Dagblaðið - 19.08.1980, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1980.
e
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1980.
Óvíst hvort úrslHaleikur útimótsins getur farið f ram í kvöld:
Haukar kæra Axel
Axelsson hjá Fram
—telja hann hafa leikið ólöglegan fyrsta leikinn í mótinu
SAMBA —
OLYMPIA —ACCIL — UNIVERSAL
COMPETITION
Póstsendum
samdœgurs
félag innan sama héraðs. Miðast
biðtíminn við móttöku tilkynningar-
innar.” Það bendir því flest til þess að
Axel sé ólöglegur með Fram. Hver
jframvinda þessa máls verður er ekki
jgott að segja til um. Ljóst er að úrslita-
Jleikurinn kemur til með að tefjast veru-
lega ef Framarar verða dæmdir með
ólöglegt lið því strax á miðvikudag er
Austurbæjarskólinn upptekinn vegna
Ljóma-rallsins og aðfaranótt föstudags
halda Haukarnir í keppnisferð til Dan-
merkur.
íþróttafólk
athugið!
Við bjóöum
núna
uppá
Adidas
íþróttaskó
Eigum tilflest
nr. í þessum gerðum:
slenzku strákarnir, sem kepptu 1 Svíþjóð ásamt fararstjóranum og landsliðsein-
valdinum Kjartani L. Pálssyni. Frá vinstri: Björgvin, Sveinn, Hannes og Kjartan.
DB-mynd: Óskar Sæmundsson.
Svo kann hugsanlega að fara að það
verði eftir allt saman Haukar og KR en
ekki Fram og KR, sem leika til úrslita á
útimótinu i handknattleik. Haukar
hyggjast nefnilega kæra Axr.l Axelsson
þar sem þeir telja að ha.in hafi ekki
verið orðinn löglegur ev hann lék með
Frömurunum gegn Haukum á fyrsta
degi útimótsins.
Félagaskipti A-.els voru móttekin hjá
HSÍ þann 9. julí en leikur Fram og
Hauka fór fram þann 7. ágúst. Sam-
kvæmt reglum HSÍ verður leikmaður
að hafa vferið minnst einn mánuð í
félagi sínu áður en hann er gjaldgengur
i keppni 3. grein reglugerðar HSÍ um
haruknattleiksmót hljóðar þannig:
„Liðgengir i handknattleiksmóti eru
þeir einir, sem hafa verið í félagi því,
sem þeir keppa með í minnst einn
imánuð áður en mótið hefst (skv. leik-
reglum HSÍ) „Áfram segir svo:
„Tilkynning skal senda stjórn HSÍ ef
'leikmaður hyggst keppa með félagi í
öðru héraði en á sl. leikári, en viðkom-
andi handknattleiksráði ef skipt er um
Island varð ekki neðst!
—ítalir ráku lestina á SAAB-liöakeppninni í Svíþjóð um sl. helgi.
Óheppni elti Björgvin á röndum fyrri dag keppninnar
Furðulegt
sigurmark
— þegarÞróttur,
Neskaupstað sigraði
Ármann Í2. deild
Þróttur Neskaupstað sigraði Ár-
rnann í 2. deild 1—0 á Norðfirði á laug-
ardag. Leikurinn var frekar jafn — en
Þróttur fékk þó fleiri færi og var meira
með knöttinn. Á 20. mín. kom eina
mark leiksins. Þróttur fékk innkast og
knettinum var kastað inn i vítateiginn.
Þar var Sigurbergur Sigsteinsson, þjálf-
ari Þróttar fyrir, og skallaði knöttinn,
sem fór i varnarmann og hrökk þaðan
gegnum klof markvarðar Ármanns í
markið. Heldur slysalegt mark fyrir
Ármenninga.
Ármann fékk gott tækifæri til að
jafna, þegar Bryngeir Torfason komst i
opið færi en Ágúst Þorbergsson, mark-
vörður Þróttar, varði mjög vel frá
honum. Það var raunar eina tækifæri
Reykjavíkurliðsins í leiknum. Mikill
hiti var á Norðfirði, þegar leikurinn fór
fram og dró hann mjög úr getu leik-
imanna. vs.
