Dagblaðið - 31.07.1980, Page 1
I
I
I
6. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1980 - 172. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022.
1
Enn hugmyndir um nýtt f lugfélag Luxemborgara og Islendinga:
ÓLAFUR KOM í VEG FYR-
IR STÖÐVUN FUIGLEDA
Ólafur Jóhannesson, utanrikisráð-
herra, lagðist mjög gegn því, að Flug-
leiðir hf. yrði beitt stöðvun á flugi
vegna ógreiddra lendingargjalda á
Keflavíkurnugvelli, samkvæmt heim-
ildum sem DB telur áreiðanlegar.
Hefur fjármálaráðuneytið nú veitt
ótiltekinn frest á skilum þeirra.
Þegar þessi úrslit lágu fyrir, fóru
þeir Sigurður Helgason, forstjóri, og
Örn Ó. Johnson, stjórnarformaður,
til Luxemborgar til viðræðna við
flugmálayfirvöld þar um framtið At-
lantshafsflugsins, eins og DB skýrði
frá í gær.
Þrátt fyrir harðnandi fargjalda-
strið á þeirri flugleið, einkum á milli
ríkisflugfélaganna i Vestur-Evrópu
og bandarísku flugfélaganna, munu
Luxemborgarmenn hafa lýst áhuga
sínum á framhaldi Atlantshafsflugs
Flugleiða með lendingu í Luxemborg.
Auk þess sem þeir falla frá lending-
argjöldum, munu þeir gefa kost á
beinum fjárstuðningi með ákveðnum
skilyrðum. Þá mun ekki alveg horfið
frá hugmyndum um stofnun nýs flug-
félags með aðild íslendinga og
Luxemborgara.
Óstaðfest er, að auk ráðstafana til
að draga úr tapi á Atlantshafsflugi
Fjármálaráðu-
neytið hefurnú
veitt ótiltekinn
frestágreiðslu
lendingargjalda
Flugleiða hf., séu til alvarlegrar
endurskoðunar samningar félagsins
við íslenzkar ferðaskrifstofur um
leiguflugið. Er að vænta frekari
greinargerðar um sum þessara atriða
í tilkynningu sem Flugleiðir munu
senda frá sér á morgun.
-BS.
GEVAFj
I J
Rothögg
á Austur-
velli
Það kastaðist í kekki milli mann-
anna á einum bekknum á Austur-
veili í gærmorgun. Vegfarendur
vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið
er slagsmál hófust milli manna i
góða veðrinu sem lauk jafnskyndi-
lega og þau hófust, en með því
að einn lá rotaður í valnum.
Lögreglan kom á staðinn og
sjúkralið flutti hinn rotaða á brott.
Svo heyrðist að leita ætti að manni
með gítar og félaga hans til að
kanna upptök málsins. Þarna áttu i
hlut menn sem oft verma þessa
bekki og eitthvað mun Bakkus hafa
verið með i spilinu.
-ASt./DB-mynd R.Th.Sig.
Manns og bfls
leitað síðan
á sunnudag
Víðtækar eftirgrennslanir og leit að
Elíasi Kristjánssyni, f. 1934 og því 46
ára gömlum, hefur enn engan árangur
borið. Elías fór frá dóttur sinni i
Barmahlið í Reykjavík á sunnudaginn.
Talið er að hann hafi sézt á bíl sínum,
R-25258, á Vesturlandsvegi þá síðla
dags og var þá farþegi i bílnum með
honum. Síðan finnast engin spor,
hvorki bíls né manns.
Elías hefur verið sjúklingur í mörg
ár. Hafði hann á orði að fara á fund
Einars huglæknis Einarssonar á Einars-
stöðum. Af þeim sökum hefur leitin
beinzt einnig um Norðurland. Allt án
árangurs.
í dag verður kafað í Þorlákshöfn í
leit að bílnum, auk þess sem eftir-
grennslan er haldið áfram um allt land.
