Dagblaðið - 17.10.1980, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17.QKTÓBER 1980.
ÐAsnamíAlsír:
BARIZT UM ÞYFH)
f RÚSTUNUM
Alsírskur hermaður særðist lífs-
hættulega í gær þegar hann reyndi að
koma í veg fyrir að ræningjar næðu
miklu magni peninga úr rústum
banka eins i E1 Asnam í Alsír. Borgin
er í rústum eftir mikla jarðskjálfta
þar á föstudaginn og síðan aftur á
mánudaginn.
Ræningjarnir lögðu á flótta án
peninganna eftir að þeir höfðu skotið
að hermanninum með vélbyssu.
Hæfðu hann fjögur skot.
Mikið virðist oröið um rán og grip-
deildir í E1 Asnam og til dæmis á
miðvikudaginn voru þrír þjófar
skotnir til bana þegar komið var að
þeim við iðju sína. Frásagnir af þessu
bárust til fréttamanna frá starfs-
mönnum hjálparstofnana, en alsírsk
yfirvöld hafa tekið fram að allar
fregnir um þjófnaði á jarðskjálfta-
svæðinu séu óstaðfestar.
í gær var tilkynnt að ný lög væru
gengin i gildi í Alsír þar sem kveðið
væri á um að allt að tuttugu ára
fangelsi væri við því að stela af birgð-
um matar og hjálpargagna sem send
væru til landsvæðanna sem harðast
urðu úti í jarðskjálftunum. Ef um
mjög alvarleg brot er að ræða má
dómurinn vera þyngri. Lögreglan í E1
Asnam sagði að nokkrir menn hefðu
verið handteknir og sætu nú inni fyrir
þjófnaði. Talsmenn hennar hafa þó
neitað því að nokkur hafi verið skot-
inn vegna þessa. Hins vegar hefði
orðrómi þess efnis verið komið af
stað til að koma í veg fyrir að menn
legðu í að ræna úr rústum húsa.
í gær og í nótt rigndi á skjálfta-
svæðunum og jók það enn á eymd
íbúanna sem flestir eru nú húsnæðis-
lausir. Hjálparsveitir, sem meðal
annars eru með tjöld, hafa komið
fólkinu til hjálpar. Þegar eru fundin
sex þúsund lík og ljóst er að miklu
fleiri eru grafin undir rústunum.
Vietnamskir
flóttamenn
fáhæli
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa ákveðið
að veita nítján vietnömskum flótta-
mönnum hæli í landinu. Komu þeir
með belgísku olíuskipi en áhöfn þess
bjargaði þeim á Suður-Kínahafi.
SÍBS
Vinningur í merkjahappdrœtti Berklavarnadags
1980 kom á nr.
20472
Eigandi merkis með þessu númeri framvísi því í
skrifstofu SÍBS í Suðurgötu 10.
Þrátt fyrir að lýöræðislegir stjórnar-
hættir hafi verið teknir upp á Spáni
lifir fasistahreyfing þar góðu lifi,
Myndin að ofan er af fundi ungliða i
fasistahreyfingunni í Madrid, en hún
var tekin á útifundi samtakanna.
Ástralía:
STÍÓRNAR-
ANDSTÖDUNNI
SPÁÐ SIGRI
Alls hafa þrjár skoðanakannanir
spáð Verkamannaflokknum i Ástralíu
sigri í kosningunum sem verða þar í
landi á morgun. Þykir flest benda til
þess að flokkurinn, sem nú er í stjórn-
arandstöðu, muni fá meirihluta á þingi
landsins.
Stjórnarflokkurinn, Frjálslyndi
þjóðarflokkurinn, verður þó engan
veginn talinn frá þar sem Gallup-könn-
un á vegum dagblaðs eins í Sydney
bendir til að mjög mjótt verði á
munum, en stjórnarflokkurinn muni
þó hanga naumlega við völd.
Síðasta könnun gerir ráð fyrir því að
Verkamannaflokkurinn fái rúmlega
54% atkvæða en Frjálslyndi þjóðar-
flokkurinn fá tæplega 46%. Færi svo
mundi meirihluti ríkisstjórnar Frasers
forsætisráðherra, sem nú er upp á 48
þingsæti, breytast í fjörutíu þingsæta
minnihluta.