Pétur Ormslev,
mark Fram.
bezti maður Fram í leiknum i gærkvöldi, leikur
á Kára Gunnlaugsson. Að baki þeim er Guðmundur Steinsson, sem skoraði sigur-
DB-mynd Einar Ólason.
Glæsimark Guðmundar
færði Fram bæði stigin
í fjörugum leik Fram og Kef lavíkur á Laugardalsvelli í gærkvöld
Glæsimark Guðmundar Steinssonar,
hins smávaxna framherja Fram, á 57
mín. færði Fram tvö dýrmæt stig í
keppninni um íslandsmeistaratitilinn
en gerði útlitið enn dekkra hjá Kefl-
víkingum i hinni miklu fallbaráttu i 1.
deildinni. Það var eina markið i leik
Fram og ÍBK á Laugardalsvelli í gær-
kvöld — í leik, sem oft var fjörugur en
Enn dökknar út-
litið hjá Þrótti
—tveir leikmenn f amir utan og tveir
lykilmenn til viðbótar illa meiddir
Brösulega hefur gengið hjá Þróttur-
um I 1. deildinni i sumar og hafa fasta-
menn undanfarinna ára á borð við Pál
Ólafsson og Halldór Arason ekki náð
fótfestu I liðinu undir stjóm hins skap-
mikla Ron Lewin. Eftir heimildum sem
DB telur áreiöanlegur hefur margoft
staðið til að senda Lewin heimleiðis en
aldrei orðið úr. Hafa Þróttarar nú
ákveðið að láta hann vera með liðið úl
keppnistimabilið þar sem ekki taki þvi
, að skipta um þjálfara er svo skammt er
eftir.
Halldór Arason er farinn af Iandi
brott og hefur tekið stefnuna á Svíþjóð
þar sem hann ætlar að reyna fyrir sér á
knattspyrnusviðinu. Þá hefur hinn
ungi og efnilegi Ólafur Magnússon
farið til Þýzkalands. Að auki eru tveir
af lykilmönnum liðsins, Harry Hill og
Þorvaldur í. Þorvaldsson, úr leik um
sinn. Lánleysi Þróttar virðist þvi algert
og það er kaldhæðni örlaganna að það
var samherji Þorvaldar sem sparkaði
óviljandi í hann í leiknum á Akranesi á
laugardag oggerði hann óvirkan. -SSv.
ekki alltaf að sama skapi vel leikinn.
Harka lika allt of mikil.
Guðmundur Steinsson fékk knöttinn
frá Pétri Ormslev eftir langt útspark
Guðmundar Baldurssonar markvarðar.
Lék upp að vítateignum og spyrnti á
markið. Hörkubogaskot, sem sveif yfir
hinn snjalla markvörð Keflvíkinga,
Þorstein Bjarnason. Þeir Guðmundur
og Þorsteinn háðu marga hildi í leikn-
um í gær og þetta var i eina skiptið,
sem Guðmundur bar sigurorð af mark-
verðinum. Þrívegis komst hann frír að
marki ÍBK en Þorsteinn bjargaði með
snilldarlegum úthlaupum og varði
skotin.
Keflvíkingar fengu sín gullnu tæki-
færi í leiknum en greinilegt að lánið
leikur ekki við liðið í fallbaráttunni.
Þannig stóð Ólafur Björnsson einn og
óvaldaður fyrir opnu Fram-markinu.
Dauðafrír innan markteigs og fékk
knöttinn eftir snjalla fyrirgjöf Ragnars
Margeirssonar. En Ólafur hitti knött-
inn illa — hann fór í stöng og út aftur.
Um miðjan siðari hálfleikinn voru þeir
Steinar Jóhannsson og Ólafur Júlíus-
son alveg fríir innan markteigs Fram,
þegar knötturinn kom til þeirra. En
þeim tókst að trufla hvorn annan og
koma knettinum framhjá stöng.
