Dagblaðið - 21.07.1980, Qupperneq 19
19
Iþróttir
Iþróttir
I)
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Loks sigraði
sá hollenzki
Hollendingurinn Joop Zoelmelk
sigraði í gær I frægustu hjólreiða-
keppni heims — Tour de France — sem
slaðið hefur yfir þrjár síðustu vikurnar.
Hin 33ja ára Hollendingur hefur fimm
sinnum orðið 1 öðru sæti i keppninni
svo timi var kominn til að hann sigraði.
í öðru sæti nú varð landi hans, Hennie
Kuiper og þriðji varð Raymond
Martin, Frakklandi.
Watson brezkur meist
Heimsmet
á ólympíu-
leikunum
Han Gyongsi, Norður-Kóreu, setti i
gær nýtt heimsmet á ólympíuleikunum
í Moskvu. Hann snaraði 113 kg i flugu-
vigt i lyftingum — 52 kg flokki. Eldra
heimsmetið átti Alexander Voronin,
Sovétrikjunum, 112,5 kg.
Svipmynd úr leiknum.
l)B-myndir Sigurjón Jóhannsson.
illuti af íslen/ku nýlendunni í Osló gengur hrott af leikvelli í leikslok.
til dæmis Keflavíkurliðið skuli missa
sex menn til Svíþjóðar í fyrra? Ef þetta
heldur áfram, þá hætta menn að mæta
á knattspyrnuleiki heima, og ef við
höfum ekki áhorfendur, þá höfum við
enga peninga, svo þetta helzt allt í
hendur.
Ef við segjum sem svo, að við
gætum náð til okkar beztu manna, þeg-
ar við leikum landsleiki, þá verðum við
að fá tíma fyrir samæfingar.öðruvísi
koma þessir menn okkur ekki að þvi
gagni sem skyldi. Þó þeir séu atvinnu-
menn og stjörnur, þá eru þeir einu sinni
hluti af 11 manna liði og þeir geta ekki
gertstórahluti sem einstaklingar öðru-
vísi enþeir passi inn í liðið. Þetta ættu
áhorfendur að hafa í huga og reyndar
einnig blaðamenn. Það er gifurleg
pressa á þessum strákum, þegar þeir
koma heim — fólk ætlast til allt of
mikils af þeim við aðstæður, sem ekki
eru þeim boðlegar. Það er lágmark að
þeir geti æft með landsliðinu í nokkra
daga til að finna réttan takt. Gleymum
því heldur ekki, að þessir strákar koma
og leika með okkur þegar þeir mögu-
lega geta og fá ekkert greitt fyrir.
Að lokum sagði Guðni, að hann
hefði ekki reiknað með miklum
afrekum í þessum landsleik, eða í
landsleiknum við Svía. Við lékum mjög
skynsamlega gegn Noregi og það var
sorglegt, að endahnútinn skyldi vanta
í upplögðum tækifærum. En við
reynum að læra af reynslunni, sagði
Guðni um leið og hann kvaddi.
-S.J.
ari í golfi í þriðja sinn
— Sigraði með yfirburðum í Muirfield í gær
„Það er stórkostlegt að sigra á
Skotlandi — að koma á 18. brautina í
lokin á Muirfield I fyrsta sæti er það
stórkostlegasta i heiminum,” sagði
Bandarikjamaðurinn Tom Watson
eftir að hann hafði sigrað örugglega á
opna brezka meistaramótinu i golfi í
gær. Watson lék á 271 höggi samtals og
hlaut 25 þúsund sterlingspund i fyrstu
verðlaun. Landi hans Lee Trevino varð
annar á 275 höggum en þegar keppnin
var hálfnuð hafði hann fimm högga
forustu. í þriðju umferðinni á laugar-
dag lék Watson hins vegar á 64 höggum
— sjö undir pari vallarins — meðan
Trevino lék á 71 höggi. Það gerði út-
slagið.
Eftir slæmt veður fyrstu keppnis-
dagana var gott veður á laugardag og
afburða árangur náðist þá. Hubert
Green lék á 64 höggum eins og Tom
Watson en þeir voru þó ekki beztir.
Japanski golfleikarinn Isao Aoi hafði
rétt á undan þeim sett nýtt vallarmet á
Muirfield. Lék á 63 höggum. Hins veg-
ar var árangur hans í öðrum umferðum
slakur svo hann var ekki meðal efstu
manna. Heldur ekki meistarinn frá í
fyrra Severiano Ballesteros. Spáni.