-A.St.
r'
Alagningarseðlar Reykvíkinga:
„Vonandi á morgun”
— segirskattstjóri
,,Ég vona að álagningarseðlarnir
verði sendir út á morgun,” sagði
Gestur Steinþórsson, skattstjóri
Reykjavíkur, er DB spurði hvenær
Reykvikingar mættu eiga von á álagn-
ingarseðlunum.
Þá eru einnig tilbúnir álagningarseðl-
ar í Reykjanesi og Norðurlandi eystra.
Álagningarseðlar í Vestmannaeyjum,
Vestfjörðum og Vesturlandsumdæmi
verða og tilbúnir upp úr mán-
aðamótum en útsending álagningar-
seðla fyrir Austurland, Norðurland
vestra og Suðurland dregst eitthvað
fram í ágústmánuð.
-GAJ.
FIESTA Á LUKKUDEGI
Stærsti vinningur lukkudagahapp-
drættisins verður dreginn út á morgun.
Er það hvorki meira né minna en bif-
reið af gerðinni Ford Fiesta, árgerð
1979. Slíkur bill er núna metinn á um 5
og hálfa milljón. Það er íþróttafélagið
Víkingur sem fyrir lukkudagahapp-
drættinu stendur og er einn vinningur
dreginn út á hverjum degi ársins.
-DS.
Vestmannaeyjar:
Þjóðhátíðin að fara í gang
— einstaklega gott veður
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum er
alveg um það bil að hefjast. Samkvæmt
venju verður í kvöld slegið upp fyrir-
þjóðhátíðarballi í samkomuhúsinu til
að hita menn upp. Fólk úr landi er þeg-
ar farið að koma til Eyja og fullbókað
er í bæði flug og ferju næstu daga.
Geysigott veður er i Eyjum eins og
reyndar víða. Upp úr miðnætti i nótt
sem leið byrjuðu menn að tjalda i
Herjólfsdal þar sem skreytt hefur verið
fagurlega. Þykjast menn sjá að haldist
veðrið muni straumurinn liggja til Eyja
og stemmning verða góð.
DS/FÓV Vestmannaeyjum.
Veðurstofan spáir góðviðri um mestallt land i dag þótt ótrúlegt sé að sól verði mikil. En hún á þó að ryðja geislum sinum
braut gegnum hitamistrið og gxgjast fram öðru hverju. Þær Herdis Óskarsdóttir, Valhildur Jónasdóttir, Eva Matthildur
Steingrímsdóttir, Erna Kettler og Anna Gunnarsdóttir, sem vinna í garðyrkju á vegum bæjarins, hafa eflaust prisað sig sælar
að vinna úti f gær, þegar hitinn innandyra ætlaði allt og alla að lama.
SA/DB-mynd Ragnar Th.
Verður hitametið slegið í dag?
„Það er spáð góðu veðri um mest-
allt Iand, austan átt og hlýindum,”
sagði Trausti Jónsson. veðurfræðingur
í samtali við DB í morgun. Á Aust-
fjörðum og Hornströndum verður þó
heldur svalara en annars staðar og er
búizt við þoku við Austurland.
Klukkan sex i morgun var 19 stiga
hiti í Reykjavík og var þar þá hlýjast á
landinu. Trausti kvaðst búast við þvi
að hitinn í dag yrði svipaður og í gær en
þá komst hann í 24 stig. „Við biðum
spenntir eftir því að sjá hvort hitametið
frá þvi í gær verður slegið,” sagði
Trausti.
Það er vel staðsett hæð við landið,
sem veldur þessum hlýindum, en hún
beinir hingað lofti frá Síberíu og
Rússlandi. Um áframhald á hlýindun-
um sagði Trausti að búazt mætti við
svipuðu veðri næstu daga. „Fyrir sunn-
an landið er skúrabakki frá Bretlandi
og þar er ívið kaldara loft, eða þetta
14—15 stig. Á sunnudag og mánudag
^gæti því tekið að kólna,” sagði Trausti
Jónsson veðurfræðingur.
-SA.