Það vantaði því ekki spennuna og
marktækifærin í leikinn. Eftir að Kári
Gunnlaugsson hafði næstum skorað
sjálfsmark hjá ÍBK, Guðmundur
LEIKNIR SKORAÐILOKSINS
ÚR ELLEFTU VÍTASPYRNUNNI
—iafntefli Leiknis og Hrafnkels 2-2 í 3. deild á Fáskrúðsfirði
Leiknir og Hrafnkell gerðu jafntefli
2—2 (0—0) í F-riðli 3. deildar á
Fáskrúðsfirði á laugardag. í fyrri hálf-
leiknum sótti I.eiknir i heild meira og
Ólafur Ólafsson átti hörkuskalla í þver-
slá. Auk þess var eitt tnark dæmt af
honum, þar sem linuvörður taldi að
knötturinn hefði áður fariö yfir enda-
mörk. Sverrir Guðjónsson átti tvö
hættuleg færi fyrir Hrafnkel i hálf-
leiknum — i annað skipti varði varnar-
maður með hendi á marklfnu eftir að
markvörður Leiknis var kominn úr
markinu. Ekkert dæmt og dómarinn
var ekki f aðstöðu til að sjá brotið.
Raunverulega hans einu mistök f leikn-
um.
Jafnræði var með liðunum framan
af siðari hálfleik en síðan náði Hrafn-
kell alveg yfirtökunum. Tvívegis varði
Jón Margeirsson, markvörður Leiknis,
snilldarlega — en honum tókst síðan
ekki að koma í veg fyrir, að Hrafnkell
skoraði tvívegis með þriggja mínútna
millibili. Fyrst Þorvidur Hreinsson,
0—1 — síðan Sverrir Guðjónsson 0—2.
Ekki leit þá vel út fyrir Leikni en þegar
líða tók á hálfleikinn fór að draga úr
leikmönnum Hrafnkels og Leiknis-
menn komu meira inn í myndina.
Ólafur Ólafsson minnkaði muninn í
1—2 og þegar fimm mínútur voru til
leiksioka var dæmd vitaspyrna á Hrafn
kel. Svo virtist sem enginn af leikmönn-
um Leiknis vildi taka vítið enda ekki
tekizt að skora úr tiu vítaspyrnum í
röð, sem hiýtur að vera heimsmet. En
svo tók Helgi lngason sig til og skoraði
örugglega úr vítaspyrnunni — rauf
vitamúrinn og jafnaði í 2—2. Sýndi
þarna mikið öryggi. Úrslitin voru sann-
gjörn. Leiknir sótti miklu meira loka-
kafla leiksins.
f annað skipti í sumar sendi Óli
Fossberg, umsjónarmaður fyrir
dómarafélagið á Austfjörðum, engan
dómara til Fáskrúðsfjarðar — og
fjórða sinn í sumar, sem Leiknir verður
fyrir slíku. Fyrst á Stöðvarfirði, síðan
Breiðadalsvík. Einn heimamanna,
Eiríkur Stefánsson, dæmdi og voru
leikmenn beggja liða ánægðir með
frammistöðu hans.
-VS.
Torfason skotið framhjá opnu marki
ÍBK) fóru Keflvíkingar að sýna tenn-
jurnar og voru betra liðið í fyrri hálf-
leiknum mest vegna snjalls leiks
Ragnars. Varnarmenn Fram áttu í
miklum erfiðleikum með hann. Um
miðjan hálfieikinn komst Ómar
Ingvarsson í opið færi fyrir miðju
marki Fram. Spyrnti knettinum beint á
markvörðinn — hinum megin bjargaði
Steini markvörður með úthlaupi, þegar
Guðmundur Steinsson komst í fyrsta
skipti frir i gegn. Þá stóð Ólafur fyrir
opnu Fram-markinu en allt kom fyrir
ekki. Ekkert mark var skorað í fyrri
hálfleiknum.
