Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.07.1980, Qupperneq 32

Dagblaðið - 21.07.1980, Qupperneq 32
Gífurlegur samdráttur í mjólkurframleiðslu í kjölfar kjamfóðurskatts: Mjólkurfíutningar til Reykjavíkur í haust —- sala í kúafóðurblöndu datt niður „Það er ekki annað fyrirsjáanlegt en að mjólk og mjólkurvörur verði fluttar til höfuðborgarsvæðisins af Norðurlandi í haust,” sagði Agnar Guðnason blaðafulltrúi bændasam- takanna í morgun. Kjarnfóðurskatt- urinn og mikil verðhækkun á fóður- bæti sem af honum leiddi varð til þess að bændur drógu stórlega úr fóðurbætisgjöf. Er haft á orði að sala í kúafóðurblöndu hafi hreinlega dott- ið niður. Nyt í kúm datt svo niður þegar þær hættu að fá fóðurblönd- una. „Samdrátturinn í mjólkurfram- leiðslunni í kjöifar fóðurbætisskatts- ins er óskaplegur,” sagði Agnar. ,,Hjá Mjólkurbúi Flóamanna var lítils háttar aukning í framleiðslu fyrri hluta ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Fyrstu 14 daga í júli hrapaði framleiðslan svo um 14% eða 25.000 lítra á dag! Hliðstæða sögu er að segja hjá Mjóikursamlag- inu á Akureyri. Þegar haft er í huga að mjólkurframleiðslan á Suðurlandi hefur undanfarið verið rétt nægjan- leg fyrir höfuðborgarsvæðið þrátt fyrir umframframleiðslu í heildina, verður ekki annað séð en mjólkur- fiutningar milli landshluta blasi við í haust,” sagði Agnar Guðnason.-ARH Strákarnir kíkja á hrunakallana. A innfclldu mvndinni tevgir Gunnar Þorrisig i hrunahoóann <>K tvetmja ára uppeldiferfyrir lltiA. DB-myndir Kristján Inyi. UPPELDIÐ FÓR í SÚGINN Þeir eru prakkaralegir strákarnir þar sem þeir kikja fyrir húshornið á brunakallana, sem þeir höfðu nýver- ið gabbað. Pottormarnir tveir höfðu legið bak við hús og skoðað miður siðsamleg blöð, en puttinn á inn- felldu myndinni framdi ódæðið. Hann braut brunaboðann. Þetta er nú samt ekki í alvörunni, heldur eru þessir ungu menn kvik- myndaleikarar. Þessa dagana er verið að kvikmynda handrit Péturs Gunn- arssonar, Punktur, punktur, komma strik. Pilturinn, sem þarna teygir sig í brunaboðann er sonur Péturs og konu hans Hrafnhildar Ragnarsdótt- ur. Guttinn heitir Gunnar Þorri og er aðeins tveggja og hálfs. Móðir hans sagði i morgun að þarna hefði uppeldið farið fyrir lítið. Stöðugt hefði verið brýnt fyrir Gunn- ari Þorra að ekki mætti brjóta rúður, en síðan kom að því, að fjöldi manns hvatti hann til þess að brjóta glerið í brunaboðanum. Vonandi eldist prakkaraskapurinn af pilti. Myndatakan gengur vel, en hún fer að mestu fram í Hagaskóla og verður svo fram eftir ágústmánuði. -JH. Samningsslitin fréttust inn í samkvæmið ,,VSÍ kemur það ekkert við við hverja við tölum og á meðan VSÍ vill ekki semja, þá er eðlilegt að við snúum okkur að hinum viðsemjanda okkar sem er Vinnumálasambandið,” sagði Haukur Már Haraldsson blaðafulltrúi ASÍ i samtali við DB í morgun. Eins og DB hefur skýrt frá þá slitu VSÍ menn samningaviðræðum eftir sáttafund sl. föstudag, sendu tilkynningu þar að lút- andi til fjölmiðla og héldu siðan í sjö- tugsafmæli Eðvarðs Sigurðssonar. í hófinu vissi enginn af samningsslitum vinnuveitenda, hins vegar fréttist það siðan inn í hófiðerásamkvæmið leið. Eftir samningafundinn á föstudag er allsendis óljóst hvert framhaldið verður, VSl lítur svo á að það eigi ekki lengur heima í samningaviðræðum á meðan ASÍ og Vinnumálasambandið eigi með sér viðræður. Hefst fyrsti