvísitölu, að niður- greiðsla á þeim dregur verulega úr framfærslukostnaði. Dæmið stendur þannig, að ríkisstjórn getur lagt á söluskatt og fengið með því ákveðnar tekjur. Við það hækkar framfærslu- vísitalan. Ef tekjunum er síðan varið til þess að greiða niður landbúnaðar- vörur, lækkar framfærsluvísitalan meira en hún hækkaði við álagningu söluskattsins. Taflmennska af þessu tagi getur borið talsverðan tímabundinn ár- angur í vísitöluspilinu. Gróft reiknað sýnist mér, að álagn- ing eins söluskattsstigs gefi ríkissjóði um 6 milljarða í tekjur á ársgrund- velli og hækkar framfærsluvísitölu um ca 0,45 stig. Það kostar ríkissjóð um 3,5 milljarða að greiða eitt stig framfærsluvísitölu niður í land- búnaðarvörum. Ef þessir 6 milljarðar eru notaðir í niðurgreiðslur, lækkar því framfærsluvísitala um ca 1,7 stig, og 1,25 stig hefur þá unnist í vísitölu- spilinu. Þannig mætti lengi telja. Annar þáttur vísitöluspilsins er, að beinir skattar, þ.e. tekjuskattur og útsvar, hafa ekki áhrif á framfærslu- visitöluna. Óbeinir skattar, þ.e. sölu- skattur, tollar o.s.frv., koma hins vegar inn í framfærsluvísitölu. Hækkun beinna skatta veldur því ekki launahækkunum, en hækkun óbeinna skatta fer beint út í verðlag. Þetta veldur aftur því, að ríkis- stjórnum hefur verið nær ókleift að breyta frá tekjuskattinum yfir í óbeina skatta. Tekjuskatturinn hefur ýmsagallaí þvi formi, sem hann er lagður á hér á landi, og er oft nefndurlaunamanna- skattur. Vísitölukerfið veldur því hins vegar, að ekki er unnt að hverfa meira að óbeinum sköttum. Vísitöluspilið tekur síðan á sig enn aðra mynd vegna þess, að vísitölu- fjölskyldan býr í Reykjavík. í stað þess að mæla t.d. meðalupphitunar- kostnað landsmanna, mælir fram- færsluvísitalan eingöngu upphitunar- kostnað í Reykjavík. Undir venjuleg- um kringumstæðum ætti þetta ekki að koma að sök. Vísitalan mælir hlutfallslegar breytingar og líklegast er, að þær séu svipaðar yfir landið. Undir ströngu verðlagseftirliti er hins vegar unnt að halda gjaldskrám fyrirtækja Reykjavíkurborgar niðri og hindra þannig hækkun fram- færsluvísitölunnar. Áhrif þessa' eru annars vegar, að fyrirtæki Reykja- víkurborgar lenda í miklum greiðslu- erfiðleikum, en hins vegar að fólk úti um land, þar sem þessir framfærslu- þættir hafa hækkað meira, þolir í raun kjararýrnun. Sjálfsagt er erfitt að búa til vísi- tölukerfi, sem ekki er unnt að spila á. Ef t.d. ætti að taka inn í framfærslu- visitölu meðalkostnað framfærslu- þátta um allt land, mundi það þýða verulega aukinn kostnað við vísitölu- reikninginn, sennilega talsvert út- reiknings- og gagnasöfnunarbákn. Ekki er vitað um neina þjóð, sem hefur treyst sér til að nota svipað vísi- tölukerfi og við til launaleiðréttinga. Sennilega er óhjákvæmilegt að taka óbeina skatta og niðurgreiðslur út úr vísitölunni. Það mundi minnka svigrúm til þess að spila á visitöluna. Jafnframt mundi það gefa ríkisstjórn frjálsari hendur um, hvort hún velur beina eða óbeina skatta til tekjuöfl- unar. Áhrif óbeinna skatta á vísitöluna eru af ýmsum atriðum óeðlileg. Ef ríkisstjórn leggur á óbeina skatta til þess að auka félagslega þjónustu við landsmenn, byggja skóla og sjúkra- hús o.s.frv., þá fá landsmenn ekki bara skóla og sjúkrahús, heldur einnig launahækkun. Einhver kann að segja, að launa- fólk verði að hafa vörn gegn óhóf- legri skattheimtu ríkisvaldsins. Þá má benda á, að í landinu eru lög um há- Kjallarinn GuðmundurG. Þórariiísson mark heildarskatttekna ríkissjóðs jafnframt því, sem ríkisstjórn stendur reikningsskap gjörða sinna í næstu kosningum. Sá eðlismunur er heldur ekki á beinum og óbeinum sköttum, að hann réttlæti þessa mis- munandi meðhöndlun með tilliti til vísitölu. Að framansögðu er ljóst, að vísi- tölukerfinu verður að breyta. Kerfið hefur ekki reynst launafólki sú vörn, sem það átti að verða. Hins vegar hefur það leitt til fáránlegra hluta og beinlínis framkallað ótrúlegar enda- leysur. Eitt dæmið um það er staða Hita- veitu Reykjavíkur nú, þogar stefnir í olíukyndingu á höfuðborgarsvæð- inu. Eflum Hitaveituna Hitaveita Reykjavíkur er sennilega eitthvert besta orkuöflunarfyrirtæki veraldarinnar. Af! hennar er svipað og allra vatnsaflsvirkjana okkar samanlagt. Orkuverð Hitaveitunnar er ótrúlega lágt. Þegar gjaldskrá Hitaveitunnar er haldið niðri, eins og gert hefur verið um langt árabil, verður ekkert úr nauðsynlegum fram- kvæmdum við rannsóknir og vatns- öflun. Jafnframt eykur hið lága orkuverð veitunnar mismuninn í kyndikostn- aði landsmanna og ýtir undir kröfur um kyndingarstyrki úti um land. Á þessu ári verður 4,4 milljörðum varið í oliustyrki. Þrátt fyrir það er mis- munur í kyndikostnaði óheyrilegur. Hitaveita Reykjavikur verður að fá verulega hækkun á sinni gjaldskrá. Jafnframt verður að gera breytingar á vísitölukerfinu, þannig að það endurtaki sig ekki sí og æ, að henni sé haldið niðri vegna vísitöluspilsins. Nauðsynlegt er, að ríkisstjórnin leiti samninga við aðila vinnumark- aðarins um breytingar á vísitölukerf- inu. Náist slíkir samningar ekki, er óhjákvæmilegt að freista þess að breyta vísitölugrunninum með lögum á Alþingi. Þingmenn Reykvíkinga hljóta þá að taka það til alvarlegrar athugunar að flytja frumvarp til laga um breyt- ingu á visitölugrundvellinum strax á næsta þingi. GuðmundurG. Þórarinsson alþingismaður ^ „Þingmenn Reykvíkinga hljóta þá aö taka þaö til alvarlegrar athugunar að flytja frumvarp til laga um breytingu á vísitölu- grundvellinum strax á næsta þingi.”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.