í siðari hálfleiknum var Fram-liðið
hins vegar betra og varnarmenn ÍBK
áttu þá í miklum erfiðleikum með
Pétur Ormslev, sem hvað eftir annað
gerði þeim lífið leitt með snilldarleik.
Guðmundur skoraði sitt glæsimark á
57 min. — komst rétt á eftir — greini-
lega rangstæður — frír að marki ÍBK
en Þorsteinn varði og rétt á eftir var
Guðmundur bókaður. Knötturinn gekk
markanna á milli — Steini varði vel frá
Pétri, síðan klúðruðu leikreyndustu
leikmenn ÍBK, Steinar og Ólafur,
hreint furðulega og Hilmar Hjálmars-
son átti skot ofan á þverslá Fram-
marksins. Lokakafla leiksins lögðu
Framarar áherzlu á varnarleikinn —
héldu fengnum hlut nokkuð örugglega.
Pétur, Marteinn, Simon og Hafþór
ásamt Guðmundi markverði voru beztu
menn Fram í gær. Trausti Haraldsson
lék ekki — er í leikbanni. Hjá ÍBK var
Ragnar mjög sterkur miðherji, Þor-
steinn frábær markvörður, litlu bak-
verðirnir Guðjón og Óskar snjallir, og
Kári allsterkur miðvörður. Barátta
leikmanna mikil en uppskeran engin og
fallbaráttan þrúgandi. Staðan í mótinu
er nú þannig.
Valur 14 9 2 3 34—12 20
Víkingur 14 6 6 2 20—14 18
Fram 14 8 2 4 16—18 18
Akranes 14 6 4 4 22—16 16
Breiðablik 14 6 1 7 22—19 13
KR 14 5 3 6 14—20 13
ÍBV 13 4 3 5 19—23 n\
ÍBK 14 3 5 6 13—19 n
FH 14 4 3 7 19—29 n
Þróttur 13 2 3 8 8—17 7
15. umferð verður um næstu helgi.
KR-Akranes, FH-Breiðblik og ÍBK-
ÍBV á laugardag. Víkingur-Fram á
sunnudag og Valur-Þróttur á mánu-
dag.
-hslm.
Bild am Sonntag spáir
Dortmund áttunda sæti
Borussia Dortmund er sterkara lið en
áður með tvo nýja leikmenn i fremstu
viglínu, Abi og Atli, þeir eiga að skora
mörkin skrifaði Bild am Sonntag
nýlega. Spáði Borussia Dortmund, lið-
inu, sem Atli Eðvaldsson leikur með,
áttunda sæti i hinni hörðu keppni
Bundeslígunnar, sterkustu knatt-
spyrnudeildar i heiminum.
Borussia hefur fengið til liðs við sig
þrjá nýja leikmenn í sumar, Atla
Eðvaldsson, Rúdiger Abramczik frá
Schalke 04,0 og framvörðinn Rudolf
Wabra frá SV Unterreichenbach.
Fjórir landsliðsmenn eru í Borussia-
liðinu, Atli, sem leikið hefur 23 lands-
leiki með íslenzka landsliðinu, Abram-
czik, sem leikið hefur 19 landsleiki fyrir
Vestur-Þýzkaland, Manfred Burgs-
múller, með þrjá landsleiki og Mirko
Votava með tvo landsleiki. Þeir eru
báðir framverðir.
Tuttugu leikmenn skipta aðalhóp
leikmanna Borussia og það vekur at-
hygli að allir hafa komið frá öðrum
liðum.
Markverðir eru Eike Immel, tví-
tugur, sem kom til Borussia frá Ein-
tracht Allendorf 1975, og Horst
Bertram, 32 ára. Hefur verið níu ár
aðalmarkvörður Borussia. Kom frá
Kicker Offenbach 1971. 1 vörninni eru
Lothar Huber, áður Kaiserlautern.