Þeir sem birtu úrslit skoðana-
könnunarinnar hafa alla fyrirvara á en
taka þó fram að ekki sé ástæða til
annars en halda því fram að sigur
Verkamannaflokksins sé í höfn.
Erlendar
fréttir
Afganistan:
HAGAMELUR
Stórglæsileg 150 fermetra neðri sérhæð, allt sér, all-
ar innréttingar í sérflokki. Upplýsingar á skrifstof-
unni í síma 26600.
Fasteignaþjónustan
Sími26600
Karmal ræðir við
Brésnef f Moskvu
Eftirtaldar stöður
við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur eru lausar til
umsóknar:
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRA
við barnadeild. Heilsiíverndarnám áskilið.
HJÚKRUNARFRÆÐINGS
við húð- og kynsjúkdómadeild.
Hálft starf.
UÓSMÓÐUR
við mæðradeild. Hálft starf.
Skriflegar umsóknir berist hjúkrunarforstjóra
eigi síðar en 3. nóvember nk.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur.
Karmal forseti Afganistan er kominn
til Moskvu og ræddi í gærkvöldi við
Brésnef forseta Sovétríkjanna. Er þetta
fyrsti fundur þeirra síðan Karmal
komst til valda með byltingu í desem-
ber síðastliðnum. Mun hann hafa
óskað eftir þvi við Brésnef að stuðn-
ingur og aðstoð við stjórn hans yrðu
aukin.
Sagt er að Brésnef hafi haft góð orð
um að auka hernaðaraðstoð við stjórn
Karmals í ræðu sem hann hélt í kvöld-
verðarboði í gær. Sagði hann að
Moskvustjórnin mundi hafa vakandi
auga með hagsmunum beggja ríkjanna
og uppfylla þær alþjóðlegu skyldur
sem þeim bæri. Fyrir tæpu ári sendu
Sovétmenn herlið inn í Afganistan og á
það nú í hörðum bardögum við afg-
anska skæruliða.
Orð Brésnefs þykja benda til að ekki
séu uppi neinar ráðagerðir um að kalla
sovézka herliðið á brott frá Afganistan.
Þar eru taldir vera um það bil 85 þús-
und hermenn. Er það raunar talin vera
ein ástæðan fyrir því að Karmal og
stjórn hans hangir enn við völd. Sovét-
menn réttlæta dvöl herliðs síns í Afgan-
istan með friðar- og vináttusamningi
milli landanna sem er frá árinu 1978.
Marxistar gerðu byltingu í Afganistan í
apríl það ár.
Orðrómur um samn-
inga um gíslana
— Carter segist vilja ræða við Rajai, forsætisráðherra írans
Orðrómur um að viðræður séu
hafnar milli fulltrúa stjórnarinnar í
íran og stjórnarinnar í Washington
um að leysa gíslana í bandaríska
sendiráðinu úr haldi fer nú fjöllun-
um hærra vestra. Talsmenn Carters
Bandarikjaforseta þræta þó fyrir að
nokkur fótur sé fyrir þessu.
Carter forseti tók þó fram í gær að
hann væri reiðubúinn til að tala við
Raji forsætisráðherra írans en hann
kemur til New York á morgun til að
halda ræðu á fundi í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna vegna
styrjaldarinnar á milli írans og íraks.
í gær sagði hann þó að ekki væri í
augsýn nein lausn sem orðið gæti til
þess að frelsa gíslana. í byrjun næsta
mánaðar verða þeir búnir að vera i
eitt ár í prísundinni.
Allar helztu fréttastofur vestra
fluttu þessa frétt og flestar þeirra
fullyrtu að veruleg hreyfing væri á
málinu.
Warren Christopher, aðstoðarut-
anrikisráðherra Bandaríkjanna, var í
New York í gær og ræddi við Kurt
Waldheim umgíslamálið. Aðspurður
sagðist hann ekki hafa uppi neinar
ráðagerðir um að hitta Raji forsætis-
ráðherra írans þegar hann kæmi til
borgarinnar. Hann sagði að Banda-
ríkin mundu halda fast við hlutleysi
sitt í styrjöld írans og íraks. Ef
bandarísku gíslarnir yrðu leystir úr
haldi sagði ráðherrann að ekki væri
útilokað að íransstjórn fengi keypta
varahluti fyrir herliðsitt.