Jack Nicklaus, meistarinn mikli,
byrjaði illa — lék fyrstu umferðina á 73
höggum. Hins vegar vann hann stöðugt
á, þegar leið á keppnina og hafnaði að
lokum í fjórða sæti ásamt Bretanum
Carl Mason. Bretinn Ken Brown, sem
óvænt hafði verið í öðru sæti fram á
síðasta keppnisdag, var slakur í loka-
umferðinni. Lék aðeins á 76 höggum
og varð i sjötta til níunda sæti.
Tom Watson er þrjátíu ára, frá
Kansas City. Hann er nú almennt
talinn bezti golfleikari heims. Hann
hefur tvívegis áður sigrað á brezka
meistaramótinu. Fyrst 1975 í
Carnoustie og siðan 1977 í Turnberry.
Þá lék hann holurnar 72 á 268 höggum,
sem er lægsta skor á brezka meistara-
mótinu. Úrslit í keppninni í gær urðu
þessi:
271 — Tom Watson, USA,
68, 70, 64 og 69
|275 — Lee Trevino, USA,
68,67,71 og 69.
1!77 — Ben Crenshaw, USA,
70, 70, 68 og 69.
280 — Carl Mason, Bretlandi,
72, 69, 70og69og
Jack Nicklaus, USA,
73,67,71 og 69
Þeir Craig Sadler, USA, Andy Bean,
|USA, Hubert Green, USA, og Ken
Brown, USA, léku á 282 höggum.
S0VEZKUR SIGUR
í HJÓLREIÐUM
Sovézka íþróttafólkið byrjaði með
miklum glæsibrag á 22.
ólympíuleikunum í Moskvu í gær.
Hlaut tvenn fyrstu gullverðlaun i skot-
keppni og 100 km hjólrelðum í sveita-
keppni. Það voru fjögurra manna
sveitir í 100 km hjólreiðunum og
sovézka sveitin kom vel fyrst í mark
eða einni og hálfri mínútu á undan
þeirri austur-þýzku. Það er í þriðja sinn
í röð, sem Sovétrikin sigra í þessari
íþróttakeppni á ólympíuleikum.
Austur-þýzku keppendurnir eru
núverandi heimsmeistarar og var al-
mennt reiknað með sigri þeirra. Fyrir
tveimur árum á heimsmeistaramótinu
höfðu austur-þýzku keppendurnir haft
verulega yfirburði. Þeim tókst hins
vegar ekki að hamla gegn þeim
sovézku á þjóðbrautinni frá Moskvu til
Minsk. Endasprettur tékknesku sveit-
arinnar var gífurlegur og munaði sára-
litlu að sveitin næði þeirri austur-
þýzku.
f Norskur leikmaður hindrar Sigurlás Þorleifsson í einni sóknarlotu islenzka liðsins. Það er Pétur Ormslet, sem er nr. niu.
Sigurlás og Pétur fengu mjög góða dóma i norskum hlöðum.
reiðamannanna Youri Kashirin, Oleg
Logvin, Sergei Shelpakov og Ana-
toly Yarkin, var 2:01.21.7. Austur-
Þjóðver:ar hjóluðu á 2:02.53.2. Tékkar
2:02. "'3 9. Síðan komu Pólland nr. 4,
, Ítalíu, Búlgaría, Finnland i sjöunda
sæti, Júgóslavía, Bretland og Danirnir
Per Kersgaard, Michael Marcussen,
Jesper Worre og Jörgen Pedersen urðu
í tiunda sæti. Það voru talsverð
vonbrigði fyrir Dani. Ástralía varð í
ellefta sæti, síðan komu Sviar, þá
Austurríki, Sviss, Holland, Belgía,
Ungverjaland og Vensúela varð í 18.
sæti.
Slæmttap
Dortmund
en Celtic vann stórsigur
Glasgow Celtic sigraði Nec í
Nijmegen í gær 5—0 á fjögurra liða
móti þar í borg. Nec leikur í úrvals-
deildinni hollenzku og heldur þetta
mól á leikvellinum góða, sem ísland
hefur tvivegis leikið við Holland á. Go
Alhead Eagles, Hollandi, sigraði
Borussia Dortmund 3—1 — en Atli
Eðvaldsson leikur með Borussia.
Borussia leikur i dag við Nec um þriðja
sætið en Celtic við Deventer um efsta
sætið.
Dómur
mildaður
Áfrýjunarnefnd ítalska knatt-
spyrnusambandið hefur tekið mál
Paolo Rossi fyrir og ýmissa annarra
leikmanna, sem lentu í svindlmálinu á
Íialíu i vor og vetur. Nefndin ákvað að
Rossi skyldi vera tvö ár i keppnisbanni i
stað þeirra þriggja, sem hann hafði
áður hlotið. Stórliðið AC Milanó hlaut
ekki náð fyrir augum nefndarinnar og
verður að leika í 2. deild næsta
keppnistímabil.