Hefur verið sex ár hjá Borussia. Mein-
olf Koch. 23ja ára, sem í fyrra kom til
liðsins frá Lippstadt. Joachim Wagner,
25 ára frá Schalke (1974), Norbert
Dörman 22ja ára. Keyptur frá Schalke í
fyrra. Herbert Hein 26 ára. Kom frá
FC Köln 1978. Armand Theis, 31 árs
frá Kicker Offenbach 1977 og Horst
Freund, tvítugur. Kom frá TuS Rahm
fyrir fjórum árum.
Framverðir eru Manfred Burgsmúll-
er, áður Bayer Uerdingen, 1976, Paul
Holz, kom frá Bochum í fyrra, Rudolf
Wabra, keyptur í ár, Thero Schneider.
Kom frá GW Selm fyrir fimm árum.
Mirko Votava, sem kom frá Witten
1973, og Werner Schneider. Áður Duis-
burg, 1977.
í framlínunni eru auk Atla og Abi
þeir Erda Keser, SSV Hagen 1977, 19
ára, Ralf Augustin, tvítugur frá TuS
Wandhofen, og Peter Geyer, 28 ára frá
Tesse Berlin, 1975.
Leikvöllur Borussia Dortmund,
Westfalen-Stadion, rúmar 53.872
áhorfendur. Þar af sæti 16.302. Miðar
eru dýrir. Stæði 10 mörk — sæti 20—
30 mörk. Barnamiðar 4 mörk. Þjálfari
Borussia Dortmund er einn kunnasti
þjálfarinn í Vestur-Þýzkalandi, Udo
Lattek.
íslenzka sveitin, sem tók þátt i
Swedish Inlernational Matchplay
keppninni um sl. helgi hafnaði ekki í
neðsta sæti eins og fram hefur komið
áður heldur i því næstneðsta og þar er
nokkur munur á. Það voru ítalir, sem
ráku lestina. Árangur íslendinganna
var ekki eins góður og vænzt hafði
verið en með eðlilegri spilamennsku
hefði sveitin átt að fá 10—12 högga
lægra skor. Það var einkum slæmur
dagur Björgvins Þorsteinssonar fyrri
dag liðakeppninnar, sem gerði strik í
rcikninginn.
Bókstaflega ekkert gekk upp hjá
honum. Hann hafnaði utan brautar
nokkrum sinnum og í eitt skiptið var
hann t.d. svo óheppinn að lenda ofan i
sandgryfju. Það er út af fyrir sig ekkert
tiltökumál en næsta skot sendi boltann
beint ofan i vatnstorfæru. „One of
these days” eins og Bretinn orðar það.
Hannes Eyvindsson lék bezt fyrri
daginn og kom inn á 75 höggum.
Sveinn Sigurbergsson lék þá á 82 högg-
um en Björgvin á 86. Fyrsta daginn lék
Jan Rube, sem er bezti kylfingur Svía
um þessar mundir og vann reyndar
þessa keppni, á 75 höggum en bætti unt
betur síðar.
Hannes lék siðari daginn á 81 höggi
en Björgvin lék þá á 74 höggum — eins
og herforingi. Sveinn lék á 80 höggum.
Samanlagt skor var því: Hannes 156,
Björgvin 160 og Sveinn 162. Fimmtíu
beztu af þeim 164 er tóku þátt I keppn-
inni komust áfram og var Hannes ekki
nema hársbreidd frá því að komast í
þann hóp. Þeir síðustu í 50 manna
hópnum voru á 154 höggum. Jan Rube
vann að lokum þessa keppni, sem var
reyndar tvö mót skellt saman í eitt.
Liðakeppnin var á vegum SAAB en
einstaklingakeppnin heitir Swedish
International Matchplay. Rube lék síð-
asta daginn á 66 höggum og setti nýtt
glæsilegt vallarmet. Lokaskor hans var
288 högg eða sama og par vallarins.
