Dagblaðið - 17.10.1980, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1980.
31
fl
Útvarp
Sjónvarp
D
ANDREIROUBLEV, - sjónvarp í kvðld kl. 22,30:
SNILLIGÁFAN ERFIÐ VIÐUREIGNAR
„Þetta er ekki venjuleg saga þar sem
„plottið” skiptir aðalmáli. Þvi getur
fólk fengið mikið út úr því aö sjá seinni
hlutann þó það hafl ekki séð þann
fyrri,” sagði Jón Gunnarsson þýðandi
um myndina Andrei Roublev. Fyrri
hluti þeirrar myndar var sýndur á
mánudagskvöldið og sá síðari veröur
sýndur í kvöld.
Myndin er að sögn Jóns öll svarthvít
nema síðasti hlutinn sem er i litum.
Reynt er aö bregöa upp myndum af þvi
sem hugsanlega hafi boriö fyrir augu
Andrei Roublev. Lítið sem ekkert er
vitað um þann mann núna nema það að
hann var munkur sem málaði ákaflega
H
Andrei Roublev var einn helzti helgi-
myndamálari Rússa á 15. öld, en hér að
ofan eru tvær helglmyndir mjög eln-
kennandi fyrir hinn rússneska stil sem
Roublev gerði vlnsælan. Kristur og
Maria mey eru stifar, virðulegar verur,
tákn hins óbreytilega kristindóms, og
það er i gegnum þessar myndir sem al-
múginn komst i tengsi við himnariki.
fallegar helgimyndir.En bakgrunnur-
inn er löngu týndur og tröUum gefinn.
Kvikmyndin er gerð fyrir breiðtjald
en vegna þess að myndin sjálf er aðal
listaverkið er hver ramminn látinn sjást
alveg á sjónvarpsskjánum þó það kosti
gráa rönd bæði fyrir ofan og neðan
myndina.
Roublev er látinn eiga ákaflega erfitt
með að beita sniUigáfu sinni. Fyrri
þættinum lauk þar sem hann stendur i
kirkju sem honum er falið að mála, en
hann getur hreinlega ekki hafizt handa
og er mjög miður sfn. Margt af þvi sem
hendir hann er ákafiega óhugnanlegt
og myndin er öll í mjög sterkum litum.
- DS
Erlendi hlutinn mun m.a. fjalla um þær breytingar sem striöið hefur haft á innanlandsástandið I rikjunum.
‘tjá j
R i-
FRÉTTASPEGILL—sjónvarp kl. 21,15:
Hvaða áhrif hef ur tölvuvæð
ingin á atvinnuöryggi?
í FréttaspegU í kvöld verða þrjú
mál á dagskrá, tvö innlend og eitt er-
lent.
Fjallað verður um áhrif tölvu-
væðingar á íslenzkt atvinnulíf.
Verður farið á vinnustaði og rætt við
fólk um tölvuvæðinguna, sérstaklega
með tiUiti til atvinnuöryggis.
TUefnið er að sjálfsögðu
prentaradeilan en starfsfólk í prent-
iðnaði óttast nú mjög um atvinnu-
öryggi sitt vegna tilkomu nýrrar
tækni við blaðaútgáfu.
Reynt verður að meta hvaða áhrif
tölvuvæðingin muni hafa á atvinnulíf
hér á landi næstu árin.
Erlendi hluti Fréttaspegils verður
um átök írana og íraka. Farið verður
yfir gang stríðsins, reynt að grafast
fyrU um orsakir hernaðarins, afstaða
annarra ríkja til deiluaðila verður
könnuð og þær breytingar sem
stríðið hefur haft á innanlandsástand
i íran og trak.
Að lokum verður fjallað um deilu
Hagkaups við bókaútgefendur.
Oliver Steinn, formaður Félags
íslenzkra bókaútgefanda, mætir tíl
viðtals ásamt fulltrúa frá Hagkaupi.