formlegi samningafundur þessara aðila á morgun þriðjudag. -BH. Niðurgreiðslumar samþykktar Ríkisstjórnin hefur samþykkt stór- auknar niðurgreiðslur, sem efnahags- nefndin gerir tillögur um eins og DB hefur greint frá. Ráðherranefnd hefur verið falið að annast framkvæmd málsins. -HH. Trúbadorinn sló í gegn í hæfileikakeppninni í gærkvöld: Söng um raunir gæsa- skyttunnar rV 11 \ I' * Jóhann Hilmisson bar sigur úr býtum í þriðja riöli Hæfileikakeppni Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar. Jóhann flutti smellna vísnabálka eftir föður sinn, Hilmi Jó- hannesson, og lék sjálfur undir á gítar. Fjölluðu vísurnar um jafnólík efni og stjórnmál og gæsaskyttirí og féllu í góðan jarðveg meðal gesta á Hótel Sögu. önnur í keppninni varð Sigfriður Jónsdóttir, sem las frumort kvæði. -SA/DB-mynd R.Th. frjálst, nháð daghlað MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ1980. Afstaða Geirs Hallgrímssonar: Ræða Gunnars óviðeigandi — frétt DB um ágrein- ing vegna sumarferð- ar Varðar staðfest Starfandi formaður ferðanefndar Varðar, Guðmundur Jónsson vélstjóri, staðfesti í samtali við DB í morgun að innan nefndarinnar hefði komið til um- ræðu að biðja Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra og varaformann Sjálfstæðisflokksins, að flytja ræðu í sumarferð félagsins sem farin var í gær. Hins vegar mótmælti hann frétt DB á laugardag, þess efnis að formleg tillaga um ræðuflutning Gunnars hefði verið samþykkt í nefndinni. Guðmundur Jónsson staðfesti enn- fremur að Geir Hallgrímssyni, for- manni flokksins, hefði verið skýrt frá hugmyndum um að fá Gunnar Thor- oddsen til að flytja ræðu. Hann neitaði aftur á móti að upplýsa hvort Geir hefði lagzt gegn því. Sveinn H. Skúlason, framkvæmda- stjóri Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík, skýrir á hinn bóginn frá því i Mbl. á sunnudaginn að Geir Hall- grímsson hafi vakið athygli ferða- nefndarinnar á því að ef bæði hann og Gunnar fiyttu ræður kynni sumarferð Varðar að verða óviðeigandi vettvang- ur deilna um afstöðu sjálfstæðismanna til ríkisstjórnarinnar. Eftir að þessi afstaða Geirs Hall- grímssonar kom fram ákvað nefndin samhljóða að hann einn flytti ræðu í ferðinni. -GM. Allt kyrrt á gosstöðvunum Allt var með kyrrum kjörum á gos- stöðvunum í Gjástykki um helgina og þess sáust engin merki að gos mundi hefjast á nýjan leik. Eins og fram hefur komið í fréttum lauk gosinu aðfaranótt föstudags eftir að hafa staðið í viku- tíma. Landris mun nú svipað og eftir gosið í marz. -GAJ. Starfsmenn Álversins: Fjarlægðu klór- gaskútana Forráðamenn íslenzka Álfélagsins brugðu skjótt við á fimmtudag, er Dag- blaðið greindi frá því að óvarðir klór- gaskútar hefðu staðið þar árum saman. Kútar þeir sem úti stóðu voru þegar í 'stað fjarlægðir af starfsmönnum Álfé- lagsins. Hins vegar mun kútur, sá sem innan dyra stóð, enn vera á sínum stað. öryggismálastjóri lét þess getið I DB á föstudag, að þann kút þyrfti einnig að fjarlægja ef hann stæði þar ónotað- ur. Notkun klórgass var hætt í Álver- inu 1972 og aðeins einu sinni síðan hefur klórgas verið notað til þess að klóra álið. Það var að sérstakri beiðni kaupanda, en Sovétmenn keyptu það iDKKUDAGARtj 20. JULÍ 14330 Hljómplötur að eigin vali frá Fálkanum. 21. jtJLi 18905 Philips vekjaraklukka með útvarpi. Vinningshafar hringi ísíma 33622.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.