SSS er hins vegar 73. Svíar áttu fimm
efstu menn í einstaklingskeppninni en
næstur kom svo Skoti að nafni Gordon
Brandt.
Það voru Skotar sem unnu liða-
keppnina. Þeirra menn léku á 446
höggum. A-sveit Svía hafnaði í öðru
sætinu á 453 höggum og Austurríkis-
menn komu verulega á óvart og hirtu
þriðja sætið á 459 höggum. B-lið Svía
kom næst á 460 höggum, þá Banda-
ríkjamenn á 461 höggi, Norðmenn á
462, V-Þjóðverjar á 463, Svisslend-
ingar á 466, Finnar á 473, Danir á 477,
íslendingar á 478 og ítalir á482.
Þrátt fyrir að næstneðsta sætið hafi
orðið hlutskipti íslands í keppni þessari
var liðinu boðið að vera með í keppn-
inni næsta ár og er það mikill fengur
fyrir Golfsambandið.
Kjartan L. Pálsson landsliðseinvald-
ur í golfi tjáði Dagblaðinu í gærkvöld
að líkur bentu til þess að landsliðs-
hópur yrði valinn í haust og myndu þá
fara fram æfingar i allan vetur. Kjartan
fékk æfingaprógrömm þau er bæði
landslið Svía og Dana æfa eftir og mun
hann sjóða saman úr þeim prógramm
fyrir íslenzka landsliðið. Evrópu-
meistaramótið verður haldið á St.
Andrews næsta ár í júlí og þá er um að
gera að vera kominn I góða æfingu því
ekki dugar annað á þessu höfuðbóli
golf íþróttarinnar.
Að keppninni lokinni í Svíþjóð var
haidin keppni í teighöggum og vann
Bandaríkjamaðurinn Dave Dávies
hana með höggi upp á litla 303 metra,
itakk fyrir. Hannes hitti aldrei á braut-
ina en Björgvin sló á bilinu 250—260
metra. -SSvJ:
MENNEA A 19,96!
ítalski sprctthlauparinn Pietro Mennea sannaði enn einu sinni að hann er konungur
200 metra hlaupsins. Á móti f Barletto á Ítalfu hljóp hann vegalcngdina á 19.96 sek.
— hreint ótrúlegur tfmi og bezti tfmi, sem nokkru sinni hefur náðst á láglandsbraut.
Barletto er sjávarborg. Mennea varð olympiumeistari á leikunum f Moskvu á dögun-
um f 200 m hlaupi. Hann á heimsmetið 19.72 sek. sett f þunna loftinu i Mexfkó-borg I
fyrrasumar. Myndin að ofan var tekin, þegar Mennea sigraði f Moskvu i sumar.
BjömBorgvarðað
hætta í úrslitum
— Meiðsli á hné komu í veg fyrir að
sænski tennisleikarinn yrði
kanadískur meistari
Sænski tennisleikarinn snjalli, Björn Borg, varð
að hætta keppni vegna meiðsla i úrslitaleik kana-
diska meistaramótsins sl. sunnudag i Toronto. Borg
hafði unnið léttilega leiki sína i undankeppninni á
mótinu þó hann hefði meitt sig í hné á æfingu fyrra
mánudag. í úrslitum lék hann við Ivan Lendl frá
Tékkóslóvaklu, sem mjög óvænt hafði komizt í úr-
slitaleikinn á móti Birni.
Allt fór samkvæmt bókinni i fyrstu lotunni hjá
þeim í úrslitaleiknum, Björg Borg sigraði 6-4 — en i
næstu lotu gekk ekki eins vel. Meiðslin i hnénu tóku
sig upp og þegar staðan var 5—4 fyrir Tékkann
sagðist Björn verða að hætta leiknum. Verkurinn í
hnénu væri orðinn óþolandi. Tékkinn var því sigur-
vegari — kanadískur meistari.
Eftir keppnina sagðist Björn ekki vita hvað að
honum væri í hnénu eða hvort þetta væri alvarlegt.