Fundur í Félagi islenzkra bókaút-
gefenda felldi með 50 atkvæðum
gegn 40 beiðni Hagkaups um leyfi til
að selja bækur í verzluninni. Hag-
kaup hefur kært málið. Ætla þeir að
láta reyna á það fyrir dómstólum
hvort einokun í bóksölu standist
gagnvart lögum.
Umsjónarmaður innlenda hluta
Fréttaspegilsins verður Guðjón
Einarsson en erlenda hlutann annast.
Bogi Ágústsson. -KMU
Tölvurnar eru þegar orðnar mjög algengar I islenzkum fyrirtækjum.
HETJUR Á DAUÐASTUND, - útvarp f kvöld kl. 22,35:
Endurminningar f angaprestsins
„Þetta eru endurminningar prests
sem var fangelsisprestur í Akershus
fangabúðunum í Osló á stríðsárun-
um,” sagði Ástráður Sigursteindórs-
son um nýja kvöldsögu, Hetjur á
dauðastund, sem hann byrjar að lesa
i útvarpinu í kvöld. Ástráður er
skólastjóri við Réttarholtsskólann í
Reykjavík. Hann þýddi sjálfur sög-
una.
„Þetta er stutt saga, líklega ekki
nema átta lestrar og er lýsing á þeim
fðngum sem presturinn á að þjóna.
Það eru menn sem dæmdir hafa verið
til dauða af nasistum og eru að fá sitt
síðasta sakramenti. Lýsingin á þess-
um mönnum er mjög áhrifamikil.
Höfundurinn, Dagfinn Hauge, var
ungur maður þegar sagan gerist en er
núna biskup í Noregi,” sagöi Ást-
ráður.
- DS
Ástráður Sigursteindórsson skóla-
stjóri.
DB-mynd Gunnar örn.
LAUST STARF
Starf eftirlitsmanns viö Skiloröseftirlit rikisins er laust til
umsóknar.
Starfssvið: Eftirlit meö ungu fólki sem hlotið hefur skil-
orðsbundna ákærufrestun, svo og eftirlit með þeim, sem
hlotið hafa skilorðsbundna reynslulausn úr fangelsi.
Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið prófi frá háskóla í
félagsráðgjöf, uppeldisfræði eða félagsfræði eða prófi frá
kennaraháskóla.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist ráðuneytinu fyrir 1. nóvember nk.
Dóms- og kirkjumólaróðuneytið,
16. október 1980.
AUGLÝSING
eftir framboðslistum
Ákveöið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör fulltrúa
á 14. þing Landssambands vörubifreiðastjóra. Kjósa skal 5 fuiltrúa og 5 til vara. Framboóslistum skal skila á skrifstofu Vörubilstjórafélagsins Þróttar. Framboðsfrestur er til kl. 16.00 mánu- daginn 20. okt. nk. Hverjum lista skulu fylgja meðmæli minnst 21 félags-
manns. Kjörstjórnin
Fóiagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund að Hótel Sögu
Súlnasal laugardaginn 18.
október kl. 2 e.h.
Fundarefni: Kjaramálin, verkfallsaðgerðir.
Verzlunarmannafélag Reykajvlkur.
BASAR
Kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík
verður að Hallveigarstöðum á morgun, laugardag 18. októ-
berkl. 2.
Á basarnum verða m.a.:
Fallegir jólamunir, fatnaður, kökur, happdrætti o.fl.
Basarnefndin
—VÉLAVERKSTÆÐI—
Egils Vilhjálmssonar H/F
SMjÐJUVEGI 9 A - KÓP. - SÍMI44445
• Endurbyggjum vélar
• Borum blokkir
• Plönum blokkir og head cíiyil
• Málmfyllum sveifarása, tjakköxla OIIVII
og aðra slitfleti m/ryðfrfu harðstáli MAAR
• Rerinum ventla og ventilsæti. wwo
• Slipum sveifarása.
FULLKOMIO MÓTOR OG RENNIVERKSTÆÐI