Opna bandariska meistaramótið hefst í næstu viku
og i gær töldu læknar ekki vist, að Björn gæti lekið
þátt i þvi. Það er eina meiriháttar tennismótið i
heiminum, sem Bjöm hefur ekki sigrað i. Hefur oft
keppt á þvi en ekki haft lánið með sér og meiðsli sett
strik í reikninginn. Björn sagði að hann mundi alveg
hvíla sig næstu dagana til að reyna að koma hnénu í
iag fyrir bandaríska meistaramótið.
„Ég fann strax fyrir meiðslunum i fyrstu lotunni
gegn Lendl og eftir þvi, sem á leikinn leið fann ég
mjög fil. Það var ekki annað að gera en hætla. Ég
vildi að ég gæti tekið lengra fri fyrir bandaríska
mótið en ég verð að halda mér i æfingu fyrir það,”
sagði Björn og bætti þvi við að ef hann hefði orðið
fyrir slikum meiðslum i úrslitaleik bandariska móts-
ins hefði hann tekið inn kvalastillandi lyf. Ekkt
hælt. Þetta er fyrsti tapleikur Björns Borg frá því í
átta-manna úrslitum bandaríska mótsins fyrir ári.
Þá tapaði hann fyrir Tocoe Tanner, USA. Fyrir
tapið nú hafði Björn niu mótssigra að baki frá tap-
leiknum við Tanner, m.a. fimmta Wimbledon-sigur-
inn.
Liam Brady skoraði
bæði mörk Juventus
írski landsliðsmaðurinn kunni i knattspyrnunni,
I.ium Brady, sem fór frá Arsenal i sumar til Juventus
á ítaliu, lék með sínu nýja félagi æfingaleik á sunnu-
dag við lið úr 2. deild á ítaliu. Brady byrjaði vel hjá
sínu nýja félagi því hann skoraði bæði mörk liðsins í
2—1 sigri.
Nokkrir leikir voru háðir i ensku knattspvrnunni í
gær og urðu úrslit þessi:
3. deild
Brentford—Millwall 1—0
4. deild
Mansficld—York 0—1
Southend—Port Vale 5—1
T ranntere—Crewe 0—1
Fjölmargir leikir verða i kvöld, meðal annars sex i
1. deildinni. Leikurinn, sem mest verður í sviðsljós-
inu verður i Lundúnum, þar sem Arsenal fær Dýrl-
ingana frá Southampton í heimsókn með Kevin
Keegan i broddi fylkingar. Þá leikur Liverpool í
Coventry, Man. Utd. í Wolverhampton og Lund-
únaliðin Crystal Palace og Tottenham leika á Sel-
hurst Park i Suður-Lundúnum, leikvelli Palace. Ips-
wich fær Brighton i heimsókn, Everton Leicester og
Middlesbrough Leeds.
Araold Palmer sigur-
vegari í PGA-golf-
mótinu í Edmonton
Arnold Palmer, frægasti og bezti golfleikari
Bandarikjanna um langt árabil, gerði sér lítið fyrir
um helgina og sigraði á kanadíska PGA-mótinu. Éitt
mesta golfmótið, sem háð er i Kanada og meðal
keppenda voru ýmsir af beztu golfmönnum heims.
Palmer, sem nú er 51 árs, byrjaði mjé„ vel í
keppninni og var meðal forustumanna allan timann.
Lék 18 holurnar á 71 höggi á sunnudag og tryggði
sér sigur. Hann var einu höggi á undan japanska
golfleikaranum kunna Ooki og tveimur höggum á
undan Gary Player, Suður-Afríku, sem lengi hefur
verið f hópi beztu golfmanna heims eins og Palmer.
Þetta er fyrsti mótssigur Arnold Palmer i fimm ár
og honum var fagnað mjög eftir sígurinn.Þúsundir
fylgdu honum eftir siðasta keppnisdaginn og þegar
hann kom á síðasta grfnM var fögnuður áhorfenda
gifurlegur. Keppnin var háð i Edmonton.